Morgunblaðið - 31.10.1975, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 31.10.1975, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1975 Ljósmyndir Mbl. Friðþjófur. Tatarastelpurnar taka sporið Iétt I Carmen eins og sjá má. ísöng og dansi með Carmen SPÆNSK stemmning sveif yfir sviðinu tatara- stelpur sviptu pilsum í dansi sínum, meyjar mændu á drykkjufas karla á krám og ástar- leikurinn óf þráð sinn úr öllum sfnum óendanlegu möguleikum. Það hefur verið ströng törn hjá þeim fjölda leik- ara, hljómlistarmanna, sviðsmanna og annarra sem koma við sögu sýningarinnar, en frum sýningin á óperunni Carmen eftir Bizet verð- ur í Þjóðleikhúsinu í kvöld, föstudagskvöld, og er það í fyrsta skipti sem Carmen er sýnd á sviði á íslandi. Hljómsveitar- stjóri er Bohdan Wodiczko og leikstjóri er Jón Sigurbjörnsson óperusöngvari og leikari. Tónlistin úr Carmen er mörgum kunn, enda er hún vinsæl hvar sem hún hefur verið kynnt og titil- hlutverkið í Þjóðleikhús- inu sjálfa Carmen leikur og syngur Sigríður Ella Magnúsdóttir. Til marks um það að fólk hefur fylgst með því að Carmen er að fæðast á fjölum Thalíu í Þjóðleikhúsinu er það, að þegar er upp- selt á fyrstu sýningarnar. Hlutverk Don José leikur og syngur Magnús Jóns- son. Við fyígdumst með æfingu á Carmen eitt kvöldið í vikunni og hún gekk fyrir sig eins og gengur þegar unnið er við lokaátakið fyrir smiðshöggið. Æfingin var stöðvuð af og til, að einu þurfti að gæta, undirstrika annað, en all- ur, tæplega 100 manna hópurinn sem vinnur að verkinu, vann saman að því að smiðshöggið yrði gott þegar tjaldið fellur frá á fyrstu sýningu og Carmen heilsar leikhús- gestum með fegurð sinni og söng. á.j. Magnús Jónsson og Sigrfður Ella í hlutverkum sfnum Sigrfður Ella Magnúsdóttir f hlutverki Carmen. Magnús Jónsson f hlutverki Don José. Baritonsöngvarinn Walton Grönroos frá Alandseyjum syngur sem gestur hlutverk Escamillos á nokkrum sýningum og syngur hann á sænska tungu. Margir okkar beztu óperusöngvara taka þáit f Carmen. Frá vinstri: Kristinn Hallsson, Garðar Cortes, Sigrfður Ella Magnúsdóttir, Elfn Sigurvinsdóttir og Svala Nilsen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.