Morgunblaðið - 06.12.1975, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 06.12.1975, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1975 Minningarorð: Sólveig Jónsdóttir Stóra-Lambhaga Fædd: 8. apríl 1889. Dáin: 28. nóvember 1975. I dag fer fram frá Leirárkirkju útför Sólveigar Jónsdóttur fyrr- um húsfreyju á Stóra-Lambhaga í Skilmannahreppi, en þar lézt hún 28. nóvember s.l. á87. aldursári. Sólveig var fædd að Brennu í Lundarreykjadal 8. apríl 1889, dóttir hjónanna Sigríðar Snorra- dóttur og Jóns Pálssonar, sem þar bjuggu. Brennusystkinin voru átta, tveir bræður og sex systur, og var Sólveig yngst systranna. Hún átti góða og glaða æsku í foreldrahúsum. Ung fór hún í kvennaskólann i Reykjav k með tveimur systrum sinum. Einnig lærði hún fatasaum, sótti nám- skeið í hússtjórn og lærði að leika á orgel. Menntaði hún sig því meira, en algengt var með stúlkur í þá daga. Reyndist hún síðan hin mesta hagleikskona og fóru henni öll verk einstaklega vel úr hendi. Ung giftist Sólveig Sigurði Sig- urðssyni frá Stóra-Lambhaga i Skilmannahreppi. Hófu þau bú- skap á hluta jarðarinnar á móti foreldrum Sigurðar, sem einnig hétu Sólveig og Sigurður. Var Sig- urður eldri hreppstjóri sinnar sveitar. Síðar keyptu ungu hjónin alla jörðina og hófu þar miklar framkvæmdir, byggðu upp öll hús og réðust í mikla ræktun. Gerðu þau Stóra-Lambhaga að hinni myndarlegustu jörð. Sigurður varð forystumaður i málum sinn- ar sveitar. Hann tók við störfum hreppsstjóra eftir föður sinn og gegndi margvíslegum trúnaðar- störfum fyrir sveitunga sina. Þau hjón voru mjög samhent um alla hluti. Fór í senn saman hjá þeim myndarskapur og gestrisni og frá- bær snyrtimennska. Það varð mér mikil gæfa að kynnast þessu góða fólki, er ég fór þangað sem barn til sumar- dvalar árið 1920. Sumrin mín í Stóra-Lambhaga urðu 12 og ávallt síðan hef ég átt því láni að fagna að eiga Lambhagafólkið að góðum vinum, enda nánast litið á það, sem hluta af minni fjölskyldu. Nú að leiðarlokum, þegar fyrrum húsmóðir mín, Sólveig í Stóra- Lambhaga hefur kvatt sitt jarðn- eska líf i hárri elli, er margs að minnast. Ég minnist fyrstu komu minnar að Stóra-Lambhaga, þegar Sólveig kom og bauð mig vel- komna með sinni gleði og hlýju. Hún var há og grannvaxi'n og svo hárprúð, að ljósar fléttur hennar náðu nær að hnésbótum. Fríð var hún og glæsileg, einkum er hún mér minnisstæð, þegar hún klæddist íslenzka búningnum, en sjálf hafði hún balderað borðana og saumað búninginn að öllu leyti. Minnisstæðust af öllu er mér þó tryggð hennar og vinátta í öll þessi ár, sem ég er innilega þakklát fyrir. Þeim Sólveigu og Sigurði var fjögra barna auðið. Þrjú barn- anna, Sigurður, Jón og Sólveig eru öll gift og búsett að Stóra- Lambhaga. Ein dóttir þeirra, Sig- ríður, er gift og búsett í Reykja- vík. Mun það sjaldgæft að svo stór hluti barnanna setjist að á ættjörð sinni. Sigurður maður Sólveigar lézt árið 1953, löngu fyrir aldur fram. Eftir lát hans var Sólveig lengst af hjá Sigurði syni sínum og Guð- rúnu konu hans. Naut hún mikils ástríkis barna sinna og tengda- barna, svo og barnabarna, sem ávallt áttu athvarf hjá góðri ömmu. Sjálf sagði hún við mig, er fundum okkar bar síðast saman í haust, að hún hefði verið mikil gæfumanneskja í lífinu. Hún gat Iíka með gleði horft yfir farinn veg. Uppbyggingin og ræktunin á Stóra-Lambhaga hefur haldið áfram. Þar situr nú Sigurður, son- ur Sólveigar og Sigurðar, sem hreppstjóri og dugandi forystu- maður sinnar sveitar, eins og fað- ir hans og afi áður fyrr. Sá góði hugur, sem ég kynntist fyrst hjá gömlu hjónunum á Stóra- Lambhaga fyrir meira en hálfri öld hefur ávallt fylgt og einkennt fólkið þar síðan. Eg sendi Lambhagafólkinu og öðrum ástvinum Sólveigar Jóns- dóttur innilegar samúðarkveðjur frá mér og fjölskyldu minni. Guð blessi minningu hennar. Eygló Gamalfelsdóttir. Kveðja: Omar Snorri Hreiðarsson Fæddur 10.7 1965 Dáinn 26.11 1975. Fátt er átakanlegra og kemur mönnum meira á óvart en þegar börn og unglingar eru án nokkurs fyrirboða hrifin á brott úrþessum jarðbundna heimi okkar. Menn skynja tómleikann umhverfis sig og finna sárar til þess en yfirleitt ella, hversu vanmáttugar við manneskjurnar erum gagnvart al- mættinu. Ömar Snorri Hreiðarsson lést skyndilega á heimili sínu þann 26. þ.m., aðeinstíu ára að aldri. Þenn- an sama dag var hann í skólanum hjá okkur, hress og kátur og virt- ist allt vera í besta lagi með hann. En skjótt skipast oft veður í lofti og svo reyndist að þessu sinni, því örfáum klukkustundum síðar var hann látinn. Ömar heitinn var elskaður og virtur af öllum er hann þekktu, enda var hann einstaklega prúður og aðlaðandi drengur og átti auð- velt með að vinna hugi þeirra er hann umgekkst. Félagahópur hans var stór og munu margir sakna góðs og heilbrigðs vinar. Kynni mín af Ómari voru fyrst og fremst í gegnum skólastarfið. Var hann nemandi minn að meira eða minna leyti frá þvf hann hóf skólagöngu sína til síðasta dags. Var ég sannfærður um að þar væri drengur, sem ætti bjarta framtíð og farsæla fyrir höndum og trúi ég að ég hafi ekki verið einn um það álit. En nú er hann horfinn frá okkur. Ómar var elstur þriggja sona þeirra hjóna Önnu Snorradóttur og Hreiðars Guðmundssonar til heimilis að Kirkjugerði 7, Vogum. Bræður hans tveir eru Magnús Hlynur, sem er sex ára en sá yngri er óskfrður, enda aðeins tveggja mánaða gamall. Ég og eflaust allir sem Ómar þekktu, munum minnast hans með hlýjum huga. Foreldrum hans, bræðrum og öðrum ættingj- um og vinum votta ég dýpstu sam- úð mína. Er það trú mín og einlæg von, að hina fjölmörgu og eflaust ánægjulegu minningar sem þeir eiga um góðan og ástfólginn vin, verði þeim styrkur á erfiðum stundum. Hreinn Ásgrímsson. ÞESSI mynd var tekin á Landakotsspftala, þegar stjórn Vinahjálpar afhenti spftalanum röntgentækið. Ljósm. Sv. Þorm. Snæbjörn J. Thoroddsen: Sauðlauksdalur Annexíur kirkjunnar eru: Saurbær á Rauðasandi og bænhúsið í Breiðavík, sem fyrst var sett af Jóni Geirrek" syni biskupi 1431, en með kon- ungsbréfi 31. des. 1824 gjört að kirkju með sérstakri sókn. Aður fyrrum var aðalkirkjan f Saurbæ og var helguð Maríu og Jóni postula, en f Sauðlauks- dal var þá bænhús, þar til Stefán Jónsson, biskup, setti þar sóknarkirkju 1512, og lagði þangað helming af sóknar- bæjum frá Saurbæ. Nokkru síðar (1514) gaf Tón Jónsson íslendingur og Dýr- finna Gisladóttir, kona hans, 6 hundruð f heimajörðinni til kirkju, og mörg ftök og hlunn- indi önnur, og var þar eftir saminn kirkjuvígslumáldagi (1515), og önnur prestsskyidin frá Saurbæ lögð þangað (1518), , en með gjafabréfum 1724, 1725 og 1728 gáfu þær Eggerts- dætur, Helga eldri og yngri, Arnfríður og Guðrún, allt hitt af heimajörðinni (19 hundruð) til kirkjunnar, og er Sauðlauks- dalur staður síðan. Það, sem hér að ofan er sagt, er skráð af Rósinkrans Ivars- syni, fræðimanni, hinn 15. júlí 1945 á Þjóðskjalasafni íslands. Þannig mun upphaf af sögu Sauðlauksdals. Frá því 1458—1963 hafa 30 prestsvígðir menn setið Sauð- lauksdal, eða að meðaltali hver prestur milli 16. og 17 ár. Síðan 1963, eða síðustu tólf ár, hefur enginn prestur setið staðinn, og nú er Sauðlauksdalur alveg mannlaus. Vafalítið hafa flestir, eða allir, þessir 30 prestar, sem Sauðlauksdal hafa setið þessi 500 ár verið mætir og ágætir fræði- og kennimenn, sómi sinnar stéttar, og nokkrir þeirra eflaust skarað fram úr fjöldanum. Það segir sig þvf sjálft hversu mikil og góð þeirra andlegu áhrif hafa verið byggðabúum á samleiðinni um aldirnar. Án þess að slá rýrð á nokkurn þessara prest\’ígðu manna vil ég aðeins nefna nafn sr. Björns Halldórssonar, þess þjóðkunna manns. Ég ætla ekki í þessum örfáu línum að tilfæra neitt um sr. Björn, en vil benda á for- málsorð Þorsteins Þorsteins- sonar, þáverandi sýslumanns í Dalasýslu, sem skráð eru framan vió ljósprentaða útgáfu að riti sr. Björns, „Atli“, sem gefið var út 1948 af Búnaðar- félagi Islands. Þessi formálsorð sr. Bjorns Halldórssonar sýna einmitt ljóslega hvaða hæfileikum sr. Björn Halldórsson var gæddur og hverju hann gat til leiðar komið, einmitt í Sauðlauksdal. Þau sýna einnig hvernig sr. Björn hefur unað hag sínum: „Undir bláum sólarsali, Sauð- Iauks-uppí lygnum dali“, ein- mitt í Sauðlauksdal. Fyrir átta árum eða svo hóf fjölskylda búskap I Sauðlauks- dal, sem átti ekki bústofn sem nefnandi væri. Þetta fólk keypti nú á þessu ári jörð á Rauðasandi og fluttist frá Sauð- lauksdal með 8 eða 10 nautgripi og um 200 sauðfjár, fullorðið. Þetta mætti sýna, að það má lifa I Sauðlauksdal fjárhagslega talað. Auk landgæða I Sauðlauks-X dal, en þar er svo að segja allt land véltækt, sem á annað borð er slegið, er við túnfótinn all- stórt vatn. Silungsveiði hefur ávallt verið í Sauðlauksdals- vatni, og var veiði úr þvi lögð á móti mjólkurnyt úr snemm- bærri kú til heimilisþarfa. Undanfarin ár mun þetta vatn hafa gefið af sér nokkra tugi þúsunda króna í veiðileyfum með stöng. Þar munu jafnvel hafa veíðzt laxar (aðeins fáir) veit ég samt ekki til að laxaseiði hafi verið flutt þangað. Fyrir tæpum tveimur árum átti ég tal við þjónandi prest og spurði hann, hvað myndi valda því, að enginn sækti um Sauð- lauksdal. „Ætli að þeim þyki ekki staðurinn afskekktur," sagði presturinn. Bílfær vegur er af þjóðvegin- um að dyrum kirkjunnar og mun vera um 5 minútna akstur á þjóðveginn. Bílfær vegur að flestum eða öllum býlum í um- dæmi Sauðlauksdals. Flug- völlur er að Sauðlauksdalssönd- um og um 8—10 mínútna akstur á flugvöll. Þrir flug- dagar eru milli Reykjavíkur og flugvallarins I hverri viku, og ég held, aðrir þrir vikulega milli Isafjarðar og vallarins. Sauðlauksdalur hefur sima frá Patreksfirði, og hefur þvi sam- samband milli 9 að morgni til 9 að kvöldi, eða meðan Patreks- fjörður gegnir afgreiðslu. I Sauðlauksdal munu vera all góð skilyrði til að nota sjón- varp. Nú spyr ég: Hvers vegna sækir enginn prestsvígður maður um Sauðlauksdal? Heilla þéttbýlu þorpin og stað- irnir meir en hinar dreifðu byggðir? Sauðlauksdalspresta- kall mun nú ná yfir Barða- strandar- og Rauðasands- hreppa. Já, hvað veldur? Sauðlauksdalur býður enn hin sömu lífsskilyrði, er hann bauð þeim 30 prestum, er sátu i hann i samfellt 5 aldir. Núna á 20. öldinni, eða 1920 var við brottför prestshjóna frá Sauðlauksdal samið ljóð, sem þetta erindi er úr: „Þar fékk forða námfús nægan, nær mun fyllast auðnan slík? Hjónin gerðu garðinn frægan, göfug- lynd og kærleiksrík." Eru það ekki einmitt svona heimili, sem þurfa að vera um dreifðar byggðir Islands? Við þurfum fræðandi, kærleiksrik heimili i anda Júsú frá Nazaret, sem sagði: „Eitt er nauðsynlegt." Guðfræðikandidatar og em- bættislausir prestar: Litið á Sauðlauksdal með opnum aug- um, þegar þér leitið yður að framtíðarlífsstarfi. Kvígindisdal, 11. nóvember 1975. Snæbjörn J. Thoroddsen Vinahjálp gefur röntgentæki STJÓRN Vinahjálpar afhenti nýlega St. Jósepsspítala í Landa- koti að gjöf vélknúið röntgen- myndatökutæki á hjólum. Við af- hendingu tækisins mælti for- maður Vinahjálpar, frú Doris Briem, nokkur orð. Tæki þetta er eins og áður sagði færanlegt og er hægt að aka þvf inn á sjúkrastof- ur og mvnda sjúklinga I rúmum sfnum. Fyrst og fremst er tækið þó ætlað til myndatöku á sjúk- lingum á gjörgæzludeild spítalans. Yfirlæknir rönt- gendeildar spftalans, Kristján Jónsson, þakkaði gjöfina fyrir hönd spftalans og sagði hana bæta úr brýnni þörf, þegar um mjög sjúkt fólk væri að ræða. Þetta er í þriðja sinn, sem Vina- hjálp leggur Landakostsspfiala lið með tækjagjöf og segir I fréttatilkynningu frá Vinahjálp að það sé aðeins Iftill þakklætis- vottur við stofnun, sem f 63 ár hefur veitt landsmönnum hjúkr- un og skjól f veikindum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.