Morgunblaðið - 07.04.1976, Síða 11

Morgunblaðið - 07.04.1976, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. APRlL 1976 11 stóð sem hæst, og Wilson sigraði, en fékk aðeins fimm fleiri þing- sæti en Ihaldsflokkurinn og smá- flokkar þjóðernissinna og ann- arra fengu 37 þingsæti. Þegar Wilson tók aftur við embætti for- sætisráðherra stóð hann enn frammi fyrir alvarlegum erfið- leikum: . kaupkröfum námu- manna, vaxandi verðhólgu og greiðsluhalla, sem hafði auk- izt við fjórfalda olíuhækkun. Hann skipaði vinstri manninn Michael Foot atvinnuráðherra, Foot gekk að kröfum námumanna og Wilson tók upp stefnu, sem hann kallaði „Social Contract" og var óskrifað samkomulag milli ríkisstjórnarinnar og verkalýðs- hreyfingarinnar um að kaupkröf- um yrði stillt í hóf, komið yrði á verðlagseftirliti, hömlur i lögum á starfsemi verkalýðsfélaga afnumdar og stefnt yrði i eindregnari vinstriátt í ýmsum þjóðfélagsmálum. Þetta var stormasamur timi, meirihluti Verkamannaflokksins var naum- ur, hæfileikar Wilsons nutu sín vel og hann var i essinu sinu. Hann efndi til nýrra kosninga í október 1974 og þótt hann fengi aðeins fjögurra þingsæta meiri- hluta fékk hann 43 þingsæti fram yfir Ihaldsflokkinn. EININGIN _______I HÆTTU_________ Vinstrisinninn Tony Benn var skipaður iðnaðarráðherra og stjórnin virtist stefna i róttæka átt, en Wilson notaði tækifærið þegar hann gerði breytingar á stjórn sinni 1975 og flutti Benn i orkumálaráðuneytið. Um siðustu áramót hafði Wilson tryggt jafn- vægi I kaupgjaldsmálum og boðaði nýja stefnu, sem miðaði að endurskipulagningu atvinnu- lifsins á þeirri forsendu, að of mikið af þjóðartekjum hefði farið til velferðarmála, en of litið til arðbærra atvinnugreina. En þegar hann lætur nú af völdum eiga Bretar enn við gífurlegan efnahagsvanda að etja, skuldir þeirra aukast stöðugt, pundið er valt, atvinnuleysi mikið og verð- bólgan i Bretlandi er meiri en í nokkru öðru vestrænu iðnaðar- riki. Rhódesia og Norður-Irland eru óleyst vandamál. Samt hefur Wilson aldrei glatað bjartsýni sínu og sjálfstrausti. Þó hafa at- burðir innan Verkamannaflokks- ins valdið honum áhyggjum á síð- ustu mánuðum. Nýlega komst ein- ing flokksins, sem hann hefur tal- ið hvað mestu máli skipta, i alvar- lega hættu þegar vinstrisinnaðir þingmenn („Tribune - hópurinn") gerðu uppreisn, sem leiddi til niðurlægjandi ósigurs stjórnarinnar í atkvæðagreiðslu um útgjaldatillögur hennar. Um þetta leyti sagði Wilson að „ein vika væri löng í stjórnmál- um“ og sú setning þykir einkenn- andi fyrir hann, því hann hefur til dæmis oft skotið málum á frest með þvi að skipa nefndir til að fjalla um þau. Síðan hann varð fyrst forsætisráðherra hefur stöðugt hallað undan fæti hjá Bretum, en sagt hefur verið að hver þjóð fái þá stjórnendur, sem Glæsileg fasteign til sölu Hef til sölu sérstaklega vandaða íbúð á 2. hæð í Stórholti um 1 16 fm. 4 herb. ásamt sameign, auk þess er falleg 3ja herb. íbúð í risi sem tilheyrir þessum eignarhluta og seljast þær báðar samtímis. Sigurður Helgason Hrl. Þingholtsbraut 53. Simi 42390. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Garðabær Vandað raðhús um 1 38 fm ásamt tvöföldum bílskúr. Húsið er fullfrágengið. Ræktuð lóð. Útborgun 9 —10 milljónir. Upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni, ekki í síma. Hraunbær raðhús um 134 fm ásamt bílskúr. Húsið er að mestu fullfrágengið. Útborgun um 9 milljónir. Kópavogur Einbýlishús hæð og ris í vesturbænum. Húsið skiptist þannig: Á hæðinni er eldhús, þvottaherb., snyrting, hol, svefnherb., og 2 saml. stofur. í risi 4 svefnherb., bað og geymsla ásamt tvöföldum bílskúr. Hitaveita. Tvöfalt verksmiðjugler er í flestum gluggum. Útb. 9 til 10 millj. Skipti möguleg á minni eign. Stórihjalli Raðhús á tveimur hæðum. Húsið skiptist þann- ig: Á neðri hæð tvöfaldur bílskúr, þvottaherb. snyrtiher. hobbýherb., og eitt svefnherb. Á efri hæð eldhús, borðstofa, stór stofa með arni, 3 svefnherb., mikið skáparými, stórt og vandað baðherb. með vönduðum innréttingum. Útb. um 1 4 millj. hún eigi skilið, og ef til vill hefðu Bretar ekki getað fengið ákjósan- legri leiðtoga á þessu hnignunar- skeiði sínu, sem trúlega verður kallað „Wilson-tíminn". Bevan sagði um hann að hjá honum væri enga viðsýni að finna, bara staðreyndir, en hann var mikill vinnuþjarkur, minnisgóður og fljótur að greina hismið frá kjarnanum. Hann var fljótur að fyrirgefa og furðu vekur hve litl- ar breytingar hann gerði á ríkis- stjórnum sinum þótt kannski hafi þess oft verið þörf að hreinsa til. Honum tókst líka að tryggja ein- ingu í flokknum, hófstillingu I kjaramálum, samvinnu við verka- lýðshreyfinguna og stiaði í sundur foringjum verkalýðs- hreyfingarinnar og Tribune- hópnum með því að auka áhrif verkalýðshreyfingarinnar. Um hann hefur verið sagt, að hann hafi engar ákveðnar skoðanir, en hann reyndi að bera klæði á vopn- in og fyrir það eiga Bretar honum mikið að þakka. Sennilega var mesta afrek hans að fá Verka- mannaflokkinn og síðan þingið til að fallast á að aðildin að Efna- hagsbandalaginu var borin undir þjóðaratkvæði. Aðildin hafði valdið djúpstæðum klofningi, þar sem helmingur kjósenda var sannfærður um að hún hefði ver- ið ákveðin að þjóðinni forn- spurðri. Wilson tryggði samþykki þjóðarinnar við aðildina og einingu i flokknum um leið og deilurnar um aðildina þögnuðu. Wilson þótti halda meistaralega vel á þessu máli og sjaldan komu hæfileikar hans betur i ljós. Wilson með tvfburadætrum Robin sonar sfns á eins árs afmæli þeirra fyrir skömmu. Sjálfur átti Wilson sextugsafmæli 11. marz. Kaupmenn — Innkaupastjórar Páskaegg fyrirliggjandi til afgreiðslu strax Sælgætisgerðin Víkingur lálalalalalalalalalalalalalalalalalalalalalnlnlnfnSInlnlaEnlcirci ÁHUGAMENN UM VÉLSLEÐA! i ■ Hinir sigursælu ennþá fyrirliggjandi Hagstætt verð og greiðslukjör BlslalalslalslalalalaSlalalalslalaBlalalalaialalalalslalala

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.