Morgunblaðið - 07.04.1976, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 07.04.1976, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. APRlL 1976 Magnús Þorláks- son - Minningarorð Margrét Brandsdótt ir — Minningarorð Fæddur 2/4 1903 Dáinn 30/3 1976 Hann Magnú.s er dáinn, hefur kvatt þennan heim, aðeins nokkrum dögum á eftir eina sonarsyni sínum, nafna sínum, sem var honum svo kær. Aðeins örfáum dögum áður kvaddi ég hann. Þá var hann glaður og ánægður, handtak hans hlýtt eins og venjulega. Mig óraði ekki fyrir þvi þá, að það yrði í síðasta sinn er viö sæjumst. Glaöværö Magnúsar var hans einkenni, hann var einn þeirra mann.i er veita glaðværö af ór- læti. í hans návist leiddist engum. Hann hafði góöa kímnigáfu, kunni að segja frá, var síkátur og kunni að umhera með hógværð. Það var gott að koma til Magnúsar og Nýju, þangað áttu niargir leið þar leiddist engum. Magnús kvæntist eftirlifandi konu sinni, Guðnýju Stefánsdótt- ur áríð 1932. Þau áttu einn son, Viðar sem nú er húseltur i Alaska. Hann var kominn um langan veg til að fylgja einkasyni sínum til grafar, er þau veikindi Magnúsar hófust er urðu svo af- drifarík. Barnabörn Magnúsar voru fimm og voru þau honum mjög kær, og oft talaði hann um litla krilið, ltarna-barna-barn sitt og sagði okkur margar skemmti- legar sögur af litlu stúlkunni. Bróðursonur Magnúsar, Jens Guðmundsson, er nú kominn heim frá Danmiirku til að fylgja honum síðasta spölinn, en hann var aö nokkru leyti alinn upp hjá þeim Magnúsi og Nýju og leit á þau sem sína foreldra. En Magnús og Nýja höföu einmitt heimsótt hann síðastliðið sumar. Sú ferð var þeim mjög ánægjuleg. Magnús var vélstjóri og stýri- maöur að mennt og stundaöi sjó- mennsku framan af ævi. Siðari hluta ævi haföi hann eftirlit með vélum síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði. Þó Magnús væri góður starfskraftur og mjiig kunnáttu- samur í sinu fagi verður hans þó lengst minnst végna mannkær- leika og umgengnismáta. Hann hafði alltaf tima til að vera mann- legur, rétta hjálparhönd og koma öðrum í gott skap, nokkuö sem svo margir gleyma i lífsgæða- kapphlaupi nútimans. Viö hér á Eikjuvogi sendum Nýju og Viðari og barnabörnun- um okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Þau hafa mikiö misst, en megi hugljúfar minningar um þá nafnana verða þeim léttir á þessum erfiðu stundum. Pálmi Gíslason. Afmælis- o g minningar- greinar ATIIYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að bcrast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á f mið- vikudagsblaði, að berast í síð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera I sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. Fædd 25. nóvember 1905 Dáin 31. marz 1976 Frú Margrét Brandsdóttir var Reykvíkingur. Hér stóð vagga hennar og hér verður hún til moldar borin frá Dómkirkjunni I dag. Foreldrar hennar voru Jóhanna Jóhannsdóttir frá Nesjavöllum og Brandur Jónsson frá Nýjabæ i Garðahverfi, lengi starfsmaður Slippfélagsins í Reykjavík. Hún giftist Haraldi Guðmunds- syni fyrrum ráðherra 14.2 ’31 og stofnuðu þau heimili á Seyðis- firði, þar sem Haraldur var úti- bússtjóri Utvegsbanka íslands, en leiðin lá fljótlega til Reykjavikur aftur, er Haraldur varð atvinnu- málaráðherra (1934—’38) og síð- an forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins. Þar stóð heimili þeirra til dauðadags, að undanskildum árunum 1957—’63, er Haraldur gengdi starfi ambassadors í Nor- egi. Mann sinn missti frú Margrét 23.10.’71 eftir 40 ára hjónaband. Þau eignuðust fimm börn, sem öll eru á lífi. Þau eru: Haukur f. 13.5. '31, deildarstjóri hjá Tryggingastofnun ríkisins, kvæntur Auði Jónsdóttur; Hrafn f. 11.11. ’32, viðskiptafræðingur og menntaskólakennari, kvæntur Ragnhildi Kvaran; Þóra f. 5.2. ’35, gift August Holme sölustjóra, bú- sett í Oslo, Rebekka f. 9.3. ’39 sálfræðingur, gift Bent Haugsted verkfræðingi, búsett i Kaup- mannahöfn, Jóhanna f. 10.10. ’43 lifefnafræðingur, gift Jens Josephsen efnafræðingi, búsett i Hróarskeldu. Barnabörnin eru 15. Frú Margrét mun ekki hafa not- ið mikillar skólagöngu í æsku sök- um stopullar heilsu þá, en það átti eftir að sýna sig aó hin unga kona, sem gjörðist lifaförunautur hins mikilhæfa stjórnmálamanns Har- alds Guðmundssonar fyrir 45 ár- um átti eftir að standast öll próf með ágætum i lífsins skóla. Þar kom til að hennar innri maður var alheilbrigður. Gáfurnar voru góð- ar, skaphöfnin sterk, en mest var um vert, að allar hennar athafnir og ályktanir stjórnuðust af allt- umfaðmandi velvild. Hún átti ekki aðeins létta lund og rika kímnigáfu, heldur bókstaflega geislaði af henni góðvildin. Hún var mannþekkjari og mannabæt- ir. Ekki var hún aðeins börnum sínum og barnabörnum ástrík móðir og amma, ættmennum sin- um og vinum hollráð, heldur mun margur henni óvandabundinn, sem átti andstreymi eða í vök að verjast, hafa komið sterkari og glaðari af hennar fundi. Manni sínum var hún hinn góði andi, stoð og stytta i erilsömum ábyrgð- arstörfum. Það var mjög kært með þeim hjónum. Þrátt fyrir háa þjóðfélagsstöðu var Margrét Brandsdóttir með hógværustu og lítillátustu konum. Með henni er mikilhæf og göfug kona gengin. Þorlákur Helgason. Hinn 31. marz lézt frú Margrét Brandsdóttir, ekkja Haralds Guð- mundssonar fyrrverandi ráð- herra. Mér er bæði ljúft og skylt að flytja þakkir mínar og fjölskyldu minnar til látinnar vinkonu sem vert er að minnast. Mikil mannkostakona er kvödd en umfram allt einstök móðir 5 barna sem öll gátu komið með vini sína heim en þar var okkur öllum jafn vel tekið, þá mynduð- ust traust vináttubönd sem entust alla tíð. Þrátt fyrir mikil störf á stóru heimili ásamt þvi að standa við hlið eiginmanns síns í skyldu- störfum hans varð hennar fágaða framkoma þess valdandi að stór- um vinahóp var alltaf jafn hlý- lega fagnað. Margrét flíkaði ekki tilfinning- um sínum, en oft fann ég hversu viljasterk og trúuð kona hún var og hennar fögru fyrirbænir voru einlægar og góðar. Fyrir nokkrum dögum áttum við tal saman og benti hún réttilega á að það væru ekki stóru hlutirnir í þessum heimi sem gæfu lífinu mest gildi heldur oftast þeir smáu. Hinn glaðværi hópur, sem svo oft safn- aðist saman á heimili þeirra hjóna, hittist þar ekki oftar, en eftir lifa ógleymanlegar minning- ar. Astvinum hennar öllum votta ég dýpstu samúð. Hrafnhildur Jónasdóttir. t Þökkum innilega auðsýnda sam- úð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns mins, föður, tengdaföður og stjúpföður ÓSKARS M. JÓHANNSSONAR, Ásvallagötu 69. Fyrir hönd aðstandenda Sigrún Eiðsdóttir. Eiginmaður minn. + VAGN E. JÓNSSON, hæstaréttarlögmaður. lést aðfaranótt 5 april Laufey Hólm. t Mmningarathöfn um skipverja v b Hafrúnar sem fórst 2 marz sl ÁGÚST ÓLAFSSON, HARALOJÓNSSON, JAKOB ZOPHANÍASSON, JÚLÍUS STEFÁNSSON, VALDIMAR EIÐSSON. OG ÞÓRÐ ÞÓRISSON. verður í Eyrarbakkakirkju, laugardaginn 10 apríl og hefst kl 2 Aðstandendur. + Hjartkær eiginkona mín SÆUNN SIGURÐARDÓTTIR, Ásfelli, Innri Akraneshrepp, lést í sjúkrahúsi Akraness 4 apríl Hjálmar Jónsson, Ásfelli. + Maðurinn minn, HELGI HJÁLMARSSON, Kárastíg 14, Reykjavík, andaðist í sjúkrahúsi, Vestmannaeyja, aðfaranótt 6 april Fyrir hönd barna og barnabarna, Sigríður Sigurðardóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför dóttur minnar og sonar GUÐFINNU ÁRANDÓTTUR BLÖNDAL og STEINS ÁRNASONAR, Fyrir hönd aðstandenda r Ámi Helgason, Akri, Eyrarbakka. + Innilegustu þakkir flytjum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vináttu vegna andláts og útfarar ÓLAFAR GUOMUNDSDÓTTUR, Sléttubóli, Austur Landeyjum. Guð blessi ykkur öll Vandamenn. ✓ + Útför eiginmanns mins og föður okkar GUÐMUNDAR KRISTINSSONAR. verkamanns, Kóngsbakka 11, Reykjavik, verður gerð frá Fríkirkjunni kl 1 3.30 fimmtudaginn 8 apríl nk Að ósk hins látna er þeim. sem vildu minnast hans, bent á Félag Nýalssinna (Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar) Guðrún Elimundardóttir, Þorgrimur Guðmundsson, Kristin Guðmundsdóttir, Margrét Pétursdóttir, Sigurður E. Guðmundsson, Kristinn Guðmundsson. + Sonur okkar og bróðir JÓN EMIL Þorfinnsgötu 1 2, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 8 apríl kl 3. Fyrir hönd aðstandenda, .... _ Jakobina Guðmundsdóttir, Reynir H. Jónsson, Bragi Reynisson. + Eiginkona mín ÁRNÝ ingibjörg jónsdóttir andaðíst þriðjudaginn 6 april að Elliheimilinu Grund. Helgi Sigurður Eggertsson. + Innilegar þakkir vottum við öllum þeim sem sýnt hafa samúð og vinarhug í veikindum og viðfráfall JÓHANNS Ó. ELÍASSONAR húsgangabólstrara. Hulda Guðmundsdóttir og fjölskylda. + Innilegt þakklæti sendum við öllum, sem sýndu okkur vináttu og samúð við andlát og jarðarför, AUÐUNS SÆMUNDSSONAR frá Minni Vatnsleysu. Börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.