Morgunblaðið - 31.10.1975, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1975
17
Skoti vill skerða
íslenzka síldveiði
London, 30. október. AP.
ÞINGMAÐUR úr flokki skozkra
þjóðernissinna, Douglas Hender-
son, hvatti til þess f dag að i
nýjum fiskveiðisamningi Is-
lendinga og Breta yrði gert ráð
fyrir endurskoðun fiskveiðirétt-
inda undan ströndum Skotlands.
Hann sagði að í viðræðum um
nýjan samning yrði að nota sem
vopn þann rétt sem Islendingar
hefðu til að veiða 22.000 lestir af
síld á Norðursjó og undan vestur-
strönd Skotlands.
Henderson kvartaði undan því
að Islendingar vildu einir veiða
innan 200 mílna frá ströndum
sínum en á sama tima hefðu þeir
heimild til að veiða síld upp að 12
mílna mörkunum við Skotland.
Hann sagði að hann ætlaði að
skrifa Roy Hattersley aðstoðar-
utanríkisráðherra bréf með
áskorun sinni. Henderson er þing-
maður East Aberdeenshire þar
sem fiskveiðar eru mikið stund-
aðar og er leiðtogi þingflokks
skozkra þjóðernissinna.
Sprenging rétt
við sendiráð
London, 30. október. Lögreglan telur að írskir lýð-
ÁTJÁN slösuðust, þar af sjö veldissinnar hafi staðið að
alvarlega, f sprengingu f ítölsku
veitingahúsi f Mayfair-hverfi f
London f gærkvöldi. Skammt þar
frá eru mörg erlend sendiráð, þar
á meðal það bandarfska.
15 ungmenni
létust í Mexico
Mexicoborg 30. okt. Reuter.
FIMMTÁN stúdentar, flestir
stúlkur, létust þegar farþegabif-
reið rakst á vörubíl 120 km vestur
af Mexicoborg í morgun. Stúlk-
urnar voru í skólaferðalagi. Lög-
reglan segir, að átján nemendur
hafi slasazt, sumir alvarlega.
von Thadden
hættir í NPD
Bonn, 30. október. Reuter.
ADOLF von Thadden hefur
sagt sig úr Þjóðlega lýðræðis-
flokknum, NPD, sem stendur
lengst til hægri í vestur-
þýzkum stjórnmálum, og jafn-
framt hætt virkum stjórnmála-
afskiptum.
Með þessu vill hann mót-
mæla því að Gerhard Frey, út-
gefandi blaðs þjóðernissinna í
Múnchen, hefur verið kosinn í
framkvæmdastjórn flokksins.
Von Thadden er i hinum
,,hófsama“ armi flokksins og
telur Frey of mikinn öfgasinna
að sögn stjórnmálafréttaritara.
Von Thadden er stofnandi
NPD og var helzti leiðtogi
flokksins á velgengnisárum
hans 1966 til 1969 þegar
flokkurinn átti fulltrúa á fimm
fylgisþingum.
Hægirsinnar boluðu von
Thadden úr flokksforystunni
fyrir fjórum árum og síðan
hefur hann haft lítil sem engin
áhrif.
sprengingunni og setja hana í
samband við mikla öldu hryðju-
verka, sem hafa orðið níu
mönnum að bana í London á síð-
ustu tveimur mánuðum. Tugir
annarra hafa slasazt.
Skömmu fyrir sprenginguna
handtók lögreglan fjóra karla og
fjórar konur sem eru grunuð um
að hafa verið viðriðin fyrri
sprengingar. Nokkur þeirra voru
írsk og einn þeirra var sagður
standa í tengslum við írska lýð-
veldisherinn. (IRA).
Margir telja að á bak við síðustu
sprengjuárásirnar í London
standi hópur óánægðra manna úr
IRA. Þeir munu berjast gegn
vopnahlénu, sem lýðveldisherinn
fyrirskipaði í febrúar.
Gríska oliuskipið Kriti Sun, sem er um 125 þús. tonn að stærð, varð fyrir eldingu
við Jurong skammt fyrir utan Singapore í fyrradag og skemmdist svo mikið að það
sökk á fáeinum klukkutímum.
Andstæðar ályktanir
um Kóreu samþykktar
New York, 30. okt. Reuter.
STJÓRNMÁLANEFND Alls-
herjarþingsins hefur samþykkt
tvær andstæðar ályktanir um
Kóreu, aðra frá vesturveldunum,
hina frá austurveldunum. Það
eina sem þær eiga sameiginlegt
er að í þeim báðum er hvatt til
Fyrirspurn um
landhelgina á
þess að herlið SÞ í Kóreu verði
leyst upp.
Vesturveldin leggja til að
gerðar verði ráðstafanir til að
varðveita vopnahléð svo unnt
verði að leggja niður herliðið í
janúar. Kommúnistar leggja til
að í staðinn fyrir vopnahléð verði
teknar upp viðræður milli Banda-
rfkjanna og Norður-Kóreu.
Bandaríkin og 27 önnur
vestræn ríki stóðu að fyrri tillög-
unni sem var samþykkt með 59
atkvæðum gegn 51 en 29 sátu hjá.
Ályktun kommúnistaríkjanna var
samþykkt með 51 atkvæði gegn 38
en 50 sátu hjá.
Gert er ráð fyrir þvi að reynt
verði að ná samkomulagi um
málamiðlun áður en tillögurnar
verða lagðar fyrir Allsherjar-
þingið í næsta mánuði.
Vesturveldin hvetja Norður- og
Suður-Kóreu til að halda áfram
viðræðum i þeim tilgangi að flýta
fyrir friðsamlegri sameiningu.
Þau láta einnig í ljós von um að
viðræður fari fram um nýtt fyrir-
komulag í staðinn fyrir vopna-
hléssamninginn í þeim tilgangi að
draga úr spennu og tryggja varan-
legan frið.
Kommúnistaríkin hvetja til
brottflutnings allra erlendra her-
sveita sem eru í Suður-Kóreu
undir fána SÞ, friðarsamnings
Bandaríkjanna og Norður-Kóreu
og raunhæfra ráðstafana til að
binda enda á vígbúnað og fækka
herjum.
brezka þinginu Formaðurinn
Einkaskeyti til Mbl.
London, 30. október. AP.
FISKVEIÐIDEILU Islend-
inga og Breta bar enn á
góma í Neðri málstofunni í
dag en stjórnin sagði að
ekkert nýtt hefði gerzt.
Patrick Wall, þingmað-
ur íhaldsflokksins frá
Haltemprice, sem er
skammt frá Hull, spurði
hvaða fyrirspurnir land-
búnaðar- og fiskveiðiráð-
herra hefði fengið frá
brezkum sjávarútvegi
vegna útfærslu íslenzku
fiskveiðilögsögunnar.
Edward Bishop, aðstoð-
arráðherra úr landbúnað-
ar- og fiskveiðiráðuneyti,
sagði í skriflegu svari: ,,Ég
get engu bætt við svar sem
hæstvirtur þingmaður
fékk við mjög svipaðri
fyrirspurn sem hæstvirtur
þingmaður bar fram 23.
október.“
I svarinu 23. október, en þaö
var frá ráðuneytisstjóra ráðupeyt-
isins, Gavin Strang, sagði: „Við-
ræður standa nú yfir við íslenzku
rikisstjórnina um samninga um
veiðar Breta við ísland þegar nú-
verandi bráðabirgðasamningur
rennur út 13. nóvember."
hitti Schmidt
Peking, 30. okt. Reuter.
MAO Tse-tung ræddi f dag við
Helmut Schmidt, kanslara Vest-
ur-Þýzkalands.
Schmidt átti að ræða við Teng
Hsiao-ping aðstoðarforsætisráð-
herra, en þeim fundi var frestað á
síðustu stundu og f þess stað var
kanslaranum ekið til bústaðar
Maos.
Schmidt hefur útskýrt afstöðu
Vestur-Þjóðverja til friðsamlegr-
ar sambúðar f ræðu í veizlu sem
Kínverjar héldu honum. Hann
sagði að Þjóðverjar vildu stuðla
að jákvæðara andrúmslofti {
Evrópu og stuðla að verndun
öryggishagsmuna allra þjóða.
Teng aðstoðarforsætisráðherra
gagnrýndi aftur á móti Rússa í
sinni ræðu, en án þess að nefna
þá. Hann sagði að á sama tíma og
Rússar töluðu um að slaka á
spennu ykju þeir styrjaldarundir-
búning meir en nokkur önnur
þjóð.
Leyfilegt að bjarga
fólki úr ánni Spree
Austur-Berlin,
30. október, Reuter.
YFIRVÖLD í Austur-Þýzkalandi
og Vestur-Berlfn hafa gert með
sér samning um að afstýra því að
fólk drukkni f ánni Spree á milli
hinna tveggja hluta Berlfnar.
Samningurinn heimilar yfir-
völdum f Vestur-Berlín að bjarga
fólki sem dettur f ána þótt bjarga
verði þvf f austurþýzkri lögsögu.
Viðræður um samninginn hafa
staðið yfir síðan í júni 1973 og þar
til nú hafa þær alltaf strandað á
ágreiningi um stöðu markanna
milli borgarhlutanna. Austur-
Þjóðverjar telja þau landamæri
ríkja en yfirvöld i Vestur-Berlin
líta á þau sem borgarmörk.
Mikill hiti komst i málið í maí
þegar fimm ára gamall tyrknesk-
ur drengur drukknaði í Spree.
Hann var fjórða barnið sem
drukknað hafði í ánni á þremur
árum.
Lögregla Vestur-Berlínar sagði
að varðbátur kommúnista hefði
komið i veg fyrir tilraun hennar
til að bjarga drengnum. Austur-
Þjóðverjar sögðu að yfirvöld í
Vestur-Berlín hefðu að engu haft
tillögur sínar um að afstýra slys-
um.
Hætta þeir
að veiða í
bræðslu?
Árósum, 30. október. NTB
DANIR verða sennilega að hætt
að veiða i bræðslu að nokkru eð
öllu leyti að sögn danskra ú1
gerðarmanna í dag.
Ástæðan er sögð sú, að all
bendir til þess, að 200 rnílna efn;
hagslögsaga strandríkja verói a
menn og viðurkennd regla inna
skamms.
Auk þess muri Norðaus
ur-Atlantshafs-fiskveiðinefndin
fjalla um ýmsar takmarkanir
veiðum fisks til venjulegra
neyzlu á fundi i London i næst
mánuði.