Morgunblaðið - 31.10.1975, Síða 40

Morgunblaðið - 31.10.1975, Síða 40
ai<;lysin<;asimi\n er. 22480 au<;lVsin<;asími\n er: 22480 FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1975 Miöl og lýsi stígnr Ekki ástæða til of mikillar bjartsýni VERÐ á mjöli og lýsi hefur stigið nokkuð sfðustu daga á heimsmarkaði. Hver proteineining af mjöli hefur hækkað um allt að 50 cent, en þó mun einhver afturkippur hafa orðið á verðinu í gær, en verð- sveiflur eru mjög algengar á mörkuðum þar sem dag- prísar ráða. Hvert tonn af lýsi hefur hækkað um rösk- lega 30 dollara. Þrátt fyrir þessar hækkanir, vara fs- 12 ára stúlka lífshættulega slösuð eftir umferðarslys ALVARLEGT umferðar- slys varð á Nesvegi gegnt Tjarnarbóli skömmu fyrir klukkan 8 í gærmorgun. Tæplega 12 ára gömul stúlka varð fyrir Bronco- jeppa og hlaut hún alvar- leg höfuðmeiðsli og liggur nú lffshættulega slösuð á gjörgæzludeild Borgar- sjúkrahússins. Hemlaför jeppans voru mjög löng, en smávegis hálka mun hafa verið þegar slysið varð. Ökumaðurinn var 17 ára gamall og hafði fengið cku- skfrteini fyrir aðeins hálfum mánuði. Nánari atvik voru þau, að stúlkan var á leið í skóla. Fór hún á reiðhjóli frá heimili sínu við Tjarnarból og beygði vestur Nes- veg. Broncobifreiðin ók vestur Nesveginn og eftir hetnlaförun um að dæma virðist hún hafa verið á allmikilli ferð. Skall bif reiðin á stúlkunní og féll hún i götuna. Var stúlkan strax flutt á Borgarsjúkrahúsið til aðgerðar. lenzkir mjöl- og lýsis- seljendur menn við of mik- illi bjartsýni. Gunnar Petersen hjá Bernhard Petersen h.f. sagði í samtali við Morgun- blaðið f gær, að tslend- ingar hefðu sfðast selt mjöl á 3.80 dollara protein- eininguna, en í þessari viku hefði verðið komist upp í 4.30—4.50 dollara. Enginn vissi hvort fram- hald yrði á þessum hækkunum, en fslenzkir mjölframleiðendur hefðu þegar selt nokkur þúsund tonn fyrirfram á þessu verði. Verðið myndi ráðast af veiðum Perúmanna á næstunni, en ansjósu- veiðar þeirra hefðu svo til algjörlega brugðizt fram til þessa. Kvað Gunnar Perúmenn hafa beðið um afgreiðslufrest á mjöli sem átti að koma til afgreiðslu f nóvember og desember og mjöl- kaupendur keyptu nú mjöl frá öðrum löndum til að tryggja sér mjöl í bili að minnsta kosti. Pétur Pétursson hjá Lýsi h.f. sagði, að ekkert lýsi væri til í landinu um þessar mundir og að sínu mati væri of snemmt að hugsa um fyrirframsölur. Ekki væri hægt að neita því, að lýsið hefði hækkað í verði síðustu vik- urnar. I september hefði hvert lýsistonn farið niður fyrir 300 dollara f verði, en hefði sfðan hækkað á ný upp í 330 dollara. En það væri engin ástæða til að vera með mikla bjartsýni. Feitefnis- markaðurinn í heild hefði ekki styrkzt. Svæðamótið: RibK og Liberzon hafa forystu I áttundu umferð svæðismóts- ins f skák f gærkveldi urðu úrslit þessi: Friðrik og Hamann gerðu jafntefli f 25 leikjum, Ribli og Liberzon gerðu jafntefli f 31 leik, Jansa vann Björn Þorsteinsson f 39 leikjum, van den Broeck vann Murray f 39 leikjum, Ostermayer vann Laine f 33 leikjum, Poutiainen vann Timman f 33 leikjum og Hartston vann Zwaig f 19 leikjum. Efstu menn eru: Ribli og Liberzon hafa forystu með 6 vinn- inga. I þriðja sæti er Friðrik með 4,5 og biðskák, í fjórða sæti er Parma með 4,5 vinninga í 5. sæti er Hamann með 4 vinninga og biðskák og síðan eru f 6. til 9. sæti Poutiainen, Zwaig, Timman Ostermayer og Jansa allir með 4 vinninga. Nfunda umferð verður tefld í kvöld. Þá tefla saman Ribli og Framhald á bls. 24 Ljósm.: Oskar Sæmundsson Það er yfirleitt nóg að gera á sjónum, og starfið oft á tíðum tilbreytingarríkt. Myndin er tekin um borð í rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni þegar verið var við síldarrannsóknir fyrir skömmu. Fjölmörg frystihús halda áfram vinnslu KOMIÐ hefur f Ijós, að mörg þeirra fyrstihúsa, sem sagt var að hætta myndu starfsemi um helg- ina, gera það ekki og munu halda áfram vinnslu svo lengi sem þau geta. Forráðamenn húsannasegja þó, að með þeim rekstrargrund- velli, sem húsin búi við núna, sé vart langt að bfða þess, að þau verði að hætta starfsemi, en reynt verði að klóra f bakkan eins lengi og hægt er. Mörg frvstihúsanna hafa þegar sagt sínu starfsfólki upp og gerðu það um leið og fiski- skipaflotinn stöðvaðist f sfðustu viku. Þeir framkvæmdastjórar þrátt fyrir fjárhagserfiðleikana Innkalla 500 þúsund gosdrykkjarflöskur Fundizt hafa nokkrar flöskur mengaðar af þvottaefnum FUNDIZT hafa þrjár flöskur af gosdrykkjarframlciðslu fyrir- tækisins Sanitas h.f., scm mengaðar eru af þvottaefnum — að þvf er Skúli Johnsen, borgar- læknir, tjáði Mbl. f gær. Þessi þvottaefni eru mjiig sterkur lút- ur, sem getur valdið slæmum skaða, ef fólk drekkur hann. Skúli sagði að iúturinn hefði fundizt á tveimur flöskum af Pepsi Cola og einni flösku af Seven-Up. Hefur borgarlæknis- embættið f samráði við Sanitas kallað inn alla framleiðslu verk- smiðjunnar. Skúli sagði að í allan gærdag hefði verið reynt að finna, hvort meiri brögð væru að þessu og kvað hann hafa verið farið í 50 verzlanir i gær, en fyrsta flaskan, sem vart varð við, fannst í Hafnarfiröi. Hafa um 500 flöskur verið opnaðar og ekkert fundizt athuga- vert við þær. „En þetta er það slæmt,“ sagði Skúli, „að við þor- um ekki annað en láta innkalla alla framleiðsluna. Það sem gerist er auðvitað aðeins slysni. Fram- leiðsluvörur Sanitas eru Pepsi, Seven-Up, Mirinda, Póló og sykurlaust appelsín. Hér er ein- göngu um öryggisaðgerð að ræða.“ Skúli sagði að liklegast væri hér um að ræða þvottasóda, sem flöskurnar væru þvegnar upp úr. Hefur framleiðandinn reynt allt til að komast að þvi hvers vegna þessi ólyfjan er í flöskunum, en erfitt hefur verið að fá úr því skorið hver ástæðan er. Skúli sagði að reynt yrði að rekja slóð þessara sérstöku send- inga, sem lúturinn hefði komið fram í og kvað hann borgar- læknisembættið mundu aðstoða framleiðandann við rannsókn málsins I dag. Morgunblaðið hafði samband við Sigurð Waage framkvæmda- stjóra Sanitas í gærkvöldi og spurði hann hver ástæðan væri fyrir þessum mistökum. Sigurður Waage sagði, að eitt- hvað hefði komið fyrir, sem þeir vissu ekki þessa stundina. Ein- hver lútur hefði lent á nokkrum flöskum á einhvern óskiljanlegan Framhald á bls. 24 fyrstihúsa, sem Mbl. ræddi við f gær, sögðu, að frystihúsin þyrftu hærri afurðalán og að vaxta- greiðslur væru að drepa rekstur- inn. Samstarfsnefnd frystihúsa- eigenda mun ganga á fund for- sætisráðherra kl. 9.30 í dag og skýra frá vandamálum frystihús- anna. — Við munum ekki loka okkar húsi að svo komnu, sagði Sighvat- ur Bjarnason, forstjóri Vinnslu- stöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Þessa dagana reynum við að lifa og gerum þangað til allsherjar- stöðvun kemur á okkur, en von- andi verður það aldrei. Sighvatur sagði, að f höfuð- atriðum væri hann sammála bréfi því, sem stjórnvöldum var sent, en í því hefði ekkert staðið um að stöðva ætti frystihúsin. — En við reynum að klóra í bakkann. Þetta mál hefur verið rætt við bæjar- stjórnina hérna, þvl ef frystihús- in loka, þá gripur það fljótt inn í atvinnulífið. Þá er ekki gott að þurfa að segja upp fastráðnu ’ starfsfólki, ef það yrði gert er óvíst að við komumst af stað aftur. Valdimar Indriðason, fram- kvæmdastjóri Heimaskaga á Akranesi, sagði, að þeir hefðu sagt upp sínu starfsfólki strax og fiskiskipaflotinn sigldi til hafnar og að óbreyttu ástandi myndi vinna leggjast niður í frystihús- inu í nokkra daga á næstunni, eingöngu vegna þess, að hráefni vantaði. En um leið og fiskur bær- ist að landi, yrði vinna hafin á ný. — Við reynum að klóra í bakkann eins og hægt er, en við rikjandi aðstæður er ákaflega erfitt að reka frystihús i þessum lands- hluta. En ekkert er verra en at- vinnuleysi. Guðjón Ölafsson hjá Hraðfrysti- húsi Ólafs Lárussonar í Keflavík sagði, að þeir væru búnir að segja öllu fólki upp og tækju uppsagnir gildi annað kvöld. Höfuðástæðan fyrir stöðvun frystihússins væru gífurlegir vextir og óhentugar fisktegundir. Frystihúsið hefði ekkert hráefni eftir miðja næstu viku, og eftir það hefðu þeir úr engu að spila, því veðsetning á fiskinum hrykki ekki fyrir vinnu- launum og hráefni. Einar Kristjánsson hjá Sjö- stjörnunni í Njarðvíkum sagði, að uppsagnir h''rðu tekið gildi hjá þeim og bé væri að loka húsinu. Bankarnir færu nú algjörlega eftir þeim reglum, sem þeir hefðu, en það hefðu þeir ekki gert í mörg ár. Þessi ákvörðun bank- anna og hinir háu vextir ásamt óhagstæðum fisktegundum væru ástæðan fyrir fjárhagsvanda frystihússins. Þá hafði Morgunblaðið sam- band við Árna Jónsson i afurða- lánadeild Landsbankans og Framhald á bls. 24

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.