Morgunblaðið - 31.10.1975, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.10.1975, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. OKTÖBER 1975 23 Bðkmenntir eftir ERLEND JÓNSSON Trúin og tómið Graham Greene: MATT- URINN OG DÝRÐIN. 208 bls. Sigurður Hjart- arson íslenskaði. AB, 1975. SÉ LITIÐ yfir heimsbókmennt- irnar annars vegar og hins vegar þann örsmáa hluta þeirra sem hérlendum lesendum gefst á að líta í íslenskum þýðingum virðist tilviljun oft ráða valinu. Sumir höfundar komast ekki á blað hér þó þekktir séu annars staðar. Aðrir verða hér nokkurs konar heimagangar. Einn þeirra er Graham Greene. Á stríðsárunum og fyrstu árin eftir stríð var hann tískuhöf- undur I Englandi. Sumir spáðu honum Nóbelsverðlaunum. Aðrir börðu það niður og sögðu að hann væri meiri reyfarahöf- undur en svo að slík viður- kenning honum til handa kæmi til greina. Reyfarahöfundur er Graham Greene ekki í orðsins eiginlegri merking, öðru nær, þó söguefni hans minni stundum á æsiefni sakamálasagna. Vinsældir bóka hans stöfuðu ekki heldur af reyfaraskap þó svo að sumar þeirra megi teljast dágott af- þreyingarefni heldur af hinu að hann skrifaði vel og var öðru vísi en aðrir, hefðinni tengdur en þó nýr. Stiltækni lærði hann meðal annars af róttækum höf- undum millistriðsáranna, var sjálfur katólskur en skrifaði sögur sinar sem áhorfandi einhvers staðar þar á milli og taldist þá að sjálfsögðu „borg- aralegur" höfundur. Mátturinn og dýrðin er saga um baráttu trúar við pólitísk ofstækisöfl, gerist í Mexikó og rekur rætur til sögulegra at- burða. Vantrúaralda hefur riðið yfir landið, kirkjur brotnar, prestar drepnir eða — neyddir til að kvænast sem er vart annað en frekleg nauðgun sálarinnar frá sjónarmiði kirkj- unnar séð. Einn prestur lifir eftir, trúr köllun sinni. Drykk- felldur og tötrum búinn flækist hann á milli þorpanna I frum- skóginum og þjónar blásnauðri en strangtrúaóri alþýðu. Mót- herjinn á hinum vængnum er ofstækisfullur lögregluforingi sem hundeltir þennan vesæla og breyská kirkjunnar þjón og gengst upp i ofsókn sinni af sadistískri þráhyggju. Söguefni sem þetta hafa lengi gerst i raunveruleikanum eða allt frá þvi að skynsemis- trúarmenn 18. aldar boðuðu að hengja skyldi hinn siðasta munk i görnum hins síðasta klerks. Rithöfundar hafa með- höndlað það á ýmsa vegu. Gra- ham Greene grefst ekki svo mjög fyrir undirrót þess eða orsök, sýnir i þess stað af- leiðingarnar, eða réttara sagt lítið en einkar dæmigert sýnis- horn þeirra. Mátturinn og dýrð- Graham Greene in er ekki heldur saga um ein- skæra ytri baráttu, þar er ekki síður lýst sálarstyrjöld hins trú- aða sem veit af undankomuleið- um, kjósi hann að bjarga lífi sinu, en lætur heldur skeika að sköpuðu og þvælist fyrir óvin- inum til að halda áru sinni hreinni. Lögregluforinginn á hinn bóginn — hvar stendur hann trúarlega séð? „Til voru dul- trúarmenn, sem sagðir voru I beinum tengslum við almættið. Hann var einn slikur, lika, en það, sem hann hafði reynt, var tómið . . . bjargföst fullvissa um tilveru deyjandi, kaldrar veraldar hinnar mannlegu veru, sem hafði þróast af dýr- um í algeru tilgangsleysi. Trú hans varð ekki hnikað." Vantrúin er Hka trú. Og i vissum skilningi eru fjendur katólska prestsins sýnu of- stækisfyllri vantrúarmenn en hann með sina katólsku. Mátturinn og dýrðin kom fyrst út 1940. Spurning er hvort sagan er hér ekki of seint á ferð nú eða hvort hún á yfirhöfuð ' erindi til Islenskra lesenda. Það er álitamál. Millistriðsárin báru sin sérkenni, þar með talda bar- áttu róttækra stjórnmálaafla við kirkjuvöld. Sú barátta geis- ar enn sem fyrr, ekki aðeins í Mið- og Suður-Ameriku heldur miklu víðar. Sú óhugnanlega fátækt og vesöld, sem lýst er f sögunni, er líka enn við lýði. Með hliðsjón af formi er sagan vel byggð en nokkuð langdregin, einkum i fyrri hlut- anum þar sem mörg og löng samtöl um lítið efni fylla siðu; eftir siðu. Þegar líður á söguna raknar úr þræðinum, hraði og spenna eykst og tökin verða fastari og markvissari — Gra- ham Greene er enginn meðal- maður þegar öllu er á botninn hvolft. Þegar fyrir strið tóku skáld- sagnahöfundar að renna augum til kvikmyndanna og skrifuðu bækur sinar með nokkurri hlið- sjón af að biómyndir yrðu síðar gerðar eftir þeim og hygg ég að bók sú, sem hér um ræðir, hafi ekki farið varhluta af þeirri tilhneiging. íslensk þýðing Sigurðar Hjartarsonar virðist allgóð ef undan eru skilin nokkur hæpin orð og orðasambönd eins og upphrópunin „oh“, orðið „af- gerandi" og orðasambandið „þegar alit kemur til alls“ sem er flatneskjulegt. Að ytri gerð er þetta venjuleg bókahilluút- gáfa með tvílitum og gylltum kili. Ur viðtali Guardian við Evtusjenko: BLAÐAMAÐUR brezka blaSsins Guardian W.L. Webb hitti fyrir nokkru sovézka IjóSskáldið Evgeny Evtusjenko í Bret- landi en þar var skáldið á ferð. Evtusjenko er þekktur mjög á Vesturlöndum og framganga hans og atferli hefur löngum þótt ákjósan- legt fréttaefni og Ijóðagerð hans á stundum fallið i skuggann fyrir frásögnum af því hvernig hann færi að þvi að drekka kampavin og horfa kankvís á þokka- konur. Hljóðar hefur verið um Evtusjenko síðasta árið. En eftir viðtali Webbs við skáldið er Evtusjenko ágæta vel sprækur. í upphafi greinarinnar seg- ir: „Fyrir nokkrum árum upp- götvuðu vestrænir blaða- menn sovézkt skáld og skópu úr honum mynd Hins unga reiða manns — unga reiða mannsins sem vildi skekja undirstöður sósialismans. En sem timinn liður fram kemur dálítið undarlegt upp úr dúrnum þessi maður er enn á lifi! Og Ijóð hans eru gefin út í Sovétrtkjunum. . . að minnsta kosti flest. Þar er hinn dapurlegi virkileiki, flest Ijóða hans. Og þá koma blaðamennirnir til hans draga augað i pung og segja: Herra Evtusjenko, fyrst þú ert enn á lífi, fyrst enn eru gefin út Ijóð eftir þig, fyrst þú ferðast stundum til útlanda og fyrst þú ert ekki á geð- veikrahæli eða i Siberíu — ertu þá heiðarlegur maður, herra Evtusjenko? Þeir lita svo á að sovézkt skáld, sem fær birt og gefin eftir sig Ijóð heima fyrir geti naumast verið ærlegur. En heiðarleiki er ekki alltaf tengt hneyksli, eða hvað?" „Svo þegar hann. Yppir öxlum. Segir siðan: í augum óþverramannanna er heiðar- leikinn sjálfur hneyksli." „Jú," segir Webb, „Evtus- jenko er enn á lifi og lifir heldur góðu lífi og dvelur nú um hríð i London. Hann hefur ekki komið hingað I nokkur ár Sumir hafa kallað hann hetju, aðrir tækifæris- sinna og enn aðrir auglýs- ingaskrumara fyrir bákn Sovétríkjanna. En vist er hann sá sem hefur lifað af og indi. Það kemur skýrt fram i Helsinkisáttmálanum. Ef staðið verður við ákvarðanir sem settar eru fram i þeim plöggum, hafa draumar minir rætzt. En við verðum að skilja þá stöðu sem er i þróun samtímasögu okkar i Sovétríkjunum. í mörg ár var landið algerlega lokað. Past ernak fór aðeins einu sinni úr landi, að sækja rithöfunda- þing i Paris. Þetta hefur ekki breytzt eins mikið Ég vil ekki að báknið hindri fólk í að fara til útlanda. Hver manneskja — ekki einasta rithöfundar ÞURFA að sjá, til Evgeny Evtusjenko I Rússlandi er skáld meira en skáld hann nýtur virðingar meðal samlanda sinna. Yesenin skellti sér inn i eilifðina þritugur að aldri, Mayakovsky tók fram byssuna sina og skaut sig, 37 ára gamall, og þeir menn eru til bæði I Moskvu og London sem halda að úr hefði orðið snjallari saga ef Evtusjenko hefði farið að dæmi þeirra. En hér er hann, 42 ára og lifandi og þau kynlegu og mögnuðu örlög eru honum búin að vera skáld í Sovétríkjunum. Hann hefur jafnan verið skartmenni i klæðaburði og hann keðjureykir, enda þótt honum hafi verið ráðlagt að draga úr reykingum. Hann rifjar upp að síðast þegar hann var í Englandi hitti hann T.S. Eliot og sá siðar- nefndi hvatti hann til að reykja ekki svona mikið Rétt eins og Pasternak hafði kurt- eislega ráðlagt honum að fremja ekki sjálfsmorð. „Að ‘minnsta kosti skaltu ekki yrkja Ijóð, þar sem þú spáir ofsafullum endalokum sjálfs þín, " sagði Pasternak. „Slíkir spádómar eiga það furðu oft til a& rætast illþyrmilega hér í Rússlandi" Kannski er hann reiðari nú en áður. En hann er enn unglegur og heillandi og hann baðar út öllum öngum til að leggja áherzlu á orð sin. Hann er spurður hvort hann ætli að reyna að bæta menningarskipti Bretlands og Sovétríkjanna. Hann telur slikt verðugt verkefni. En hann reynir að fara í kringum ýmsar spurningar, eins og köttur umhverfis heitan graut. Er hann aldrei vansæll yfir því að vera frjáls að fara til útlanda, þegar vinum hans er synjað um þau forréttindi. Eins og til dæmis Ernst Neizvestny myndhöggvara. Skoðun min er sú, að ferðalög ættu að vera sjálf- sögð réttindi, en ekki forrétt- þess að vera þess umkomnir að bera saman og dæma lífið i hinum ýmsu löndum. Til að sjá hvað er gott og hvað er slæmt. Nú held ég að járn- tjaldið sé rofið, en brot úr þvi hanga enn niður i augu á sumum. Sumir slíkir menn eru einnig til á Vesturlönd- um. Alls staðar eru til menn sem óska þess helzt að timinn standi kyrr. . ." En Neizvestny. . . Mér finnst Neizvestny vera frábær myndhöggvari Ég er þeirrar skoðunar, að hann ætti að fá að hafa sýningar ALLS STAÐAR Hann er vinur minn." (Lauslega þýtt og stytt)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.