Morgunblaðið - 27.03.1976, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MARZ 1976
35
USA vildi ekki
r
víta Israel
— og beitti neitunarvaldi í Oryggisráðinu
Jerúsalem, New York, 26. marz Reuter. AP.
YIGAL Allon, utanríkisráðherra Israels, sagði I dag að Bandarfkin
hefðu komið í veg fyrir, að meiri háttar ágreiningur risi milli þeirra og
Israels með þvf að beita neitunarvaldi f Öryggisráðinu við tillögu, þar
sem Israelar voru vfttir vegna aðgerða þeirra á herteknu svæðunum á
vesturbakka Jórdan. Allon gekk hins vegar á fund sendiherra Banda-
ríkjanna f Tel Aviv til að bera fram kvörtun vegna ræðu Williams
Scrantons, aðalfulltrúa Bandarfkjanna á dögunum, en frá henni hefur
verið sagt hér f blaðinu. Scranton sagði meðal annars, að landnám
Israela á svæðunum væri ólögmætt og hindrun í vegi fyrir þvf að friður
gæti komizt á.
Peres, varnamálaráðherra ísra-
els, sagði í viðtali við Maariv í
dag, að israelar hefðu átt að leyfa
Aröbum sem búa á herteknu
svæðunum að koma á fót sínum
eigin stjórnmálaflokkum i stað
Mólúkkarnir
dæmdir
Amsterdam 26. marz NTB AP.
SJÖ Suður-Mólúkkar sem drápu
þrjá menn í tveimur mannránum
í Hollandi f fyrrahaust hafaverið
dæmdir í fjórtán ára fangelsi.
Krafizt hafði verið að þeir yrðu
dæmdir f 12—18 ára fangelsi. All-
ir hinna dæmdu eru félagar í
öfgasamtökum Suður-Mólúkka
sem berst fyrir sjálfstæði eyja-
klasans undan indónesfskum yfir-
ráðum.
þessa að leyfa þeim inngöngu i
israelska stjórnmálaflokka.
Þetta var í fjórtanda skipti sem
Bandaríkjamenn beita neitunar-
valdi i Öryggisráðinu og í fyrsta
skipti siðan William Scranton
varð aðalfulltrúi Bandarikjanna
hjá Sameinuðu þjóðunum. Hinir
fjórtán fulltrúarnir í ráðinu
greiddu atkvæði með því að vitur
yrðu samþykktar á Israel og þar á
meðal voru Bretar, Frakkar og
ítalir. Það var hópur landa þriðja
heimsins sem kom fram með
þessa tillögu.
Mikil reiði hefur gert vart við
sig meðal fólks af Gyðingaættum í
Bandaríkjunum vegna ræðu
Scrantons og hópur safnaðist
saman úti fyrir aðsetri banda-
risku sendinefndarinnar í gær og
krafðist þess að Ford forseti véki
Scranton tafarlaust frá
Gagnkvæmar ásak-
anir USA og USSR
Moskvu 26. marz Reuter NTB
TASS-fréttastofan sovézka sagði í
dag að „zfonfsk tuddamenni,
studd af bandarfskum stjórnvöld-
um“ hefðu komið fyrir sprengju
sem fundizt hefði f gær í Amtorg,
sovézku verzlunarskrifstofunni f
New York, og sakaði Bandarfkja-
stjórn um að hvetja þau öfl meðal
Gyðinga sem róðizt hafi á
Karpov
samþykkir
málamiðlun
Belgrad 26. marz — Reuter
ANATOLY Karpov, sovézki
heimsmeistarinn i skák, hefur
sagt fréttamönnum f Belgrad S
Júgóslavfu, að hann telji nýjar
tillögur um reglur fyrir heims-
meistaraeinvígið árið 1978
áhugaverðar, og sennilega
muni hann ganga að þeim.
Heimildir í Belgrad herma að
dr. Max Euwe forseti alþjóða
skáksambandsins, hafi lagt
fram þessar tillögur og sam-
kvæmt þeim yrði sá sigurveg-
ari sem ynni sex skákir i ein-
vfginu, en heimsmeistarinn
héldi titlinum ef úrslitin yrðu
5:5. Ef um jafntefli yrði að
ræða myndi áskorandinn eiga
rétt á nýju 24 skáka einvígi ári
síðar. „Þetta er áhugaverð til-
laga,“ sagði Karpov, „og ég
held að hún sé aðgengileg fyr-
ir mig.“ Talið er að þetta sé
málamiðlun milli krafna
Karpovs og tillagna FIDE.
sovézkar stofnanir og borgara í
Bandarfkjunum. Ekki minntist
Tass á þá yfirlýsingu lög-
reglunnar í New York að hún
hefði ekkert fundið f Amtorg
þrátt fyrir leit. Hins vegar hafa
samtök Gyðinga lýst sig ábyrga á
sprengjunni. Sovézka utanrfkis-
ráðuneytið hefur enn ekki mót-
mælt þessu formlega en sendi-
herra Bandarfkjanna i Moskvu á
von á mótmælum fljótlega. Tals-
maður sendiráðsins segir að þetta
sé í fyrsta sinn sem Sovétríkin
saki bandarfsku stjórnina um að
styðja beinlínis andsovézk öfl.
Talið er líklegt að mótmæli
Sovétmanna séu m.a. svar við
mótmælum Bandaríkjastórnar á
fimmtudag vegna sífelldra
hótana sem bandariskir sendi-
ráðsstarfsmenn hafa orðið fyrir
Moskvu að undanförnu og í gær
varð að yfirgefa fyrstu hæð sendi-
ráðsbyggingarinnar vegna
sprengjuhótunar. Bandarikja-
menn halda þvi fram að hótanir
þessar hljóti að hafa verió gerðar
með vitund sovézkrayfirvalda þvi
þær hafi verið gerðar við einstaka
sendiráðsmenn og simanúmer er-
lendra diplómata séu yfirleitt
ekki kunn sovézkum borgurum.
Þessu hefur utanríkisráðuneytið í
Moskvu visað á bug.
DRYKKJUSKAPUR OG EIRÐARLEYSI — Nixon ráfar um Hvíta húsið. Myndin
er tekin á síðasta deginum sem hann gegndi forsetaembætti.
Nixon drakk stöðugt
og gekk berserksgang
— samkvæmt nýrri bók Woodwards og Bernsteins
um síðustu daga hans í forsetaembætti
New York 26. marz NTB
RICHARD Nixon drakk stift þá
síðustu daga sem hann gegndi
embætti forseta Bandarikjanna
áður en hann sagði af sér og var
stöðugt haldinn sjálfsmorðs-
löngun. Eiginkona hans, Pat,
leitaði einnig athvarfs í áfengi.
Þessi dapurlega mvnd af
Nixon-hjónunum birtist í dag í
dagblaðinu Daily News í New
York og í vikuritinu Time, en
bæði blöðin byggja frásögn
sfna á væntanlegri bók blaða-
mannanna Bob Woodward og
Carl Bernstein, sem opnuðu
Watergate-hneykslið sem
kunnugt er á síðum blaðs sins
Washington Post. Bók þeirra
félaga er væntanlega bráðlega.
A siðasta árinu sem Nixon
var í embætti varð hann æ
háðari áfenginu. Hann drakk
oft og mikið, og að sögn tengda-
sonar hans, David Eisenhowers,
ráfaði hann um Hvíta húsið í
eirðarleysi. Einsenhower
óttaðist að forsetinn væri að
ganga af vitinu og varaði eitt
sinn Alexander Haig hers-
höfðingja sem þá var starfs-
mannastjóri Hvita hússins, við
hegðun Nixons.
Löngum stundum sat Nixon
einn á skrifstofu sinni og
drakk. Hann drakk einnig með
Ronald Ziegler, blaðafulltrúa
sínum, og flúði oft til skemmti-
snekkju sinnar, „Sequoia", til
að vera í friði.
Time segir frá því að Nixon
hafi brostið í grát þegar Henry
Kissinger utanríkisráðherra,
hafi eitt sinn reynt að sannfæra
hann um að afrek hans i utan-
rikismálum myndu lifa lengur
en Watergáte-hneykslið. Nixon
féll þá alveg saman og bað
Kissinger um að krjúpa á kné
sér og biója. „Þú ert enginn
rétttrúaður Gyðingur og ég er
enginn rétttrúaður kvekari, en
við þörfnumst þess að biðja,“
sagði Nixon. Að bænagjörðinni
lokinni gekk forsetinn ber-
serksgang og barði með kreppt-
Framhald á bls. 20
USA:
hefja
Lyfsölufyrirtæki
bóluefnisframleiðslu
Washington, London
26. marz Reuter.
BANDARÍSK lyfjafyrirtæki
hefja í dag stórfelldan undir-
búning að framleiðslu 200
milljón skammta bóluefnis við
svínavírusi til að komið verði í
veg fyrir að faraldur brjótist út
í landinu á hausti komanda.
Ford forseti óskaði eftir fjár-
veitingu f þinginu 1 þessu
augnamiði og var haft eftir
þingmönnum að ekki yrði fyrir-
staða á þvf af hálfu þingsins að
til allra nauðsynlegra ráð-
stafanayrði gripið.
Forsvarsmenn allra helztu
lyfjafyrirtækja í Bandaríkjun-
um hafa lýst því yfir að nótt
verði lögð við dag á næstu
mánuðum til að sú áætlun
standist að bóluefnið verði til
Kínverjar gefa Egypt-
um 30 orrustuvélar
Kairó26. marz Reuter
KlNVERJAR hafa látið Egyptum
f té 30 orrustuvélar og mikið
magn varahluta af öllu tagi, að
því er Anwar Sadat forseti
Egyptalands sagði frá í dag, og
mun þetta vera til mótvægis við
þau hergögn sem Sovétmenn
fluttu til landsins meðan sambúð
ríkjanna tveggja var betri. For-
setinn sagði að flugvélarnar og
hergögnin öll væru komin til
landsins. Fyrr hafði forsetinn
skýrt frá því að mjög yrði dregið
úr samskiptum við Sovétrikin
meðal annars á þessu sviði. Hann
sagði að fyrir hálfu ári hefði ver-
ið leitað til Kínverja og hefðu
þeir brugðið við skjótt og sent
vélarnar þrjátfu og látið það
fylgja með, að þeir tækju ekki
greiðslu fyrir, þar sem þeir
stunduðu ekki vopnasölu.
Þá segir i fréttum frá París i
dag að Frakkar séu reiðubúnir að
selja Egyptum vopn, bæði flugvél-
ar og brynvagna og skriðdreka og
ef til vill gera við Egypta lang-
Framhald á bls. 20
Deilt um ham-
ar og sigð í
Portúgal
Lissabon26. marzReuter.
BYLTINGARRAÐ hersins I
Portúgal vfsaði f dag á bug
þeirri kröfu kommúnista-
flokks landsins, að hann einn
hefði rétt á að nota hamar og
sigð sem merki f væntanlegum
kosningum f vor. Maoista-
flokkur sem hyggst bjóðafram
til kosninganna hafði byrjað
að dreifa spjöldum og fánum
með merkinu og kommúnistar
sögðu að eðli málsins sam-
kvæmt væri þeirra flokkur sá
eini sem gæti flaggað með
slfku merki.
Sem fyrr segir tók byltingar-
ráðið þetta ekki til greina.
Maoistaflokkurinn sem hér
um ræðir — MRPP — var
bannaður skömmu fyrir sfð-
ustu kosningar og hefur síðan
starfað f leynum, þar til nú að
hann hefur formlega tilkvnnt
þátttöku f kosningunum, án
þess við þvf hafi verið amazt.
reiðu f september næst kom-
andi.
Frá London berast þær frétt-
ir að enda þótt heilbirgðisyfir-
völd þar og víðar í Evrópu telji
ástæðu til að fylgjast með fram-
vindu mála, hefðu heyrzt þær
raddir að aðgerðir Fords kynnu
að vera af pólitiskum toga
spunnar og i þann streng tók
Sören Sörensen, prófessor, yfir-
maður danska heilbrigðiseftir-
litsins. Frá aðalbækistöðvum
Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar, WHO, i Genf bárust
og þær fréttir í gær að þess
hefði verið farið á leit við öll
aðildarrikin, 95 talsins, að þau
hefðu á sér andvara. Talsmaóur
WHO sagðist þó undrast hinar
miklu aðgerðir Fords Banda-
ríkjaforseta en sagði að það
kæmi í ljós að nokkrum vikum
liðnum, hvort virusinn væri
smitandi og myndi stofnunin
grípa til sinna ráða þegar það
lægi ljóst fyrir og hafa samráð
við heilbrigðisyfirvöld í öllum
95 löndunum.
ERLENT