Morgunblaðið - 23.07.1976, Side 1
36 SÍÐUR MEÐ 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
159. tbl. 63. árg. FÖSTUDAGUR 23. JULÍ 1976 Prentsmiöja Morgunblaðsins.
Op á göngum niður i gryfju þar sem mannræningjar létu 26 börn
og bifreiðastjóra þeirra dúsa f sólarhring.
Hringurinn
þrengist enn
Redwood City, Kaliforníu,
22. júli. AP. Reuter.
VOPNAÐIR lögreglumenn leit-
uðu f dag á stórri landareign að
sönnunargögnum sem geta
komið að gagni við rannsókn-
ina á ráni barnanna úr skóla-
bílnum frá Chowchilla og bíl-
stjóra þeirra.
Landareignin er um 10 km
suður af Redwood City og 100
ekrur. Eigandinn er Frederick
Woods III sem einnig á grjót-
Framhald á bls. 35
Brezka stjórnin
sparar milljarð
London, 22. júlí. Reuter. AP.
BREZKA stjórnin ákvað f dag að draga úr ríkisútgjöldum um sem
svarar einum milljarði punda á næsta fjárhagsafi frá og með apríl
næstkomandi.
Denis Healey fjármálaráðherra
skýrði frá því að sparnaðurinn
mundi ná til landvarna, mennta-
mála, heilbrigðismála og annarra
félagsmála, vegamála, húsnæðis-
mála og þjóðnýttra fyrirtækja.
Niðurskurðurinn verður mest-
ur í varnarmálum þar sem spara á
100 milljónir punda. Hins vegar
ákvað stjórnin að draga ekki úr
aðstoð við vanþróuð ríki gagn-
stætt því sem búizt var við.
thaldsflokkurinn fagnaði þess-
um sparnaðarráðstöfunum og
taldi þær skref í átt til heilbrigðs
efnahagslífs en stjórnin stendur
frammi fyrir mótmælum frá
vinstri armi Verkamannaflokks-
ins og verkalýðshreyfingunni.
Vinstrisinnaðir þingmenn
hristu höfuðið þegar Healey fór
yfir listann. Einn þeirra sagði
fjármálaráðherranum: „Þú hefur
kannski unnið þér traust erlendra
lánadrottna en þú hefur glatað
trausti verkalýðshreyfingarinn-
ar.“
Nokkrar helztu sparnaðarráð-
stafanirnar eru þessar: fjárfest-
ingar í þjóðnýttum atvinnugrein-
Um minnka um 157 milljónir
punda, húsnæðislán um 146 millj-
ónir punda, framlög til vegagerð-
ar um 87 miiljónir punda, niður-
greiðsla matvæla um 80 milljónir
punda, framlög til menntamála
um 45 milljónir punda, framlög
til heilbrigðismála um 70 milljón-
ir punda, framlög til Norður-
írlands um 35 milljónir punda og
Framhald á bls. 34
Saudi-arabfskir hermenn úr friðargæzluliði Arababandalagsins á hlaupum á hinu hættuiega svæði milli
hverfa múhammeðstrúarmanna og kristinna manna í Beirút.
Vinstrisinnar mynda
sérstjórn í Líbanon
Krafinn
skýrtnga
Nairobi, 22. júll. Raulrr
SETTUR scndiherra Breta f Ug-
anda, Eustace Gibbs, var f dag
kvaddur í utanrfkisráðuneyti Ug-
anda þar sem hann var beðinn að
svara nokkrum spurningum og
sjá til þess að Bretar „hættu raka-
lausum og rætnum áróðri gegn
Uganda“.
Þessi siðasti þrýstingur á Breta
er i mótsögn við sáttfúsa stefnu
sem Idi Amin forseti tók í gær
gagnvart Frökkum og Kenya-
mönnum þegar hann ákvað að
sleppa frönsku þotunni sem flutti
ísraelsku gislana til Entebbe-
flugvallar og lofaði að hætta
áróðri gegn Kenya.
Uganda-útvarpið sagói að Gibbs
hefði verið kallaður fyrir svokall-
að varnarráð til að svara spurn-
ingum um hvernig hann hefði
tekið við störfum stjórnarfulltrúa
Framhald á bls. 34
Fárviðri
Rftm.22. júlf. NTB. LPI.
ÞRUMUVEÐUR, úrhellisrigning
og él tóku við margra vikna
þurrki víða á Norður-italfu í dag.
Fellibylur æddi af hafi til
Genúa og Livorno og reif tré upp
með rótum. Þök fuku af húsum og
bifreiðar þeyttust til á götunum.
Rigningin olli flóðum i búðum
45.000 manna sem misstu heimili
sín i jarðskjálftanum 6. maí
Idi Amin
Beirut, 22. júlf. AP — Reuler.
KAMAL Jumblatt, leiðtogi
vinstri manna f Lfbanon, skýrði
frá þvf f dag, að mynduð hefði
verið borgaraleg stjórn, sem yrði
við völd á svæði þvf, sem mú-
hammeðstrúarmenn og
Palestfnuarabar hafa á valdi sfnu.
Þar er um að ræða vesturhluta
Beirút, hafnarborgirnar Sfdon og
Tyre, svo og suðvesturhluta lands-
ins að mestu leyti.
1 dag tóku friðargæziusveitir
frá Saudi-Arabiu sér stöðú á
mörkum yfirráðasvæðis hægri
manna og múhammeðstrúar-
manna i Beirút. í liðinu eru um
150 manns, og hefur Arababanda-
lagið lýst því yfir, að friðvænlegra
sé nú í Beirút. Ekki hefur dregiö
úr bardögum á öðrum vigstöðvum
i landinu.
Sendinefnd Palestínuaraba
kom til Damaskus. í dag til við-
ræðna við Abdel Halim Khaddam,
utanríkisráðherra Sýrlands, og
aðra ráðamenn. Fulitrúi Sýr-
landsstjórnar vildi ekkert iáta
uppi um viðræóurnar, en skýrði
frá því, að Abdel-Salam Jolloud
hefði verið viðstaddur fundinn.
Jalloud hefur gert itrekaðar til-
raunir til að koma á sáttafundum
Sýrlendinga og Palestinuaraba
um Libanon-styrjöidina.
Tekinn
1 Aþenu
Aþenu, 22. júlí.
AP. Reuter.
VESTUR-ÞÝZKUR hryðjuverka-
maður úr Baader-
Mcinhof-samtökunuin, Rolf Lud-
wig Pohle, var handtckinn í
Aþenu i dag að sögn lögreglunnar
þar.
Pohle er einn fimm hryðju-
Framhald á bls. 25
„Mannréttindi aukast
ekki í Sovétríkjunum”
Mnvlii ii iiilí Ueiiler —_
Moskvu, 22. júlí. Reuter.
SOVÉZK yfirvöld hafa ekki
breytt afstöðu sinni til mann-
réttinda frá þvf að Öryggisráð-
stefnu Evrópu lauk í Helsinki
fyrir um það bil ári, að þvf er
hópur sovézkra andófsmanna
segir í skýrslu, sem birt hefur
verið í Moskvu. Meðal þeirra,
sem standa að skýrslugerðinni,
eru Pyotr Grigorenko,
Alexander Ginsburg og Yuri
-Orlov.
1 skýrslunni segir m.a., að
þrýstingur frá Vesturlöndum
hafi greinilega Jiorið þann
árangur, að sovézft'yfirvöld hafi
dregfð nokkuð úr ábcrandi of-
Alexander Ginzburg
sóknum sfnum á hendur þcim
öflum, sem berjast fyrir aukn-
um mannréttindum f Sovét, og
sýni jafnframt þeim andófs-
mönnum, sem þekktir eru á
Vesturlöndum, meira umburö-
arlyndi en áður.
„Að lokinni könnun okkar á
raunverulegri stefnu sovézkra
stjórnvalda í innanríkismálum,
er það mat okkar, að þau
hyggjast ekki hafa í heióri hin
alþjóðlegu ákvæði um mann-
réttindi," segir í skýrslunni. Þá
kemur fram, að enn séu mörg
hundruð manns í sovézkum
fangelsum, vinnubúðum og
Framhald á bls. 35