Morgunblaðið - 23.05.1976, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1976
Stóru togararnir sækja á fjarlæg mið:
Olíulítrinn kostar
á við 1 kg. af karfa
Ljósmynd Mbl. Rax
Þessi mynd var tekin í gær af Hvaleyrarlóni þar sem Hákur er nú að dýpka þessa gömlu Hafnarfjarðar-
höfn, en þegar þvf er lokið hyggst Bátalðn stækka dráttarbraut sína að skipasmfðastöðinni svo unnt verði
að smfða þar stðr skip.
Stefnt að skuttogara-
smíði í Bátalóni
Unnið að dýpkun í Hvaleyrarlóni
STÓRU togararnir hafa nú á ann-
an mánuð nær eingöngu verið að
veiðum á fjarlægari miðum og þá
einkanlega við A-Grænland, að
þvf er Marteinn Jðnsson, forstjðri
Bæjarútgerðar Reykjavíkur, tjáði
Morgunblaðinu.
Hann sagði að þessir togarar
hefðu verið með frá 212 tonnum
og upp í 260—70 tonn en aflinn
aðallega verið karfi en afgangur-
inn þorskur.
Smærri togararnir hafa hins
vegar verið á heimamiðum og afl-
að misjafnlega en þó kom hinn
nýi togari BUR — Hjörleifur með
140 tonn á mjög góðum fiski á
dögunum.
Marteinn kvað~það hafa komið í
ljós, að stóru togararnir kæmu sér
vel, þar sem þyrfti að fiska á
erfiðum botni og við erfiðar að-
stæður eins og t.d. við A-
Grænland, og þannig hægt að
senda þá á hin fjarlægari mið til
að létta sóknina á heimamiðum.
Bifreiðin
fór marg-
ar veltur
UM hádegisbil í fyrradag fór
fólksbifreið út af llafnarfjarðar-
vegi, skammt fyrir norðan brúna
við Nýbýlaveg. Fór hún yfir gras-
eyju, akrein að Hafnarfjarðar-
vegi og loks drjúgan spöl utan
vega.r Fór bifreiðin margar
veltur. Ökumaðurinn reyndist
vera fótbrotinn, allur marinn og
skrámaður og auk þess fékk hann
höfuðhögg. Kifreiðin er gjörónýt.
Fólksbifreiðin var á leið til
Reykjavíkur þegar slysið gerðist.
Virðist sem ökumaðurinn hafi
misst tjórn á bílnum, en hann var
að sögn sjónarvotta á ofsaferð.
Bílstjórinn var einn í bílnum og
var hann fluttur á slysadeild
Borgarspítalans.
Hins vegar væri þess að gæta,
að þessar veiðar væru ekki sér-
lega arðbærar, því að olíukostnað-
ur skipanna hefði sexfaldast frá
því sem áður var á sama tíma í
fyrra og nú væri svo komið að
lítrinn af oliu kostaði hið sama og
eitt kiló af karfa, en nær helmingi
lægra verð fengist fyrir hann en
þorsk og uppistaða aflans af þess-
um fjarlægari miðum væri ein-
mitt karfi.
Engin
skýring
BANDARlSKA utanríkisráðu-
neytið gat enga skýringu gefið
f gær á misræmi f ummælum
Henry Kissingers utanríkis-
ráðherra og Haralds Kröyer
sendiherra um Asheville-
bátanna.
Blaðafulltrúi ráðherrans
sagði í Ösló að formleg beiðni
hefði ekki borizt, aðeins fyrir-
spurn, en Haraldur Kröyer
sagði við Mbl. að formleg
beiðni hefði verið lögð fram en
henni hafnað.
Blaðafulltrúi utanríkisráðu-
neytisins í Washington sagði
síðan við Mbl. í gær að hann
gæti aðeins endurtekið að
Kissinger hefði sagt aðspurður
um AsheviIIe-bátana í Ósló að
Bandaríkin hefðu ekki tekið
opinbera afstöðu til málsins,
að Bandaríkjamenn hefðu
ekki verið beðnir að taka af-
stöðu. Hann hefði séð margar
blaðafréttir um málið en fram
til þessa hefðu Bandaríkin
ekki verið beðin að taka af-
stöðu.
Blaðafulltrúinn kvaðst ekki
geta gefið skýringu á mis-
ræminu eða bætt við það sem
utanríkisráðherrann hefði sagt
opinberlega í svari við fyrir-
spurnunum frá blaðamönnum.
DVPKUNARSKIPIÐ Hákur er
nú að grafa við skipasmfðastöð
Bátalóns í gömlu Hafnarfjarðar-
höfninni f Hvaleyrarlóni, en með
þeirri framkvæmd mun batna
mjög aðstaðan til stærri skipa-
smfða fyrir Bátalón og einnig að-
staðan fyrir þá bátaeigendur sem
hafa aðstöðu sfna við lónið. Eru
þar 9 bátaskemmur. Eftir
dýpkunina getur Bátalón lengt
skipabraut sfna og miðað er við að
hef ja smfði allt að 300—500 tonna
skipa, en um þessar mundir er til
umræðu smfði á skuttogara f
Bátalóni.
„Aðstaðan var orðin mjög slæm
hér vegna Ieirsins í lóninu,“ sagði
Þórbergur Ólafsson forstjóri
Bátalóns i spjalli við Morgun-
blaðið, „en Bátalón lét grafa út
rennu úr lóninu fyrir 9 árum.
Sfðan hefur þetta versnað mjög
aftur vegna þess að leir hafði fall-
ið út í rennuna. Núna verður graf-
ið inn að Hvaleyrinni að báta-
skemmunum þar.
Ég vonast til að sú hugmynd að
fylla upp þetta svæði sé úr sög-
unni, þvi hér er frábær aðstaða
fyrir smábátahöfn og annað slfkt
auk þess sem hér er sögulegt
svæði í athafnalífi Hafnarfjarðar.
í þetta skipti mun Hákur ekki
grafa út eins og hægt er en þá
væri hægt að taka 500 tonna skut-
togara inn á lónið. Við miðum við
það eftir þessa dýpkun, að geta
lengt brautina hjá okkur um 20
metra og þá getum við smíðað og
tekið upp um 300—400 tonna skip
og mögulega 500 tonna skip ef
dýpkunin tekst vel nú, en nú
þegar höfum við húsnæði- til að
byggja 300 tonna skip innan húss
og mögulegt er að Bátalón hefji á
næstunni smíði skuttogara."
íscargó flutti 25 tonn á 2 dögum
ERLENDIR FLUTNINGAR 75%
AF FLUTNINGUM FÉLAGSINS
MIKLAR annir hafa verið hjá
Iscargó undanfarið I flutningaflugi
og á fimmtudag og föstudag komu
flugvélarnar tvær f eigu félagsins
með yfir 25 tonn af vörum til
landsins. Hefur verið stöðug
aukning f flutningum félagsins,
þannig að á sl. ári varð um 50%
aukning á flugtfmum flugvélanna
frá árinu áður og velta fyrirtækis-
ins jókst úr 80 milljónum f 183
milljónir króna.
í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Hallgrímur Jónsson hjá ís-
cargó að önnur af DC-6 flugvélum
félagsins hefði einmitt í lok síðasta
mánaðar farið lengsta flugið, og var
það leiguflug til Point Noir í Kongó
Var þá farið frá Madrid með raf-
magnstöflur og rafeindatæki vegna
olíuhreinsunarstöðvar sem verið er
að reisa í Kongó. í bakaleiðinni var
komið við í Senegal og tekinn
melónufarmur til Rotterdam í fyrra-
dag fór flugvél íscarcó frá Renes í
Frakklandi til Túnis með 125
þúsund kjúklinga en í bakaleiðinni
var lent í Mílanó þar sem vélin tók
fullfermi af heimilistækjum fyrir inn-
lenda innflytjendur. Síðan átti vélin
að hafa viðkomu í Rotterdam og
taka þar viðbótarfarm af ávöxtum
Hin vélin kom í fyrradag frá
Rotterdam með 12 tonn af ýmiss
konar varningi, þannig að á vegum
Iscarcó hafa verið flutt til landsins á
tveimur dögum yfir 25 tonn af vör-
um Meðal þess sem önnur flugvélin
flutti var varahluti í bát í Vestmanna-
eyjum, en Hallgrímur kvað það
mjög algengt að vélar félagsins
væru fengnar til að flytja
1000—1800 kg stykki fyrir
skipaflotann hér, og fyrr í vikunni
hefði t d verið komið með 1000 kg
stykki í einn togarann sem bilaður
var
Hallgrlmur sagði að stöðug
aukning væri í flutningum félagsins
og þeir orðnir tiltölulega samfelldir.
Farnar væru vikulegar ferðir út og
þá til Rotterdam, en þangað hefði
íscargó áætlunarleyfi Vélar
félagsins flyttu til að mynda út alla
framleiðslu Álafoss, bæði til Ála-
borgar og Rotterdam en frá þessum
stöðum væri vörunni komið á bíla til
áfangastaðar Þá annaðist félagið
flutning á hestum til Evrópulanda en
nú virtist einmitt fjör vera að færast í
þá flutninga, sem dregizt hefðu
nokkuð saman meðan olíukreppan
var í hámarki.
Hins vegar kvað Hallgrímur um
75% af flutningi félagsins vera á
vegum erlendra aðila Félagið hefði
erlendis smám saman unnið sér
nafni í 12—15 tonna flutninga-
flugvélaflokknum, og töluverð eftir-
spurn væri eftir vélum félagsins.
íslenzk skrásetning vélanna komi sér
vel þar eð ísland eigi ekki í úti-
stöðum við neina aðila og af þeirri
ástæðu fái flugfélagið þau leyfi sem
það þarf Hann kvað þorskastríðið
ekki hafa haft nein áhrif á skipti
flugfélagsins við England, því að
brezkir hefðu sýnt flugfélaginu vel-
vild og það fengið þau leyfi sem
þurft hefur
Innanlandsflutningar hafa ekki
verið stór þáttur í starfsemi félagsins
til þessa Þó sagði Hallgrímur, að
félagið hefði nýlega verið fengið til
að fara leiguflug á vegum Flug-
félagsins frá Reykjavík til Egilstaða
og Akureyrar. Var farið með 1 3 tonn
frá Reykjavík og var aflestað 6 tonn-
um á Egilsstöðum en 7 á Akureyri,
og » bakaleiðinni hafi vélin tekið 1 1
tonn af gosdrykkjum frá Sana til
Reykjavíkur. Síðan hafi vél íscargó
daginn eftir flutt 1 3 og Vi tonn fyrir
Kröfluvirkjun frá Reykjavík til Húsa-
víkur. Hallgrímur sagði að allir
flutningar félagsins hér innanlands
væru I fullu samráði við Flugfélagið
sem hefði einkaleyfi á helztu flug-
leiðum.
Hallgrímur kvaðst þó telja, að
flugflutningar innanlands gætu
aukizt mjög frá því sem nú er. Hann
benti á að flugvél af þeirri gerð sem
íscargó notaði kostaði ekki ýkja
meira en nýr vöruflutningarbíll af
stærstu gerð en vélin gæti hins
vegar farið állt að 4 ferðir á dag með
13 tonn meðan vöruflutningabifreið
flytti 12 tonn 2—3var í viku.
þannig að segja mætti aðein flugvél
gæti leyst 1 3— 14 vöruflutningabif-
reiðar af stærstu gerð af hólmi. Hins
vegar væri þess að geta að flug-
flutningar væru nokkru dýrari og að
á flugvöllum úti á landi þyrfti þá að
kosta nokkru til að bæta aðbúnað á
flugvöllum til að afferming vélanna
gengi sem skjótast fyrir sig
íslenzku flugmennirnir gæða sér á melónum á akri í Senegal.