Morgunblaðið - 06.01.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANUAR 1976
17
Staðan
Kristinn Jörundsson.
Stighæstir:
Kristinn Jörundsson IR 152
Jimmv Rogers A 137
Curtiss Trukkur KR 129
Kolbeinn Kristinsson IR 106
Jón Sigurðss. Armanni 105
Bjarní Gunnar tS 100
Jón Jörundsson IR 99
Stefán Bjarkason UMFN 97
Kristján Agústsson Snæf. 92
Rlkharóur Hrafnkeiss. Val 86
Gunnar Þorvarðars. UMFN 83
Torfi Magnússon Vai 81
JÓn Sigurðsson.
Vftakostaníting: (miðað við
12 skot sem lágmark).
Jón Sigurðsson A
20:17 — 85%
Steinn Sveinsson IS
31:24 — 77%
Jón Jörundsson IR
30:23 — 77%
Kári Marísson UMFN
20:15 — 75%
Stefán Bjarkason UMFN
12:9 —75%
Þorkell Sigurðsson Fram
12:9 —75%
Jón Héðinsson IS
24:17 — 71%
Ríkharður Hrafnkelsson Val
14:10 — 71%
Næstu leikir f 1. deild eru á
laugardag, þá ieika UMFN og
KR í Njarðvík, IR: Fram og
Valur: Snæfell á
Seltjarnarnesi.
gk
Armann
lR
KR
IS
UMFN
Fram
Valur
Snæf.
5 5 0 496:416 10
6 4 2 524:471 8
4 3 1 369:302 6
5 3 2 403:405 6
5 2 3 405:404 4
4 1 3 295:305 2
5 1 4 408:466 2
4 0 4 257:388 0
Guðmundur Sigurðsson, Armenningur nær frákasti 1 ieiknum við IR.
TanjSJnar kngfctt tjá (K
og írmaiiii sigraði 90:89
KOLBEINN Kristinsson, víta-
skytta Reykjavíkurmótsins i
Körfubolta og án efa í hópi
beztu vftaskyttna hérlendis,
stóð á vítaskotalinunni þegar
tvær sek. voru eftir af leik ÍR
og Ármanns. Staðan var
90:89 fyrir Ármann, og með
þvi að hitta i báðum skotun-
um gat Kolbeinn tryggt ÍR
sigur — með þvi að hitta i i
öðru gat hann tryggt ÍR fram-
lengingu. Þriðji möguleikinn
var sá að hann brenndi báð-
um skotunum af og það var
það sem hann gerði. Hann
hafði fyrr i leiknum tekið
fjögur vítaskot og hitt I þeim
öllum, en nú var taugaspenn-
an of mikil. Kolbeinn hrein-
lega „nötraði" af tauga-
spennu, eins og reyndar flest-
ir sem voru viðstaddir loka-
minútur leiks ÍR og Ármanns.
Þetta var einn af þessum si-
gildu „taugaspennuleikjum"
milli toppliðanna i körfubolt-
anum þar sem sek. skilja milli
sigurs og taps.
Þrátt fyrir mikla taugaspennu náðu
bæði liðin að sýna frábæran leik á
köflum, þótt enginn leikmannanna
sýndi snilldarleik á við Símon Ólafs-
Framhald á bls. 21
Auðvelthjá Valgegn
áhugalitlu liði Fram
VALUR hlaut sín fyrstu stig í 1. deild
um helgina þegar þeir unnu Fram
me8 75 stigum gegn 59, og er nú
Snæfell eina liðið sem hefur ekki
hlotið stig i 1. deild. Valsliðið sem
hefur nú endurheimt þá Þóri
Magnússon og Þröst Guðmundsson
sýndi þó ekki neitt sérstakan leik að
þessu sinni, menn virtust ekki
almennilega vera búnir að jafna sig
eftir veizluhöldin um jól og áramót.
Þar við bættist hjá Fram að þeir
virtust sumir hverjir hafa mjög tak-
markaðan áhuga á þvi sem þeir voru
að gera. það var alltaf eins og herzlu-
muninn vantaði á að beir næðu að
sýna það sem vitað er að þeir geta.
Þeir héldu þó alveg í við Val í fyrri
hálfleik og komust reyndar yfir um
miðjan hálfleikinn 20:16, en stuttu
síðar var staðan 26.26. En þá tóku
tveir beztu menn Vals i leiknum, Þórir
Magnússon og Rikharður Hrafnkels-
son, sig til og breyttu stöðunni í 39:32
fyrir Val og þannig var staðan i hálf-
leik
Þessi munur hélzt á liðunum fram
eftir síðari hálfleik, og virtist sigur
þeirra aldrei í neinni hættu þrátt fyrir
að ekki munaði miklu á liðunum En
upp úr miðjum hálfleiknum juku Vals-
menn siðan enn við forskot sitt og
sigruðu síðan með 16 stiga um,
75:59
Þórir Magnússon virðist nú óðum
vera að ná fyrri styrkleika, a.m.k.
virðist stillingin á byssunni frægu
komin i gott lag þegar hann fer í
langskotin og auk þess er Þórir ávallt
harður í fráköstunum Þá átti Rikharður
Hrafnkelsson enn einn góðan leik, og
hefur fáum leikmönnum i 1 deild farið
Æftlft
jafnmikið fram í vetur og honum. Þröst
ur Guðmundsson virðist æfingalitill,
en allir vita hvaða styrkur er að honum
fyrir liðið komist hann í æfingu. Torfi
Magnússon var óvenju slakur að þessu
sinni
Hjá Fram bar Þorvaldur Geirsson af,
lék raunar i öðrum gæðaflokki en aðrir
leikmenn Fram ef Hörður Ágústsson er
undanskilinn Þorvaldur er mjög vax-
andi leikmaður sterkur i sókn og vörn
Hörður er hins vegar aðalbaráttujaxlinn
i liðinu, og sá sem heldur upp bar-
áttunni i vörninni. Aðrir leikmenn Fram
voru slakir í þessum leik
Stighæstir hjá Val: Þórir Magnússon
27, Ríkharður Hrafnkelsson 20
Hjá Fram: Þorvaldur Geirsson 21,
Hörður Ágústsson 1 3
gk
„Þú gelur haft þaó eftir mér
að ég skrifi undir skýrsluna
með fvrirvara." sagði Kristinn
Jörundsson eftir leik IR við
Armann. Við fengum það
siðan staðfest hjá tR-ingum að
ástæðan fvrir þvi að þeir skrif-
uðu undir leikskýrsluna með
fvrirvara var sú að þeir ætluðu
sér að kæra leikinn gegn Ar-
ntanni. Og forsendur fyrir
þeirri kæru eru að sögn þeirra
sú, að Sfmon ölafsson hafi
verið ðlöglegur með Armamii.
Virðist nú komið upp f
körfuboltanum mál sem óneit-
anlega svipar mjög til
„Elmarsmálsins" fræga. „Við
teljum að Símon Olafsson sé
ólöglegur með Armanni, hann
hefur keppt fyrir háskóla
þann sem hann stundar nám
við f Bandarfkjunum. Og sam-
kvæmt úrskurði dómstóls sem
dæmdi f „Elmarsmálinu" má
sami leikmaður ekki leika með
erlendu liði og fslenzku á sama
keppnistímabili.“
„Ég skil þetta ekki almenni-
lega,“ sagði Sfmon Ölafsson.
„Ég hef ekki skrifað undir
neina samninga við háskólann
og hef ekki sótt um keppnis-
leyfi í Bandarfkjunum. Ég hef
spilað þrjá leiki með varaliði
skólans, það er allt og sumt.“
Stórt atriði f umsögnum IR-
inga telja þeir, að skólinn sem
Sfmon hefur keppt fvrir sé
aðili að NCAA en það sam-
band þýði nákvæmlega það
sama og K.K.l. hér heima. En
hvað um það, hér hafa menn
fengið eitthvað til að tala um
og deila um næstu daga, og
dómstólar þeir sem málið fer
fyrir munu áreiðanlega fá
verðugt verkefni.
gk
Sfmon Ölafsson.
Bannmálið dregur dilk á eftir sér
Margir ósáttir við dóm Aganefndar og tveir dómar
ar í 1. deild œtla ekki að dœma meira þar í vetur
ANGI þess máls er þeir Curtiss
Carter og Jimmy Rogers voru
dæmdir í leikbann af Aganefnd
á dögunum virðist ætla að
teygja sig víða. Þannig hefur
nú Dómaranefnd Körfuknatt-
leikssambandsins verið
tilkynnt að tveir dómarar i 1.
deild, þeir Ingi Gunnarsson og
Hilmar Hafsteinsson, muni
ekki dæma meira þar f vetur.
Margir hafa lýst óánægju
sinni með dóm Aganefndar, og
telja hann allt of vægan. Dæma
hefði átt þá blökkumenn í
þriggja leikja bann skilyrðis-
laust, annað sé bara undan-
sláttur og „kák“. Þá eru margir
af starfandi dómurum vægast
sagt mjög óánægðir með hluta
af dómi Aganefndarinnar þótt
þeir hinir söinu segist sætta sig
við að þeir fengu aðeins eins
leiks bann. En í dómnum var
tekið fram, að ef þeir yrðu
kærðir aftur til Aganefndar
myndu þeir fá 6 leikja bann.
Við þetta ákvæði eru margir
dómarar alls ekki sáttir, og
telja að það sé verið að setja á
þá allt of mikla pressu. Einn
ónafngreindur dómari sagði t.d.
við undirritaðan:
„Segjum svo að ég sé að
dæma leik KR og IR í sfðari
umferð mótsins. Sú staða kom
upp að einn leikmaður IR
ákveði að æsa ,,Trukk“ upp, og
gera hann verulega vondan í
þeim tilgangi að hann brjóti
eitthvað af sér sem hægt verður
að kæra til Aganefdar. Þetta
getur bæði farið fram á þann
hátt að viðkomandi leikmaður
æsi „Trukk“ upp með orðum
eða hnippingum. Segjum sem
svo að þessum (tilbúna) leik-
manni takist að æsa „Trukk“
það mikið upp að hann snúi sér
til mín og segi sem svo:
„Hversvegna f andsk. . . reynir
þú ekki að hafa augun hjá þér
maður og fylgjast með hvað er
verið að gera gagnvart mér til
hvers heldur þú að þú sért með
flautu f munninum." — Undir
venjulegum kringumstæðum
ætti leikmaður sem þannig
ávarpar mig að fá rautt spjald,
og ætti að fá keppnisbann í
einn leik. En get ég með góðri
samvizku sýnt Trukk rauða
spjaldið, vitandi það að hans
bíður 6 leikja bann — og ferð
með fyrstu vél heim til Banda-
rikjanna??"
Já, það er margt bölið í heimi
hér, og ég vona að ÍR-ingar
virði það við mig þótt ég hafi
talað um ÍR-ing í framansögðu.
Þetta var sett þannig fram, en
gæti allt eins átt við alla þá
mótherja sem þeir Jimmy og
Trukkur eiga eftir að mæta.
Eg tek undir með þeim
dómurum sem hafa gagnrýnt
þennan úrskurð Aganefndar.
Það er of mikil pressa sett á
dómara með þessu, þótt sumir
telji þetta vera traustsyfirlýs-
ingu gagnvart dómurum!!!
Nýjar fréttir
Þegar við vorum að ganga frá
þessari grein barst okkur sú
frétt frá Guðna Guðnasyni, sem
sæti á í Aganefnd, að þetta
ákvæði um 6 leikja bann gildi
aðeins ef þeir Jimmy eða
Carter geri sig seka um sams-
konar brot á ný. Og þessi frétt
hlýtur að verða til þess að létta
þungu fargi af dómurum. gk