Morgunblaðið - 23.07.1976, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JULI 1976
Mjólkurframleiðsla á Suðurlandi
eykst um 11—12%:______
Enginn smjör-
skortur í vetur
MJÓLKURFRAM-
LEIÐSLA á svæöi Mjólkur-
bús Flóamanna jókst í júní-
mánuði sl. um milli 11 og
12%, ef miðað er við sama
mánuð í fyrra. Þá hefur
aukningin haldið áfram í
júlí en ekki er vitað hvað
hún verður mikil. Þetta
kom fram í samtali, sem
blaðamaður Mbl. átti við
Pétur Sigurðsson, mjólkur-
Í DAG cr spád hægri brcyti-
legri átt um landið og nær
óbreyttu vcðri frá þvf f gær.
Gert er ráð fyrir sólskini á
suðaustanverðu landinu en
sólarlausu annars staðar. Víða
má búast við Iftils háttar úr-
komu. Gert er ráð fyrir svip-
uðu veðri á laugardag.
tæknifræðing hjá Fram-
ieiðsluráði landbúnaðar-
ins, i gær. Hjá Pétri kom
fram að mjólkurfram-
leiðsla sumarsins í landinu
er nú orðin til muna meiri
en gert hafði verið ráó fyr-
ir í áætlunum í vor og væri
því fyrirsjáanlegt að ekki
yrði skortur á ákveðnum
mjólkurvörum s.s. smjöri á
næsta vetri.
Sem dæmi um hversu mjólkur-
framleiðslan hefði orðið með öðr-
um hætti en áætlað hefði verið
nefndi Pétur, að gert hefði verið
ráð íyrir 5% minnkun hjá mjólk-
urbúinu a Sauðárkróki en innveg-
in mjólkar hefði hins vegar aukist
um 5% A Akureyri var gert rúð
fyrir að mjólkurmagnið yrði
óbreytt en það hefði aukist um
4-5%.
Þessi aukna mjólkurframleiðsla
hefur það í för með sér að meira
er nú framleitt af ostum en áður
auk þess, sem smjör er framleitt
upp í birgðir fyrir veturinn. I vor
hafði verið gert ráð fyrir 700
tonna birgðum 1. oktpber n.k. og
þótti nokkuð tvísýnt um að það
næðist, en nú þykir séð að mogu-
legt verði að na þessu marki og
þurfa landsmenn, því ekki að
kvíða smjörskorti á komandi
vetri.
Trunt, trunt — og
lukkutröllin í fjöllunum
MORGUNBLAÐIÐ hefur
fregnað, að nokkurrar undrun-
ar gæti meðal viðskiptavina
Kaupfélags Héraðsbúa á Egils-
stöðum með þjónustu fyrirtæk-
isins. Er haft eftir bændum þar
um slóðir, að miklum erfiðleik-
um sé bundið að fá þar nauð-
synlegustu amboð til heyvinnu
en á sama tíma sé i kaupfélag-
inu hið ótrúlegasta úrval af alls
kyns dönskum lukkutröllum af
öllum stærðum og gerðum.
Fríhöfnin:
SALA frfhafnarinnar á Keflavfk-
urflugvelli jókst nokkuð á fyrri-
hluta þessa árs miðað við sama
tfma f fyrra. í lok júnfmánaðar
nam sala frfhafnarinnar frá ára-
mótum 298,9 milljónum króna, en
var á sama tfmabili í fyrra 216,4
milljónir. Er þetta um 36,1%
aukning í íslenzkum krónum en
ÞESSUM stúlkum var ósköp
kalt þegar þær stigu á iand á
Keflavíkurflugvelli á dögun-
um, enaa veður hér síðustu
daga ólfkt óbliðara en gengur
og gerist i flestum löndum
Evrópu um þessar mundir.
Loðnulöndunarnefnd
tekin til starfa á ný
LOÐNULÖNDUNARNEFND tók
til starfa á ný f gær. Aðsetur
nefndarinnar er á sama stað og
áður, en ekki er gert ráð fyrir að
menn verði þar nema tvo tfma á
dag fyrst I stað. >ar fékk Mbl.
upplýst að allnokkrar verksmiðj-
ur væru reiðubúnar að taka á
móti loðnu allt frá Bolungarvík
til Neskaupstaðar, og þegar væri
búið að landa loðnu á fimm stöð-
um.
Hjálmar Vilhjálmsson leiðang-
Reykjavík liðinna daga
Ljósmyndasýning opnar í dag
ursstjóri á Bjarna Sæmundssyni
sagði í samtali við Mbl. í gær að
loðnusjómenn þyrftu að hafa
nokkuð fyrir tilverunni, því mörg
köst þyrfti almennt til að fá sæmí-
legan afla í bátana. Kvað Hjálmar
bátunum fara dagfjölgandi en
ekki vissi hann nákvæma tölu á
þeim.
Loðnuflotinn var í gær að veið-
um á svipuðum slóðum og áður,
þ.e. 70—80 sjómílur NNA af
Horni. Þar hefur fundist mikið af
loðnu á 15 fermilna svæði, en
torfurnar standa yfirleitt djúpt.
Þó fengu nokkrir bátar yfir 100
tonna köst á þessum slóðum í gær
og vitað var að Gullberg fékk tvö
slík köst.
ÓSKAR Gfslason opnar f dag Ijós-
myndasýningu á Kjarvalsstöðum,
sem hann nefnir Reykjavfk lið-
inna daga og heldur hann hana f
tilefni 50 ára afmælis Ljósmynd-
arafélags íslands. Sýningin er op-
in alla virka daga frá kl. 14. til 22.
I veglegri sýningaskrá ritar Er-
lendur Sveinsspn svo:
Ljósmyndasýning Óskars Gísla-
sonar á Kjarvalsstöðum 1976 er
fyrsta einkaljósmyndasýning
hans. Elstu ljósmyndir Oskars á
sýningunni eru frá árinu 1915 eða
Óskar Gfslason
ári áður en hann hóf nám í Ijós-
myndun. Yngstu ljósmyndirnar
eru teknar frá sama sjónarhorni
rúmri hálfri öld síðar. Meginvið-
fangsefni sýningarinnar er að
sýna Reykjavik, líf hennar og
vöxt á fyrra helmingi aldarinnar.
Til stuðnings þessu viðfangsefni
og í virðingarskyni við frumherja
ljósmyndunar á íslandi hefur
Óskar unnið upp eftir glerplötum,
sem varðveittar eru í Þjóðminja-
safni, ljósmyndir frá því um og
eftir aldamót. Hér er um að ræða
Ijósmyndir teknar af Sigfúsi
Eymundssyni, Pétri Brynjólfs-
syni, Ólafi Magnússyni, kennara
Oskars, og Magnúsi Ólafssyni.
f’lestar myndirnar hafa ekki kom-
ið fyrir almenningssjónir áður.
Óskar Gíslason er borinn og
barnfæddur Reykvíkingur og
bærinn þvi honum kær. Hug-
myndina að þessari sýningu fékk
hann fyrír um 30 árum, þegar
hann var að vinna að hinni um-
fangsmiklu heimildarkvikmynd
sinni „Reykjavík vorra daga“.
Reykjavik liðinna daga, gætí ver-
ið eins konar yfirskrift þessa
nýjasta þrekvirkis hins 75 ára si-
unga ofurhuga.
Þór Magnússon, þjóðminjavörð-
ur, aðstoðaði Óskar við val flest-
allra ljósmyndanna á sýningunni
en Björn Björnsson, leikmynda-
teiknari, við uppsetningu hennar.
Djúprækjan:
FRÁ því að Dagný hætti tilrauna-
veiðum á djúprækju við
Kolbeinsey hafa tvö önnur skip
stundað samsvarandi veiðar —
Sólborgin fyrir Austfjörðum og
Höfrungur fyrir vestanverðu
landinu.
Að því er Þórður Asgeirsson,
skrifstofustjóri í sjávarútvegs-
ráðuneytinu, tjáði Morgunblað-
inu er Sólborgin nú hætt þessum
veiðum. Leitaði skipið á nokkrum
stöðum út af Austfjörðum, en
varð lítið sem ekkert vart við
rækju. Þó kvað Þórður ráðuneyt-
ismönnum þykja það miður, að
ekki skyldi vera haldið áfram
þessum tilraunum og kannað til
þrautar hvort ekki væri þarna
rækju að finna.
Höfrungur er hins vegar enn að
þessum veiðum. Fann skipíð tölu-
vert af rækju austur af Horni og
fékk þar þolanlegan afla en
Höfrungur er nú kominn sunnar
og mun hafa verið að leíta fyrir
sér á Kolluálnum. Mun ætlunin
að skipið kanni eitthvað frekar
svæðið sunnanvert út af Vestur-
landi.
Grálúð-
an horfin
NÓKKRIR bátar, aðallega frá
Vestfjörðum, voru gerðir út á grá-
lúðuveiðar með llnu I sumar.
Framan af gekk þessi veiði sæmi-
lega, en fyrir nokkrum dögum
virtist sem öll grálúða hyrfi
skyndilega af miðunum.
Jón Páll Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Norðurtanga á ísa-
firði, sagði í samtali við Morgun-
blaðið I gær, að Þorri hefði komið
til hafnar fyrir nokkru með 60
lestir af grálúðu eftir 10 daga
útivist. Síðan hefði báturinn hald-
ið út á ný, en ekkert fengið. Leit-
aði báturinn að grálúðu frá suð-
vesturhluta Vestfjarða allt austur
fyrir Langanes, en varð hvergi
var.
9% SOLUAUKNING
FYRRI HLUTA ÁRS
9,2% aukning ef miðað er við
Bandarfkjadali.
Að sögn Ólafs Thordersen frí-
hafnarstjóra hefur salan þannig
verið ákaflega svipuð því sem var
í fyrra svo og allur rekstur frí-
hafnarinnaY. Þó kvað hann mega
greina, að heldur væri aukning í
sölu til íslenzkra ferðamanna,
sem um frihöfnina færu. Einnig
kvað hann bera á því, að farþeg-
arnir sem í fríhöfninni verzluðu,
keyptu nú meira af hinum ódýr-
ari varningi og gæfu sér þá meiri
tíma við verzlunina, en samdrátt-
ar gætti hins vegar i hinum dýrari
varningi.
Verðlag í Fríhöfninni á Kefla-
víkurflugvelli er eftir sem áður
mjög hagstætt, að sögn Ólafs, og
er Keflavíkurflughöfnin ásamt
flugstöðinni í Amsterdam álitnar
hinar ódýrustu hér í nágranna-
löndunum. Enda kvað Ólafur
fulla nauðsyn á því, að þar sem
svo stór hluti þeirra sem um flug-
höfnina færu væru viðkomufar-
þegar eða svokallaðir transit-
farþegar, sem í mörgum tilfellum
færu um fleiri flughafnir en
Keflavík og keyptu þar sem ódýr-
astan varning væri að fá
Fíkniefnamálið:
Snýst um
kannabish-
meðferð
Rannsókn er haldið
áfram á fíkniefnamáli því,
sem Morgunblaðið greindi
frá í gær, en sem kunnugt
er hefur ungur Reykvík-
ingur nú veriö úrskurðað-
ur í allt að 30 daga gæzlu-
varðhald í tengslum viö
málið.
Að sögn Arnar Guðmundssonar
fulltrúa hjá fikniefnadómstólnum
er rannsókn málsins enn á byrj-
unarstigi, og enn ekki hægt að
fullyrða úm hversu mikið af fikni-
efnum hér er á ferðinni, en hér er
fyrst og fremst um kannabismeð-
ferð að ræða. Þegar hafa nokkrir
verið yfirheyrðir vegna þessa
máls og leiddi það til þess að
ástæða þótti til að úrskurða mann-
inn, sem áður er nefndur, í gæzlu-
varðhald. Fikniefnalögreglan hef-
ur áður þurft að hafa afskipti af
honum vegha svipaðra mála.
Höfrungur enn að
— Sólborg hætt
tvar Guðmundsson
Þáttur íslands í 200 ára
afmæli Bandaríkjanna
AÐALRÆÐISMAÐUR íslands i
New York, ívar Guðmundsson, er
staddur hér á landi um þessar
mundir í sumarleyfi ásamt fjöl-
skyldu sinni. Morgunblaðið
spurði hann um þátt fslands í 200
ára afmæli Bandaríkjanna, er það
náði tali af honum.
Sagði ívar, að það væru aðal-
lega þrjú atriði sem hann gæti
nefnt í því sambandi. Fyrst bæri
að nefna þátttöku íslenzku hest-
anna 15 i þolreiðinni þvert yfir
Bandaríkin, sem nú stendur yfir
og er meira en hálfnuð. Hafa is-
lenzku hestarnir staðið sig ein-
staklega vel, einkum fyrir þol
frekar en flýtj.
í öðru lagi minntist hann á þátt
víkingaskipsins Leifs Eirikssonar
í seglskipasýningunni i New York
þann 4. júii s.l. og í þriðja lagi
þátt islands á norrænu handa-
vinnusýningunni, sem haldin var
f Smithsonian-safninu í Washing-
ton D.C. Þar var sérstök norræn
vika og var sýnd tógvinna frá
islandi.