Morgunblaðið - 23.05.1976, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MAl 1976
| „Rómað af allri alþýðu”
Heimsókn í íslendingahúsið í Norefjell
í Noregi þar sem hundruð íslendinga
búsettra í Noregi dvelja á ári hverju
íslendingar í Ósló hafa
sennilega yfir betri að-
stöðu að ráða en ís-
lenzkur hópur nokkurs
staðar annars staðar er-
lendis. Á stúdentabæn-
um í Sogni hafa íslend-
ingarnir rúmgóða stofu
til eigin afnota, er hún
arfur frá þeirri tíð að
Guðrún Brunborg safn-
aði stórfé meðal íslend-
inga til minningar um
son sinn og keypti
herbergi á stúdentabæn-
um. Nota íslendingarnir
stofuna óspart til ýmiss
konar félagsstarfsemi
k’ÍSNar, en svo heitir
félag námsmanna í Ósló
og þar er allgott íslenzkt
bókasafn.
Stofan í Sogni var þó
ekki kveikjan að þessum
skrifum heldur hús eitt
mikið og veglegt í Nore-
fjell, um 250 km frá Osló.
Er það eign íslendinga-
félagsins í Ösló og
gengur einfaldlega undir
því þægilega nafni
,,Húsið“ eóa þá íslend-
ingahúsið ef fólk vi 11 vera
formlegt. Um flestar
helgar allan ársins hring
dvelja þar íslendingar-
búsettir eða við nám í
Noregi. Fer fjöldi þeirra
eftir árstíðum, en alltaf
eru einhverjir. Um
páska, jól og slíkar stór-
hátíóir þyrpast íslend-
ingar upp í Hús og út-
sendari Morgunblaðsins
var einn þeirra sem þar
dvöldu í góðu yfirlæti um
síðustu páska.
Allt í allt munu sennilega 100
Islendingar hafa verið í Húsinu
um páskana. F’lestir komnir frá
Ósló, en einnig frá Bergen og
öðrum bæjum í Noregi. Var
hátiðin haldin i sátt og sam-
lyndi. Skiptust menn á um
skyldustörfin og sömuleiðis var
þess gætt að enginn yrði útund-
an í félagsskapnum. Ýmiss
konar íþróttir voru stundaðar
af kappir-farið var á skíði, í
göngur, kínaskák var vinsæl
mjög, sömuleiðis venjuleg skák,
briddsgáfu manna var haldið
við og fleira mætti nefna sem
gert var sér til dægrastyttingar
en til að siappa af eftir erfiðar
íþróttaiðkanir var óspart farið í
gufuna, þó svo að nýbúið væri
að setja upp gjaldmæli á þetta
þarfaþing.
100 KRÓNUR VORU
FYRSTI VÍSIRINN
Ekki verður lengra haldið
með góðri samvizku án þess að
gera grein fyrir Húsinu og að-
draganda þess að það varð eign
Islendinga.
Það var árið 1923 að Islend-
ingafélagið í Ósló var stofnað
og var Ingimundur Eyjólfsson
aðalhvatamaðurinn að stofnun
þess. Á stofnfundinum gáfu
hann og kona hans 100 krónur
norskar og skyldi verja því fé
til að afla félaginu fasts
heimilis. Fjórum árum Seinna
. gaf Ósló-borg félaginu 10.000
krónur norskar í hússjóð og var
áletrað skinn þessu til staðfest-
ingar afhent á Alþingishátíð-
inni á Þingvöllum 1930. Skyldi
húsið standa sem eitt af tákn-
um vináttusambands Íslands og
Noregs.
Leið nú og beið, og er sjóður-
inn var orðinn um 50.000
krónur norskar var hann
lánaður vegna herbergjakaupa
á stúdentabænum í Sogni, sem
fyrr er greint frá. Er Islend-
ingafélagið fór síðan nokkrum
árum síðar á stúfana og ætlaði
að fá fé þetta endurgreitt
reyndist það erfitt vegna frá-
falls ýmissa þeirra, sem með
málið höfðu haft að gera og
sömuleiðis vegna misskilnings
á æðri og lægri stöðum.
Að því kom þó að sjóðurinn
var endurheimtur og Sneserud-
skóli í Kördshéraði var keyptur
og gerður að samastað fyrir Is-
lendinga. Húsið var keypt á 40
þúsund norskar krónur haustið
1966 og tekið í notkun eftir
gagngerðar breytingar ári
siðar. Höfðu þá ýmsir velunnar-
ar Islendingafélagsins stykt
það með ýmiss konar gjöfum og
ómældri sjálfboðaliðsvinnu.
Siðan húsið var tekið í notkun
hefur þar dvalið mikill fjöldi
Islendinga og meðal þeirra má
nefna börn frá Vestmannaeyj-
um, sem þar voru sumarið 1972.
Margir lögðu hönd á plóginn í
því málavafstri sem var sam-
fara húskaupunum og síðan
standsetningu þess. Skal hér
aðeins nefndur einn maður,
Skarphéðinn Árnason, forstjóri
Flugleiða í Ósló. Hann var á
sínum tíma formaður Islend-
ingafélagsins í Ósló og vann
geysimikið starf fyrir félagið.
Núverandi formaður Islend-
ingafélagsins í Ósló er Elsa
Lövdal, en Snævar Guðjónsson
mun vera formaður Stúdenta-
félagsins FlSNar.
IIÚSIÐ GAMALL
HEIMAVISTARSKÓLI
Norefjell er mjög vinsæll
skíðastaður í Noregi og í
hlíðum fjallsins var keppt í
alpagreinum á Ólympiuleikun-
um 1952. Uppi á fjallinu eru 4
eða 5 síðahótel, skáli er við
skála (eða hytta viðhyttu) og
langar göngubrautir liggja í
allar áttir. Niðri í dalnum þar
sem íslendingahúsið stendur er
stórt og mikið stöðuvatn sem
heitir Kröderen.
1 vatningu er fisksælt jafnt á
sumri sem vetri, fyrir þá sem
gaman hafa að því að dorga.
Skógur umlykur vatnið á allar
hliðar og fleiri lýsingarorð ættu
að vera óþörf til að sýna fram á
að staðurinn er hin mesta para-
dis. Það verður að taka fram
Slappað af eftir hressandi göngusprett, Snævar, Rósa, Högni og
Gunnhildur.
4A,,r en fólk fj«tmennir >>i
Davlð Stefánsson, sem dvalið hefur 1 Noregi í mörg ár og
starfar nú hjá Norræna ráðinu 1 Ósló, á tröppum Hússins
ásamt dætrum sfnum tveimur.
"Það var ekki amalegt að slappa af 1 hitanum undir
húsveggnum, Stefán og Ingvi.
1 labbitúr I skóginum, Svana sjúkraiiði, Guðlaug nemi f
sjúkraþjálfum og Jórunn hjúkrunarkona.
Við morgunverðarborðið, Helgi, Kjell, Guðrún og Guðm-
undur.