Morgunblaðið - 31.10.1975, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 31.10.1975, Blaðsíða 21
21 Guðrún Erlendsdðttir formaður rfkisskipuðu kvennaársnefndarinnar var fundarstjóri Kvenna- slagur Tileinkað Kvenréttindafélagi Islands Islands konur, hefjizt handa! heimtið yðar rétt! Efst til fjalla, fremst til stranda, fylkið yður saman þétt! Fram, f trú að fullum sigri, fegri, betri tfð! Sigurstál f viljans vigri vinna látið frelsisstrfð! Verið mæður vona nýrra! verið aldar ljös! Gerið landið hlýrra, hlýrra, hrjósturkvist að blómgri rós! Greiðið veginn sumri’ og sólu, söng og kærleiksyl, — hverjum ilmreyr, hverri fjólu hjálpið þér að vera til! Norrænt blóð og norræn tunga, norrænt þrek f raun skal þér, dóttir lslands unga, ennþá vinna sigurlaun! — Islands konur! hefjizt handa! hcimtið yðar rétt! Efst til fjalla, fremst til stranda fylkið yður saman þétt! —. Guðmundur Guðmundsson I um „Kvennafrí 24. okt.“ | | hefur áhuga á að eignast i . myndir af viðburðum : dagsins sem vfðast að af I | landinu. Þeir, sem eiga | | myndir og viljaiáta þær, eru vinsamlegast beðnir J I að hafa samband við | Ernu Ragnarsdóttur, | Garðastræti 17, f síma 16577. I____________________________I MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. OKTÖBER 1975 Alþingismannahvatning Svava: Fundarmenn, Það er bezt að segja strax alveg eins og er — við erum komnar hingað upp á pall- inn fyrst og fremst til að sýna ykkur, hvað við, kjörn- ar konur á Alþingi, erum fáar. Sigurlaug: Já, við tvær erum % af þingliði íslenzkra kvenna. Hinn þriðji hlutinn, Ragnhildur Helgadóttir, varð að vera erlendis í dag í sambandi við hina norrænu kvennasögusýningu í tilefni kvennaárs. Sem sagt — ef ein okkar er fjarverandi, — þá er einn þriðji horfinn. Svava: A kjörskrá í kosning- unum 1974 voru karlar 63321 talsins. Þeir hafa 57 fulltrúa á þingi — eða 95 af hundraði alls þingliðs. Sigurlaug: En konur á kjör- skrá voru nær jafnmargar — eða 63067, en þær hafa þrjá kjörna fulltrúa á þingi — eða 5 af hundraði. Svava: Á þeim 60 árum sem liðin eru síðan konur hlutu kosningarétt og kjörgengi hafa aðeins 9 kon- ur setið á Alþingi sem kjörnir fulltrúar. A sama timabili hafa kjörnir karlar á Alþingi verið 257. Hlutfallið i æðstu valda- stofnun þjóðarinnar á því tfma- bili er þá ein kona á móti 28'A karlmanni. Hlutföllin í öðrum valda- og stjórnunarstofnunum þjóðarinnar eru sfzt hagstæðari konum. Konur kröfðust kosn- ingaréttar og kjörgengis til þess að verða fullgildir þegnar þessa þjóðfélags og vinna að uppbyggingu þess. Þetta hafa þær sannarlega gert með vinnu- framlagi sínu þæði á heimilum og í öllum helztu þjónustu- og undirstöðuatvinnugreinum þjóðarinnar. íslenzkar konur hafa ekki legið á liði sínu. En í ljósi þess að þjóðfélagsleg for- usta, ákvaröanatektin, er nær öll f höndum karlmanna, verður sú spurning áleitin í dag hvort íslenzkar konur hafi með vinnu sinni ráðið nokkru að marki um þjóðfélagsgerðina. Hefur vinna okkar þjónað þvi markmiði að byggja upp þjóð- félag eftir okkar höfði, eins og við viljum hafa það, eða hefur vinna okkar verið not'uð til að byggja upp þetta þjóðfélag eftir forskrift ráðandi karl- manna? Þetta er samvizku- spurning sem okkur er skylt að leggja fyrir okkur sjálfar í dag. Viljum við að konur séu ein- göngu vinnuafl í fiskiðnaði, en hafi hvergi bein áhrif á, hvern- ig þær auðlindir sem atvinna þeirra byggist á, eru hagnýttar? Viljurp v»ið að konur sæti tvöí- földu vinnuálagi en komist ekki í nægilega sterka’valdaaðstöðu til þess að framkvæma þær félagslegu úrbætur sem þarf til aó afnema það? Viljum við launamisrétti? I samþykkt Sameinuðu þjóð- anna um Alþjóðlegt kvennaár 1975 er ákvæði sem hvetur þau aðildarriki sem hafa ekki enn fullgilt samþykkt Alþjóða- vinnumálastofnunarinnar um jöfn laun karla og kvenna fyrir jafnverðmæt störf, að gera það hið fyrsta. ísland var eitt fjögurra rikja sem með breyt- ingartillögu á þingi S.þ. kom þessu ákvæði inn í samþykkt- ina. Það hvilir þvi á okkur sú siðferðilega skylda — um leið og við sýnum samstöðu með konum þróunarlandanna — að uppræta launamisréttið hjá okkur. Ef við viljum ekki launamisrétti, þá skulum við ná þeirri aðstöðu að við förum sjálfar að meta verðmæti starfa okkar. Vinnuframlag kvenna rétt- lætir þá kröfu að þær ráði þessu þjóðfélagi til jafns við karla. Sigurlaug: Já, það er rétt. Þrjár konur af 60 kjörnum fulltrúum á Alþingi. Það er staðreynd, sem ekki er til að státa af og hlýtur að vera okkur áminning um, að við höfum ekki notað sem skyldi þann rétt, sem við hlut- um fyrir meira en hálfri öld, og kostað hafði harða baráttu hugumstórra hugsjóna kVenna — og karla fyrir málstað okkar. Við höfum of lengi haldið að okkur höndum. Við trúum þvi, að heimilum okkar og fjölskyld- um — þjóðinni allri — væri betur borgið, ef konur hefðu meiri áhrif á lagasetningu og pólitískar ákvarðanir, sem móta það samfélag, sem við lifum í. Við höfnum gamalli kreddu um að stjórnmál séu ekki við hæfi kvenna. Við viðurkennum ekki, að þau séu eitthvað óhreint — jafnvel mann- skemmandi. Stjórnmál eru í eðli sinu velferðarmál hverrar þjóðar, — sé að þeim unnið — eins og vera ber — af heiðar- leik, trúmennsku og þjóðholl- ustu. Við þurfum að kynna okkur málin — hugsa — taka afstöðu og beitá áhrifum okkar sam- kvæmt því. — En það eru víðar tækifæri fyrir konur til að hafa áhrif en á hinu háa Alþingi, í opinber- um stöðum, ráðum og nefndum. Við höfum allar — hvar í stétt sem við stöndum — í sveit og við sjó — möguleika — og skyldur til að hafa áhrif á um- hverfi okkar með fordæmi — orðum og athöfnum —. Þótt við stefnum heilshugar að virkari þátttöku kvenna i almennum þjóðmálum — þá höfum við enn og munum áfram hafa í heiðri hlutverk konunnar sem móður og hús- móður innan vébanda heimilis- ins. / Hefir hún ekki einmitt á þeim vettvangi gullið tækifæri til áhrifa á almenna hagsýslu og hagstjórn og — um leið — í skapandi uppeldis- og mannræktarstarfi — á heill og velferð þjóðfélagsins hverju sinni. J Það veltur á miklu, að henni fari það hlutverk vel úr hendi. Við gerum þá kröfu á hendur samfélaginu, að það sýni skiln- ing og vilja í verki til þess, að við fáum rækt til jafns við karla hin margþættu störf nútima þjóðfélags. — Samfélagið kallar okkur á móti til ábyrgðar, sem enginn full- þroska einstaklingur, — karl eða kona — fær vikið sér undan. Islenzkar konur. — Við stöndum hér í dag — sam- einaðar undir kjörorði Sam- einuðu þjóðanna: Jafnrétti — framþróun — friður. — Ekki bara til að heimta réttindi og völd okkur sjálfum til handa í okkar velferðarríki, heldur einnig til að votta samstöðu okkar og samúð með milljónum nauðstaddra kynsystra okkar í hinum vanþróaða heimi. Gleymum ekki þessum degi. — Stöndum áfram saman að góðum málum. Við höfum nóg verk að vinna til umbóta og framfara i þjóðfélagi okkar, þótt við leggjum ágreinings- málin til hliðar. Stöndum vörð um réttindi okkar og skyldur. Stöndum vörð um manninn í sjálfum okkur á erfiðum tímum óróa og upplausnar. Stöndum vörð um kristilegt siðgæði — um heimili okkar, þjóðerni og þjóðmenningu. Svava: Konur, við höfum kosningarétt og kunnum þvi gjarnan að flíka. En hitt virðist gleymast harla létt, þótt hömrum við á þvi jafnt og þétt, að við knúðum fram kjörgengi lika. Sigurlaug: Þvf sé það í dag okkar áminning að ætla hlut okkar meiri. Flykkist bví konur, sem flestar áþing. Þar fámenni okkar er óvirðing. Við ættum að vera þar fleiri. Svava og Sigurlaug: Já, við ættum að vera þar fleiri. Sigurlaug Bjarnadóttir og Svava Jakobsdóttir alþingismenn: Já, vi ættum að vera þar fleiri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.