Morgunblaðið - 23.07.1976, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JULÍ 1976
50 ára í dag:
Jóhann Ingimarsson
húsgagnaarkitekt
Þegar olíufurstinn Múhameð
Abdúll Saud el Bósi, sextugasti
sonur stór-beysins af Sam-bað,
hugðist halda á lystireisu um
eyðimörkina með'nokkrum uppá-
haldshnátunum sínum úr kvenna-
búrinu pantaði hann tuttugu sér-
smíðaða, gullslegna Kádiljáka hjá
General Motors. Hjónarúm
skyldu vera í skut hvers farkosts
af margvíslegri lögun og gerð. Til
hönnunar slíkrar hfbýlaprýði
treysti hann ekki Könum, eflaust
vegna landlægs Puritanisma.
Þess f stað leitaði furstinn beint
til frænda vorra, Dana, vegna
fjörugs hugarflugs og fmyndunar-
afls, innlifunar og yfirburða fag-
mennsku á þessu sviði. Þrátt fyrir
30 ára ábyrgðarskfrteini á þessum
dönsku springmatressum og hús-
gögnum, sem sum hver voru með
hreyfaníegum, bófstruðum úlf-
aldakryppum, hossuðust þessi
þarfaþing f sundur og reyndust úr
sér gengin rúst eftir nokkrar Am-
orsferðir furstans. Ef Múhameð
Abdúll Saud el Bósa hefði hug-
kvæmzt að bera fyrst niður í iðn-
aðarbænum Akureyri f stað Kjöb-
en og Ieita á tæknilegar náðir
Jóhanns Ingimarssonar hús-
gagnaarkitekts, sem er fimmtug-
ur í dag, stæðu hin tvfbreiðu und-
irstell ástarinnar ennþá óhögguð,
traustbyggð og vel-viðuð, á fjór-
hjóluðum Kádiljákunum suður f
Kúvæt (Kuwait). Þá er öruggt, að
aldrei hefði furstinn verið svik-
inn um alla veigamikla þætti, svo
sem nýtingu og þol, margvísleg
form, hugmyndaauðgi og aðra
„fídusa“ makræðis og gjálífis.
Ekkert svið húsgagnalistarinnar
stendur nær hjarta Jóhanns en
einmitt hjónarúmin. Fátt er hon-
um kærara að teikna, „konstrú-
era“ og selja en einmitt þau.
Hann kann lfka lagið á að sann-
færa tilvonandi brúðir um ágæti
og þanþol framleiðslunnar þegar
þessar turtildúfur koma svífandi
inn í Örkina hans Nóa við Ráðhús-
torg á Akureyri. Þá eru þær flest-
ar í sömu erindagjörðum og láta
sig dreyma um fjaðurmögnuð
húsgögn í framtíðarhreiðrinu
sínu og strjúka sifkimjúkt plussið
og springdýnur með nettum og
.skynnæmum höndum. En Jóhann
Ingimars er ýmist nefndur: Nói í
Valbjörk, eða Nói í Örkinni hans
Nóa þar norður. Hann er ennþá
sléttur, strokinn og ókrumpaður
eins og ný-áklæddur, uppbólstrað-
ur og vellfðunarlegur ráðherra-
stóll og það með endingu. Alit
sem Nói gerir er leyst af hendi
með ýtrustu smekkvisi og list eins
og mörg húsgögnin í hótelum og
byggingum Loftleiða bera gfeggst
vitni um. Ef Nóa verður einhvern
tfma á f messunni og brjóta f bága
við vandrataða og viðurkennda
vegi dyggðarinnar á öldurhúsum,
eins og okkur svo mörgum, er
honum fljótt fyrirgefið umfram
flesta aðra. Allir finna hvað Nói
er drengur góður og hjartahlýr
svo ekki sé minnzt á öll skemmti-
legheitin, sem frá honum stafa
þegar hann er í essinu sínu, að
ógleymdu næmu skopskyni, hlát-
urmildi og fyndni. Akureyri væri
stórum leiðinlegri bær án hans.
Hann hefir oft óafvitandi reynzt
sannkallaður bjargvættur akur-
eyrskra saumaklúbba þegar um-
ræðuefnið þraut um landsins
gagn og nauðsynjar. En slfk um-
ræðuefni um náungann þar norð-
ur fara vitaskuld eftir flóði og
fjöru, eins og svo margt annað í
henni versu.
Fyrsta verk mitt er jafnan að
iíta inn í fyrirtæki Nóa við Ráð-
hústorg þegar ég skrepp norður á
æsknslóð. Þá fer allt á ferð og
flug i Örkinni þegar við vinirnir
hittumst. Ilmandi vindlareyk
leggur brátt fyrir borð og stóla,
málverk á veggjum og höggmynd-
ir eftir forstjórann og afmælis-
barnið. Fyrr en varir er þetta
virðulega akureyrska fyrirtæki
orðið umskapningur og gjörbreytt
f skemmtilegan og notalegan
„public pub“ eina dagstund eða
tvær. Fiskisagan flýgur og gamlir
vinir og kunningjar koma aðvff-
andi úr öllum áttum, eins og krfan
í Tjarnarhólmann um varptímann
á vorin. Alltaf flýtur örkin hans
Nóa, sama hvað drukkið er og
sama hve mörg aðskotadýr eins og
ég koma um borð. Ef straumharð-
ara og hættulegra syndaflóð skylli
á Akureyri og ég er sannfærður
um, að örkin hans Nóa myndi
bjargast og lenda á sjálfum Súlu-
tindi líkt og örkin hans Nóa gamla
á Araratfjalli forðum. Því er
hvergi öruggara á Akureyri en
innanborðs hjá Nóa við slfkar
hamfarir. Nói í Valbjörk er ekki
siður vel innrættur en nafni hans
í biblíunni. Og báðir áttu það sam-
merkt, að þykja sopinn góður.
„Gubba Noha, gubba Nóa var en
hedersmann" söng Bellmann. Nú
mætti syngja með gleðiblöndnum
trega síðan þessi siðferðilega eft-
irmynd hans á Akureyri tók
óvænt upp á að stunda langalöng
bindindi:
Nói í Valhjörk, Nói í Valbjörk
neytti vlns í örk.
' Hann er dáðadrengur
drekkur ekki lengur.
Nói í Valbjörk,, Nói f Valbjörk
„navigerar" örk.
Ég bið háttvirta lesendur afsök-
unar á, hversu mér er jafnan tfð-
rætt um áfengi. En margir beztu
vinir mínir og kunningjar hafa
verið fremur ölkærir eins og ég.
Fáa veit ég geðugri, skilningsrík-
ari og ánægjulegri menn en þá
sem gengið hafa i gegnum eld-
skírn og hreinsunarvaskerí Bakk-
usar og gerzt fyrrverandi fylli-
byttur, svo fremi þeir verði ekki
ofstækisfullir og blindir áhang-
endúr einhverrar sértrúarregl-
unnar í stúkumálum.
Engum var skemmtilegra að
fara með á barinn á Sjallanum en
Nóa. Þá færðist líf og fjör í tusk-
urnar. Þar mátti syngja af lífs-
gleði og víngleði án þess að eiga á
hættu að vera afskrifaður og
bannfærður fyrir litlar sem engar
sakir af einhverju dyggðugu, lög-
hlýðnu og ærukæru kráarstíu-
fólki, sem aldrei mátti vamm sitt
vita f neinu sfzt um illafengna
flösku á borð og hryllileg morð.
Þar sem húsakostur var „camou-
flageraður“ ffnheitum eins og eig-
andinn sjálfur!
— Stundum er engu líkara en
Nói sé fjarstýrð,ur af sinni glæsi-
legu og röggsömu eiginkonu eins
og við margir, sem eigum konu-
láni að fagna. Hún er Guðrún
Helgadóttir, barnfædd Akureyr-
argyðja. Af meðfæddum næm-
leika hefir frúin öðlazt einskonar
fjarsýni eða langskyggni. Sam-
Ferðafólk
Ferstikla Hvalfjarðarströnd býður yður
fjölbreyttan mat s.s.
TOLONA PIZZA
T-BONE STEIKUR
FILLET STEIKUR
HAMBORGARA O.FL. O.FL.
Áningastaður í alfaraleið
Ferstikla
Hvalfjarðarströnd
band þeirra og samlff er orðið svo
náið eins og stundum vill verða
eftir mörg ár í hjónabandi, að Nói
birtist bókstaflega fyrirhafnar-
laust á sálarskjá frúarinnar, jafn-
vel úr óra fjarlægð. Iðulega birt-
ist Nói á skyn-skerminum þegar
verst stóð á, sem er hvað tfðast um
þær furðusýnir. Slíkar vitranir
eiga sér jafnvel stað án allra vís-
bendinga landlægs bæjarkjaftæð-
is. Ég og fleiri mínir Ifkar geta
borið vitni um slík „dulræn fyrir-
bæri“. Þannig forða oft góðar og
tryggar eiginkonur stórslysum.
Þetta er óskiljanlegt, eitthvað f
líkingu við og hent hefir margan,
sem misst hefir annan fótinn og
finnur til í litlu tánni sama horf-
ins fótar mörgum árum síðar.
Þannig bjarga margar góðar eig-
inkonur hjónabandinu, sem okk-
ur er hvað kærast inn við beinið
frá algeru skipbroti. Þetta hefir
einnig hent mig. Svo að margt
bindur okkur Nóa gagnkvæmt
saman.
Nói er einn þekktasti núlifandi
borgari Akureyrar ásamt Eyþóri í
Lindu, Jóni Sólnes og Kristjáni
frá Djúpalæk. Nói hefir aldrei
setið á Alþingi eða verið formað-
ur neinnar Kröflunefndar, eins
og vinur hans Jón G. Sóines. Því
er hann ekki eins frægur og Sól-
nes bankastjóri fyrir utan borgar-
múra þessa settlega byggðarlags.
Rafurmagn er ekkert vandamál á
vegum Nóa. Sjaldan verða
spennuföll í hjónarúmum eða
legubekkjum frá honum, þótt
skjálftarnir séu engu minni en
við Kröflu. Hjónabönd hafa
reynzt einkar farsæl, sem notið
hafa húsgagna, sem vandað var til
á teikniborði Nóa, bæði í Valbjörk
og í Örkinni hans. Það er eins og
einhver dulinn hvati og yfirnátt-
úruleg mögnun og mergjan fylgi
„mublimentinu" frá Nóa, kannski
af því að hann leggur svo mikið af
sjálfum sér og eigin sál í fram-
leiðsluna og söluna. Því miður
hefi ég ekki eignast fleira en
vandað og andvekjandi skrifborð
frá honum.
Nói hefir að mestu leyti staðið
fyrir tveimur af þremur mál-
verkasýningum mínum f höfuð-
stað Norðurlands. Þannig hefir
hann gerzt mikill menningarpost-
uli bæjarfélagsins, einskonar
Ragnar í Smára Akureyrar. Hefir
margur verið gerður að heiðurs-
borgara eða krossaður á brjóst og
bak fyrir minna listátak og menn-
ingarafrek hérlendis. Jafnvel ver-
ið hogginn f granft, og marmara
eða mótaður og bræddur í eir.
Mér finnst eins og Ráðhústorgið
bíði eftir styttunni af Nóa og örk-
inni hans. Kröflu-Jóni mætti
koma fyrir f skot- og skjálfta-
heldri steinsteypu í Bjarnarflagi
og Eyþóri í Lindu f súkkulaðilíki
á öllum barnaleikvöllum bæjar-
ins. Ætli skáldinu, Kristjáni,
verði ekki fyrst drekkt f Djúpa-
læknum sínum í takt við örlög svo
margra genginna, skapandi
starfsbræðra hans í þessari jarð-
vist. Sfðan verður hann eflaust
endurreistur í eldtraustum leir og
dýft í gosbrunninn f Lystigarðin-
um á Akureyri, þar sem hann
mun spúa blávatni úr nös um aiia
eilífð, eins og ljóðlistarbununni í
lifandalífi. Akureyringar eru svo
fram úr hófi nærgætnir og hugul-
samir við skáldin sin, lífsliðin.
Alltaf átti Gunnlaugur heitinn
Scheving, einn alfremsti listmál-
ari þjóðarinnar og náinn frændi
Nóa, athvarf á heimili hans er
hann fór með mér um norðurslóð
f bflnum mínum sfðustu árin að
sumarlagi. Þar naut Gunnlaugur
hvað mestrar birtu og hlýju á oft
á tíðum einmanalegum táradal
listarinnar. Óvíða leið Gunnlaugi
betur en við arinhelluna hjá Nóa
og Diddu og heimasætunum ljós-
hærðu, glaðlegu og þokkafullu.
Gunnlaugi Scheving fannst gamla
Akureyri með réttu einn al-
„malerískasti“ bær þessa lands.
Heimili Diddu og Nóá er eitt það
fegursta og smekklegasta, sem ég
hefi litið á Akureyri. En það er nú
kannski ekki að marka, því að öll
heimili þar standa ekki upp á gátt
fyrir hverjum sem er. Húsið er
gert af einhverjum víðfrægum
norskum eða sænskum arkitekt.
En húsgögn öll og annað innvols
(inventary) er teiknað af hús-
bónáanum. Þar hanga málverk
eftir flesta frægustu málara þjóð-
arinnar, meira að segja eftir Ör-
lyg Sigurðsson og Jakob von Haf-
stein, sem er einkavinur fjöl-
skyldunnar á stórlaxaferðum sín-
um um fengsælar veiðiár Norður-
amtsins.
Ég vona að ég eyðileggi ekki
afmælisdaginn fyrir vini mínum
Nóa með frumhlaupi mínu að
birta þessa kveðju fyrir alþjóð í
Mogganum, sem er einn allra
magnaðasti fjölmiðill landsins.
Þannig varð mér heldur betur á f
messunni er ég eyðilagði afmælis-
veizlu Thors Vilhjálmssonar fyrir
ári síðan, þar sem ég tilkynnti
einnig í sama blaði, að allt myndi
fljóta i skozku viskíi f tilefni dags-
ins, vegna hálfrar aldar afmælis
skáldsins. Snemma morguns
myndaðist fleiri hundruð metra
halarófa af allskyns prumpulýð
fyrir utan höfuðdyr að húsi
skáldsins. Skrælþurr smáskáld,
léttlyndir lffslistarkúnstnerar,
snaróðir sýkkópatar, vergjarnar
vændiskonur, sjálfsútnefndir litt-
eratar, og lífsljós og annar laus-
ingjalýður. Biðraðir voru engu
minni en mynduðust við súpu-
gjafir afa skáldsins, Thors Jen-
sen, f spönsku veikinni 1918. Þvf
varð skáldið, sem einnig er af
andrfkum þingeyskum meiði eins
og Nói, að forða sér bakdyrameg-
in beint í Laugarvatn með fjöl-
skylduna til að verða ekki troðinn
undir vegna yfirþyrmandi vin-
sælda óboðinna gesta. Ég vona
bara, að örtröðin verði ekki eins
og við hús skáldsins að heimili
Nóa svo að ég komist inn ef vinur-
inn skyldi bjóða mér norður í dag.
Honum er alltaf jafn annt um
kúltúr staðarins. Hver veit nema
ég bregði mér norður í hófið með
næstu flugvél í dag? Eða ætti ég
kannski heldur að gefa Nóa það i
afmælisgjöf að sitja heima og fara
hvergi?
Örlygur Sigurðsson.
Larsen œfir sig
SÁ GÓÐI mann Bent Larsen
ætlar sér sjálfsagt stóran hlut á
millisvæðamótinu, sem nú
stendur yfir í Sviss. Hann ku
hafa undirbúið sig rækilega
fyrir mótið og liður í þeim und-
irbúningi voru eftirfarandi
skákir, sem hann tefldi við
ianda sína þá Börge Andersen
og Björn Brinck — Clausen ný-
lega. Báðar eru skákirnar ekta
Larsenskákir og þarfnast þá
ekki frekari skýringa.
Hvftt: Bent Larsen
Svart: Börgc Andersen
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. f4 — Rc6, 3. Rf3
— Rf6, 4. d3 — e6, 5. c4 — d5,
6. cxd5 — exd5, 7. e5 — Rg4, 8.
h3 — Rh6, 9. g4 — Rd4?, 10.
Bg2 — Da5, 11. Bd2 — Db5, 12.
Rc3 — Dxd3, 13. Rxd4 — cxd4,
14. Rxd5 — Bd7, 15. Rc7 + —
Kd8, 16. Rxa8 — Bbí, 17. De2
eftir JÓN
Þ. ÞOR
— Dg3+, 18. Kfl — Rxg4, 19.
hxg4 — Bxg4, 20. Dc4 — Bxd2,
21. Dc7 + og svartur gafst upp.
Hvftt: Bent Larsen
Svart: Björn Brinck —
Claussen
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. f4 —e6, 3. Rf3 —
d5, 4. Bb5+ — Bd7, 5. Bxd7 —
Dxd7?, 6. Re5 — Dc7, 7. exd5 —
exd5, 8. Rc3 — Rf6, 9. Df3 —
Dd8?, 10. De2 — Be7, 11. Db5 +
— Rbd7, 12. Dxb7 — Hb8, 13.
Dxa7 — Dc8, 14. Da4 — 0-0, 15.
0-0 — Rb6, 16. Db5 — Rc4?, 17.
Rc6! og svartur gaf.