Morgunblaðið - 07.04.1976, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1976
Flugleiðir:
Sumaráætlun-
in lítið breytt
Sumaráætlun millilandaflugs
Flugleiða gekk i gildi 1. apríl. I
frétt frá Flugleiðum segir, að
áætlunin sé svipuð og á síðasta
sumri. Þó sé gert ráð fyrir fjórum
ferðum á viku milli Luxemborgar
og Chicago í stað þriggja ferða í
fyrra sumar, og í stað tveggja
ferða til Öslóar og Stokkhólms
með DC-8 vélum í fyrra, verða nú
farnar þrjár ferðir með Boeing
727. Þá mun beinum ferðum til
Kaupmannahafnar fjölga úr átta í
níu, þar af verða tvær með DC-8
þotum. Nýr viðkomustaður,
Dússeldorf, mun bætast við í
sumar. Eiftir að sumaráætlun
gengur í gildi fjölgar ferðum í
áföngum. Þegar áætlun hefur að
fullu tekið gildi, verður ferðum
hagað sem hér segir:
Samkvæmt sumaráætluninni
munu þotur Loftleiða fljúga 17
1 FRÉTTABRÉFI Flugleiða segir
að „Hraði — Þjðnusta — Þæg-
indi“ séu einkunnarorð fslenzku
flugfélaganna. Myndin er tekin í
þotu Loftleiða á leiðinni yfir
Atlantshaf.
ferðir í viku frá Islandi til Banda-
ríkjanna. Þar af verða 13 ferðir til
New York og 4 ferðir til Chieago.
Tíl Chicago verður flogið á mánu-
dögum, þriðjudögum, fimmtudög-
um og sunnudögum. Til New
York verða tvær ferðir alla daga
nema miðvikudaga, þá er ein ferð.
Þotur og skrúfuþotur Flugfélags
Islands munu fljúga til Græn-
lands eins og undanfarin sumur.
Til Narssarssuaq á vesturströnd
Grænlands verður flogið á
fimmtudögum, en þar að auki
flýgur SAS þessa flugleið þrisvar
í viku. Til Kulusuk við austur-
strönd Grænlands munu skrúfu-
þotur fljúga með skemmtiferða-
fólk frá 21. júní til 9. september,
samtals 49 flugferðir. Síðast
nefndu flugin verða farin frá
Reykjavíkurflugvelli.
Sumaráætlun gerir ráð fyrir 12
ferðum í viku milli Keflavíkur og
Kaupmannahafnar. Þar af verða
tíu ferðir flognar með Boeing 727
þotum Flugfélags Islands og tvær
ferðir með DC-8-63 þotum Loft-
leiða. Til Öslóar munu Boeing-
þotur Flugfélagsins fljúga fimm
ferðir í viku og þrjár ferðir í viku
til Stokkhólms. Til Óslóar verður
flogið á mánudögum, þriðjudög-
um, föstudögum, laugardögum og
sunnudögum og tíl Stokkhólms á
mánudögum, föstudögum og
sunnudögum. Þotur Lofleiða
munu fljúga 17 sinnum 1 viku til
Luxemborgar, tvær ferðir alla
daga og þrjár ferðir á mánudög-
um, þriðjudögum og föstudögum.
Þá munu þotur Flugfélags Is-
lands fljúga tvær ferðir til Þýzka-
lands á laugardögum, til Frank-
furt am Main og til Dússeldorf.
Flug til Bretlands verður með
svipuðum hætti og í síðustu
sumaráætiun. Til Lundúna verða
fimm ferðir í viku, þar af fjórar
með Boeing-þotum Flugfélagsins
og ein ferð með DC-8 þotu Loft-
leiða. Lundúnaflug verða á
þriðjudögum, fimmtudögum,
laugardögum og tvö flug á sunnu-
dögum. Til Glasgow verða fjórar
ferðir í viku svo sem verið hefur,
á mánudögum, miðvikudögum,
föstudögum og laugardögum. Til
Færeyja verða fjögur flug í viku,
á þriðjudögum, fimmtudögum og
tvö flug á sunnudögum. Annað
sunnudagsflugið til Færeyja
verður með viðkomu á Egilsstaða-
flugvelli í báðum leiðum.
Millilandaáætlun Flugfélags Is-
lands og Loftleiða er þannig
hagað, að farþegar nái sem greið-
ustu framhaldsflugi með öðrum
flugfélögum til fjarlægra staða og
einnig að farþegar, sem koma
annað hvort austan um haf eða
vestan, en ætla til Grænlands eða
Færeyja, geti haldið áfram ferð
þangað án tafa. Ennfremur er svo
hagað til, að farþegar með Loft-
leiðum vestan um haf, nái beinu
framhaldsflugi með F’lugfélagi Is-
lands áfram til Evrópu og öfugt.
Eins og fram hefir komið, tekur
SAS nú upp Islandsflug að nýju
með eigin flugvélum, en félagið
hefir undanfarin ár leigt þotur
Flugfélags Islands til þeirra
ferða. Þotur SAS munu fljúga
héðan áfram til Grænlands, en
einnig hafa viðkomu á Kefla-
víkurflugvelli 1 bakaleið.
Aðaldælir
slógu Skútu-
staðamenn út
Björk, 5. april.
SÍÐASTLIÐIÐ föstudagskvöld
fór fram í Skjólbrekku spurninga-
keppnin, „Sveitarstjórnirnar
svara“. Þar áttust við sveitar-
stjórnir Skútustaðahrepps og
Aðaldæla. Að visu voru ekki
nema tveir af fimm mönnum í
sveitarstjórn Aðaldæla, sem
kepptu og verður það að teljast
hæpið, nema um lögleg forföll
hafi verið að ræða, en því var ekki
til að dreifa i þessu tilfelli, eftir
því sem hezt er vitað.
Leikar fóru svo að Aðaldæl-
ingar unnu og sveitarstjórn
Skútustaðahrepps er því úr leik.
Þetta var síðasta keppnin í fyrri
umferð. Keppni þessi er á vegum
Héraðssambands Suður-
Þingeyinga. Henni stjórnaði
Viktor Aðalsteinsson skólastjóri
Stóru-Tjarnarskóla. Aður var
Hólshreppur búinn að sigra
Grýtubakkahrepp Ljósavatns-
hreppur Bárðdælahrepp, Reyk-
dælahreppur Húsavík og Tjörnes-
hreppur Reykjahrepp. Svalbarðs-
strandarhreppur tók ekki þátt í
keppninni. Kristján.
Ljósm. Mbl.: Friðþjófur.
Þau sjá um rekstur Oðals, talið frá vinstri: Jón Iljaltason,
Óli Laufdal, Agústa Haraldsdóttir og llafsteinn Gíslason.
Miklar breytingar á Óðali
NYVéRIÐ var lokið við um-
fangsmiklar breytingar á veit-
ingastaðnum Oðali. Aðalbreyt-
ingarnar eru á fyrstu hæð húss-
ins og er þar nú skemmtilegur
matsölustaður, þar sem áður
var matsölustaðurinn Nautið.
Að sögn Jóns Hjaltasonar,
framkvæmdastjóra Óðals,
verður gengið inn á matsölu-
staðinn, sem rúmar 30 manns I
sæti, frá Austurstræti. Nýjar
innréttingar hafa verið settar
upp og málverk setja mjög
skemmtilegan svip á staðinn.
Þá var sett upp nýtt grill og
bar. Énnfremur voru sett upp
hljóðlaus leiktæki, þar sem
fólk getur leikið tennis, fót-
bolta og fleiri leiki.
Matsölustaðurinn verður op-
inn frá 12 á hádegi og fram
eftir, eins og leyfilegt er hverju
sinni. Á þeim dögum, sem dans-
leikir eru á efri hæð Öðals,
verður opið niður á fyrstu hæð-
ina, þannig að staðurinn rúmar
nú mun fleira fólk en áður, eða
um 250 manns í sæti.
Jón Hjaltason sagði, að þess-
ar breytingar hefðu verið naúð-
synlegar þar sem sá rekstur
sem var á húsinu áður en þess-
ar breytingar voru gerðar hefði
ekki átt sér lífsvon. Síðan
breytingarnar hefðu veriðgerð-
ar, hefði aðsókn aukizt mjög
mikið og sækti hann nú fólk á
öllum aldri. A neðri hæðinni
væri lögð áherzla á sölu smá-
rétta og á smáréttaseðli hússins
væri hægt að fá máltíðir frá 400
krónum.
Teiknistofan Arko sá um
breytingar á húsnæðinu, en alla
trévinnu annaðist Björn Frið-
þjófsson trésmíðameistari.
Flytur
fyrirlestur
um markaðs-
boðmiðlun
ÞESSA dagana er staddur hér á
landi 1 boói viðskiptadeildar Há-
skóla tslands dr. marc. Otto Otte-
sen. t frétt frá Stjórnunarfélagi
tslands segir, að það svið sem
Ottesen hafi helgað krafta slna,
nefnist á dönsku „Markedkomm-
unikation" en á fslenzku sé þetta
nefnt markaðsboðmiðlun. Eins og
nafnið gefi til kynna, fjalli hún
um þann þátt mannlegrar starf-
semi að koma boðum frá send-
anda til móttakenda 1 þvf skyni að
örva sölu.
Þá segir að auk fræðilegrar
þekkingar hafi Ottesen aflað sér
viðtækrar reynslu i atvinnulífinu
vegna ráðgjafastarfsemi sinnar
bæði i Noregi og Danmörku.
Kenningar hans um notkun aug-
lýsinga hafi vakið mikía athygli í
áðurnefndum löndum og stöðugt
fjölgi þeim, sem aðhyllast kenn-
ingar hans.
Ákveðíð er að Ottesen flytji tíu
fyrirlestra um markaðsboðmiðlun
við viðskiptadeild Háskóla Is-
lands, og næstkomandi fimmtu-
dag 8. april flytur hann fyrir-
lestur að Hótel Sögu kl. 15.30 á
vegum Stjórnunarfélags Islands,
en þar mun hann ræða um áhrif
endurtekinna auglýsinga og sölu-
áhrif þeirra við mismunandi að-
stæður. Öllum er heimill að-
gangur að fyrirlestrinum.
Sjúkravinir
til starfa
á Akranesi
Akranesi 30, marz.
Sjúkravinanámskeið var nýlega
haldið hér á Akranesi undir
handleiðslu héraðslæknisins Guð-
brands Kjartanssonar. 22 þátttak-
endur fengu réttindaskírteinið til
þess að starfa í þágu sjúkra og
aldraðra. Þetta er aðeins upphaf
að fyrirhuguðu starfi í þessa átt
og átti Þóra Einarsdóttir forstöðu-
kona Verndar í Reykjavík frum-
kvæðið.
—Júlfus.
Lögmenn fordæma ofbeldi
gegn lögmönnum og dómurum
Aðalfundur Lögmannafélags
Islands var haldinn föstudaginn
26. marz s.l. og var Guðjón Stein-
grímsson kjörinn formaður í stað
Páls S. Pálssonar, sem var for-
F élag sumardval-
arstaða stofnað
Fyrir skömmu var haldinn
fundur á Ilótel Sögu til undirbún-
ings stofnun félags sumardvala-
staða á tslandi. Til fundarins boð-
uðu áhugamenn um rekstur tjald-
og hjólhýsasvæða og stuðning við
útilff almennings. Formaður
ferðamálaráðs, Lúðvfk Hjálmtýs-
son, annaðist undirbúning fund-
arins og stýrði honum.
Fundinn sóttu fulltrúar ýmissa
stofnana og aðiia, sem eiga og
reka tjaldsvæði víða um land eða
láta sig varða ferða- og útivistar-
mál.
Á fundinum var ákveðið að
stofna Félag sumardvalarstaða og
kosin bráðabirgðastjórn. For-
maður hennar er Eiríkur Ey-
vindsson, Laugarvatni. Þá var
rætt um þörf fyrir fleiri og betri
tjaldsvæði i byggðum landsins og
æskilega aðstoð þess opinbera við
þau, enda er hér um menningar-
starf að ræða, sem reynslan hefur
sýnt að ekki verður unnið svo
sómi sé að, nema með almennri
aðstoð, eins og segir í fréttatil-
kynningu frá bráðabirgðastjórn
félagsins.
Tilgangur félagsins er að vinna
að aukinni og bættri ferðamenn-
ingu og þjónustu við almenning á
tjaldsvæðum, gera tillögur um
samræmdar reglur og gjaldskrá i
samræmi við nýsetta reglugerð
um tjald- og hjólhýsasvæði, vera
félögum sínum tíl ráðuneytis og
málsvari þeirra.
Innan vébanda félagsins eru í
upphafi 17 tjaldsvæði og sumar-
dvalarsvæði víða um land.
Að lokum segir, að stefnt sé að
þvi að halda framhaldsstofnfund í
tengslum við ferðamálaráðstefnu,
sem væntanlega verður haldin að
hausti.
maður félagsins s.l. 3 ár. Ragnar
Aðalsteinsson, sem verið hefur
varaformaður félagsins þennan
tfma, gekk einnig úr stjórn. Voru
þeim félögum þökkuð vel unnin
störf.
A fundinum var samþykkt svo-
fclld ályktun:
„Aðalfundur Lögmannafélags
Islands haldinn 26. marz 1976 tel-
ur það forsendu fyrir þvi að lög-
menn og dómarar hvarvetna í
heiminum geti sinnt skyldu-
störfum sínum i starfi, að þeir
geti sinnt þeim óhindraðir af
valdhöfum í landi sínu og lög-
menn og dómarar geti i hvívetna í
starfi sínu tekið afstöðu án þess
aö eiga á hættu að sæta ofsóknum
af hálfu valdhafa. Því fordæmir
fundurinn það ofbeldi sem lög-
menn og dómarar hafa sætt víða
um heim vegna starfa sinna og
skoðana og birst hafa m.a. í því
að lögmenn og dómarar hafa
verið fangelsaðir og pyntaðir eða
jafnvel horfið sporlaust. Þá for-
dæmir fundurinn ekki síður þær
þvinganir, sem lögmenn og
dómarar hafa sætt á annan hátt,
svo sem með missi stöðu eða
starfsréttinda vegna þess að þeir
hafa ekki viljað beygja sig fyrir
valdhöfum.
Fundurinn lýsir því yfir, að
hann styðji þá baráttu, sem hefur
þegar verið hafin i þeim tilgangi
að vekja athygli á ofsóknum
þeim, sem lögfræðingar hafa sætt
víða um heim vegna starfs síns
eða skoðana og vonar, að baráttan
leiði til þess, að sem viðast fái
dómarar og lögmenn að gegna
starfi sínu án þess að eiga á hættu
að lenda í fangelsi eða sæta
'öðrum afarkostum af hálfu vald-
hafa.“
Eins og fyrr segir þá var Guðjón
Steingrímsson kosinn formaður
Lögmannafélagsins, en aðrir í
stjórn eru nú: Jón Finnsson, vara-
formaður, Gylfi Thorlacius, gjald-
keri, Hjalti Steinþórsson, ritari og
Brynjólfur Kjartansson, með-
stjórnandi.
Magnús Eiríks-
son sigraði í
Ólafsgöngunni
Siglufirði, 5. apríl
Hin árlega Olafsganga fór fram
hér á Siglufirði i gær. Keppt var i
15 kílómetra göngu. Sigurvegari
var Magnús Eiríksson, Siglufirði.
Hann gekk vegalengdina á 55,21
mín. 2. var Reynir Sveinsson
Fljótum á 60.55 mín og 3. Halldór
Matthíasson Akureyri á 64.53