Morgunblaðið - 23.07.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.07.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JULI 1976 Mjólkurframleiðsla á Suðurlandi eykst um 11—12%:______ Enginn smjör- skortur í vetur MJÓLKURFRAM- LEIÐSLA á svæöi Mjólkur- bús Flóamanna jókst í júní- mánuði sl. um milli 11 og 12%, ef miðað er við sama mánuð í fyrra. Þá hefur aukningin haldið áfram í júlí en ekki er vitað hvað hún verður mikil. Þetta kom fram í samtali, sem blaðamaður Mbl. átti við Pétur Sigurðsson, mjólkur- Í DAG cr spád hægri brcyti- legri átt um landið og nær óbreyttu vcðri frá þvf f gær. Gert er ráð fyrir sólskini á suðaustanverðu landinu en sólarlausu annars staðar. Víða má búast við Iftils háttar úr- komu. Gert er ráð fyrir svip- uðu veðri á laugardag. tæknifræðing hjá Fram- ieiðsluráði landbúnaðar- ins, i gær. Hjá Pétri kom fram að mjólkurfram- leiðsla sumarsins í landinu er nú orðin til muna meiri en gert hafði verið ráó fyr- ir í áætlunum í vor og væri því fyrirsjáanlegt að ekki yrði skortur á ákveðnum mjólkurvörum s.s. smjöri á næsta vetri. Sem dæmi um hversu mjólkur- framleiðslan hefði orðið með öðr- um hætti en áætlað hefði verið nefndi Pétur, að gert hefði verið ráð íyrir 5% minnkun hjá mjólk- urbúinu a Sauðárkróki en innveg- in mjólkar hefði hins vegar aukist um 5% A Akureyri var gert rúð fyrir að mjólkurmagnið yrði óbreytt en það hefði aukist um 4-5%. Þessi aukna mjólkurframleiðsla hefur það í för með sér að meira er nú framleitt af ostum en áður auk þess, sem smjör er framleitt upp í birgðir fyrir veturinn. I vor hafði verið gert ráð fyrir 700 tonna birgðum 1. oktpber n.k. og þótti nokkuð tvísýnt um að það næðist, en nú þykir séð að mogu- legt verði að na þessu marki og þurfa landsmenn, því ekki að kvíða smjörskorti á komandi vetri. Trunt, trunt — og lukkutröllin í fjöllunum MORGUNBLAÐIÐ hefur fregnað, að nokkurrar undrun- ar gæti meðal viðskiptavina Kaupfélags Héraðsbúa á Egils- stöðum með þjónustu fyrirtæk- isins. Er haft eftir bændum þar um slóðir, að miklum erfiðleik- um sé bundið að fá þar nauð- synlegustu amboð til heyvinnu en á sama tíma sé i kaupfélag- inu hið ótrúlegasta úrval af alls kyns dönskum lukkutröllum af öllum stærðum og gerðum. Fríhöfnin: SALA frfhafnarinnar á Keflavfk- urflugvelli jókst nokkuð á fyrri- hluta þessa árs miðað við sama tfma f fyrra. í lok júnfmánaðar nam sala frfhafnarinnar frá ára- mótum 298,9 milljónum króna, en var á sama tfmabili í fyrra 216,4 milljónir. Er þetta um 36,1% aukning í íslenzkum krónum en ÞESSUM stúlkum var ósköp kalt þegar þær stigu á iand á Keflavíkurflugvelli á dögun- um, enaa veður hér síðustu daga ólfkt óbliðara en gengur og gerist i flestum löndum Evrópu um þessar mundir. Loðnulöndunarnefnd tekin til starfa á ný LOÐNULÖNDUNARNEFND tók til starfa á ný f gær. Aðsetur nefndarinnar er á sama stað og áður, en ekki er gert ráð fyrir að menn verði þar nema tvo tfma á dag fyrst I stað. >ar fékk Mbl. upplýst að allnokkrar verksmiðj- ur væru reiðubúnar að taka á móti loðnu allt frá Bolungarvík til Neskaupstaðar, og þegar væri búið að landa loðnu á fimm stöð- um. Hjálmar Vilhjálmsson leiðang- Reykjavík liðinna daga Ljósmyndasýning opnar í dag ursstjóri á Bjarna Sæmundssyni sagði í samtali við Mbl. í gær að loðnusjómenn þyrftu að hafa nokkuð fyrir tilverunni, því mörg köst þyrfti almennt til að fá sæmí- legan afla í bátana. Kvað Hjálmar bátunum fara dagfjölgandi en ekki vissi hann nákvæma tölu á þeim. Loðnuflotinn var í gær að veið- um á svipuðum slóðum og áður, þ.e. 70—80 sjómílur NNA af Horni. Þar hefur fundist mikið af loðnu á 15 fermilna svæði, en torfurnar standa yfirleitt djúpt. Þó fengu nokkrir bátar yfir 100 tonna köst á þessum slóðum í gær og vitað var að Gullberg fékk tvö slík köst. ÓSKAR Gfslason opnar f dag Ijós- myndasýningu á Kjarvalsstöðum, sem hann nefnir Reykjavfk lið- inna daga og heldur hann hana f tilefni 50 ára afmælis Ljósmynd- arafélags íslands. Sýningin er op- in alla virka daga frá kl. 14. til 22. I veglegri sýningaskrá ritar Er- lendur Sveinsspn svo: Ljósmyndasýning Óskars Gísla- sonar á Kjarvalsstöðum 1976 er fyrsta einkaljósmyndasýning hans. Elstu ljósmyndir Oskars á sýningunni eru frá árinu 1915 eða Óskar Gfslason ári áður en hann hóf nám í Ijós- myndun. Yngstu ljósmyndirnar eru teknar frá sama sjónarhorni rúmri hálfri öld síðar. Meginvið- fangsefni sýningarinnar er að sýna Reykjavik, líf hennar og vöxt á fyrra helmingi aldarinnar. Til stuðnings þessu viðfangsefni og í virðingarskyni við frumherja ljósmyndunar á íslandi hefur Óskar unnið upp eftir glerplötum, sem varðveittar eru í Þjóðminja- safni, ljósmyndir frá því um og eftir aldamót. Hér er um að ræða Ijósmyndir teknar af Sigfúsi Eymundssyni, Pétri Brynjólfs- syni, Ólafi Magnússyni, kennara Oskars, og Magnúsi Ólafssyni. f’lestar myndirnar hafa ekki kom- ið fyrir almenningssjónir áður. Óskar Gíslason er borinn og barnfæddur Reykvíkingur og bærinn þvi honum kær. Hug- myndina að þessari sýningu fékk hann fyrír um 30 árum, þegar hann var að vinna að hinni um- fangsmiklu heimildarkvikmynd sinni „Reykjavík vorra daga“. Reykjavik liðinna daga, gætí ver- ið eins konar yfirskrift þessa nýjasta þrekvirkis hins 75 ára si- unga ofurhuga. Þór Magnússon, þjóðminjavörð- ur, aðstoðaði Óskar við val flest- allra ljósmyndanna á sýningunni en Björn Björnsson, leikmynda- teiknari, við uppsetningu hennar. Djúprækjan: FRÁ því að Dagný hætti tilrauna- veiðum á djúprækju við Kolbeinsey hafa tvö önnur skip stundað samsvarandi veiðar — Sólborgin fyrir Austfjörðum og Höfrungur fyrir vestanverðu landinu. Að því er Þórður Asgeirsson, skrifstofustjóri í sjávarútvegs- ráðuneytinu, tjáði Morgunblað- inu er Sólborgin nú hætt þessum veiðum. Leitaði skipið á nokkrum stöðum út af Austfjörðum, en varð lítið sem ekkert vart við rækju. Þó kvað Þórður ráðuneyt- ismönnum þykja það miður, að ekki skyldi vera haldið áfram þessum tilraunum og kannað til þrautar hvort ekki væri þarna rækju að finna. Höfrungur er hins vegar enn að þessum veiðum. Fann skipíð tölu- vert af rækju austur af Horni og fékk þar þolanlegan afla en Höfrungur er nú kominn sunnar og mun hafa verið að leíta fyrir sér á Kolluálnum. Mun ætlunin að skipið kanni eitthvað frekar svæðið sunnanvert út af Vestur- landi. Grálúð- an horfin NÓKKRIR bátar, aðallega frá Vestfjörðum, voru gerðir út á grá- lúðuveiðar með llnu I sumar. Framan af gekk þessi veiði sæmi- lega, en fyrir nokkrum dögum virtist sem öll grálúða hyrfi skyndilega af miðunum. Jón Páll Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Norðurtanga á ísa- firði, sagði í samtali við Morgun- blaðið I gær, að Þorri hefði komið til hafnar fyrir nokkru með 60 lestir af grálúðu eftir 10 daga útivist. Síðan hefði báturinn hald- ið út á ný, en ekkert fengið. Leit- aði báturinn að grálúðu frá suð- vesturhluta Vestfjarða allt austur fyrir Langanes, en varð hvergi var. 9% SOLUAUKNING FYRRI HLUTA ÁRS 9,2% aukning ef miðað er við Bandarfkjadali. Að sögn Ólafs Thordersen frí- hafnarstjóra hefur salan þannig verið ákaflega svipuð því sem var í fyrra svo og allur rekstur frí- hafnarinnaY. Þó kvað hann mega greina, að heldur væri aukning í sölu til íslenzkra ferðamanna, sem um frihöfnina færu. Einnig kvað hann bera á því, að farþeg- arnir sem í fríhöfninni verzluðu, keyptu nú meira af hinum ódýr- ari varningi og gæfu sér þá meiri tíma við verzlunina, en samdrátt- ar gætti hins vegar i hinum dýrari varningi. Verðlag í Fríhöfninni á Kefla- víkurflugvelli er eftir sem áður mjög hagstætt, að sögn Ólafs, og er Keflavíkurflughöfnin ásamt flugstöðinni í Amsterdam álitnar hinar ódýrustu hér í nágranna- löndunum. Enda kvað Ólafur fulla nauðsyn á því, að þar sem svo stór hluti þeirra sem um flug- höfnina færu væru viðkomufar- þegar eða svokallaðir transit- farþegar, sem í mörgum tilfellum færu um fleiri flughafnir en Keflavík og keyptu þar sem ódýr- astan varning væri að fá Fíkniefnamálið: Snýst um kannabish- meðferð Rannsókn er haldið áfram á fíkniefnamáli því, sem Morgunblaðið greindi frá í gær, en sem kunnugt er hefur ungur Reykvík- ingur nú veriö úrskurðað- ur í allt að 30 daga gæzlu- varðhald í tengslum viö málið. Að sögn Arnar Guðmundssonar fulltrúa hjá fikniefnadómstólnum er rannsókn málsins enn á byrj- unarstigi, og enn ekki hægt að fullyrða úm hversu mikið af fikni- efnum hér er á ferðinni, en hér er fyrst og fremst um kannabismeð- ferð að ræða. Þegar hafa nokkrir verið yfirheyrðir vegna þessa máls og leiddi það til þess að ástæða þótti til að úrskurða mann- inn, sem áður er nefndur, í gæzlu- varðhald. Fikniefnalögreglan hef- ur áður þurft að hafa afskipti af honum vegha svipaðra mála. Höfrungur enn að — Sólborg hætt tvar Guðmundsson Þáttur íslands í 200 ára afmæli Bandaríkjanna AÐALRÆÐISMAÐUR íslands i New York, ívar Guðmundsson, er staddur hér á landi um þessar mundir í sumarleyfi ásamt fjöl- skyldu sinni. Morgunblaðið spurði hann um þátt fslands í 200 ára afmæli Bandaríkjanna, er það náði tali af honum. Sagði ívar, að það væru aðal- lega þrjú atriði sem hann gæti nefnt í því sambandi. Fyrst bæri að nefna þátttöku íslenzku hest- anna 15 i þolreiðinni þvert yfir Bandaríkin, sem nú stendur yfir og er meira en hálfnuð. Hafa is- lenzku hestarnir staðið sig ein- staklega vel, einkum fyrir þol frekar en flýtj. í öðru lagi minntist hann á þátt víkingaskipsins Leifs Eirikssonar í seglskipasýningunni i New York þann 4. júii s.l. og í þriðja lagi þátt islands á norrænu handa- vinnusýningunni, sem haldin var f Smithsonian-safninu í Washing- ton D.C. Þar var sérstök norræn vika og var sýnd tógvinna frá islandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.