Morgunblaðið - 06.12.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1975
5
„Utrás” - fyrsta bók
ungrar skáldkonu
Kqmin er ut fyrsta skáldsaga
ungs höfundar, Jóhönnu Þrá-
insdóttur, og nefnist „Útrás“.
Útgefandi er Almenna bóka-
félagið.
„Skáldsagan Útrás er raunsæ
og hispurslaus lýsing á Ilfi
ekkju, sem missir mann sinn af
slysförum, eftir hjónaband,
sem henni verður brátt ljóst að
byggzt hefur á gagnkvæmri
blekkingu. I beiskju sinni og
ráðleysi varpar hún sér út í
hringiðu skemmtanalífsins og
kemst þá í kynni við ýmsar
dekkri hliðar lífsins, fyrst hér
heima og síðan í Bandaríkjun-
um. Margar og margvíslegar
persónur, verða á leið hennar,
og eru ýmsar lýsinganna næsta
kostulegar" segir í fréttatil-
kynningu frá útgefanda.
„Sagan er gáskafull og bráð-
skemmtileg en um leið umbúða-
laus lýsing, sem ber í senn svip
af þjóðfélagsádeilu, ástarsögu
og djörfum bókmenntum."
í bókarkynningu á kápu segir
m.a.:
„Útrás einkennist öðru frem-
ur af hreinskilni og sérstæðu
skopskyni höfundarins, lifandi
samræðustíl og næmri tilfinn-
ingu fyrir björtum og dökkum
hliðum nútfmasamfélags.
Jóhanna Þráinsdóttir, er
Reykvíkingur, fædd árið 1940.
Stúdentsprófi lauk hún frá
Jöhanna Þráinsdöttir
Menntaskólanum f Reykjavík
árið 1960, og stundaði sfðan
nám f tungumálum og leikhús-
fræðum m.a. í Prag og Vínar-
borg. Hún hefur dvalizt vfða
erlendis, þar á meðal í Banda-
ríkjunum, og ber bókin þess
glöggt vitni, að hún er þaul-
kunnug staðháttum þar.“
Aður hefur Jóhanna birt
smásögur í tímaritum.
Skemmtun og fjáröflun
Styrktarfélags vangefinna
Undanfarin ár hefur
Styrktarfélag vangefinna
efnt til skemmtana til fjár-
öflunar fyrir stofnanir
vangefinna. Þar hefur vel-
unnurum félagsins gefizt
kostur á að styrkja mál-
efnið, um leið og þeir njóta
góðra skemmtana.
Á þessu ári hafa nokkrir
velmetnir listmálarar gefið
verk í happdrættisvinn-
inga á kvöldsemmtunina,
sem verður á Hótel Sögu
kl. 21 n.k. sunnudagskvöld.
Myndirnar verða til sýn-
is í glugga Málarans á
laugardag og sunnudag.
Einnig verður barna-
skemmtun í Sigtúni á
sunnudag kl. 2.30 en þar
verður skemmtidagskrá og
leikfangahappdrætti með
750 vinningum. — Myndin
er af nokkrum dvalar-
gestum á dagheimilinu
Bjarkarás. Málverkin, sem
dregið verður um í happ-
drættinu, sjást fyrir aftan.
HP 1124 S
Pessi 2 rakhnífa vél er tæknilega
alveg eins og HP 1124. Eini munurinn
er sá, aS þessi vél er geymd í
mjúkum gervileSurpoka en HP1124
er I plastkassa.
HP1125
Bestu kaupin I milliverSflokki rafmagns-
rakvéla. Hún er meS rakhaus meS 3
rakhnifum, sem tryggir frábæran og
mjúkan rakstur. Þessa vél er hægt aS nota
á ferSalögum um víSa
veröld, þar sem hú
er meS innbyggSu
straumbrevti
HP 1124 G
Þetta er vélin fyrir þá, sem kjósa ódýra en góSa
rafmagnsrakvél.
Þessi vél er eins og allar aSrar gerSir af Philips
rakvélum meS 90 super rakhnlfum.
Nýtt og endurbætt lag orsakar aS vélin fer betur I
hendi en áSur.
Þjóðlegar
sagnir
eftir Ingólf Jóns-
son frá Prestsbakka
Þær þjóðlegu sagnir, sem þessi
bók hefur að geyma, eru stutt-
orðar og gagnorðar og eru skráðar
á kjarngóðu máli. Hefur Ingólfur
fyrst og fremst leitað fanga hjá
alþýðu manna.
Höfundur hefur frá bernsku
fengizt við sagnasöfnun. Fyrra
bindi þessa safns hans, sem út
kom á sl. ári, fékk hinar beztu
viðtökur og ummæli. Þessi bók
hefur að geyma fjölbreytt safn
sagna: álfasögur, dulrænar sögur,
örlagasögur, reynslusögur, dýra-
sögur og skringisögur, og eru sög-
urnar úr öllum landshlutum, jöfn-
um höndum úr strjálbýli og þétt-
býli.
Margar sagnanna spegla ramma
og forneskjulega þjóðtrú, trú á
drauga og huldar vættir, forspár
og fyrirbæri, aðrar segja frá
meinlegum örlögum og sér-
stæðum skringilegheitum.
DHIIIDC
rWl I Ll rJ atækninm