Morgunblaðið - 07.04.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.04.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. APRlL 1976 3 H-moU messa Bachs hámark þess sem kór getur í ráðizt — sagði söngstjórinn um tónleika ”t Pólgfónkórsins um páskana Hl Mjórnandi Pólyfónkórsins, Ingólfur Guðbrandsson, ásamt formanni fjáröflunarnefndar Kristni Sigurjónssyni, gjaldkeranum, Guðmundi Guttormssvni, og stjórnarformanninum, Friðrik Eirfkssvni með auglýsinguna um flutning H-moII messu Bachs um páskana. UM páskana gefst tækifæri til að heyra H-moll messu Bachs, sem Polýfónkórinn ætlar að flytja þrisvar sinnum I Háskólabíói. Er það f fyrsta sinn sem þetta verk er flutt í heild hér á landi, en fyrir 8 árum flutti kórinn það stytt og þótti þá I mikið ráðizt, að þvf er stjórnandinn, Ingólfur Guð- brandsson, tjáði blaðamönnum. Sagði hann að verkið gerði gffurlegar kröfur til flytjenda, og væri flutningur þess hámark þess sem kór gæti færzt í fang. H-moll messan verður frum- flutt á skfrdag í Háskólabfói og endurtekin á föstudaginn langa og e.t.v. einnig á laugardag, ef aðsókn getur tilefni til. Flytjendur eru 145 söngvarar Pólýfónkórsins, 33ja manna hljómsveit og sex einsöngvarar og stjórnandi Ingólfur Guðbrandsson. Uppistaðan f hljómsveitinni er Kammersveit Reykjavíkur og konsert- meistari Rut Ingólfsdóttir. Eru þar samankomnir margir fremstu hljóðfæraleikarar landsins og fara margir með einleikshlutverk. A blaða- mannafundi vegna tónlcikanna var nefndur Lárus Sveinsson, trompetleikari, sem færi með eitt vandasamasta hlutverk sem til er fyrir hljóðfærið. Einnig Rut Ingólfsdóttir, er leikur á fiðlu, Jón 11. Sigur- björnsson á flautu, Kristján Þ. Stephensen á óbó, Cristina Tryk á horn, en með kortinu- hlutverk fara Pétur Þorvalds- son á selló, Einar Waage með kontrabassa og Hörður Askels- son með orgel. Einsöngvarar eru allir úr röð- um kórfélaga að Ruth L. Magnússon undanskilinni, sem syngur alt-aríur verksins. Dúetta syngja Guðfinna D. Ölafsdóttir, sópran, og Asta Thorsteinsen, alto. Með tenór- hlutverkið fer ungur söngvari, Jón Þorsteinsson, fyrrverandi kórfélagi, sem nú er við söng- nám í Noregi. Er þetta frum- raun hans hér, en hann hefur margsinnis komið fram f Noregi, t.d. sl. sunnudag þegar hann fór með tenórhlutverkið í Magnificat Bachs f Ósló. Bassaarfur syngja Ingimar Sigurðsson og Halldór Vilhelmsson. Æfingar á verkinu hófust fyrir alvöru í janúar, að því er söngstjórinn sagði og hafa stað- ið yfir síðan. Var í fyrstu æft tvisvar i viku, en nú síðast 3—4 sinnum og hljómsveitaræfingar eru sex. Gefa söngvarar vinnu sína, en greiðsla fyrir hljóm- sveit er þyngsti kostnaðurinn við að koma verkinu upp. Sagði Ingólfur að heildarkostnaður við þessar 3 hljómleika mundi tæplega vera undir 3 milljónum og gæti miðasala ekki brúað bilið. En gjaldkerar sögðu að fólk, sem hefði áhuga, og fyrir- tæki legðu ætíð fé til þessarar menningarstarfsemi. Reiknuðu forstöðumenn kórsins að gamni sinu kostnað þann, sem yrði, ef söngvarar fengju greitt tima- kaup, 1000 kr. á tímann, en þá kostaði kórinn 22 milljónir. Auk söngstjórans Ingólfs Guð- brandssonar hafa þau Elísabet Erlingsdóttir, Ásta Thorsten- sen, Friðbjörn G. Jónsson og Elín Guðmundsdóttir semball- leikari aðstoðað við þjálfun kórsins og æfingar. Pólýfónkór- inn hafði hug á að flytja H-moll messuna einnig á Listahátíð í Reykjavík og fá þá erlenda ein- söngvara en þvi var hafnað. Mörg undanfarin ár hefur Pólýfónkórin fyllt Háskólabíó í 3 daga í röð með flutningi á verki af þessu tagi, m.a. Mattheusarpassíunni. Og Jó- hannesarpassíunni eftir Bach og Messías eftir Hándel. H-moll messa Bachs er eitt af mestu listaverkum tónlistarheimsins. Bach samdi hana í Leipzig á árunum 1733—35, en ekki er talið að verkið hafi nokkurn tíma verið flutt í heild um hans daga og ekki fyrr en árið 1859 í Berlín. Verkið er samið fyrir 5—8 radda blandaðan kór, ein- söngvara og hljómsveit með þeim ibúðarmesta búnaði, sem þekktist um daga Bachs, enda var fyrsti hluti þess saminn í tilefni af valdatöku Ágústusar 2. kjörfursta af Saxlandi og fylgdi því beiðni um titil hirð- tónskálds. Yfir verkinu er sér- stakur hátíða- og glæsibragur og það býr yfir sliku andríki, formsnilld og tilfinningaauð- legð að það heyrir til mestu afreka mannsandans, segir i frétt kórsins. Þegar er mikið selt af miðum á tónleika Pólýfónkórsins um páskana. Þeir eru til sölu hjá Ferðaskrifstofunni Útsýn, Bókaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar og Hljóðfærahúsi Reykjavikur. Frá 100. stjórnarfundi Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins. T.f.v. Gunnar S. Björnsson, Gunnlaug- ur Pálsson, Sigfús örn Sigfússon, Haraldur Asgeirsson forstjóri RB, Guðmundur Magnússon formaður stjórnar RB, Gissur Sfmonarson, Pétur Stefánsson, Hákon Ólafsson og Halldór Jónsson. 100. stjórnarfundur Rannsókna- stofnunar byggingariðnaðarins 100. stjórnarfundur Rann- sóknastofnunar byggingariðnað- arins vr haldinn 31. marz sl. Var þá einnig tekinn f notkun hluti nýbyggingar við stofnunina og gat formaður stjórnar RB þess að þetta gjörbreytti starfsaðstöðu stofnunarinnar. Lét hann og f Ijós von um að stjórnvöld og framá- menn f byggingariðnaði leggðust á eitt við að nýta þessa ba*ttu aðstöðu til öflugrar framþróunar í bvggingarstarfseminni. A þessum fundi varð einnig sú breyting á stjórn stofnunarinnar að Halldór Jónsson verkfræð- ingur tók sæti Sigfúsar Arnar Sig- fússonar sem er á förum til starfa við Alþjóðahankann í Washing- ton. Á þessum 100. fundi kom einnig fram að byggingarvisitala var svo til óbreytt frá 1. nóvember til áramóta sl., og hækkunin á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var óveru- leg eða um liðlega 5%. RB vann að nýrri aðferð við útreikninga á visitölu byggingarkostnaðar á sl. ári. Þá var einnig rætt um starf RB og Húsnæðismálastofnunar ríkis- ins en þessi samvinna hefur veru- lega styrkt margvislegar rann- sóknir við RB. Einnig hefur verið töluvert samstarf við Vegagerð rikisins og fagnaði stjórnin því að verið er að ganga frá samningi við Vega- gerðina um verulega aukna rann- sóknavinnu og vegarannsóknir hjá RB. Samvinnan við Vegagerð- ina var hvati að stofnsetningu jarðtæknirannsókna við RB og auknum tækjabúnaði. Ennfremur lét stjórnin i ljós áhuga á framhaldi þeirra um- ræðna sem nú eru hafnar við Verkfræði- og raunvisindadeild Háskóla Islands um aðstöðu fyrir prófessora við Háskólann til rann- sókna við Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins. Telur stjórnin slík tengsl geta verið n^kilvægur þáttur til þróunar rannsóknastarfsemi i landinu. Stórgjöf Lions- manna í Hafnarfírði — til heimilis fyrir þroskaheft börn FIMMTUDAGINN 1. apríl, 1976, afhenti Stefán Rafn, formaður Lionsklúbhs Hafnarfjarðar, fyrsta framlag klúbbsins til heimilis fvrir þroskaheft börn f Hafnarfirði og nágrenni. Við gjöfinni sem var ávísun að upphæð kr. 500.000,— tók Árni Gunnlaugsson bæjarráðsmaður, að viðstöddum Árna Grétari Finn- syni bæjarráðsmanni, Kristni 0. Guðmundssyni bæjarstjóra og nokkrum Lionsmönnum. Af afhendingu lokinni þágu við- staddir kaffiveitingar i boði bæjarstjórnar. Á s.l. ári beitti Lionsklúbbur Hafnarfjarðar sér fyrir stofnun foreldrafélags þroskaheftra barna í Hafnarfirði og nágrenni, með það fyrir augum að stuðla að stofnun heimilis fyrir þroskaheft börn, en þörfin fyrir slikt heimili er mjög brýn. Þegar leitað var til bæjar- stjórnar Hafnarfjarðar um stuðning við málið ákvað hún að hluti hins nýja dagheimilis við Miðvang yrði tekinn til þessara nota. Bæjarbúar hafa stutt málið dyggilega með fjárframlögum, þegar Lionsmenn hafa heimsótt þá í söluferðum sínum. Frá afhendingu gjafarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.