Morgunblaðið - 07.04.1976, Síða 35

Morgunblaðið - 07.04.1976, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. APRIL 1976 35 Haukastúlkur * Islands- meistarar Haukastúlkurnar sem urðu ls- landsmeistarar á sunnudaginn, en höfðu reyndar sigrað I Reykja- nesmótinu fyrr f vetur. Aftari röð frá vinstri: Hólmfríður Garðars- dóttir, Björg Bergsveinsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Þórhildur Þórðardóttir, Hulda Einarsdóttir, Björg Guðmundsdóttir fyrirliði, Danfel Hálfdánarson þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Hafdfs Stefánsdóttir, Sigrfður Ellerts- dóttir, Sóley Indriðadóttir, Elva Guðmundsdóttir, Kristfn Sigurðardóttir, á myndina vantar Hrafnhildi Garðarsdóttur. Fóru beint úr fenning- unni í úrsUtakeppnina HAUKAR tryggðu sér meistaratitil í 3. flokki kvenna í Islandsmótinu í handknatt- leik, en úrslit mótsins fóru fram um síöustu helgi i Reykjavík. Ursiit leikja í úrslitakeppninni urðu þessi: Haukar — Valur 3:2 Völsungur — ÍBK 4:2 IBK — Valur 5:4 Haukar — Völsungur 5:3 Völsungur — Valur 6:5 Haukar — IBK 4:3 Haukar hlutu 6 stig, Völsungur 4 stig, IBK 2 stig en Valur fékk ekkert stig. Björg Guðmundsdóttir er fyrir- liði Haukaliðsins. Það vakti at- hygli að hún og önnur liðskona voru með blóm í hárinu og var skýringin sú að þær höfðu fermst á sunnudagsmorguninn. Hún sagði að 15—20 stelpur æfðu i 3. flokki Hauka og væri áhuginn mjög mikill hjá stúlkunum. Þær urðu einnig Reykjanesmeistarar i sínum aldursflokki. Daníel Hálf- dánarson þjálfar stúlkurnar. GÚSTAF Agnarsson lyftinga- maður úr KR, vann glæsileg af- rek á Reykjavíkurmeistaramót- inu í lyftingum sem fram fór f LaugardalshöIIinni f fyrrakvöld. Lyfti hann 163,0 kg í snörun og 202,5 kg f jafnhendingu, og er það mesta þyngd sem íslenzkur lyftingamaður hefur jafnhattað. Aður hafði einum lyftingamanni tekist að sigrast á 200 kflóa markinu, en það var Óskar Sigur- pálsson sem jafnhattaði þá þyngd á „Norðurlandameistaramótinu" f fyrra. Bæði 163,0 kg og 202,5 kg hjá Gústafi eru fslandsmet, en hins vegar fær hann ekki viður kennt Islandsmet f samanlögðu þar sem þyngdin sem hann lyfti f snörun var f aukatilraun. Hann varð þvf einnig af Reykjavíkur- meistaratitlinum. Til marks um það hversu góð afrek þessi eru Kári Elfasson hinn efnilegi lyftingamaður, sem setti fslandsmet f sfnum þyngdarflokki á Reykjavfkurmótinu. Gústaf setti tvö glœsi- leg íslandsmet í Igftingum hjá Gústafi má geta að þau hefðu nægt honum til bronsverðlauna á Olympíuleikunum f Miinehen 1972. Má ætla að Gústaf eigi góða möguleika á að verða meðal fremstu manna á leikunum f Montreal f sumar, ef svo heldur sem horfir hjá honum. Gústaf reyndi fyrst við 160.0 kg í snörun en mistókst þrívegis Fékk hann síðan aukatilraun við 1 163.0 og fór vel upp með þá þyngd og bætti hann þar með met sitt um hálft kíló. Eftir að Gústaf hafði lyft 202,5 kg í jafnhöttun reyndi hann við 208,5 kg sem , hefði verið nýtt Norðurlandamet hefði lyftan tekist, en það tókst ekki að þessu sinni. Gústaf var ekki einn um að setja met í fyrrakvöld. Kári Elís- son sem keppnrí fjaðurvigt bætir | sig á hverju móti og setti nú met í. snörun með því að lyfta 97,5 kg.' Hann jafnhattaði siðan 117,5 kg, þannig að samanlagður árangur hans var 215 kg sem einnig er Islandsmet. Gamla metið átti . hann sjálfur og var það 205 kg. | Reykjavíkurmeistari i dverg- vigt., varð Guðmundur Helgason Á, sem lyfti samtals 120 kg. Sig- bert Hannesson, Á, varð meistari í léttvigt, lyfti samtals 190 kg. Már Vilhjálmsson, A, varð meistari i millivigt með þvi að lyfta samtals 200 kg og meistari í milliþungávigt varð Helgi Jóns- son. KR, sem lyfti samtals 230 kg. Sigurvegari í þungavi^t þyngdar flokki Gústafs Agnarssonar varð félagi hans úr KR, Björn Hrafns- son, sem lyfti samtals 210 kg, þannig að Gústaf var ekki langt frá þvi að hljóta titilinn af árangri sínum í jafnhöttuninni einum saman. Hörður í KA HÖRÐUR Hilmarsson, hinn margreyndi landsliðsmaður i knattspyrnu, hefur nú tilkynnt félagaskipti úr Val i 2. deildar lið KA á Akureyri, en Hörður starfar sem kennari þar í bæ. Er ekki að efa að KA-liðinu verður mikill styrkur að fá Hörð til liðs við sig, og má ætla að KA- liðið hafi fulla möguleika á að blanda sér i baráttuna á toppnum í 2. deildinni í sumar. Þá hefur einnig annar Valsmaður, Guðjón Harðarson, tilkynnt félagaskipti i KA, en Guðjón hefur leikið nokkra leiki með meistara- flokki Vals. Partizan í heimsókn HIÐ frábæra júgóslavneska handknattleikslið Partizan Bjelovar er væntanlegt i heimsókn hingað til lands n.k. fimmtudag, og mun liðið leika þrjá leiki i íslandsheimsókn sinni. Er Partizan liðið íslendingum vel kunnugt, en það hefur áður leikið hérlendis, m.a. við FH-inga í Evrópubikarkeppni meistaraliða í handknattleik, og varla er vafamál að þarna er um að ræða eitt sterkasta félagslið í heimi. Hefur það i röðum sínum þrjá núverandi landsliðsmenn i Júgóslaviu og þrjá fyrrverandi landsliðsmenn. Þekktasti leikmaður liðsins er án vafa Horvant, en hann er fyrirliði júgóslavneska landsliðsins. Fyrsti leikur Partizan verður á laugardaginn en þá leikur liðið við íslandsmeistara FH. Fer leikurinn fram í Laugardalshöllinni og hefst kl. 1 5.00. Kl. 20.30 á sunnudagskvöld leikur Partizan svo við úrvalslið, og kl. 20.30 á mánudagskvöld leika Júgóslavarnir við Valsmenn og fer sá leikur fram i íþróttahúsinu á Akranesi. Eru það Valsmenn sem verða gestgjafar Júgóslavanna. í leikjum íslenzku liðanna við Partizan mun ætlunin að haga dómgæzlu nokkuð á annan veg en tíðkast hérlendis og sníða hana að reglum þeim sem Júgóslavar hafa í sínum handknattleik. Er dómurum þá fyrirlagt að stöðva klukkuna við tafir i leiknum, en slíkt þykir leiða til miklu hraðari og fjörugri handknattleiks. Þá má og geta þess að allar likur eru á að Jóhann Ingi Gunnarsson muni stjórna úrvalsliði HSÍ i leiknum við Partizan, en Jóhann Ingi þekkir íslendinga mest inn á handknattleik i Júgóslaviu og þá ekki sizt á leik Partizan. FH-KR í kvöld I kvöld fer fram einn leikur i undanúrslitum bikarkeppni HSÍ i Hafnarfirði. Er það leikur KR og FH en sigurvegari i þeím leik mun leika til úrslita við Val, væntanlega um næstu helgi. Leikurinn fer fram eins og áður sagði i Íþróttahúsinu i Hafnarfirði, heimavelli FH. KR-ingar hafa ákveðið að efna til sætaferða á leikinn til að standa i hafnfirzku áhorfendunum. Verður farið frá KR-heimilinu um hálf átta og hefur verið fenginn til að stjórna klappliðinu hinn frægi Egill rakari. Að leik KR og FH loknum fer fram leikur FH og Fram i kvennaflokki i undanúrslitum bikarkeppni kvenna. Fram vann ngtiðana 4 — Oog fœr 3 stig Antiar leikur Reykjavíkur- meistaramótsins í knattspyrnu fór fram á Melavellinum í fyrrakvöld og áttust þar við lið Fram og nýliðarnir I 1. deild, Þróttur. Voru aðstæður fremur erfiðar til keppni, eins og oftast er á þessum árstfma. Leikurinn var nokkuð jafn til að byrja meðfen eftir að Fram hafði náð forystu i leiknum með marki Kristins Jörunds- sonar náði liðið góðum tökum á leiknum og bætti þremur mörk- um við, án þess að Þrótturum tækist að svara fyrir sig og fá Framararnir þvi þrjú stig fyrir leik þennan, samkvæmt reglum Reykjavíkurmótsins. Marteinn Geirsson skoraði annað mark Fram úr vita- spyrnu og var staðan 2—0 í hálfleik. I seinni hálfleiknum bættu þeir Kristinn Jörundsson og Pétur Ormslev svo mörkum við fyrir Fram, en Framliðið lék þennan leik á köflum með miklum ágætum, og er svo að sjá að leikmenn þess séu í góðri æfingu og til alls liklegir. Framarar skora eitt marka sinna í leiknum við Þrótt. Heimsmethafinn varð þriðji Nikolai Kolesnikov frá Sovétrikjunum varð Evrópumeistari i lyftingum I fjaðurvigt og kom sá sigur hans nokkuS á óvart. Almennt var búizt við aS heimsmethafinn i þessum þyngdarflokki Todorov frá Búlgaríu yrSi öruggur sigurvegari en hann var langt frá sínu bezta og varð að sætta sig vi? bronsverðlaunin. Helztu úrslit i fjarður- vigtarflokknum urðu þessi: Nikolai Kolesnikov, Sovétrikjunum — 280.0 Todor Todorov, Búlgariu — 280 Georgi Todorov, Búlgaríu — 277,5 Grzegorz Cziura, Póllandi — 270 Bogumil Janowczyk, Póllandi — 270 Janos Benedik, Ungverjalandi — 262,5 Frantisek Nedved, Tékkóslóvakiu — 260 Arne Norrabeck, SviþjóS — 260 Marian Grigoras, - Rúmeníu — 257,5 Dominique Bidard, Frakklandi — 252,5 Búlgari Evrópumeistari Búlgarinn Norair Nurikian varS Evrópumeistari í lyftingum bantamvigtar en keppni I þeim þyngdarflokki fór fram á mótinu i Austur-Berlín i fyrrakvöld. Sam- tals lyfti Nurikian 255,0 kg, snaraði 110 kg og jafnhattaði 145 kg. RöS næstu manna var sem hér segir: 2) Leszek Skrupa. Póllandi 107,5 — 145,0 — 252,5 3) Karel Prohl, Tékkóslóvakiu 112,5 — 137,5 — 250,0 4) Imre Stefanovics, Ungverjalandi 107,5 — 142,5 — 250,0 5) Tadeusz Dembonczyk, Póllandi 105,0 — 130,0 — 235,0 6) Ladislav Kovacs. Tékkóslóvakíu 100,0 — 135,0 — 235,0 7) Kurt Pittner, Austurriki 105,0 — 135,0 — 235,0 8) Jean-Claude Chavigny, Frakklandi 95,0 — 132,5 — 227,5 Víkingur Aðalfundur handknattleiksdeildar Víkings verður haldinn í kvöld, 7 april, kl 20.30 • Félagsheimili Víkings við Hæðargarð Fram Aðalfundur handknattleiksdeildar Fram verður haldinn fimmtudaginn 8 apríl n.k. i Félagsheimili Fram við Safa- mýri Haukar Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Hauka í Hafnarfirði verður haldinn i Haukahúsinu við Flatarhraun. 12 april nk og hefst klukkan 20 00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.