Morgunblaðið - 07.04.1976, Side 13

Morgunblaðið - 07.04.1976, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. APRlL 1976 13 Húsmæðrafélagið mót- mælir verðhækkunum MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi frá framkvæmda- nefnd Húsmæðrafélags Reykja- víkur: Framkvæmdanefnd Húsmæðra- félags Reykjavíkur mótmælir harðlega þeim gegndarlausu verð- hækkunum sem orðið hafa á nauðsynjavörum undanfarið. Nefndin telur að launahækkan- ir þær sem fengust í síðustu kjarasamningum séu þegar farnar út í verðlagið og vel það. Það er staðreynd að stórvægilegar hækkanir á hita, rafmagni og síma sem eru nauðsynlegir liðir á hverju heimili, ásamt hækkunum á nauðsynlegum matvælum koma verst niður á þeim heimilum sem síst þola. Það er óraunhæft að ætla að t.d. ellilifeyrisþegar geti greitt hús- næði með rafmagni og hita, keypt ofan í sig mannsæmandi fæði hvað þá fengið sér nauðsynlegan fatnað, miðað við það verðlag sem ríkir i dag. Einnig má ætla að bág sé afkoma 4—6 manna fjölskyldu ef hún á að lifa af launum einnar Ályktun stjórnar Mjólkursamsölunnar Á stjórnarfundi Mjólkursamsöl- unnar í Reykjavík þ. 18. mars var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða: „Stjórn Mjólkursamsölunnar fagnar framkomnu frumvarpi til laga um að bjarga mjólk frá eyðileggingu í vinnslu, þegar verkfall er. Mál nr. 190 e.d. flutt af Jóni Ármanni Héðinssyni. Stjórn Mjólkursamsölunnar mælir eindregið með samþykkt frumvarpsins, en telur þörf á að taka í frumvarpið ákvæði, er tryggi flutning mjólkur að mjólk- ursamlagi." Samhljóða ályktun var einnig samþykkt á fundi stjórnar Mjólk- urbús Flóamanna 19. mars. fyrirvinnu úr hópi meðaltekju- manna. Húsmæðrafélag Reykjavíkur hefur frá upphafi haft á stefnu- skrá sinni að standa vörð um hagsmuni heimilanna, nefndin skorar á alla þá sem annast innkaup til heimila að vera vel á verði gagnvart vörugæðum og stuðla þannig að bættri þjónustu, framleiðslu og dreifingaraðila. Þá vill nefndin enn einu sinni mótmæla harðlega því ástandi sem ríkir hér í þeirri stofnun sem nefnist GRÆNMETISVERSLUN LANDBÚNAÐARINS. Það er því miður -ekki einsdæmi að ísl. neytendur þurfi að sætta sig við óætar kartöflur og jafnvel kartöfluleysi svo vikum skiptir. Sú einokun sem ríkir í innflutn- ingi og sölu grænmetis hlýtur að teljast orsök þessa ófremdar- ástands. Nefndin skorar því á háttvirta ríkisstjór'n að beita sér fyrir afnámi slíkrar einokunar og gefa frjálsa sölu og dreifingu á kartöflum og öðru grænmeti. Danskur kabarett í Þjóðleikhúsinu Danskur gestaleikflokkur frá Folketeatret I Kaupmannahöfn kemur í heimsókn til Islands um miðjan maí og sýnir i Þjóðleik- húsinu kabarett sem hefur verið sýndur við miklar vinsældir í Danmörku í eitt ár. Efni verksins fjallar um árin milli heimstyrjald- anna. Næsta verkefni hjá Þjóðleik- húsinu fyrir utan Fimm konur, sem er að fara á svið í næstu viku, er Imyndunarveikin sem kemur upp i maibyrjun. Þá undir- býr Þjóðleikhúsið einnig þátttöku í Listahátíð með stórri danssýn- ingu sem byggist á íslenzka dans- flokknum og brúðuleikhússýn- ingu á Litla prinsinum. — Ljósm.: Friðþjófur. Skyldi þessi föngulega blómarós, sem ljósmyndarinn hitti f Austur- stræti vera á leið að heimsækja gamla starfsfélaga? Bryndfs, Kristfn Anna, Margrét og Brfet f Fimm konum. „5 konur”í nœtursvalli NÆSTKOMANDI fimmtudags- kvöld (8. apríl) verður frum- sýning á Stóra sviði Þjóðleik- hússins á nýju norsku leikriti, FIMM KONUR, eftir Björg Vik. Leikrit þetta var frumsýnt í Ósló fyrir rúmu ári og vakti þegar í stað mikla athygli og var fljótlega tekið til sýninga víða um Noreg. I vetur hefur , það verið sýnt í hverju leikhús- inu á fætur öðru i Noregi, Svíþjóð og Danmörku við mikl- ar vinsældir, en verkið fjallar um fimm konur, stöðu þeirra og vandamál og hefur víða þótt ágætt framlag til þessara mála á kvennaári og í framhaldi af þvi. Leikritið gerist eina kvöld- stund og nótt á heimili einnar hinna fimm kvenna, en þær eru gamlar skólasystur og vinkon- ur, sem senn eru að nálgast fertugsaldurinn. Sú, sem stendur fyrir heimboðinu, er nýskilin við mann sinn og farin að skoða lif sitt og sjálfa sig, vinkonur og umhverfi í nýju ljósi. Eftir þvi sem á samkvæm- ið líður, gerast þær vinkonur æ opinskárri og ýmislegt óvænt skýtur upp kollinum, áður en nóttin er öll. Leikstjóri Fimm kvenna er Erlingur Gíslason, leikmynd er eftir Þorbjörgu Höskuldsdótt- ur. Þýðinguna gerði Stefán Baldursson og konurnar fimm leika þær: Bríet Héðinsdóttir, Bryndis Pétursdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Sigríður Þor- valdsdóttir og Kristin Anna Þórarinsdóttir, sem ekki hefur leikið í Þjóðleikhúsinu frá því hún var að ljúka leiknámi en var um árabil leikkona hjá Leikfélagi Reykjavikur. Björg Vik er kunnur rit- höfundur i Noregi og reyndar víðar um Norðurlönd, hún var t.d. annar tveggja höfunda, sem Norðmenn sendu eftir verk til bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs nú síðast. Björg Vik er á svipuðum aldri og konucn- ar, sem hún lýsir í þessu leik- riti, hún starfaði í nokkur ár sem blaðamaður, áður en hún tók til að semja smásögur, en hún hefur gefið út þrjú smásagnasöfn: Söndag eftir- middag (1963), Nödrop fra en myk sofa (1966) og Det grádige hjerte (1968). Þá hefur hún samið amk. tvær skáldsögur: Grát elskede mann (1970) og Kvinneakvariet (1972). Hún hafði samið eitt leikrit, áður en hún samdi FIMM KONUR, heit- ir það Húrra, það var stelpa! og hefur verið sýnt viða um Noreg. Von er á Björgu Vik hingað til lands í tengslum við frumsýningu leikritsins nú. Björg fékk árið 1974 árleg verð- laun bókmenntagagnrýnenda í Noregi. Fuglaverndarfélag skorar á Alþingi MORGUNBLAÐINU hefur borizt áskorun aðalfundar Fuglavernd- arfélags Islands til löggjafar- þings Islands um að taka til at- hugunar þrjú mál, þ.e. að cndur- skoða eiturlöggjöf til útrýmingar svartbak, að valdhafar athugi all- ar aðstæður áður en sökkt verði miklu landi undir vatn á Auð- kúluheiði og að ekki verði anað að framkvæmd á ályktun Búnað- arþings um leyfi til að skjóta gæs- ir um varptfmann. 1 fréttatil- kynningu Fuglaverndarfélagsins segir nánar um þessi atriði. 1. Að endurskoða eiturlöggjöf þá sem nú er i gildi til útrýmingar svartbak. Að allra dómi er eitur- útburður gagnslaus til útrýming- ar svartbak en á s.l. ári fundust 3 arnarhræ sem allar líkur benta til að drepizt hafi af völdum eiturs. Félagið vill einnig benda á að í raun er reglugerðin ekki fram- kvæmanleg, enda er eitrið notað öðruvisi en fyrir er mælt. 2. Að valdhafar athugi til hlítar allar aðstæður áður en ráðizt verði í að sökkva 62 ferkm undir vatn á Auðkúluheiði. Þarna eru viðáttumikil varplönd ýmissa fuglategunda auk þess að hér er um að ræða gróðurvin. Ef vel er athugað má virkja fallvötn án þess að sökkva landi, sem Islend- ingar hafa ekki efni á. Minnast má eyðileggingu Stíflunnar i Fljótum nyrðra, sem er mestu náttúruspjöll sem unnin hafa ver- ið hérlendis, þegar fegurstu sveit Skagafjarðar var sökkt, en vel hefði verið hægt að hafa uppi- stöðu þannig að sveitin hefði ekki horfið. 3. Fundurinn skorar á valdhafa að athuga gaumgæfilega áður en til framkvæmda kemur ályktun Búnaðarþings um leyfi til þess að skjóta gæsir um varptimann. Tjón af völdum gæsa er mjög umdeilt og er auðvelt að fæla gæsir frá. Gæsastofninn trúlega ekki stór og í mörgum héruðum sjást ekki gæsir. Fráleitt er að leyfa skot- mönnum að fara um varplönd, enda eftirlit með hvað þeir skjóta mjög erfitt. VARAH LUTAVE RSLU N Kerti, platínur, kveikjulok, kveikjuhamrar, þéttar, háspennukefli, flautur, allskonar Ijós, þokuluktir, Ijósaperur, og fl. og fl. BRÆÐURNIR ORMSSON % LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.