Morgunblaðið - 23.07.1976, Qupperneq 7
_nt\
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JULI 1976
7
Skattseðlarnir
á þröskuldinum
Þá eru skattseðlarnir
komnir á þröskulda
borgarbúa, misjafnlega
vel þegnir eins og geng-
ur. Enginn vafi er á þvl
að skattkerfið kemur
mjög misjafniega við
okkur — sumir taka þvl
seðlum þessum fagn-
andi, aðrir með þungum
hug, jafnvel ótta.
Skattheimta ríkis og
sveitarfélaga er I raun
hin hiiðin á kröfugerð
okkar sjálfra á hendur
þessara aðila — sú sam-
neyzla, sem að vfsu er
umdeilaniegt, hve mikil
eigi að vera. Heilbrigð-
ismái, fræðsiumái, 'al-
mannatryggingarkerf-
ið, félagsleg þjónusta,
opinberar framkvæmd-
ir margháttaðar (og
þann veg áfram) eru
þeir gjaldapóstar, sem
skattheimtan verður
undir að rísa.
Hinsvegar er það
áleitin spurning, ekki
sfzt I erfiðu árferði fjár-
hagslegu, m.a. hjá horn-
steinum þjóðfélagsins,
heimilunum, hvort ekki
sé rétt að draga veru-
lega úr samneyzlunni I
þjóðfélaginu og þar
með skattheimtunni,
a.m.k. meðan hinar
efnahagslegu þrenging-
ar ganga yfir.
Hverjir vilja
og þora að
gera slíkar
kröfur?
En hvar á slfkur
sparnaður, með tilheyr-
andi skattalækkun, að
koma niður? Hver vill
benda á þá gjaldapósta,
sem minnkaðar tekjur
ríkis og sveitarfélaga
eiga að koma niður á? í
öllu talinu um lækkaða
skattheimtu hefur eng-
inn orðið til þess — þvf
miður — að benda hik-
laust á ákveðna þætti
samneyzlunnar, sem
skera eigi niður. Hinir
eru margir, sem krafizt
hafa hvorttveggja f
senn: meiri samneyzlu,
eða opinberrar þjón-
ustu og framkvæmda,
og minni skatta. Þeim
hinum sömu gleymist,
eða þeir horfa viljandi
fram hjá þvf, að þetta
tvennt er sami hlutur-
inn; annað getur þvf að-
eins vaxið eða rýrnað að
hitt fylgi hlutfallslega í
kjölfarið.
Skattakerfið
er götótt
Hitt er annað mál að
skattakerfið er götótt —
kemur ekki jafnt við
alla. Óhjákvæmilegt er
að skattakerfið f heild
verði endurskoðað og
leiðrétt, þann veg að
menn megi sæmilega
vel við unna réttmæti
þess.
Við höfum til þessa
færzt smám saman
lengra og lengra í átt að
eyðslusköttum. Tekju-
skattar eru nú orðið til
þess að gera mjög lítill
hluti rfkistcknanna.
Þessvegna spyr margur,
hvort ekki sé rétt að
hverfa alfarið frá tekju-
sköttun og að eyðslu-
sköttun. i því sambandi
er m.a. bent á þá stað-
reynd, að enginn geti
falið eyðslu sfna, skatta-
lega séð, en hinsvegar
hafi mörgum tekizt að
fara með (mis)drjúga
tekjuhluta gegnum göt
skattkerfisins, óskerta
af samneyzlusköttun.
Aðrir benda á, að afnám
tekjusköttunar myndi
skapa nýtt misrétti.
Þeir benda á, að þeir
einstaklingar, sem hafa
mjög háar tekjur en
enga ómegð, myndu
sleppa mjög vel f þjóð-
félagi eintómra eyðslu-
skatta. Til samanburðar
muni tekjulár aðili með
stóra fjölsk.vldu óhjá-
kvæmilega þurfa að
gjalda hlutfallslega háa
eyðsluskatta gegnum
kaup á nauðsynjum sfns
stóra heimilis.
Hlutur sam-
neyzlu í þjóðar-
tekjum í há-
marki
Hvað sem þessum
bollaleggingum Ifður
getum við orðið sam-
mála um, að hlutur
samneyzlunnar f heild-
artekjum (verðmæta-
sköpun) þjóðarbúsins
hefur farið sfvaxandi og
sé nú kominn f algjört
hámark. Samneyzlan
hefur tekið sffellt
stærri hlut tekna ein-
staklinga og fyrirtækja
f sfna þágu. Verði öllu
lengra gengið blasa
margvíslegar hættur
við. Það er þvf kominn
tími til að þessi mál öll
verði tekin út í heild —
og samneyzlunni af-
markaður einhver
ákveðinn hluti þjóðar-
tekna, sett einhver
mörk, sem ekki megi
fara yfir. Sfðar verða
stjórnendur þjóðfélags-
ins, að aðlaga samneyzl-
una að þeim aðstæðum,
sem þjóðartekjurnar
búa henni hverju sinni.
Þegnar þjóðfélagsins
telja velflestir, að nú sé
komið að þeim skatta-
legu mörkum, sem ekki
megi yfir fara. Það er
þvf hyggilegt f.vrir
stjórnmálamenn al-
mennt að taka skatta-
mál þjóðfélagsins til
endurmats og íhugunar.
verð: verð:
OPAL — TOPAS JW,-
SÍRÍUS SUÐUSÚKKULAÐI 200 GR. JZttT-
COCA-COLA 1 LÍTER
LIIMDU—OPAL — SÍRÍUS
ÁTSÚKKULAÐI 100 GR.
OPAL HNAPPAKÚLUR ^220^
BRJÓSTSYKUR
ÍSPINNAR <r'
APPOLLO — LAKKRÍS JUd&T
SÆLGÆTI FYRIR SYKURSJÚKA í ÚRVALI Á
VÖRUMARKAÐSVERÐI.
40.
245.
120.
140.
198.
72.
36.
90.
Opid tHkl. 10.
Vörumarkaðurinnhf.
Ármúla 1A. Húsgagna og heimilisd. S-86-1 1 2
Matvörudeild S-86-1 1 1, Vefnaðarv.d. S-86-1 1 3
VANTAR ÞIG VEMNU
VANTAR ÞIG FÓLK
tP
ÞÚ AUGLÝSIR UM ALLT
LAND ÞEGAR ÞÚ AUG-
LÝSIR í MORGUNBLAÐINU