Morgunblaðið - 06.01.1976, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6, JANUAR 1976
26
Lúðvík Jónsson
meinatœknir - Kveðja
F. 9.10 1927
D. 20.12 1975.
„AldrH devr. þótl allt um þrolni,
endurminninR þess sem var.
(i. Thomsen.
Það var síð sumars 1967. sem ég
kynntist fyrst Lúðvík Jónssyni.
Þá var hann meinatæknir á
sjúkrahúsinu á Akranesi, en ég
leysti yfirlækninn, Pál Gíslason,
af ísumarfríi hans.
Með okkur tókst þá þegar
ágætur kunningsskapur og síðar
vinátta, eftir að hann réðst hér að
sjúkrahúsinu í Keflavík sem
meinatæknir 1972.
Þá var verið að taka í notkun
nýja, rannsóknastofu í sjúkra-
húsinu og var það ómetanlegt að
fá I.úðvik Jónsson til þess að veita
henni forstöðu strax í byrjun.
Hann sá um uppbyggingu rann-
sóknastofunnar af sínum alkunna
áhuga og dugnaði og sparaði
hvorki tíma né fyrirhöfn til þess
að gera veg hennar sem mestan.
Lúðvík var mikill ákafamaður,
vildi hrinda hugmyndum sinum í
framkvæmd þegar í stað, og
kunni illa hangsi og seinlæti.
Hann hugsaði þó hvert mál vand-
lega og lagði niður fyrir sér áður
en framkvæmdir hófust, var frá-
bær skipuleggjandi, sem við Kefl-
víkingar kynntumst kannski hvað
best í sambandi við Keflavíkur-
hátíðina 1974, en bærinn átti 25
t
Systir okkar og frærtka min.
GUÐBJORGMYRVANG.
Turistv*i*n 42.
Tromsdal. Tromsö.
andaðist að kveldi 3 þ m
Fyrir hönd barna hennar og
annarra aðstandenda
Sigurlaug Sigurbjöcnsdóttir.
Guðmundur Sigurbjornsson.
Sigurbjartur Sigurbjörnsson.
Maria S. Óskarsdóttir
ára afmæli. Var sú hátíð öll
frábærlega skipulögð að allra
dómi og mæddi þar mest á
Lúðvík, sem var framkvæmdar-
stjóri sýningarinnar og virtist
hann oft ekki einhamur.
Hann vann öll sín störf af
frábærri samviskusemi og öryggi.
Sí og æ vakandi í starfi og fylgdist
með nýjungum i meinatækni af
einstakri árvekni.
Hann var mjög fjölhæfur
maður og úr honum hefði mátt
gera marga menn, eins og sagt
hefur verið um fleiri Islendinga.
Hann var mjög Iistrænn, og
málaði talsvert í frístundum sfn-
um, og eru sum málverk hans
sannköMuð listaverk.
Hann var einnig mikill náttúru-
unnandi og félagsmaður og
starfaði lengi í skátahreyfing-
unni, fyrst á Akranesi og síðast
hér í Keflavík.
Hann hafði mikla söfnunargleði
og átti mikið frímerkjasafn ásamt
fleirum, en á þvf kann ég þó lítil
skil.
Lúðvík var ákaflega vel af guði
gerður, fluggáfaður, skarpur,
minnugur og víðlesinn, síglaður
og kátur og geislandi af lifsgleði
og fjöri, sem smitaði út frá sér.
Hann var einstakur í viðræðum,
hugmyndaríkur, hnyttinn og
sanngjarn í deilumálum, maður,
sem allir þroskuðust af að kynn-
ast og umgangast, skapheitur
maður og fljótur að reiðast, en
fljótur til sátta og búið um leið.
Eg kann ekki að rekja ættir
Lúðviks Jónssonar, enda talinn
mikil skussi f ættfræði, en hann
var fæddur á Akranesi 9. okt.
1927 og ólst upp í föðurhúsum,
ásamt sex systkinum, en tvö eru
dáin.
Faðir hans Jón Ágúst Þórðar-
son, lifir son sinn og býr i Kópa-
vogi, en móðir hans Lovfsa
Vflhelmfna Guðmundsdóttir, er
dáin.
Mestu hamingju lffs síns hlaut
Lúðvík 1950 er hann kvæntist
t
SIGURJÓN GUOI AUGSSON.
' kirmum.
Þykkvaba.
lézt i Landakotsspitala 4 janúar
Pállna Jónsdóttir og vandamenn.
t
Eiginkona min.
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR,
Háaleitisbraut 1 55,
andaðist á Landspítalönum föstudaginn 2 janúar. Jarðarförin auglýst
síðar.
hyrir mína hönd. barna okkar. tengdabarna. barnabarna og annarra
ættingja.
Garðar Ólason.
t
Jarðarför konu minnar,
SIGURVEIGAR M. GUNNARSDÓTTUR.
Réttarholtsvegi 85
fer fram frá Fossvogskirkju. þriðjudaginn 6 janúar kl. 3 e h
Fyrir mína hönd, barna okkar. systkína og móður hinnar látnu.
Bjarni Viggósson.
. \ '
t
Eiginmaður minn og faðir okkar
INGIBERGUR JENS GUÐJÓNSSON,
bifreiðastjóri
frá ísafirði,
Stigahlið 22, Reykjavík
varð bráðkvaddur aðfaranótt laugardagsins 27 desember Útför hans
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 8 janúar kl. 1 0.30 f.h
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað, en þeim sem vildu heiðra
minning hans er bent á líknarfélög
Anna Helga Hjórleifsdóttir,
Guðjón Sigþór Jensson, Elisabet Jensdóttir,
Páll Viðar Jensson.
Samstarfsmaður okkar í tæp 4
ár, Lúðvík Jónsson meinatæknir,
er nú horfinn sjónum okkar.
Eftir stöndum við sem þrumu
lostin yfir þessu skyndilega og
óvænta fráhvarfi.
Mikil eftirsjá er að Lúðvík sem
á sínum tiltölulega stutta starfs-
ferli hér á Sjúkrahúsi Keflavíkur-
læknishéraðs, ávann sér traust
bæði sem starfsmaður og félagi.
Hann var ávallt örvandi og frjór í
öllum umræðum og félagslífi
meðal okkar.
Einkennandi var hversu oft
hann gat komið af stað heilabrot-
um meðal fólks með nýstárlegum
hugmyndum sínum og því að líta
á hin ýmsu mál frá nýjum sjónar-
hornum.
Hann var áhugamaður um
margt, fjölhæfur og manna líkleg-
astur til að koma hugmyndum
sínum í framkvæmd.
Enda þótt missir okkar sé mikill
er annarra missir meiri.
Við viljum votta fjölskyldu Lúð-
víks innilegustu samúð á sorgar-
stundum.
Starfsfólk Sjúkrahúss
Keflavíkurlæknishéraðs.
eftirlifandi eiginkonu sinni
Guðrúnu Sæmundsdóttur úr
Reykjavík.
Eígnuðust þau átta börn, sem
öll eru á lífi og þar af þrjú gift,
fimm eru enn í föðurhúsum, það
yngsta 10 ára.
Á heimili þeírra ríkti hin sanni
heimilisandi, þar sem allir virtust
sem ein samvirk heild, þar sem
hlýjan og kærleikurinn réðu ríkj-
um, þar leið manni vel og þaf var
gott að koma.
Fjölskyldan og heimilið voru
honum allt, en ógæfan er aldrei
langt undan.
Lúðvík mun ekki hafa verið
kvartsár maður, en trúlega mun
hann þó hafa kennt þess sjúk-
dóms, sem dró hann til dauða
áður en lokaáfallið kom í desem-
ber, en hann lést úr kransæða-
stíflu 20 des. s.l. á Landspítalnum.
Hann gekk æðrulaus og
ótrauður til þessarar sfðustu
orustu lifs sins. Skyldurækni hans
var svo einstök að hann mætti til
vinnu sinnar morguninn, sem
hann veiktist, sárþjáður.
Slikir menn sem Lúðvfk, skilja
eftir sig spor, sem ekki mást.
Eg vil að leiðarlokum, þakka
Lúðvik fyrir frábært starf í þágu
Sjúkrahússins i Keflavfk og
ógleymanlega viðkynningu og
vináttu. Orð eru oft Iftils megnug,
en mikil buggun er það eiginkonu
og börnum að hafa átt slíkan
eiginmann og föður.
Kristján Sigurðsson.
Guðný Jóhannesdóttir
Stóra-Skógi - Minning
F. 24. maf 1907.
D. 29. desember 1975.
Þegar Guðný Jóhannesdóttir
hefur nú lokið göngu sinni og
hlotið hvíld, er orðið stórt skarð í
samhenta systkinahópinn frá
Svínhóli, sem kveður hana í
hinsta sinn.
Hver og einn hugsar í hljóði,
gleðst og hryggist. Ég minnist
Guðnýjar systur minnar með
stolti og virðingu. Ég minnist
þróttmiklu samverustundanna í
leik og í starfi, heima í foreldra-
ranni. Ég geri ráð fyrir, að sál-
rænn andi hennar hafi flutt þakk-
arkveðju til foreldra okkar, sem á
undan fóru, yfir þau landamerki,
er enn skilja vegi.
Mér er þakkaróður í huga,
vegna þess hve vel hún skildi
þeirra hag, strax á unga aldri, og
veitti þeim handtök sín, svo styrk
og mörg, allt til fullorðinsára.
„En svo leið æskan unga“, og
Guðný stofnaði sitt eigið heimili,
með traustum eiginmanni. Og
heimilið var stofnað þar sem hún
fæddist fyrir 68 árum, að Stóra-
Skógi, „þar sem afi okkar bjó, þar
sem amma okkar dó“ ... Þangað
var gott að koma. Þar var gott að
dvelja. Og þegar leið min lá inn
Skógarströnd, og upp Harrastaða-
veg, blöstu við reisuleg býli f vel
hirtu túni og grænum ökrum,
enda Stóri-Skógur orðinn eitt
mesta höfuðból í Dalasýslu.
t
Eiginkona mln. móðir og systir.
HREFNA KARELSDÓTTIR BARTELTT,
(éður til haimilis »8 Skipasundi 51)
lézt I Morgantown Hospital W-Virginia U.S.A. þann 26 desember
1975
Jarðarlör hennar lór fram (30 desember) I W-Virginia U.S.A.
Carl A. Bartlatt
Minnie K. Woltan
og systkini hinnar látnu.
t
Útför eiginmanns míns
ÞORBERGS P. SIGURJÓNSSONAR.
kaupmanns.
Bergstaðastræti 46,
fer fram frá Fossvogskírkju miðvikudaginn 7. janúar kl. 3
Fyrir hönd barna, tengdabarna. barnabarna og annarra aðstandenda.
Kristln Asmundsdóttir.
t
Systir okkar,
KRISTÍN GUOFINNSDÓTTIR.
Norðurbrún 1,
verður jarðsett frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 6 janúar kl 1 3.30
Guðrlður Guðfinnsdóttir,
Kristjana Guðfinnsdóttir,
Jóhanna Guðfinnsdóttir.
t
Móðir mín
RAKEL ÞÓRÐARDÓTTIR,
er lézt ! Kaupmannahöfn 22 desember 1975, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 8 janúar kl 1 30
Birgir Lorange.
Ég sagði með hrifingu við sam-
ferðafólk: þarna býr systir min!
Þegar rennt var i hlað hins
glæsilega heimilis þeirra kom
hún til móts við gesti sfna bros-
andi, en með hógværu húsmóður-
stolti, og bauð hverjum þeim, sem
að garði bar, að ganga f bæinn.
Þannig var Guðný, ekki aðeins f
sfnum eigin bæjardyrum, heldur
hvar sem hún kom, hvert sem hún
fór; brosandi, virðuleg, viljaföst
og sterk. Vel fór henni að vera
veitandí.
Margir sátu og við hennar þung-
hlöðnu veisluborð, þá rætt var um
dag og veg, meðan notið varð
hinna rausnarlegu veitinga.
Þannig gæti ég haldið áfram að
rekja þráð þeirra minninga, sem
gerðu hana stóra, og styrktu okk-
ar fjöiskyldubönd.
Guðný hefur kvatt. — Sveitin
okkar góða kveður hana, og þakk-
ar samfylgd, og samveru liðinna
ára.
Kæri Benedikt og synir, Gunn-
ar og Billi, og frændkeðjan öll!
Hugheilasta samúðarkveðja.
Ykkar einlægur
Olafur Jóhannesson
frá Svlnahóli.
t
Móðir mín, systir okkar og
amma,
GUÐBJÖRG
ÁSMUNDSDÓTTIR,
Hitúni 10,
lézt í Landspitalanum laugardag-
inn 3 janúar.
Erla Egilsdóttir,
Jenný Ásmundsdóttir,
Unnur Ásmundsdóttir
og barnabörn.
t
Systir min
RAGNHILDUR ERLA
ERLINGSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju, miðvikudaginn 7 janúar
kl. 1 30
Fyrir hönd systkinanna,
Bertel Erlingsson.
útfaraskreyllngar
blómouol
Groðurhusið v/Sigtun simi 36770