Morgunblaðið - 31.10.1975, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. OKTÖBER 1975
7
Blaðamennska
fyrr og nú
Íslendingur, mðlgagn
sjálfstæðismanna I Norð-
urlandskjördæmi eystra,
fjallaði nýverið I leiðara
um siðleysi f blaða-
mennsku bæði fyrr og
slðar. Hér er fjallað um
athyglisvert efni, sem rétt
þykir vekja athygli ð.
Blaðið segir:
„I blaðinu SKULD birt-
ist 1880 eftirfarandi frétt
undir fyrirsögninni SLYS-
FÖR: „Rétt áður en póst-
skip fór að heiman slðast,
vildi það slys til, að dr.
Grlmur Thomsen féll á
hesti niður um Is ð
Lambhúsatjörn og —
drukknaði ekki. íslands
óhamingju verður allt að
vopni".
f sama blaði sagði um
sama mann, er hann var
ritstjóri ÍSAFOLDAR I fjar-
veru Björns Jónssonar,
eiganda blaðsins, og skrif-
aði að jafnaði ekki undir
nafni:
„Þetta er að þvi leyti
slælega að farið af kvik-
indinu, sem það er eðli-
legt, að menn, sem virða
eiganda fSAFOLDAR og
unna honum og vita, að
ærumeiðingarnar eru ekki
skrifaðar af honum, held-
ur móti vitund hans og
vilja, muni kinoka sér við
að gera lagaábyrgð gild-
andi ð hendur honum, úr
þvl þeir geta ekki náð I
kvikindið sjálft I þvl
skúmaskoti ærulausrar
bleyðu og fyrirlitlegar lltil-
mennsku, sem það hylur
sig I, svlvirðingin sú
arna".
Þessi sýnishorn eru
engin einsdæmi. f SUÐRA
birtist 13. október 1883
eftirfarandi frétt:
„í byrjun þessa
mánaðar útskrifaðist Þor-
steinn nokkur Erlingsson
og hlaut 1. einkunn, 84
stig, og mun fæstum, sem
piltinn þekkja, hafa komið
til hugar, að sá piltur
hefði þá þekkingu til að
bera, að hann gæti hlotið
I. einkun".
Þeir Grlmur og Þor-
steinn standa óskaddaðir
eftir, en þessi ógeðfelldu
dæmi um persónunlð I
blaðamennsku 19. aldar
eru ekki rifjuð hér upp að
tilefnislausu. Lengi vel
eimdi eftir af þvl llku og
langt fram á okkar öld. en
undanfarna nokkra ára-
tugi hefur þetta færst I
stórum betra horf, með
slnum undantekningum
þó."
Þjóðviljinn
kemur til sögu
Þá vlkur Íslendingur að
blaðamennsku dagsins I
dag, þar sem enn kennir
þeirra sömu grasa, sem
lýttu málflutning I fyrri
tlðar blaðamennsku.
Blaðið segir:
„En nú, hina allra
slðustu tlma, sýnast
nokkur teikn þess á lofti,,
að tslensk blaðamennska
sé að færast ofan I fen
rógburðar og persónunfðs
fyrri tlma. Skrif ÞJÓO-
VILJANS um aðstandend-
ur Varins lands eru skýr-
ast merki þessa, og þess
finnast nú fleiri dæmi en
skyldi, að menn, sem upp
úr standa og til trúnaðar
starfa hafa valist vegna
hæfileika sinna og vin-
sælda, séu þráeltir með
rætnislegu aðkasti. En
það mega þeir menn vita,
sem sllka iðju stunda, að
hún verði ekki slður þeim
sjálfum til ófrægðar en
þeim, sem hinum ill-
kvittnislegu ádeiluskeyt-
um og jafnvel bölbænum
er beint að.
Sem betur fer, er mikill
meiri hluti Islenskrar
blaðamennsku öðru og
geðfelldrara marki
brenndur en hér hefur
verið lýst, og má einkum
þakka MORGUNBLAO
INU fyrir að hafa haft for-
göngu I þvl efni, og nær-
tækt dæmi um fyrir-
myndarblaðamennsku er
grein Halldórs Blöndals
hér I slðasta blaði, þar
sem af samviskusemi,
þekkingu og virðingu fyrir
sannleikanum er fjallað
um eitt af deilumálum
dagsins, og var sannar-
lega tlmi til kominn, að
þessu máli væru gerð þvl-
Itk skil, svo miklu mold-
viðri sem um það hefur
verið upp þyrlað.
Þeir, sem fyrir slfelív um
árásum verða, nenna
sjaldnast að elta ólar við
hvað eina, sem þeim er
ætlað til mannorðsspjalla
og ærumeiðinga, enda
væri það seinlegt verk og
tafsamt, en sannleikans
vegna á hið rétta auðvitað
að koma I Ijós og gerir það
jafnan, áður en lýkur, þvt
að skrifað stendur, að
eftir renni lygi, þá er
sönnu mæti, og eins og
prófessor Árni Magnús-
son skrifaði á stnum tlma:
„Svo gengur það til I
heiminum, að sumir
hjálpa erroribus (þ.e.
villum, rangfærslum) á
gang, og aðrir leitast við
að útryðja þeim sömu
erroribus. Hafa svo hvorir
tveggju nokkuð að iðja".
Sem betur fer
undantekning
Dæmið sem Íslendingur
tekur, skrif Þjóðviljans
um aðstandendur Varins
lands, er sem betur fer
eitt fárra undantekningar-
dæma persónurógs I
Islenzkri blaðamennsku.
Hún hefur þróazt I átt að
heiðarlegum fréttaflutn-
ingi og málefnalegri rök-
ræðu, þó örfá gagnstæð
dæmi finnist. i raun
beinast rógsorð Þjóðvilj-
ans gegn meir en 55.000
islendingum, sem slógu
skjaldborg um samstöðu
okkar með vestrænum
lýðræðisrlkjum á sviði
öryggis- og varnarmála.
En mál er að linni lágkúru
og siðleysi af þessu tagi.
Skemmtileg
7. umferð
Áhorfendur á 7. umferð svæðis-
mótsins voru öllu færri en venju-
lega, en þeir sem koma, fengu að
sjá margar skemmtilegar skákir
Jansa og Parma sömdu að vlsu um
jafntefli eftir 17 leiki, en aðrir kepp-
endur tefldu svo sannarlega fyrir
áhorfendur.
Laine beitti Benóntuppbyggingu
gegn Murray og var skákin i jafn-
vægi framan af, Síðan urðu Laine á
slæm mistök, sem kostuðu skákina
Flestir fylgdust að vanda með
skákum íslendinganna Friðrik hafði
hvitt gegn Hartston, sem beitti
Sikileyjarvörn Friðrik fékk snemma
rýmri stöðu og nýtti hann til sóknar
á báðum vængjum. Harðasta atlögu
gerði hann þó gegn svarta kóngn-
um, fórnaði manni fyrir þrjú peð og
sterkt frumkvæði. Hartston fann
ekki nákvæmasta framhaldið, og
þegar skákin fór í bið var ekki annað
sýnilegt en að Friðrik væri að vinna
skiptamun Hefur hann því sterkar
vinningslikur i endataflinu, þar sem
hann ætti að hafa hrók og fimm peð
gegn biskupi riddara og tveim peð-
um
Björn Þorsteinsson hafði svart
gegn Ostermayer og var teflt
Steinitzafbrigðið af spænskum leik
Lengi vel virtist Björn halda í horf-
inu, en siðan urðu honum á mistök
og fékk ekki við neitt ráðið eftir það
Skák þeirra Zwaig og Poutianen
varð snemma skemmtileg Zwaig
fórnaði drottningunni fyrir tvo hróka
og leit svo út sem sú ákvörðun hefði
verið rétt Þá fór svarta drottningin
hins vegar i mikið ferðalag, gleypti
tvö peð og hafði uppi hótanir gegn
hvita kóngnum Báðir lentu i tima-
hraki og þegar Zwaig gafst upp eftir
33 leiki var mannstap óumflýjan-
legt
Ribli beitti Grúnfeldsvörn gegn
Timman og tefldu báðir byrjunina
mjög hratt I 18. leik fórnaði Timm-
an manni fyrir sókn Ribli varð að
gefa manninn aftur, en vann tvö peð
I leiðinni og siðan önnur tvö Þá
gafst Timman upp. Skákin fer hér á
eftir:
Hvltt: Timman
Svart: Ribli
1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6, 3. Rc3
—d5, 4. cxd5 — Rxd5. 5. e4 —
Rxc3, 6. bxc3 — Bg7. 7. Bc4 —
Bg7, 8. Rge2 — c5, 9. 0-0 —
Rc6, 10. 0 0 — Ra5, 11. Bd3 —
cxd4, 12. cxd4 — b6, 13. Dd2 —
e6, 14. Had1 Bb7. 15. Bh6 —
Hac8, 16. Bxg7 — Kxg7, 17. f4
— f5, 18. d5 — fxe4, 19. Bxe4
— exd5, 20. f5 — dxe4, 21. f6 +
— Kh8, 22. Db2 — Rc4, 23. Da1
— Dc7, 24. Hd7 — Dc5 + . 25.
Kh1 — De5, 26. Dxe5 — Rxe5,
27. Hxb7 — Hc2, 28. He7 —
Hxe2, 29. Hxe5 — Hxf6, 30.
Hfcl — Kg7, 31. h4 — Hff2, 32.
eftir JÓN Þ. ÞÓR
Hc7 — Kf6, 33. Hg5 — e3, 34.
Hc6+ — Kg7, 35. Hce6 — Hf4,
36. Kh2 — Hxh4 + , 37. Kg3 —
Ha4, 38 Hd5 — Haxa2, 39.
Hd7 + — Kh6, 40. gefið
Loks skulum við llta á handaverk
Liberzons I þessari umferð
Hvltt: V. Liberzon
Svart: van den Broeck
Frönsk vörn
1. e4 — e6, 2. d4 — d5, 3. Rc3
— Bb4, 4. e5 — c5, 5. a3 —
Bxc3+ 6. bxc3 — Re7, 7. a4 —
Da5,
(Það er vafamál, hvort svarta
drottningin á bezt heima á a5.
Margir leika henni til c7).
8. Bd2 — Rbc6, 9 Rf3 — Bd7,
10. Be2 — c4?!
(Betra er 10. — f6).
11. Rg5 — h6 (?)
(Eftir þennan leik hefur svartur
litla sem enga von um mótspil.
Sennilega var bezt að leika 11. —
f6, þótt svarta staðan yrði að vlsu all
glæfraleg á eftir)
12. Rh3 — 0-0 0(?)
(Beint í gin Ijónsins. Betra var
0-0).
13. Rf4 — g6, 14. 0-0 — Kb8.
15. Del!
(Upphafið að skemmtilegum liðs-
flutningum)
15. — Rc8, 16 Bcl — Rb6,
(Nauðsynlegt var 16. — Dc7)
17. Ba3 — Rxa4?
(Svona peð er bezt að láta I friði)
18. Bd6+ — Kc8, 19. Ha3 —
Hde8, 20. Dal — Rd8, 21. Hbl
— Bc6, 22. Bb4 — Da6, 23.
Rd3!
(Óvæntur og fallegur leikur Ridd-
arinn stefnir til c5).
23. — cxd3
(Eftir þetta vinnur hvltur án
erfiðismuna. Til greina kom 23. —
b6 og síðan b5, ef þörf krefði Hins
vegar er óllklegt að það hefði
dugað)
24. cxd3 — Kd7,
(Nú dugði b5 ekki vegna 25 c4
og 24 — Db5 væri svarað með 25
Bd6).
25. c4 — b6, 26. Bd1
(Vinnur manninn aftur og þá er
skammt til loka)
26. — Db7, 27. Bxa4 — Bxa4,
28. Hxa4 — Rc6, 29. Bd6 —
Ha8, 30. Iib5 — Re7, 31. Bxe7
— Kxe7, 32. Da3+ — Ke8, 33.
cxd5 — exd5, 34. Ha6 — Hc8,
35. Hb1 — Hc7, 36. Ha1 og
svartur gaf.
Að sjö umferðum loknum er stað-
an þessi: 1 Ribli 5,5 (6), 2. Liber-
zon 5,5 (7), 3 Parma 4,5 (7), 4
Friðrik 4 og biðsk (7), 5—6
Timman og Zwaig 4 (7), 7 Hamann
3,5 og biðsk (6), 8. — 10 Oster-
mayer, Jansa og Poutiainen 3 v (6),
11 Hartston 2 v og 2 biðsk (6),
12 Murray 2 v (6), 13 Laine 1,5
v (7) 14 Björn 1 v (7), 15 van
den Broeck 0.5 v (7).
Laugavegi 66, sími 28155
Við úrbeinum
fyrir yður allt kjöt
Það koma ávallt nýjar
vörur í hverri viku á
markaðinn
Ótrúlegt
vöruúrval
á frábærlega
lágu
verði
ATHUGIÐ!
Markaðurinn
stendur aðeins
stuttan tíma
autaskrokka
Kálfaskrokka
Svínaskrokka
Folaldaskrokka
Tilbúið beint í f rystikistuna
D£=D(^[m]{I)@m§XI)DRí]
Laugalœk 2, REYKJAVIK, simi 3 5o 2o
'V
Hinn
margumtalaði
og vinsæli
ðtsðlumarkaður
vekur
athygli á . . . .