Morgunblaðið - 31.10.1975, Page 10

Morgunblaðið - 31.10.1975, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1975 / \ Viö afgreiöum litmyndir yöará^dögum Umboösmenn um land allt Kodak — ávallt feti framar. Hans Petersen? Bankastræti — Glæsibæ S 20313 S 82590 ATLAS snjódekk Hagstæll verð! 560 — 1 3 með 600 — 13 með 650 — 13 me8 560 — 15 með hvitum hring hvitum hring hvitum hring hvitum hring 8.885 kr full negld 8 027 kr full negld 8 538 kr full negld 8.860 kr full negld E 78 — 14 svört F 78 — 14 svört G 78 — 14 svört G 78 — 15 svört 8 262 kr ónegid 8.759 kr ónegld 9.180 kr ónegld 9.358 kr ónegld 9.800 kr negld 10.297 kr negld 10.718 kr negld 10.896 kr negld C 78— 14 með hvltum hring E 78 — 14 með hvitum hring F 78— 14 með hvltum hring 8.516 kr ónegld 8.893 kr ónegld 9.599 kr ónegld 10.055 kr negld 10 430 kr negld 11.137 kr negld 750— 16 6 strigal. Jeppadekk 16.498 kr Opið: mánud. — fimmtudag. föstudaga 8—22 laugardaga 8—17 VÉLADEILD SAMBANDSINS HJÓLBARÐAR HÖFÐATÚNI 8 SÍMAR16740 OG 38900 Helgi Þorláksson skólastjóri sextugur Er nokkur æðri aðall hér á jörð en eiga sjðn ú( yfir hringinn þröngva og vekja, hnýja hópsins veiku hjörð til hærra Iffs —til ódauðlegra söngva. Hann stendur nú á hátindi ævi manns á jörðu. Frjáls viðsýnn og vitur litast hann um af Ljósufjöll- um eftir langa göngu upp bratt- ann. Það er ekki jafnauðvelt og margir hyggja að klífa tind þrosk- ans og eiga að vísa öðrum leið, vera maður morgunsins og kallari við brautir fjöldans. Flatneskjan öfundar fjallið. Og uppi á tindin- um í nálægð heiðríkjunnar næða stormar allra átta, þótt sól skfni í heiði. Eg man Helga Þorláksson fyrst fyrir nú nær aldarfjórðungi, er við gerðumst samferðamenn hér í borg. Hann var þá kennari við Austurbæjarskólann, einn fjöl- mennasta skóla þessa lands fyrr og síðar. Þar var friður hópur fræðimanna og æskulýðsleiðtoga. Margir ógleymanlegir. Fyrir- myndir að fræðslu og háttum, æfðir við störf og forystu, snjallir í hugsun og handleiðslu. En mér og fleirum fannst hópur Helga bera af að háttvisi og i námi. Þar virtist ekkert vanhugsað. Allt rækilega undirbúið og1 fram- kvæmt líkt og söngstjórn þar sem hver tónn á sitt svið til að njóta sín sem bezt. Eg hygg, að þannig hafi hug- sjónir hans og aðferðir við fræðslu og leiðsögn ávallt verið, vandlega Ihugað og rætt. Hann var óhræddur við nýjung- ar, jafnvel djarfur. En samt vildi hann gróðursetja þær í íslenzkum jarðvegi. Siðar á vegi og undir stjórn hans sem skólastjóra Vogaskóla kom margt til greina, sem vart hafði áður verið reynt á Islandi: Fjölbreytt félagsstörf mitt I náms- önnum að takmarki prófa. Lauf- ardagar utanstundaskrár. Val- greinar, jafnvel upphaf fjöl- brautaskóla í framkvæmd. Eigin- lega alltaf eitthvað nýtt. Ekki allt- af vel skilið eða vel séð, kannski tilraunir, sem aðrir fordæmdu. En alltaf starf brautryðjandans í fjallgöngu fræðslumála á tslandi. Seinna á starf afmælisbarnsins skólastjórans og kennarans á þeim vegi eftir að vekja aðdáun og eftirtekt sem fyrirmynd. Þær eru lika margar ferðirnar, sem Helgi hefur farið til að afla sér fræðslu og útsýnis í framandi löndum, þar sem hæst ber mennt- ir. Þau eru orðin mörg þingin, sem hann hefur tekið þátt í. Samt eru enn fleiri þær nefndir og ráð, sem hann hefur sett, stjórnað og starfað við hér heima I skólamál- um borgar sinnar og þjóðar. Stundir þær, sem hugsað var, skipulagt og leiðbeint með orðum og ræðum eru þó enn þá fleiri. Þar hefur aldrei verið fyrst spurt um kaupið á klukkustund né gerðar kröfur til annarra. Hæst skyldi krafan á eigin hönd. Sum- umfannst erfitt að fylgjast með. Eg hef hér aðeins bent á Helga við aðalstarf sins annrikis. En hann er maður mikilla sanda og mikilla sæva austan úr Skafta- fellssýslum, þótt her verði ekki sú saga upprunans einu orði rakin. Vissulega hefur þar sem oftar hollur orðið heimafenginn baggi. Hvergi er máttur hinna skapandi og mótandi afla meiri fyrir sjón- um vegfaranda en á þessum fögru og tiginlegu bernskuslóðum hans, sem geyma paradisargarða gróð- urs og friðar við barm jökuls og faðm elds, ofsa fljóts og auðn sands. Þar hlutu þvii að mótast meginöfl hverrar mannssálar, sem nágrennis naut. Eg man Helga Þorláksson sem vegsögumann og fararstjóra. Og bezt um þessar æskubyggðir hans. Þar lauk hann bókstaflega upp ritningunum fyrir okkur þar sem fjöll og sandar, fjarlægð og ná- lægð, bæir og blómstur, saga og ævintýri fengu mál og söngrödd. Framhald á bls. 29

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.