Morgunblaðið - 01.07.1976, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚLI 1976
15
John Dean
John Dean haslar
sér nýjan völl
JOHN Dean, sem var eitt aðalvitnið gegn Richard Nixon í Water-
gate-málinu, hefur nú afplánað fjögurra mánaða fangelsisdóm
fyrir aðild sina að málinu. Á næstunni kemur út bók hans, þar sem
hann gerir nokkurs konar vettvangskönnun í Washington. Titill
bókarinnar er „Blind Ambition", sem gæti útlagzt „glórulaus
framagirni".
Þótt Dean eigi ekki innangengt i stjórnarherbúðunum í Washing-
ton um ófyrirsjáanlega framtið þarf hann þó ekki að vera uggandi
um eigin hag. Blað nokkurt, „Rolling Stones Magazine", hefur
ráðið hann til að fjalla um flokksþing repúblikanaflokksins og
kosningabaráttuna, sem á eftir fer. Hér er um að ræða verkefni,
sem eðli sinu samkvæmt heldur Dean föngnum um nokkurra
mánaða skeið. Hann fær háa þóknun fyrir vikið, enda er við því
búizt, að hann f jalli um viðfangsefnið af fjálgleika og einurð.
Misnotkun
sendiráðs-
manna
á sérrétt-
indum
STARFSMENN erlendra sendi-
ráða njóta hvarvetna þeirra
sérréttinda að ekki má lög-
sækja þá i gistilandinu, þótt
ósjaldan komi fram harðorðað-
ar mótmælaorðsendingar vegna
lögbrota þeirra.
Nýlega gagnrýndi brezkur
þingmaður, Toby Jessel, um-
ferðarlagabrot erlendra sendi-
ráðsmanna I ræðu í Neðri
málstofunni. Taldi hann slfk
brot — eða öllu heldur linkind
yfirvalda gagnvart hinum brot-
legu — eina aðalorsök umferð-
aröngþveitisins í Lundúnum.
A síðasta ári létu erlendir
sendiráðsmenn I Lundúnum
undir höfuð leggjast að greiða
33.477 sektir vegna umferðar-
lagabrota — eða yfir þúsund f
viku hverri. Þeim, sem sektaðir
eru, er gefinn kostur á að Ijúka
málum sfnum með sátt, en
greiði þeir ekki þá upphæð,
sem krafizt er, eru þeir kærðir.
Þau lagabrot, sem hér um ræð-
ir, eiga flest rót sfna að rekja
til þess, að bifreiðum er lagt
ólöglega.
Starfsmenn sendiráðs
Nfgerfu voru f fararbroddi með
1.046 ógreiddar sektir, þar næst
komu Kúbumenn með 479, Iran
með 404 og Saudi-Arabía með
396. Sovézkir sendiráðsmenn
standa sig nokkuð vel f þessum
samanburði, þvf að þeir áttu
ekki nema 170 ógreiddar sekt-
ir, en starfsmenn bandarfska
sendiráðsins slógu þeim við og
áttu aðeins ógreiddar 28 sektir.
Kóngur í loftköstum
KALID konungur Saudi-Arabíu verður fyrstur manna til að festa
kaup á ,,jumbó-þotu“ til einkaafnota. Nú er verið að sérsmíða fyrir
hann slíka þotu hjá Boeing-verksmiðjunum i Bandarikjunum. Þot-
an verður búin öllum hugsanlegum munaði, en þar á meðal er
fullkomin skurðstofa. Konungur er haldinn hjartasjúkdómi og má
búast við þvi að fá hjartaáfall hvar og hvenær sem er. Aukaútbúnað-
urinn tvöfaldar veró þotunnar, en hún verður lítið eitt minni en
venjuleg „jumbó-þota“. í staðinn verður flugþol hennar meira en
Kalid konungur
ella, og kemst konungur þannig i ein-
um áfanga frá heimili sínu í Riad til
Cleveland i Bandarikjunum þar sém
hann gekkst eitt sinn undir hjartaað-
gerð — og á leiðinni er hægt að veita
honum eins fullkomna læknishjálp og
frekast er kostur.
Kalid lætur ekki nægja þessa einu
þotu, heldur hefur hann pantað aðra
risaþotu, og er sú útbúin til vöruflutn-
inga. Hefur hann einnig pantað fjórar
Boeing-þotur af gerðinni 707 eina
Boeing 737 og tvær Tristar-þotur. Ekki
fylgir sögunni til hvers kóngur ætlar
að nota þennan þotuflota, en upphæð-
in, sem hann verður að snara út, nemur
um 140 milljöróum islenzkra króna.
Solzhenitsyn er
mest metinn
NYLEGA fór fram i Bandarikjunum skoð-
anakönnun meðal nemenda á mennta-
skólastigi þar sem spurt var að því hvaða
persónu þeir dáðu mest og vildu helzt taka
sér til fyrirmyndar. Flest atkvæði hlaut
Alexander Solzhenitsyn, sem fékk um
20% atkvæða. Ford forseti fékk einungis
5.2% og varð þar með að lúta í lægra haldi
fyrir Betty konu sinni sem fékk 7.8%.
Alexander Solzhenitsyn
Víkingaskip á banda-
rískum hraðbrautum
BANDARÍKJAMENN minnast
200 ára sjálfstæðisfrelsis síns
næstkomandi sunnudag og
sjáifsagt verður þessara tima-
móta fagnað á margan hátt.
Kenneth Olafsson heitir Banda-
ríkjamaður af íslenzkum upp-
runa í Norður-Dakóta og er
vöruflutningabílstjóri. Hann
minnist 200 ára afmælisins
meðal annars með því að minna
fólk á uppruna sinn og þá Is-
lendinga sem á sínum tíma sett-
ust að í Dakóta og öðrum héruð-
um Bandaríkjanna. Kenneth
hefur látið mála mikið víkinga-
skip á tengivagn bifreiðar
sinnar og auk þess nöfn nokk-
urra forfeðra sinna á lslandi á
aftari enda vagnsins. Með þessa
skreytingu hyggst hann siðan
aka um hraðbrautir Bandarikj-
anna út þetta afmælisár.
Bifreið Kennets Ólafssonar og málverkið af vfkingaskipinu.
Lýst eftir
vitnum í
Hafnarfirði
UNG stúlka lenti f árekstri f
Hafnarfirði mánudaginn 14. júnf
sfðastliðinn framan við verzlun-
ina Dverg f Lækjargötu f Hafnar-
firði. Stúlkan, sem ók grænni
Cortinu af árgerð 1970, varð þar
að eigin sögn fyrir því að blá
Volvo vörubifreið bakkaði á bfl
hennar, en vörubflstjórinn ber
hins vegar að bfll hans hafi verið
kyrrstæður. Hefur hann jafn-
framt leitt fram tvö vitni máli
sfnu til staðfestu.
Unga stúlkan minnist þess, að
þrír aðilar gáfu sig á tal við hana
á árekstursstað og báru þeir allir,
að þeir hefðu séð vörubilinn
bakka á bíl stúlkunnar. Stúlkan
fer þess nú á leit við þetta fólk,
konu með barn i kerru, miðaldra
konu og miðaldra igann, að þau
gefi sig fram við'lögregluna í
Hafnarfirði og skýri frá þvi, sem
þau urðu vitni að.
Vörumarkaðsverð
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
T2
Þl Al'GLYSIR l'M M.l.T LAND ÞEGAR
Þl AIGLYSIR I MORGLNBLAÐINL