Morgunblaðið - 23.07.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JULÍ 1976
5
A þessu svaeði er gerf rió fyrir hugmyndum að nýju skipulagi að hluta, en einnig fyrir
norðan og sunnan þann rammasem myndin markar.
Séð norður yfir þann hluta bæjarins sem um er að ræða f sambandi við hugmyndasam-
keppnina.
Vestmannaeyjar:
Norræn samkeppni um
skipulag austurbæjarins
NORRÆN hugmyndasamkeppni
um skipulag á hluta byggðarinnar
I Vestmannaeyjakaupstað og
hluta nýja hraunsins. hefur nú ver-
ið hleypt formlega af stokkunum,
en I sept. 1974 samþykkti bæjar-
stjóm Vestmannaeyja tillögu þar
að lútandi Samkeppnin miðast
við gamla miðbæinn og austur-
hluta bæjarins. en þar urðu mjög
miklar skemmdir á húsum. íslend-
ingar hafa aðeins einu sinni áður
efnt til norrænnar skipulagssam-
keppni, en það var skipulag Foss-
vogsdalsins ðrið 1961. Fyrstu
verðlaun féllu þá i hlut norskra og
finnskra arkitekta.
Eldgosið i Heimaey vakti mikla
athygli á Norðurlöndum og kunn er
sú aðstoð sem frændþjóðirnar veittu
íslandi i því máli Hugmyndina að
þessari norrænu samkeppni á Guð-
mundur Karlsson, forstjóri Fiskiðj-
unnar i Vestmannaeyjum, en til-
gangur samkeppninnar er að fá fram
hugmyndir um endurreisn bæjarins
stig af stigi i góðu samræmi við
nærliggjandi hverfi Dómnefndin
leggur höfuðáherzlu á það i útboði
sinu að úrlausnirnar verði raunhæf-
ar, umhverfi bokkasælt og að heild-
arsvipur bæjarins verði i góðu sam-
ræmi við umhverfið. fjárhagslegan
og tæknilegan mökuleika á fram-
kvæmd hugmynda í dómnefnd eru
Framhald á bls. 34
Lögreglumenn:
Urskurður kjaranefnd-
ar algerlega óviðunandi
SAMEIGINLEGUR fundur
stjórnar og satnninganefndar
Landssambands lögreglumanna
hefur fjallað um nýfelldan úr-
skurð kjaranefndar og f sam-
þykkt, sem gerð var á fundinum
er lýst yfir undrun og mikilli
óánægju með úrskurð kjara-
nefndar og sagt að úrskurðaðar
launabætur til lögreglumanna
séu með því lélegasta, sem finnist
f úrskurði kjaranefndar og nái
varla 1.8%, sem ríkið bauð í upp-
hafi. Tekið er fram að úrskurður
kjaranefndar sé óhæfa og alger-
lega óviðunandi fyrir lögreglu-
menn. í samþykktiníi segir orð-
rétt:
„Fyrir kjaranefnd lá rökstudd
krafa um leiðréttingu á kaup-
skerðingu á síðasta samnings-
vtímabili, sem nema mun 8—10%
miðað við aðra ríkisstarfsmenn.
Fulltrúi fjármálaráðuneytisins
hafði ekki mótmælt þessari kröfu
fyrir kjaranefnd, og raunar höfðu
fulltrúar ríkisins viðurkennt
kröfuna í samningaviðræðum en
látið að þvf liggja, að æskilegra
væri að þessi leiðrétting kæmi
með úrskurði kjaranefndar. Það
verður því ekki skilið, hvernig
dómur eins og kjaranefnd, sem á
að vera hlutlaus úrskurðaraðili,
getur gengið fram hjá slíkum
staðreyndum."
Starfsmannafélag ríkisstofnana:
Vinnubrögð kjara-
nefndar forkastanleg
STJÖRN og trúnaðarmannaráð
Starfsmannafélags rfkisstofnana
hrfur sent frá sér ályktun f til-
efni af úrskurði kjaranefndar,
sem féll um sl. helgi.
I ályktuninni segir orðrétt: Ur-
skurðurinn sýnir ljóslega, að ekk-
ert tillit hefur verið tekið til
kröfugerðar félagsins — hins veg-
ar ganga röksemdir rfkisvaldsins
eins og rauður þráður f gegnum
úrskurðinn. En vönnubrögð
Skip Eimskips í
hverri viku til
Vestmannaeyja
EIMSKIPAFÉLAG Islands hefur
ákveðið að taka upp vikulegar
ferðir frá Reykjavfk til Vest-
mannaeyja. Verða tvö af skipum
félagsins í þessum ferðum, m.s.
írafoss og m.s. Múlafoss, sem
halda uppi regfubundnum sigl-
ingum milli Reykjavikur, Kaup-
mannahafnar og Gautaborgar.
Munu skipin koma við á útleið i
hverri ferð. Verða framvegis fast-
ar ferðir á miðvikudögum til
Vestmannaeyja og tekið á móti
flutningi á þriðjudögum og árdeg-
is á miðvikudögum.
nefndarinnar eru einnig forkast-
anleg aó öðru leyti. T.d. er úr-
skurðað um störf, sem ekki eru
lengur til, önnur hverfa og enn
önnur lækka. Dæmi er meira að
segja til um að maður, sem hefur
verió látinn f rúmt ár, fær eins
flokks hækkun.“
I ályktuninni er úrskurði kjara-
nefndar mótmælt harðlega og seg-
ir f ályktuninni að með honum
hafi verið gefinn út mjög skorin-
orð yfirlýsing um, hverriig kjara-
nefnd liti á hlutverk sitt. Lögð er
á það áhersla að þegar verði að
hefja undirbúning fyrir næstu
samninga og þá með verkfallsrétt-
inn að bakhjarli.
Eldur í bát
ELDUR kom upp í lúkar vélbáts-
ins Dugs VE, þar sem báturinn lá
í Vestmannaeyjahöfn, um níu-
leytið í gærmorgun. Slökkviliðið
kom fljótt á staðinn og tókst að
ráða niðurlögum eldsins á stutt-
um tíma. Tjón varð ekki mikið um
borð. Talið er að e'ldurinn hafi
stafað frá olíukyndingu í eldavél í
lúkarnum.
BANKASTRÆTI
■g-14275
ILAUGAVEGUR
•a*-21599
buxnolaus ?
Troðful^ar búðir
ný|um vörum
• Gallabuxur
• Denimvesti
• Denimskyrtur
• Kúrekaskyrtur