Morgunblaðið - 23.05.1976, Síða 1

Morgunblaðið - 23.05.1976, Síða 1
48 SÍÐUR lll.tbl.63. árg. SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. „Vonir um skjótar lyktir deilunnar” — segja brezku blöðin London, 22. mai. Einkaskeyti til Morgun- biaðsins frá AP: BREZKU morgunblöðin birtu f dag bjartsýnisfyrirsagnir um að senn sjáist fvrir endann á þorska- strfði Breta og lsiendinga. „Vonir um frið f þorskastrfðinu", sagði Daily Mail. „Bretar reiðubúnir fyrir frið f þorskastríði", sagði Daily Express. „Vonir um skjót endalok þorskastrfðsins vakna að nýju“, sagði Times. í fréttum blaðanna frá Osló um óformlegar viðræður sem Anthony Crosland, utanríkisráðherra Bretlands, átti með Geir Hallgrfmssyni forsætis- ráðherra og Einari Ágústssyni ut- anrfkisráðherra, er næstum þvf alls staðar fjallað af bjartsýni um lyktir deilunnar. Hið útbreidda blað Daily Mirror sem yfirleitt styður Verkamannaflokksstjórn- ina sagði: „Nýrra aðgerða til að binda endi á þorskastrfðið er að vænta fljótlega." Segir blaðið að lfkur séu á viðræðum vegna hót- unar tslendinga um úrsögn úr NATO ef deilan leysist ekki senn og er haft eftir talsmanni brezka utanrfkisráðuneytisins að Bretar myndu „harma það mjög ef ís- lendingar færu úr NATO“. Þá er haft eftir Crosland við komuna til Bretlands að Bretar og íslendingar séu nær samkomulagi að því leyti að utanrikisráðherr- arnir hefðu gert afstöðu sína ljósa hvor fyrir öðrum. í sjónvarpsvið- tali kallaði Crosland hótun ís- lendinga um úrsögn úr NATO Framhald á bls. 47. Norsku blöðin slá upp viðræðunum Ljösmynd Ol.K.M. Eindregin stuðningsyfirlýsing Frjálslynda flokksins við íslendinga: Bretar siðferðilega rétt- lausir innan 200 mílnanna Oxford, 22. mai. Reuter. FRJÁLSLYNDI flokk- urinn í Brctlandi sam- þykkti í dag ályktun þar sem lýst er yfir stuðningi við fslenzku ríkisstjórnina í fiskveiðideilunni við Sovétnjósnara í Japan sleppt Tokyo, 22. maí. Reuter. JAPANSKA lögreglan lét f dag lausan sovézkan blaðamann sem hefur verið f haldi f 10 daga, grunaður um að njósna um bandarfskajflotann, en maðurinn verður Ifklega að fara frá Japan. Utanrikisráðuneytið kvaðst hafa farið þess á leit við sovézka sendiráðið að það gripi til nauð- synlegra ráðstafana, eins og það komst að orði, gegn Alexander Mackekhin, 38 ára gömlum frétta- ritara fréttastofunnar Novosti. Mackekhin hefur verið I Japan síðan 1974 og var handtekinn 12. maf þegar hann kom úr veitinga- húsi f fylgd nrieð undirforingja af bandaríska flugvélamóðurskipinu Midway. Rússinn fór í fimm daga hungurverkfall til að mótmæla handtökunni. Utanrfkisráðuneytið tjáði Framhald á bls. 47. Breta. Framkvæmdastjórn flokksins gerði ályktun á fundi sínum f Oxford þar sem segir að Bretar hafi engan siðferðilegan rétt til veiða innan 200 mílna markanna við tsland án samþykkis fslenzku ríkis- stjórnarinnar. t ályktuninni segir að Bretar fari ránshendi um lífsnauðsynlegar auðlindir vinarfkis og hörmuð er beiting brezka flotans gegn bandalagsþjóð f NATO. Frjálslyndi flokkurinn er þriðji stærsti flokkur Bretlands og á 13 þingsæti af 635, en fékk 5,3 milljón- ir atkvæða í kosningunum í október 1974. FUNDUR Geirs Hallgrfmssonar forsætisráðherra og Einars Ágústssonar utanríkisráðherra með Anthony Crosland, utanrfkis- ráðherra Breta, var eitt aðal- fréttaefni norskra blaða f gær. Blöðin slá upp þessum viðræð- um, birta myndir af báðum ráð- herrunum og sum blöðin segja að Norðmenn séu að leysa deiluna, sagði Hörður Helgason, skrif- stofustjóri ( utanrfkisráðuneyt- inu, þegar Mbl. hafði samband við hann f Ósló. — önnur blöð skýra frá þessu eins og hverri annarri frétt: að þeir hafi hitzt hér, islenzki for- sætisráðherrann hafi komið og menn séu vongóðir um fram- haldið. — Skrifað hefur verið um Einar Ágústsson að hann hafi ver- ið nokkuð harðorður á blaða- mannafundinum sem hann hélt hér. — Þetta er í stuttu máli það sem blöðin hafa að segja og frétt- in er á forsíðum allra blaða undir stórum fyrirsögnum. Svo eru greinar á innsíðum og skrifað er um málið í forystugreinum. — Tónninn er sem sagt yfir- leitt sá að vonað sé að lausn finnist og málið sé ekki siður alvarlegt fyrir Norðmenn og Atlantshafsbandalagið sérstak- lega. _____ _______ Giscard býður Líbanonforseta friðargæzlulið New Orleans, 22. mai — AP VALERY Giscard d’Estaing Frakklandsforseti sagði í New Orleans i gær að Frakkar væru reiðubúnir til að senda allmargar friðargæzlusveitir til Líbanons innan tveggja sólarhringa ef for- seti landsins óskaði eftir því. Kvaðst Giscard hafa rætt þetta við Henry Kissinger, utanrikis- ráðherra Bandaríkjanna. Þá er haft eftir Frakklandsforseta að þessi hugmynd hans njóti stuðnings Sýrlendinga. Bandaríkin munu viðhalda yfirburðum á N-Atlantshafi Ósló, 22. maí Reuter. AP. BANDARÍKJAMENN ætla að viðhalda fullnægjandi flota- styrk svo að þeim verði kleift sem hingað til að ráða lögum og lofum á Norður-Atlantshafi, sagði Henry Kissinger, utanrfk- isráðherra Bandarfkjanna, f dag. Hann sagði á blaðamanna- fundi að loknum viðræðum við Knut Frydenlund, utanrfkis- ráðherra Norðmanna, að flota- áætlanir Bandarfkjamanna væru mótaðar út frá þeirri for- sendu að þeir hefðu yfirburði á siglingaleiðum ef til venjulegr- ar st.vrjaldar kæmi við Rússa. Norðmenn hafa vaxandi áhyggjur af eflingu sovézka flotans og benda sérstaklega á að 70 af hundraði kjarnorku- kafbáta Rússa yrðu að sigla fram hjá nyrzta odda Noregs til að taka sér stöðu á Atlantshafi. Auk þess segja Norðmenn að Rússar hafi 5.000 landgöngu- liða búna landgönguskipum í Murmansk rétt austan við Nordkap og þeir óttast að ef til styrjaldar kæmi yrði hlutverk þeirra i því fólgið að vera fram- varðarsveit hernáms Noregs. Fyrirspyrjandi á blaða- mannafundi Kissingers benti á að samkvæmt herfræðiskýrslu, sem birt hefði verið i London, hefðu Bandaríkjamenn ekki lengur aðstöðu til óhindraðra flutninga til Noregs ef til venjulegs stríðs kæmi. Dr. Kissinger viðurkenndi að Bandarikjafloti yrði fyrir tjóni ef til styrjaldar kæmi við Rússa en bætti við: „Við teljum hins vegar að við séum í aðstöðu til þess nú og að við munum viðhalda þeim liðs- styrk i framtíðinni sem gerir okkur kleift að ráða sem hingað til lögum og lofum á hafinu og að okkur verði fært að aðstoða bandamenn okkar í Evrópu með því að nota siglingaleiðirn- Framhald á bls. 47.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.