Morgunblaðið - 07.04.1976, Síða 1

Morgunblaðið - 07.04.1976, Síða 1
36 SIÐUR 77. tbl. 63. árg. MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Baskafangar teknir á flótta Madrid, 6. apríl. Reuter. SPÆNSKA lögreglan handsamaöi f dag 22 af 29 föngum sem hrutust út úr fangelsi f Segovia og sá tuttugasti og þriðji féll í skotbardaga hjá frönsku landamærunum. Þetta er mesti fangaflótti sem um getur á Spáni sfðan í borgarastrfðinu fyrir f jörtfu árum. Fangarnir voru aðallega Baskar og komust um holræsi út úr fang- elsinu, einu hinu rammgerðasta á Humphrey órólegur New York, 8. apríl. Reuter. Stuðningsmenn Hubert Humphreys fyrrverandi vara- forseta hvöttu demókrata í Wisconsin í dag til að kjósa Morris Udall til að stöðva sigurgöngu Jimmy Carters og auðvelda Humphrey að berjast Framhald á bls. 20 CARTER Spáni. Stúlka ók þeim i sendibif- reið til Baskahéraðsins Navarre, sem liggur að Frakklandi, en hún var einnig handsömuð. Tveir karl- menn, sem hjálpuðu föngunum, voru einnig teknir. Þjóðvarðliði fékk kúlu í annað stígvélið en sakaði ekki og einn fanganna, sem voru handsamaðir, særðist í skotbardaganum. Hinir fangarnir munu hafa dreift sér og haldið til Frakklands. Fangarnir afplánuðu allt frá fimm til 160 ára fangelsisdóms. Angel Campano hershöfðingi, yfirmaður spænska þjóðvarðliðs- ins, sagði að sveit skæruliða hefði reynt að fara yfir landamærin frá Frakklandi til að hjálpa flótta- mönnunum en flokkur þjóðvarð- liða hefði hrakið þá til baka. Lög- reglan tók tvær skammbyssur, vélbyssu og 25.000 peseta af föngunum sem virðast hafa villzt i niðaþoku i skóglendi hjá landa- mærunum. 33 fanganna voru félagar i skæruliðasamtökunum ETA sem berjast fyrir aðskilnaði Baska- Framhald á bls. 20 Grikkir á Kýpur ráðast á sendiráð Denis Healey fjármálaráðherra með „ríkiskassann“, fjárlagatöskuna frægu, við embættisbústað sinn í Downing-stræti 11. Healey býður lækkun skatta með skilyrðum London, 6. aprfl, Reuter. DENIS Healey fjármálaráðherra bauðst til þess í fjárlagaræðu sinni f dag að lækka skatta ef verkalýðshreyfingin tak- markaði kaupkröfur við þrjá af hundraði (í stað sex nú), en tók fram að þjóðin öll yrði að taka á sig auknar skattabyrðar ef boðinu yrði hafnað. Nikosia, Kýpur, 6. april. AP TVÖ þúsund manna hópur grfskra Kýpurbúa réðst í morgun að sendiráði Bandarikjanna f Nikosfu á Kýpur með grjótkasti og brennandi bröndum til að mót- mæla fyrirhugaðri hernaðarað- stoð Bandarfkjamanna við Tyrk- land. Mótmælendahópurinn ruddist i gegnum varnarkeðju lögreglu- manna i grennd við sendiráðið og einum tókst að klífa yfir grind- verkið og komast inn á lóð sendi- ráðsins, dró hann fána Bandaríkj- anna niður en Kýpurfána að húni. Var bandaríski fáninn brenndur við fagnaðaróp viðstaddra. 1 hópnum voru stúdentar í meiri hluta og höfðu mótmælin verið undirbúin til að láta í Ijós vaxandi andstöðu Kýpur-Grikkja vegna þess að Bandaríkjamenn hafa nú aflétt vopnasölubanni sínu sem hefur verið á Tyrklandi. Einn lögreglumanna særðist þegar hann fékk grjóthnullung i fótinn og einn andófsmanna var fluttur burtu lerkaður. Á meðan á mótmælafundi stóð sem haldinn var skömmu áður var dreift til fundarmanna yfirlýsingum þar sem rakið er innihald samnings Bandaríkjamanna við Tyrki og sagt hefur verið frá i blaðinu. i yfirlýsingunni eru Bandaríkja- menn fordæmdir og minntir á innrás Tyrkja á Kýpur, hernám um það bil 40% lands og eigna- missi og bana tugþúsunda Kýpur- Grikkja Bandaríska sendiráðið í Nikosíu hefur iðulega orðið fyrir árásum og er þvi sérstaklega rammgerðar varnir umhverfis það og stálhlerar eru fyrir glugg- um og umhverfis bygginguna er hátt grindverk og ofan á þvi raf- magnsvír. Skömmu eftir að mótmælenda- Framhald á bls. 20 Tilboðið á sér enga hliðstæðu og verkalýðshreyfingin fær frest til júni til að taka því. Aðalritari verkalýðshreyfingarinnar, Lev Murray, sagði um tilboðið í dag að hann vildi ekki binda sig til að ganga að því á grundvelli þess sem hann hefði heyrt. Healey kvaðst ábyrgjast að til- boðið hefði ekki i för með sér álögur á vinnandi fólk og sagði að ef verkalýðsfélög væru fús að færa meiri launafórnir yrðu skattalækkanirnar þeim mun meiri. Hann kvaðst aldrei hafa lagt fram eins mikilvægt fjárlaga- frumvarp og sagði að það snerist umfram allt um atvinnu og verð- bólgu, en kallaði fjárlögin „hlut- Iaus“ i lok ræðu sinnar. Hann boðaði tafarlausa hækkun skattafrádráttar hjóna vegna barna og frádráttar gamals fólks er mun kosta rikiskassann 370 milljónir punda, og hækkun ellilifeyris en á móti koma hærri skattar á bjór, áfengi og vindlinga og aukaskattur á bensín sem mun kosta 70 pens lítrinn. Skatta- lækkanirnar sem Healey bauð nema 370 milljónum punda ef Framhald á bls. 20 V arúðarráðstaf anir í Peking vegna uppþota Peking 6. apríl, Reuter. NTB. AP SPENNA ríkti enn í Peking í dag eftir alvarlegustu óeirðir sem um getur síðan í inenningarbyltingunni fyrir tíu árum en kommúnistaflokkurinn flýtti sér að gera ráðstafanir til að stemma stigu við pólitískri ólgu. Nokkrum klukkustundum eftir að þúsundir andófsmanna höfðu Foot vill fá nýtt ráðherraembætti London, 6. aprfl. Reutcr. AP. JAMES Callaghan varði fyrsta dcgi sfnum f embætti forsætisráð- herra f dag til að hugleiða hávær- ar kröfur vinstrimanna um aukin áhrif f rfkisstjórn. Hann ræddi við ýmsa leiðtoga Verkamanna- flokksins og skipulagði breytingar á stjórninni. Einn þeirra sem hann kvaddi á sinn fund i Downing-stræti 10 var Michael Foot atvinnuráðherra, sem kom á óvart með góðri frammistöðu i keppninni við Callaghan og aðra áhrifamenn um leiðtogastöðuna í Verkamanna- flokknum og sýndi þar með að áhrif hans hljóta að verða mikil i næstu ríkisstjórn, að sögn stjórn- málafréttaritara. Frammistaða Foots hefur ýtt undir kröfur vinstrimanna um aukin áhrif í stjórninni, en nú er sagt að ekki sé litið á hann eingöngu sem forsvarsmann þeirra. Talið er að Callaghan vilji að Foot verði áfram atvinnuráð- herra og noti vinsældir sinar í verkalýðshreyfingunni til að tryggja vinnufrið þrátt fyrir mik- ið atvinnuleysi. Hins vegar mun Foot hafa farið fram á það við Callaghan að hann fái aðra ráðherrastöðu, en ekki er vitað hvað hann hefur i huga. Framhald á bls. 20 verið fjarlægðir af Torgi hins himneska friðar birti flokksmál- gagnið Dagblað alþýðunnar for- siðuleiðara þar sem því var lýst yfir að „stéttarfjendur" fengju makleg málagjöld. Vopnaðar borgarasveitir tóku sér stöðu á götum sem liggja að torginu í dag en rólegt var á torginu sjálfu. Unglingar reikuðu þar um og gáfu sig á tal við út- lendinga en ekki skarst i odda, þótt gerð væru hróp að þeim. Öeirðirnar hafa leitt til mesta haturs í garð útlendinga síðan í menningarbyltingunni. Snemma i dag var á ný komið fyrir blómsveigum með ljósmynd- um af Chou-En-lai eins og i gær i stað þeirra sem áður höfðu verið fjarlægðir frá hetjuminnis- merkinu á torginu. Áskorun frá Wu Teh borgarstjóra frá í gær um að fólk dreifi sér og þar sem segir að „lítill minnihluti vondra metnaðargjarnra manna“ eigi sök á óeirðunum var lesin hvað eftir annað í hátölurum umhverfis torgið í dag. í leiðara Dagblaðs alþýðunnar eru mótmælaaðgerðirnar i raun settar i samband við valdabar- áttuna eftir fráfall Chous. Þar Framhald á bls. 24 Bankarán á Manhattan New York, 6. april. Reuter. ÞRlR grimubúnir vopnaðir menn yfirbuguðu tvo öryggis- verði í New York I dag og komust undan með 851.000 dollara. Peningarnir voru í 20 pokum sem verið var að bera inn í banka á miðri Manhattan. Arásarmennirnir voru í skiða- fötum, og handjárnuðu verð- ina og tvo bankastarfsmenn við handrið og drógu pokana með sér.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.