Morgunblaðið - 23.07.1976, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JULÍ 1976
Við afgreiðum
litmyndir
yðar á 3 dögum
Þér notið Kodak filmu, við
gerum myndir yðar á Kodak
Ektaco/or-pappír og myndgæðin
verða frábær
Umboðsmenn um land allt
■ ávallt feti framar
HANS PETERSEN HF
Bankastræti -S: 20313 Glæsibæ - S: 82590
*
..HLUTIRNIR eru nú einu sinni svo
undarlegir í henni veröld," sagði
Mao Tse-tung eitt sinn. er hann
hugleiddi hlutskipti stjórnmála-
mannanna, ..maður getur klifrað
upp. en ekki niður " Frá sjötta ára-
tugnum hefur hún nú staðið yfir hin
langa ferð formannsins til baka nið-
ur af valdatindinum, sem tók hann
þrjátiu ár að klífa Síðasta ákvörðun
kínversku miðstjórnarinnar að firra
hinn hálflamaða flokksforingja þeirri
kvöl, sem er jafn auðmýkjandi og
hún er þreytandi að taka á móti
erlendum stjórnmálamönnum, leysir
ekki vandamálið að heldur
Sérhvert afsal opmberrar nærveru
eða þátttöku er sjálfkrafa hnekkir
fyrir álit manna og myndugleik Ef
Mao sýnir sig ekki framar i sjón-
varpi, vekur það áhyggjur flokks og
þjóðar Þegar ganga manna á meðal
úti i landsbyggðinni ábendingar og
orð formannsins, sem hann hefur
aldrei staðfest Hvernig getur Mao,
ef hann lætur undan tilhneigingu
sinni til íhugunar og hrörleika Iík-
ama síns, horfið smám saman úr
augsýn heimsins, en þó haldið því
áhrifavaldi sinu og þeim töfrum,
sem flokkurinn þarf á að halda til að
varðveita einingu og samheldni risa-
ríkisins á umskiptatímum og undir-
búa árekstralaus valdaskipti? Ekki
hafði fréttin um þetta afsal Maos fyrr
verið farin að vekja óróa en Peking
róaði aftur geð manna: Flokksblöðin
birtu nýjustu mynd af formanninum
brosandi Enn ríkir Mao yfir Kina
Fyrir tuttugu árum tók Mao fyrst
Enn
situr
Mao
Hin langa
ferð formanns-
ins til baka
að hyggja að því, hverjir tækju við af
sér Heilsa hans var þá ekki góð, og
honum leiddist að þurfa sem þjóð-
höfðingi að taka nær daglega í
hendur innlendra og erlendra gesta
Yfirleitt var honum meinilla við þá
þvingun, sem er samfara venju-
bundnum embættisstörfum Auk
þess þótti honum uggvænleg
reynsla hinna sovézku félaga af eftir-
mönnum Stalins „Verði ringulreið
við dauða minn, þá er þó mun
skárra, að hún geri vart við sig nú
þegar, þvi að þá er maður þó enn
nærri," sagði Mao i desember
1958
Þá hélt hann, að hann hefði fund-
ið lausnina með því að stokka upp
fastanefnd stjórnmálanefndarinnar
Sjálfur dró hann sig til baka i „aðra
röð" og ætlaði einvörðungu að
helga sig hinum miklu grundvallar-
atriðum og hugmyndafræðinni
Mennirnir í „fremstu röð" eins og til
dæmis varaformaðurinn Liu Schao-
tschi og aðalritarinn, Teng Hsiao-
ping, áttu að annast smámálin í ríki
og flokki 16 desember 1958 kom
Mao þjóð sinni á óvart með því að
láta af embætti ríkisforseta, og það
meira að segja sama dag og mið-
stjórnin varð óbeint að játa mikil
mistök Miðstjórninni fannst afsögn-
m vera „mjög jákvæð tillaga", eins
og komizt var að orði Það var fyrst
tíu árum síðar, að það kom í Ijós, að
það var ekki að öllu leyti af fúsum
vilja, að Mao hvarf í aðra röð
Augljóst var, að enginn í miðstjórn-
inni hafði hvatt hann til að vera
Skógarhólamót um helgina:
60 hross skráð til keppni
á kappreiðum mótsins
EFÞAÐERFRETT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
SKÓG ARIIÓLAMÓT, hcsta-
mannamót sem nfu hestamanna-
félög á Suðvesturlandi efna til,
verður haldið f Skógarhólum i
Þingvallasveit um helgina. A
mótinu fara fram kappreiðar,
gæðingar frá félögunum níu
verða dæmdir og sýnt verður
hindrunarstökk. Um 60 hross eru
skráð til keppni á kappreiðunum
og eru í þeirra hópi mörg kunn
kappreiðahross.
Að sögn Gunnars Tryggvason-
ar, formanns framkvæmdanefnd-
ar mótsins, hefst dagskrá þess kl.
15 á laugardag með dómum gæð-
inga og mæta til dóms um 40
gæðingar, en keppt verður í A- og
B-flokki. Klukkan 19 á laugardag
hefjast undanrásir kappreiða, en
Fyrir ferðahelgina:
Tjöld og tjaldþekjur
Ferðagrill
og grillkol
Picnic töskur
Gassuðuáhöld
alls konar
Vindsængur
Einnig ferðafatnaður í miklu úrvali
Svefnpokar
mjög vandaðir, margar gerðir
QEíSiB
H
keppnisgreinar á kappreiðunum
verða 250 m skeið, 250 m ung-
hrossahlaup, 300 m stökk, 800 m
stökk og 1500 m brokk. Á sunnu-
dag hefst dagskrá mótsins kl. 14
með hópreið hestamanna inn á
svæðið, fram fer helgistund og
Albert Jóhannsson, formaður
Landssambands hestamannafé-
laga, setur mótið. Félagar úr ný-
stofnaðri íþróttadeild Fáks sýna
hindrunarstökk og að siðustu fara
fram úrslit kappreiða.
Eins og áður segir verður margt
kunnra kappreiðahrossa á mót-
inu. í skeiðinu mæta m.a. Vafi
Erlings Ólafssonar, Ljúfur Harð-
ar G. Albertssonar og síðast en
ekki sízt sá kunni skeiðhestur
Sindri frá Laugarvatni, sem oft
hefur átt skemmtilega skeið-
spretti. Blesa Sigurðar Bjarnason-
ar og Sleipnir Haróar G. Alberts-
sonar mæta bæði til leiks i 250 m
stökkinu. Blesa sigraði á þessari
vegalengd á Fjórðungsmótinu á
Hellu, en Sleipnir sigraði á Mel-
gerðismelunum. Af hrossum í 300
m stökki má nefna Glóu Harðar G.
Albertssonar og Sörla frá Laugar-
vatni, en hann átti annan bezta
tíma á þessari vegalengd í fyrra,
22,5 sek. i hópi hrossanna í 800 m
stökkinu er t.d. Þjálfi Sveins K.
Sveinssonar, Geysir Helga og
Harðar Harðarsona og Rosti
Baldurs Oddssonar. Annars mæta
til leiks á kappreiðunum mörg ný
hross og þá ekki sízt frá félags-
mönnum í Trausta í Laugardal og
Loga i Biskupstungum.
Grein dr.
Trausta
PRENTVILLA varð í töflunni um
jarðsöguskeiðin, sem birtist I
grein dr. Trausta Einarssonar I
blaðinu s.l. miðvikudag. Þar átti
að standa: Miocen — upphaf fyrir
um 25 milljón árum. Og síðan:
Plfócen — upphaf fyrir um 7
milljón árum.
Þá er rétt að taka fram, þar sem
rætt er um, hvað gerist, þegar
Kanada er þakið jökli, að sú lýs-
ing og eftirfarandi lýsing er mið-
uð við ástandið eins og það var í
hámarki síðustu ísaldar fyrir 18.
þúsund árum.