Morgunblaðið - 31.10.1975, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1975
29
— Afmæli
Framhald af bls. 10
Eins og heilög Guðs ritning Iá
hauður og sær allt var himnesku
gullletri skráð.
Hver mundi gleyma þeirri leið-
sögn. Enn brennur eldurinn rauði
í hjarta ef horft er til Öræfajökuls
og Systrastapa. En ekki þarf svo
stórbrotið umhverfi sem auðnir
og Edenlundir Skaftafellssýslu til
að minnast Helga sem fararstjóra.
Hann er jafnógleymanlegur, ef
hann nýtur sín hérna um Breið-
holtið eins og til Vestmannaeyja,
um Hvalfjörð sem Suðurnes.
Vart mun ofmælt, að af honum
mætti marga menn gjöra og alla
snjalla, eins og mælt var um stór-
menni forðum.
Auðvitað ætti hann að verða
mér minnisstæðastur sem braut-
ryðjandi í safnaðarmálum hér í
Heimum og Vogum við Háloga-
land Reykjavíkurborgar.
Og það er vissulega svo. Hann
er fyrsti safnaðarformaður okkar
um margra ára skeið. Hann mun
þar hafa gefið nafni sínu góða
birtu um nokkra framtið i kirkju-
sögu borgarinnar.
Hér er rísandi kirkja og komið
safnaðarheimili, þar sem líkt og í
skóla hans var leitast við að bera
fram gamalt og nýtt úr gullkistum
andlegra verðmæta.
Meðan hugsjónir hans fengu að
njóta sín var vissulega margt að
gerast og margt að fæðast hér f
málefnum kirkju og kristins
dóms, sem nú þykir sjálfsagt að
taka til framkvæmda og fyrir-
myndar. Og gleymist þá gjarnan
hver fyrstur ruddi steinum úr
vegi og lagði brautina, byggði
musterið sem hugsjón. En gleym-
ist hugsjón sú, sem breytir trúnni
í starf, kærleiksríkrar fram-
Miðar á 01
í Montreal
NU eru um nfu mánuðir unz 21.
Olympfuleikar nútímans hefjast f
Kanada. Verða þeir settir með
hátfðlegri athöfn 17. júlí 1976.
I samráði við Olympíunefnd Is-
lands hefur Ferðaskrifstofa ríkis
ins tekið að sér sölu á aðgöngu-
miðum að leikjunum og útvegun á
gistingu i Montreal meðan á þeim
stendur. Hægt er að fá keypta
aðgöngumiða á flestar íþrótta-
greinar, en verð þeirra er mjög
mismunandi, eða frá $ 2—$40.
Sérstök stofnun hefur verið sett
upp af því opinbera og sér hún
um alla gistiaðstöðu fvrir gesti
i Montreal meðan á Olympiu-
leikunum stendur 1 gegnum hana
er hægt að fá gistingu á hótelum,
stúdentagörðum, einkaheimilum
og farfuglaheimilum. Borgaryfir-
völd í Montreal fullvissa alla um
að nóg gistiaðstaða verði fyrir
hendi.
Þeir sem áhuga hafa á ferð á
Olympiuleikana i Montreal 1976,
þurfa því að hafa samband við
Ferðaskrifstofu rikisins, Reykja-
nesbraut 6, sími 11540, sem allra
fyrst.
(Frétt frá Ferðaskrifstofu
rikisins)
sýnir söngleikinp
BÖR BÖRSSON JR.
n.k. sunnudag kl. 3
Aðgöngumiðasala I Félagsheim-
ili Kópavogs.
Opin frá kl. 1 -—4
Sími 41 985.
kvæmdar ofar öllum játningum,
skoðunum og helgisiðum, þá ræt-
ist ritningin: Ef Drottinn byggir
ekki húsið erfiða smiðirnir til
einskis.
Raunar er Helgi Þorláksson trú-
rækinn maður og metur kirkju
sína að verðleikum og kemur þar
flestum oftar. Samt lifir hann
regluna: Sýn trú þína í verkum
þínum. Safnaðarvitundin — hin
ósýnilega kirkja hvers safnaðar
er honum aðalatriði. En hún rís
ekki nema fyrir samstarf, fórnar-
lund og pesónuleg kynni fólks. En
til að skapa þá þætti þarf að efla
félagslíf og minnast órða Krists er
hann segir: Vakið.
Lán þessa hverfis f kirkjumál-
um voru sérstaklega tveir Skaft-
fellingar til að móta grunninn
þótt margir góðir legðu þar hönd
og huga að verki: Þessir tveir
voru fyrsti formaður og organ-
leikari Hálogalandskirkju (sem
þá var nefnd svo) í Langholts-
söfnuði. Hinn var Vilhjálmur
Bjarnason, sem verið hefur for-
maður byggingarnefndar kirkj-
unnar hér frá upphafi og fram á
þennan dag. Heill þeim að störf-
um. Eg vil geta þess um leið, að
ekki hafa húsfreyjur þeirra verið
síður heldur hvatt þá til dáða af
þeirri trú og bjartsýni sem bugað-
ist aldrei.
Frú Gunnþóra Kristmundsdótt-
ir, konan hans Helga, hefur sann-
arlega sannað hin frægu orð spek-
ingsins forna: Væna konu, hver
hana hlýtur hún er mikils meira
virði en perlur: Hún hefur ekki
einungis staðið við hlið hans í
starfi og verið önnur hönd i um-
svifum skólans mörg síðari ár að
minnsta kosti. Hún hefur einnig
byggt upp með honum mikið
myndarheimili og þrátt fyrir
óteljandi annir við skóla og safn-
aðarstörf, sýnt snilli sína við upp-
eldi sona og einkadóttur, sem öll
skara fram úr við nám og störf og
nú hasla bræðurnir — dóttirin er
yngst — sér völl á breiðu sviði
mennta og vísinda, einn orðinn
háskólakennari annar prestur,
svo á eitthvað sér bent.
Eg gat þess áðan, að Helgi Þor-
iáksson var hér organleikari öll
fyrstu starfsár safnaðarins, með-
an enn þurfti að messa á mörgum
stöðum og safnaðarfólk þó hálfu
fleira en nú og kirkjusókn mikil
og stöðug.
Sannarlega er hann til margra
starfa vel fallinn og sjálfsagt allra
sem hann hefði tekizt á hendur.
En þar var mikið að gera. Og
ógleymanlegastur er hann mér
við söngstjórn og hljóðfæri sitt.
Hann er fæddur tónlistamaður.
Fáir handleika orgel eins fagur-
lega í mín eyru. Þá er sama, hvort
kirkjan var full af fólki eða ör-
stutt helgistund. Við komin heim
úr safnaðarferð eða við erum
þreytt að síðkveldi eftir langan
annríkisdag.
Helgi getur einhvernveginn,
með leik stuttrar stundar, flutt
frið himins niður á jörðina og
fegurð hins ósýnilega inn f okkar
heim, þótt hann leiki sjaldan
kannski aldrei neitt klassiskt
grallaralag sem nú er helzt í tfzku,
þá tekst honum að skapa helgi-
dóm Guðs handa áheyrendum sín-
um. En er það ekki aðalatriði fyr-
ir okkur þetta venjulega kirkju-
fólk?
Enginn skilji orð mín samt svo,
að afmælisbarnið og ég höfum
alltaf verið sammála um allt, né
séð allt í sama ljósi. Oftast hefur
það samt verið svo í aðalþáttum
áratuga samstarfs.
Eitt er víst, að við höfum
gleymt öllum skuggum í birtu
sameiginlegs takmarks, sem einu
sinni var nefnt í gamni og alvöru:
Sóknin sem vex inn í himininn.
Samt veit ég, að hann hefur alltaf
hugsað með Longfellow:
Hvorki gleði, hryggð nó hagur
heítir takmark Iffs um skeið
heldur það, að hver einn dagur
hrífi oss lengra fram á leið.
Og þannig veit eg hann hugsar
enn þegar hann nú við upphaf
síns sjöunda tugar æviáranna
horfir af tindi starfs yfir farinn
og ófarinn veg.
Samferðafólkið þakkar sam-
fylgd og óskar allra heilla.
Árelíus Níelsson.
INGÓLFS-CAFÉ
GÖMLU DANSARNIR I KVÖLD
Hljómsveit GARÐARS JÓHANNSSONAR,
Söngvari: BJÖRN ÞORGEIRSSON.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 12826.
HEIMDALLUR
SAMTÖK UNGRA SJÁLFST/tÐISMANNA í REYKJAVÍK
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Heimdallar, samtaka ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík verður haldinn í Út-
garði Glæsibæ laugardaginn 1 . nóvember
1975 kl. 13.30.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.
3. Umræður um skýrslu og reikninga.
4. Lagabreytingar.
5. Umræður og afgreiðsla stjórnmálaályktunar.
6. Kosning stjórnar og tveggja endurskoðenda.
7. Kosning Fulltrúaráðs.
8. Önnur mál.
Félagar eru hvattir til að mæta.
Stjórnin.
PARADIS
Borg, Grímsnesi,
laugardagskvöld
1. nóvember 1975 e.k.
Borg í Grímsnesi
Paradís
Sætaferðir frá
B.S.Í. kl. 21.00.
Munið alltaf
Nafnskírteinin
GYLFI
ÆGISSON
skemmtir og
kemur öllum i
stuð
Opið til kl. 7 og til hádegis á morgun