Morgunblaðið - 07.04.1976, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.04.1976, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. APRIL 1976 21 Palestínskur^- skæruliði skýtur með sovézkri'véíbyssu á stöðVar hægri manna í Beirút. Bardagar halda áfram þrátt fyrir vopnaFTlé. Neyðarfundur þingsins í Líbanon á laugardag — miklar varúðarráðstafanir verða gerðar á meðan hann stendur Beirut 6. apríl Reuter. LÍBANSKA þingið mun koma saman til sérstaks fundar á laugardag til að reyna að finna bráðabirgðalausn á þeim gffur- legu vandamálum sem við hefur verið að glíma, sfðan borgara- styrjöldin I landinu brauzt út. Lögreglu- og hermannagæzla verður I hámarki við þinghúsið á meðan fundurinn stendur, þar sem mikill ótti er rfkjandi um að reyndar verði árásir á þingstað- inn. tölu munu njóta gæzlu um 300 sérþjálfaðra öryggisvarða meðan fundurinn stendur yfir, en hann verður haldinn í auðu húsi skammt frá „landamærum" krist- inna og múhammeðstrúarmanna í Beirut. A þinghúsið sjálft sem er í miðborg Beirut hefur hvað eftir annað verið ráðizt upp á síðkastið og er það því sem nær í rústum. Mikil spenna er nú í höfuðborg- inni eftir að tilkynnt hefur verið um neyðarfund þingsins. Asaad sagði að megintilgangur hans væri að ræða stjórnarskrármál sem gætu orðið til að þrýsta enn á Suleiman Franjieh »vo að hann fáist til að segja af sér. Verður og hugsanlega rætt um hver ætti að taka við af Franjieh en kjörtíma- bil hans rennur út á hausti komanda. Tilskilinn meirihiuti þingmanna hefur þegar undir- ritað áskorun til forsetans um að segja af sér, en þeirri skoðun vex æ meiri fiskur um hrygg að for- senda þess að varanleg lausn fáist á hinum djúpstæða ágreiningi sé að forsetinn vfki endanlega úr sessi. Enn harðna deilur á Ítalíu Rómarborg 6. aprfl Reuter LlKUR á þvf að kosningar fari fram á Italfu f júnf jukust tölu- vert f dag þegar enn hafði verið deilt hart án þess að niðurstaða fengist um nýja fóstureyðingar- löggjöf ’ landsins. Leiðtogar Sósfalistaflokksins, en stuðning- ur þess flokks á þingi er stjórn- inni mjög mikilvægur, voru á stöðugum fundum f allan morgun til að skipuleggja hvernig að mál- um yrði staðið og munu hittast aftur f kvöld. Heimildir Reuter- fréttastofunnar töldu ósennilegt að samkomulag um tillögu að fóstureyðingarlöggjöfinni næðist við kristilega demókrata. Ef kosningar verða ákveðnar verður Leone forseti að leysa upp þingið fyrir miðja næstu viku. Frestað var f dag þingstörfum vegna fundahalda um fóstur- eyðingarmálið. Sósfalistar stað- hæfa að kona verði sjálf að fá rétt f hendur hvort hún vill láta fram- kvæma á sér fóstureyðingu innan 90 daga frá getnaði, en kristilegir demókratar hafa neitað að fallast á þessa afstöðu og vilja að læknar hafi úrslitaorðið. Spánn: Madari- aga kominn heim Madrid 6. apríl Reuter SALVADOR de Madariaga, einn mestur spánskra höfunda nú og þekktastur útlagi Franeostjórnar- tfmabilins, hefur snúið heim til Spánar með leynd og mun ræða við hlaðamenn á morgun, mið- vikudag, að því er Reuterfrétta- stofan kvaðst hafa eftir áreiðan- legum heimildum f dag. Þar sagði að rithöfundurinn, sem er að verða níræður, hafi komið til Saragossa í gærkvöldi með einkaþotu frá Sviss en þar hefur hann verið búsettur um langa hríð. Madariaga er heimsþekktur höfundur og nýtur mikillar virðingar sem boðberi frjáls- lyndra skoðana Hann fór frá Spáni við upphaf borgara- styrjaldarinnar árið 1936 og hefur verið í sjálfvalinni útlegð frá ætt- Salvador de Madariaga landi sínu sfðan. Hann kenndi árum saman við Oxfordháskólann í Bretlandi og hefur unnið í þágu spánskra flóttamanna í Sviss. Afstaða gegn sérréttind- um strandríkja harðnar Það var talsmaður þingsins, Kamel As-Asaad, sem tilkynnti í dag að neyðarfundur þessi hefði verið ákveðinn eftir að hann hafði ráðfært sig við ýmsa þing- fulltrúa og einnig rætt um öryggisvörzlu við yfirvöld. Vopnahléið, sem lýst var yfir á föstudaginn af hálfu Kamal Jun- blatt, foringja vinstrimanna, rennur út um nónbil á mánudag. Ljóst er að vopnahléið hefur að mestu verið virt enda þótt leyni- skyttur hafi verið á kreiki og skot- hvellir heyrzt sérstaklega í Beirut þegar skyggja tekur. Þingmennirnir sem eru 99 að Sameinu þjóðunum 6. apríl. Reuter. AMERASHINGHE forseti haf- réttarráðstefnu Sameinu þjóð- anna í New York sagði i dag að staðan fari nú harðnandi gagn- vart tillögum sem miða að þvi að strandriki fái sérréttindi í efna- hagslögsögu sinni. Amerashinghe sagði að þetta gæti orðið til þess að samningum um málið yrði stofnað í hættu. Hann skoraði á sendinefndir sem hefðu sérstakan áhuga á málinu að hittast óformlega og freista þess að komast að einhvers konar samkomulagi til að ekki yrði farið út i endalaust málskraf og karp á nefndafundunum. Fram til þessa hefur verið talið að ráðstefnumenn nálguðust hröðum skrefum að koma sér saman um frumtillögur um reglu- gerð um 200 milna efnahagslög- Framhald á bls. 20 Sagt var að spánskur kaupsýslu- maður hefði sent Madariaga boð um að koma og dveldist höfundur- inn i klaustri skammt fyrir utan Saragossa og fengu blaðamenn strengileg fyrirmæli um að raska ekki ró hans að sinni. Madariaga hafði marglýst þvi yfir að hann myndi aldrei hverfa heim til Spánar fyrr en að Franco látnum. Madariaga lét mjög stjórnmál til sin taka á árunum 1920—1936 hann var meðal annars sendifull- trúi lands síns i Washington og Paris var varaforseti spánska Framhald á bls. 20 Auðmaðurinn og sérvitringur- inn Hughes lézt ífgrrakvöld Um árabil undi Hughes sér hvergi betur en I návist þokkafullra kvikmyndaleik- kvenna. Þessi mynd var tekin af honum og övu Gardner árið 1946. Houston Texas 6. apr. Reuter. HOWARD Hughes, hinn umtalaði milljónamæringur og sérvitringur, lézt i gærkvöldi úr hjartaslagi um borð í flug- vél* á leið frá Acapulco i Mexico til Houston i Texas, en þar átti hann að ganga undir læknisrannsókn. Hann var sjötugur að aldri er hann lézt. Howard Hughes hefur síðustu 28 árin lifað sérstæðu lífi sem hefur orðið til að magna hvers kyns sögusagnir um hann en hann hefur ekki komið fyrir sjónir annarra en nánustu samstarfsmanna sinna i öll þau ár. Auðæfi þau sem hann lætur nú eftir sig eru feiknaleg. Hann erfði eftir föður sinn fyrirtæki sem seldi tæki til olíu- vinnslu og undir stjórn Hughes óx fyrir- tæki hans hröðum skrefum og spannaði að lokum yfir flugfélag, flugvélaverk- smiðju, spilaviti, rafeindafyrirtæki og auk þess átti hann milljónir dollara i lausum aurum. Howard Hughes lenti I flugslysi árið 1948 og eftir það kom hann naumast fyrir almenningssjónir. Hann var sjúk- dómahræddari öðrum mönnum og sagnir um furðulegar varnir hans á þc:~ sviðum urðu fleygar. Hann hafði ein- hverju sinni lýst yfir að hann vildi að eftir dauðann yrði hann djúpfrystur unz læknavísindum hefði fleygt svo fram að unnt yrði að lifga hann við- Á yngri árum var Howard Hughes gleði- og samkvæmismaður hinn mesti, umgekkst kvikmyndastjörnur og giftist nokkrum þeirra, var á fleygiferð um heiminn að stjórna málum sinum og lét mjög að sér kveða. Öðru hverju kom upp sá kvittur á síðustu árum að hann væri látinn og nýlega kröfðust nokkrir hlut- hafar í einu fyrirtækja hans þess að dómsrannsókn yrði framkvæmd á þvi hvort hann væri enn lifandi. Þeirri kröfu var hrundið. Howard Hughes hefur verið á stöðugu ferðalagi líka nú síðustu árin, enda þótt þau ferðalög hafi öll virzt farin í þeim tilgangi að forða honum frá samgangi við umheiminn og annað fólk. Sagan segir að sézt hafi til hans er honum var með leynd komið frá bækistöðvum sin- um í Las Vegas árið 1970 og hrikalegar lýsingar gefnar á útliti hans. Er ekki vitað til að tekin hafi verið af honum mynd síðan. Hann hefur haft búsetu í Nassau á Bahamaeyjum lengst af seinni árin. Meðan Hughes hafði afskipti af kvik- myndalífinu i Hollywood framleiddi hann og nokkrar kvikmyndir sem urðu vinsælar þá og má nefna „Hells’ angels“ „Scarface“ og „The Outlaw“ sem gerði Viðurkenning frá Roosevelt vegna flugafreks hans 1936. fræga kvikmyndaleikkonuna Jane Russel. Árið 1972 komst Hughes enn á for- síður blaða þegar tilkynnt var að útgáfu- fyrirtæki McGraw í New York ætlaði að gefa út ævisögu hans eftir Clifford Irving. Varð nú uppi hið mesta fjaðrafok og Hughes hringdi i eigin persónu frá Bahamaeyjum og lýsti ævisögu Irvings Framhald á bls. 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.