Morgunblaðið - 31.10.1975, Síða 37

Morgunblaðið - 31.10.1975, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1975 37 VELVAKAIMDI Velvakandi svarar i sima 10-100 kl. 14— 1 5, frá mánudegi til föstu- dags. 0 Hugleiðing til hinnar heilögu þrenn- ingar skólayfir- valda á Eski- firði Þetta er yfirskrift Regínu Thor- arensen á Eskifirði, sem skrifar á þessa leið: „Svargrein skólayfirvalda á Eskifirði við gagnrýni, sem fram hefur komið á störf þeirra er afar sakleysisleg hjá hinni heilögu þrenningu og allir, sem þar hafa skrifað nöfn sín undir þykjast lik- lega vera búnir að þvo hendur sinar eins og Pílatus. Ég vil þá svara Sigriði Kristins- dóttur fyrst, því að hún er aldurs- forseti skólans hér og gæti verið móðir kvennanna og amma skóla- systkina sinna. Ég ætla aðeins að kynna Sigriði lesendum Mbl. Hún er 52 ára, dugnaðarkona, og hefur ekki alltaf farið troðnar slóðir, sem betur fer. En Sigriður er fram úr hófi fljótfær og trúir engu, nema hún reki sig á það sjálf. Fyrir nokkrum árum keypti hún sér 50 tonna bát og ætlaði að sýna alþjóð það í verki, að það væri stórgróði á þvi að gera út. Eftir stuttan tima fannst henni, að það væri of dýrt fyrir sína útgerð að borga manni fyrir að sjá um bókhaldið, þvi að útgerðin gekk hálfilla. Sigríður vatt þá sínu kvæði í kross, seldi bátinn og ákvað að fara i gagnfræðaskólann hér um s.l. áramót til að læra reikning og bókfærslu. Nú vil ég spyrja Sigríði nokk- urra spurninga: 1. Hver bað þig að láta nemend- ur gagnfræðaskólans skrifa und- ir? 2. Hve margir vildu ekki skrifa undir? 3. Hve margir foreldrar hringdu til þín og báðu þig að strika nöfn barna sinna út? 4. Skipaðir þú börnunum að skrifa undir eða baðstu þau að gera það? 5. Varstu með mikinn áróður við nemendur út af grein minni í Mbl. 2. okt. s.l.? mikið talað um, að unga fólkið úti á landsbyggðinni komi ekki heim aftur að loknu framhaldsskóla- námi. Ég spyr: Þarf nokkur að vera hissa á þvl ef vfða er beitt annarri eins valdaníðslu og þið gerðuð I ykkar veitingu? Er það efst I huga ykkar og fast ákveðið að veita einungis réttindalausu fólki kennarastöður við barna- og gagnfræðaskólann hér? Það mætti vel segja mér, að það væri íslandsmet, að allir kennarar við sama skóla, væru réttindalausir eins og hér á Eskifirði, þar sem þeir eru 12 að tölu. Verkin tala og þau eru ólygnust. Hvað er að ger- ast við fyrrnefndan skóla? Er eitt- hvað óhreint I pokahorninu hjá skólayfirvöldum hér? Hafa fleiri réttindakennarar sótt um stöður á Eskifirði, en verið neitað? Er ekki eðlilegt að ég spyrji? % Til skólastjóra Nú beinir Regína máli sinu til Trausta Björnssonar skólastjóra og segir: „Var ekki fljótfærnis- legt af þér, eftir að þú last ábend- ingar mínar i Mbl. 2. okt. að fara strax daginn eftir til 13—16 ára barnanna og biðja þau að skrifa undir, að grein mín væri „áróður og lygi“? Þú viðurkennir flest i grein minni, að visu ferðu eins og köttur í kringum heitan graut, en er leyfilegt að vera með áróður I kennslustundum, eins og þið Sigríður Kristinsdóttir gerðuð að morgni 3. okt.? Morgunblaðið kom austur að kvöldi 2. okt., en þegar unglingarnir komu heim úr skólanum eftir hádegi daginn eftir þá segja þau, að nú hafi verið gaman í skólanum um morguninn. Þau hafa litið þurft að læra vegna þess að Sigriður Kristinsdóttir hafi lesið einhverja grein sem Regína hafi skrifað í Mbl. í gær þrisvar sinnum og að þau hafi svo skrifað nöfn sín á blað hjá Sigríði og nú komi nöfn- in bráðum i Mbl. Að vonum var tilhlökkun þeirra mikil að sjá nöfnin i Morgunblaðinu. Heiðraði skólastjóri, Trausti Björnsson. Ertu svo mikið barn, þótt háskólagenginn sért, að þú þolir ekki ábendingar. Ekki væri gott fyrir þig að vera ráðherra. Hverja fengir þú þá til að skrifa undir? Ég held, að þetta forgangs- hrað hjá ykkur Sigriði sé ykkur báðum til leiðinda og alls ekki til fyrirmyndar. Ég er sammála þvi, að skóli sé viðkvæm stofnun. En af hverju hefur þú þá sem skóla- stjóri forgöngu um að særa börn- in með þvi að boða sum til skóla- slita en mælast til þess við önnur, að þau komi ekki? AUs staðar þar sem ég þekki til skólamála er mikil áherzla lögð á að börn komi til að vera við skólaslit. Fólk gæti haldið að þú hefðir ekki hálft skepnuvit gagnvart barnasálinni þegar þú þóttist vera að slíta skól- anum. og ég er viss um að það er einsdæmi að skólastjórar fari að sortéra börn eins og átti sér stað hér s.l. vor. Eins og ég sagði hér að framan viðurkennir þú flest, sem ég segi, annað en orðið skrill. Ég á ekki það orð, þótt þú viljir eigna mér það. Ég hef heyrt þetta orð haft eftir þér af börnum, sem ekki áttu að koma til skólaslitanna i vor. Ég þekki talsvert til úti á lands- byggðinni og við höfum oftast fengið sanna og góða embættis- menn, sem heimamenn hafa getað treyst og borið virðingu fyrir, en svo hefur það borið við, að einn og einn embættismaður hefur viljað sýna veldi sitt og háskólamennt- un, og haldið að hann mætti fram- kvæma allt, sem honum sýndist með ýmiss konar breytingum, sem síður en svo eru alltaf til bóta. Þessir litlu háskóiamennt- uðu menn hafa kannski ekki alltaf unnið fyrir matnum ofan i sig I sinni heimabyggð, en fólkið sem býr úti á landi gleypir ekki allt ótuggið, þvi að það hefur góðar tennur, þótt það sé ekki langskólagengið. Ég óska skólayfirvöldum og barna- og gagnfræðaskólanum hér allra heilla i nútið og framtíð. Jafnframt óska ég þess að skóla- yfirvöldin hér særi hvorki nem- endur né kennara af ásettu ráði að endingu vil ég þakka þeim mörgu, sem hafa hringt og komið heim til mín og þakkað fyrir grein mína í Velvakanda 2. okt. s.l. Fólki finnst að vekja þurfi máls á því sem aflaga fer í blöðum — þá fyrst beri það árangur. Regfna Thorarensen.“ HÖGNI HREKKVÍSI PHILIPS 30% mefra ljtis ávinnuflötinii sami orkukostnartur PhilipsArgenta’ SuperLux keiluperan með óviójafiianlega birtuglugganum Terelynbuxur kr. 2.575 og 3.575. Flauelsbuxur nr. 26 — 36 kr. 1.995 Terelynefrakkar 3.575 vattst. Nylonúlpur klr. 4.025. Acrylpeysur kr. 1.270 Sokkar kr. 125 Karlmannaföt kr. 9.080 Andrés, Skólavörðustíg 22. Fullkomió philips verkslæói Fagmenn sem hafa sérhæft sig í-umsjá og eftirliti með Philips-tækjum s'á um allar viðgerðir. heimilistæki sf SÆTÚNI 8. SÍMI. 13869. STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS 6. Fékkstu leyfi skólastjóra til að trufla kennslu vegna undir- skriftasöfnunarinnar? 0 Til formanns og ritara skólanefndar Þið segið í yfirlýsingu ykkar: „Skólanefnd harmar þvi fram- komin skrif Regínu Thorarensen um þessi mál.“ En þið harmið ekki að særa unga konu, sem hefur fyllstu kennararéttindi úr Kennaraskóla íslands. Það er t baki orða hans, en ég gerði mér ekki grein fyrir hver hún var. Og þar sem ég var ekki undir það búfn að veita honum endanlegt svar kaus ég að hverfa á braut. Eg kinkaði stuttlega kolli og yfirgaf Márten Gustafsson og kirkju- garðinn þar sem vetrarsólin skein svo bjart... Ég kom ekki auga ð Barböru og sá hana ekki aftur fyrr en ég kom heim ð prestsetrið. Hjördis Holm sagði mér að þau hin hefðu þcgar snætt morgunverð, að presturinn hefði ekið til Kila tii að halda bænarstund, að Einar og Lotta hefðu farið út og að prófessorinn hefði farið upp á herbergi sitt og ætiaði að leggja sig. Þegar ég hafði neytt ofan f mig brauðsneið með skinku ákvað ég að fara að dæmi hans. Eg vaknaði ekki af blundi mínum fyrr en klukkan hálf tvö og ég veít ekki almennilega hvað vakti mig. Kannski var það undir- meðvitundin sem var að verki. En ég fór niður og hitti þar fyrir Einar, Tord og Christer f stofunni — örfáum mfnútum áður en Connie Lundgren kom þjótandi móður og másandi. Langleitt andlit hans var náfölt og þunnt grábrúnt hárið var lfmt Nú — Nú ... þetta verður f fyrsta skipti sem ég slepp undan að mæta kattarófétinu. Fjármálastjórn fyrirtækja Hver er fjárhagsleg staða fyrirtækisins? Stjórnunarfélagið gengst fyrir námskeiði i Fjármálum I. 3. —10. nóvember n.k. að Skipholti 37. Námskeiðið stendur yfir frá kl. 15:00 til kl. 19:00 mánud. 3. nóv., þriðjud. 4. nóv., miðvikud. 5. nóv., föstud. 7. nóv. og mánud. 10. nóv. Markmið þessa námskeiðs er að veita þjálfun i að meta afkomu og fjárhagslega stöðu fyrirtækis og að auki að kynna gerð fjárhagsáætlana (budgeting), þ.e.a.s. áætlana um rekstrarafkomu, um sjóðshreyfingar og um þröun efnahags fyrirtækja. Athyglinni verður beint fyrst og fremst að ársreikningum (rekstrar- og efnahagsreikningi) fyrirtækja og kannað, hvert gagn megi af þeim hafa og i hverju þeim sé áfátt. Eftir upprifjun i bókhaldstækni verður gerð grein fyrir tækni við rannsóknir á ársreikningum og tækni við samningu yfirlits um fjármagns- streymi. Þá kemur lýsing og gagnrýnið mat á hefðbundnum meginreglum sem fylgt er við samningu ársreikninga og lýst tækni, sem beita má til að leiðrétta það vegna áhrifa verðlagsbreytinga. Nauðsynlegt er fyrir þátttakendur að hafa bókhaldsþekkingu. Nám- skeiðið kemur að góðu haldi öllum, sem fást við fjármál. Leiðbeinandi verður Árni Vilhjálmsson prófessor Þátttaka tilkynnist í síma 82930. Þekking er góð fjárfesting. 83? SIGGA V/ÖGA £ “(/LVeRAW W) HONOl^O 6Í?A. SI66A, IF. VÓ YNN\tf WLL)0H \ tíAPM?/£ff/NO OG <o\'PAN SVO MEL OG VlfNN/ $AW I imW VIA90R W ýNÍ r m 'Aíilik i vtum, ' ft/ÁQA Vf/'AI;

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.