Morgunblaðið - 31.10.1975, Side 3

Morgunblaðið - 31.10.1975, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1975 3 Fjármálaráðherra: Virðisaukaskattur hef- ur bæði kosti og galla SKÝRSLA starfshóps, sem starf- að hefur á vegum Fjármálaráðu- neytis að könnun breytinga á formi almennra, óbeinna skatta, einkum söluskatts, er nú í athug- un stjórnvalda og umsögn sam- taka og stofnana, þ. á m. helztu samtaka launþega og atvinnurek- enda, bankanna og ýmissa ríkis- stofnana. Skýrslan fjaliar einkum um virðisaukaskatt, kosti hans og galla f samanburði við önnur söluskattskerfi. Hún felur ekki f sér ákveðna tillögugerð, en er lögð fram sem grundvöllur að skoðanamyndun og ákvarðana- töku. Jafnvel þó að slfk ákvörðun um virðisaHkaskatt yrði tekin á næstu mánuðum er ekki við að búast, að því er f jármálaráðherra sagði í fjárlagaræðu sinni, að slíkur skattur komi til fram- kvæmda fyrr en a.m.k. tveimur til þremur árum síðar en ákvarðana- taka, sökum mikils undirbúnings. Virðisaukaskattur er inn- heimtur á öllum viðskiptastig- um. Hins vegar veldur hann ekki margsköttun eins og núver- andi form söluskatts, þ.e. leggst aðeins einu sinni á söluverð- mætið. Allur skattur, sem fyrir- tæki greiða við kaup á aðföngum, er dreginn frá innheimtum skatti þeirra af sölu. Virðisaukaskattur er ekki innheimtur af útflutningi og útflutningsfyrirtæki bera ekki virðisaukaskatt af aðföngum sínum, eins og nú er um söluskatt. Hann bætir þvf samkeppnisað- stöðu útflutningsgreina. Virðisaukaskattur myndi hins- vegar innheimtur hjá mun fleiri aðilum en söluskattur og er það talinn meginókostur hans. Reynsla af þessum skatti hefur og verið misjöfn, en hann er notaður í flestum ríkjum V-Evrópu. I Dan- mörku hefur þessi skattheimta gefizt mjög vel en miður í Noregi. Þar er hann talinn hafa auðveld- að skattsvik. Þar er nú unnið að greinargerð um reynslu af þessari skattheimtu, sem fullgerð verður fyrir nk. áramót, og íslenzka fjár- málaráðuneytið mun athuga gaumgæfilega. Fjármálaráðherra sagði svo orð- rétt um virðisaukaskattinn: „Ég vil leggja á það áherzlu, að virðisaukaskatturinn hefur bæði Framhald á bls. 24 Hér er Ashkenazy að stjórna blásurunum sem flytja munu verk eftir Stravinsky. Vetrarstarf Kammersveitar Reykjavíkur að hefjast: Ashkenazy notar frí sitt til þess að stjórna og leika með Ætla að reisa fisk- matsstöð í Ólafsvík Ólafsvik, 30. október — DÆLUSKIPIÐ Hákur lauk ný- Iega við að dæla 20 þúsund rúm- metrum upp úr Ólafsvfkurhöfn. Var dælt f nýja uppfyllingu, sem er um 7.500 fermetrar að flatar- máli. Er sú lóð ætluð undir félags- heimili. Unnið var fyrir um 26 miltjónir króna við höfnina f ár. í sumar voru steyptir 320 metrar af Ennisbraut. Áður höfðu verið steyptir 1.100 metrar á Ólafsbraut og liggur nú steyptur vegur gegn- um þorpið. Lagður hefur verið einn kflómetri af nýjum götum. Gatnagerðarkostnaður f ár er um 16 milljónir króna. Verk h.f. tók að sér i sumar að reisa sex hús, sem eru leiguíbúðir á vegum hreppsins. Hefur verkið gengið vel og eru fyrstu íbúðirnar að verða tilbúnar. Auk þess eru hér allmörg hús í smiðum, þar á meðal íbúðarblokk fyrir verka- mannabústaði. Fyrir dyrum stendur að reisa áhaldahús ásamt vöruafgreiðslu fyrir starfsemi hreppsins, einnig fiskmatstöð, en beðið er eftir fyrirgreiðslu lána- stofnana til þeirrar byggingar. Fiskmatstöð þessi verður nýmæli hér á landi og er ekki ljóst hvaða Hárgreiðslu- og tízkusýning í Sig- túni á sunnudaginn SAMBAND hárgreiðslu- og hár skerameistara gengst fyrir hár greiðslu- og tfzkusýningu í Sig túni næstkomandi sunnudag Meðal þeirra, sem sýna, eru hár greiðslu- og hárskerameistarar, sem hlutskarpastir urðu f hár- greiðslukeppni hér f vor og munu taka þátt f Norðurlandamótinu, sem fram fer f Ósló í nóvember n.k. Þau, sem fara til Óslóar og sýna í Sigtúni á sunnudaginn eru, Guð- rún Þorvarðardóttir, Kristin Hálf- dánardóttir, Lovísa Jónsdóttir og Þorberg Ólafsson. Auk þeirra sýna Halldór Sigfússon. Einar Framhald á bls. 24 Lögfræðinga- aðilar kosta húsnæðið og sfðar rekstur stöðvarinnar. Vegagerð ríkisins er að leggja nýjan veg hér austur úr þorpinu og hefur smíðað nýja brú á Hofsá. Vegarkafli þessi er 2,5 km. Afli hefur verið rýr hér undan- farnar vikur. — Helgi. KAMMERSVEIT Reykjavfkur er að hefja annað starfsár sitt með tónleikum f sal Menntaskólans við Hamrahlfð næstkomandi sunnudag og hefjast þeir kl. 16. Stjórnandi og einleikari á tón- leikunum verður Vladimir Ashkenazy en hann mun leika einleik f rondo f b-dúr fyrir pfanó og hljómsveit eftir Beethoven og f pfanókonsert í G-dúr KV-453 eftir Mozart. Ashkenazy hefur hvorugt þessara verka leikið opinberlega áður, hvað þá stjórn- að þeim svo að hér er á ferðinni merkur tónlistarviðburður. Önnur verk á tónleikunum á sunnudag eru serenaða f c-moll KV-388 fyrir blásara eftir Mozart og oktett fyrir blásara eftir Igor Stravinski. Ashkenazy stjórnar f lutningi þessara tveggja verka. Kammersveit Reykjavíkur félagið LÖGFRÆÐINGAFÉLAG íslands heldur hádegisverðarfund f Þing- holti, Hótel Holti, f dag kl. 12.00 — á fundinum mun Guðrún Er- lendsdóttir hrl. ræða um efnið: BARNARÉTTINDI. Svarti borðinn sýnir hvar vegarkaflinn er, sem nú á að fara að vinna við f Breiðholtinu og verður hin mesta samgöngubót. Breiðholt: Lægsta tilboðinu í tengiveginn tekið BORG ARSTJ ÓRN hefur nú samþykkt að taka lægsta tilboð- inu er barst í vegarkaflann — Stekkjarbakka og Höfðabakka upp í Vesturhóla — sem tengja mun efra og neðra Breiðholt, en svo sem Morgunblaðið hefur skýrt frá var það tilboð röskar 36 milljónir króna og um 17 milljónum undir kostnaðar- áætlun gatnamálastjóra. Að þvi er Birgir Isleifur Gunnarsson, borgarstjóri, tjáði Morgunblaðinu, þá er ráðgert að verki þessu verði lokið næsta haúst en þvi á að skila tilbúnu undir malbik. Kvaðst Birgir vonast til að hægt yrði að ljúka malbikun vegarins fyrir veturinn. Birgir kvað þessa fram- kvæmd hafa dregizt nokkuð frá því sem ráðgert var og væri ástæða þess sú að fjárhagsleg staða borgarinnar hefði valdið því að draga varð úr fram- kvæmdum á hennar vegum og það ekki sízt bitnað á ýmsum þeim verkefnum er ekki voru komin á útboðsstig. Hefði svo verið um þessa framkvæmd. Hins vegar kvaðst borgarstjóri hafa orðið var við gagnrýni vegna þess að á þessum sama tima hefði verið haldið áfram framkvæmdum við framleng- ingu Breiðholtsbrautar. Kvað Birgir Isleifur það hafa verið gert samkvæmt verksamningi frá 1973 er borgin hefði verið bundin af. skipa 14 hljóðfæraleikarar og leika' þeir allflestir í Sinfóníu- hljómsveit Islands. Formaður sveitarinnar er Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari, en aðalstjórnandi er Páll P. Pálsson, tónskáld. Það kom fram á fundi sem aðstand- endur Kammersveitarinnar héldu með blaðamönnum, að af öllum greinum tónlistar væri kammer- tónlist mest vanrækt hér á landi og stofnun Kammersveitarinnar hefði þvi verið í því skyni að koma þessari tegund tónlistar betur á framfæri hér á landi auk þess sem hljómsveitarfélagarnir hefðu sjálfir mikla unun og ánægju af því að leika kammer- tónlist. Það kom fram, að til þess að halda úti Kammersveitinni þurfa félagarnir í henni að leggja á sig verulegt erfiði, þar eð þeir vinna flestir þar fyrir utan tvöfalda vinnu — leika í Sinfóníuhljóm- sveitinni og kenna en eins og fyrr segir er þetta fyrst og fremst áhugastarf því að fjárhagslegur ávinningur fyrir þá er enginn. Að visu gaf fyrsta starfsárið i fyrra ágæta raun og yfirleitt sóttu tón- leika sveitarinnar þá um 300 manns. Um þriðjungur þess hóps voru áskrifendur að tónleikunum en einnig sóttu tónleikana fjöl- margt ungt fólk í framhalds- skólunum er fengið gat miða á niðursettu verði. Þessi áheyr- endahópur stóð þó engan veginn undir nauðsynlegum kostnaði við tónleika Kammersveitarinnar, t.d. vegna prentunar efnisskrár og borgunar til hljóðfæraleikara sem fengnir voru að og það var ekki fyrr en Kammersveit Reykjavíkur hafði selt útvarpinu upptöku að einum tónleikum sín- um að það tókst að ná endum saman. Kammersveit Reykjavíkur hef- ur hingað til notið nánast engrar fjárhagslegarar fyrirgreiðslu af hálfu hins opinbera nema hvað í fyrra fékkst 75 þúsund kr. styrk- ur og Reykjavíkurborg hyggst í ár styrkja sveitina með um 100 þús- und króna framlagi. Þorkell Helgason, dósent, sem aðstoðað hefur Kammersveitarfólkið varð- Framhald á bls. 24 Hreppsnefnd Hafnarhrepps: Bannar geymslu háhyrn- inga í Höfn í Hornafirði nema uni vörzlu hans sjái sérfræðingur með ráðuneytisleyfi HREPPSNEFND Hafnarhrepps samþykkti á fundi f gærkveldi að banna mönnum að flytja til Hafnar í Hornafirði háhyrninga eða aðra hvali, nema viðkomandi hafi til þess leyfi ráðuneytis og þar með einhverja sérfræðikunn- áttu f meðferð slíkra dýra. Hreppsnefndinni barst í gær bréf frá lögreglustjóranum á Höfn f Hornafirði, Friðjóni Guðröðarsyni, sem hljóðaði svo: „Hjálagt sendist í ljósriti vottorð héraðsdýralæknisins á Höfn. Einnig úrskurður lögreglustjóra og varðar hvorttveggja háhyrning þann, er m.s. Hafnarnes RE 300 færði hingað í höfnina hinn 27. þessa mánaðar.“ Siðan segir lögreglustjóri: „Ég er efnislega sammála dýra- lækninum um að tæpast geti talizt heppilegt að áhafnir síldveiði- skipa, alls óvitandi um meðferð þessara dýra og án nokkurs sér- búnaðar til að flytja þau til hafnar, séu að fást við veiðiskap af þessu tagi. — Hins vegar vil ég á það benda, að það er á valdi hreppsnefndar Hafnarhrepps þá eftir atvikum í samráði við hafnarnefnd, að banna geymslu dýra hér í höfninni og/eða flutn- ing þeirra þangað. Tel ég æski- legt, að hreppsnefnd fjalli um málið og geri i því ályktun.“ Síðan samþykkti hreppsúefnd- in eftirfarandi ályktun vegna háhyrningsveiða: „Hreppsnefnd Hafnarhrepps samþykkir, að hér eftir verði ekki leyft að færa til hafnar í Hornafirði háhyrninga eða aðra hvali nema þeir séu i vörzlu sérfræðings, sem hefur leyfi ráðuneytis til veiðanna." Ljósm.: Öskar Sæmundsson. Verðlagsstjóri kærir diskótek VERÐLAGSSTJÓRI kærði fyrir nokkru sfðan veitingastaðinn Ses- ar fyrir að krefja gesti sína um of hátt aðgöngumiðagjald eða 300 krónur, en leyfilegt gjald er 150 krónur. Að sögn Sverris Einarssonar sakadómara hefur Verðlagsdóm- ur haft málið til meðferðar og bæði rannsóknarlögreglumenn kannað miðaverð og forráðamenn staðarins verið yfirheyrðir. Hafa þeir viðurkennt að hafa tekið fyrrnefnt gjald og talið sig í rétti til þess, þar eð þeir heyrðti ekki undir verðlagsákvæði. Málið verð- ur sent rikissaksóknara til um- fjöllunar að rannsókn lokinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.