Morgunblaðið - 03.09.1976, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 03.09.1976, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1976 25 — Afmæli Framhald af bls. 14 Frískleiki hans smitar út frá sér og dregur mann með sér hvort sem honum er það ljúft eða leitt. Fróðleiksfýsn Grims er slík, að aldrei þrýtur hann örendið, þegar einhvers þarf að spyrja. Hann er ætíð fljótur að átta sig á því hvað hangir á spýtunni og tekur djarf- ar ákvarðanir. Viðskipti hans eru sem völundarhús, en þar gengur hann þó greiðlega um eins og sá sem veit og skilur. Þegar Grimur tók við búskap af föður sinum var hinn vatnsmikli hver að Syðri-Reykjum óvirkjað- ur og heitt vatnið rann í ána til heldur litils gagns fyrir búskap- inn. Þetta var ekki að skapi hans og eftir að faglærðir menn höfðu gengið frá því verki óleystu hristi bóndinn af sér trúna á sérfræð- ingana og virkjaði hverinn sjálfur eftir að hafa hugsað undir feldi um stund. Nú hefur vatnið streymt virkjað um áratuga skeið til hagsbóta fyrir bóndann og hans lið. Nokkur gróðurhús i eigu hans varða veg þessarar atorku hans. Grímur er um margt ákaflega sérstæð manngerð og oft örar sviptingar í skapi hans, þegar eitt- hvað er um að vera og verkefnin bíða. Hann er margt i senn: bóndi, iðnaðarmaður á járn og tré, verkamaður og sigildur sel- skapsmaður. Þótt svo að oliublett- ur hafi fallið á smekkbuxurnar hans, eða hann rekið sig á nagla og rifið smá gat á þær, þá gerir hann samt sínar ströngu kröfur um þrifnað og hreinlæti á staðn- um. Þar á hver hlutur sinn stað og eins gott fyrir húskarla hans að hyggja vel að reglusemi í meðferð verkfæra og koma þeim á sinn stað að verki loknu. Annars er hætt við að ómi i eyrum þeirra hljómsterk og óblið rödd hús- bóndans að vanda um fyrir þeim. Þarna verða allir hlutir að vera í fullkomnu lagi. Hann verður að geta gengið að verkfærum sínum á vísum stað, þegar nágranna- bændur leita I smiðju til hans með biluð verkfæri. Enginn þarf að efast um vilja hans og hjálp- fýsi, sem einu sinni hefur leitað til hans með brotið amboð eða annað sem þarfnast viðgerðar. Búskap sinn hefur hann alla tið rekið með sóma og yfir gripi sina hefur hann reist hús, sem standa i fremstu röð í sveitum landsins. Hann hefur sívökult auga með hverju því, sem unnió er á búinu, og gerir þar sem annars staðar hæstu kröfur um vel unnin störf. Athafnaþörf hans er óþrjót- andi, lífið ólgar i kringum hann og allt verður að vera unnið af verkhyggni, vandað og traust og standa af sér öll veður, Hann byggir á traustum undirstöðum langrar og fjölþættrar reynslu og verklagni. Það er einkennandi fyrir þrotlausan dugnað Gríms, og þar sker hann sig úr frá mörgum hagleiksmanninum, að krafa hans um góða og snyrtilega umgengni dvinar aldrei. Grímur er mikill gleðimaður og kann vel að meta hið ljúfa lif, þegar svo ber undir og er þá hrók- ur alls fagnaðar. Maður er manns gaman gæti verið hans lífsmottó. Gamanyrðin fjúka, glettnin kraumar I honum blönduð ofurlít- illi striðni ef tækifæri gefst og tæpitunga ekki viðhöfð né talað undir rós. Hann er hreinskiptinn og fer ekki í felur með skoðanir sínar á mönnum og málefnum, en illmælgi er honum fjarri skapi. Matmaður er hann drjúgur og kann vel að meta góðan mat og ekki ósjaldan hafa umræður okk- ar snúist um matargerð á ýmsu lostæti. Vökvun og hýrgan sálar- kornsins er honum ekki fjarstæð og hvar sem hann fer örvast ræð- ur manna og fagrar konur draga augu hans að sér. Athygli hans beinist að gleðinni í góðra vina fagnaði Á þessum morgni þykist ég vita að Grímur hafi ræskt sig og sagt stundarhátt: Jæja, nú er karlinn orðinn sjötugur — og ekki dauður enn! það er einlæg ósk mín að Grímur megi dveljast meðal okk- ar sem allra lengst, éta feitt hangikjöt og lyfta glasi á góðri stund, hlæja til að lengja lífið, byggja fleiri hús og kaupa fleiri vélar sér til ánægju og andlegs uppléttis. Bestu kvejur og heillaóskir ht. MS MS MS m 2IN 3EIN sw MS MY Adols AUGl V^i/y TEIK IMDAIV1 træti 6 sinii MjjE .ÝSINGA- IMISTOFA IÓTA 25810 Hemlavarahlutir í amerískar bifreiðar nýkomnir. Stilling h.f. Skeifan 11. Reykjavik. Sími31340. ÚTSALA Terylenebuxur frá kr. 1975.— Frakkar frá kr. 3575.— Nærföt, skyrturo.fi. ANDRÉS, Skólavörðustig 22 A Útvegum loðnunætur frá Kóreu og Noregi Heildverzlunin Vífill Tryggvagötu 2 Sími 223 70. Flugslysin rannsökuð Washington, Julianehaab 29. ágúst-Reuter — Fréttaritari Mbl. Henrik Lund: FLOKKAR bandariskra rann- sóknarmanna flugu í dag frá Bandaríkjunum til að kanna or- sakir þess, að tvær risastórar flutningavélar Bandaríkjahers frá sömu herstöð í New Jersey hröpuðu með aðeins fárra klukku- stunda millibili á laugardag, — önnur við flugvöllinn á Syðra- Straumsfirði í Grænlandi, en hin sprakk í þrumuveðri nærri Peter- borough í Bretlandi. Allir sem um borð voru í síðari vélinni, 18 manns fórust, en með hinni fyrri fórust 21 af 27 manns sem voru um borð. Talsmenn hersins segja, að slysin hafi verið „ótrúlegar til- viljanir", en skemmdarverk voru útilokuð. Jassdansskóli Sigvalda Innritun hafin í alla flokka KENNT VERÐUR: Jass — dans SKöttnn hefst 6. jitterbug og rokk Upplýsingar í síma 84750 frá kl. 10—12. og kl. 1—7. Jass dans — jass dana Hagstætt verð Ármúla 1A. Húsgagna og heimilisd. S-86-11 2 Matvörudeild S 86 111, Vefnaðarv.d. S 86-1 1 3 Blaðburðarfólk óskast i eftirtalin hverfi: VESTURBÆR Skólabraut, Nesvegurfrá 40 — 82 Garðastræti AUSTURBÆR Bergstaðastræti, Laufásveg 58—79 Skipholt 1—50, Ingólfsstræti, Úthlið, Lindargata. ÚTHVERFI Skipasund, Goðheimar, Selvogsgrunnur, Breiða- gerði, Teigasel, Akrasel, Álfheimar 43 — Lang- holtsvegur71 —108 Hraunteig. Uppl. f síma 35408 litmyndir yðar á 3 dögum Þér notið Kodak filmu, við gerum myndir yðar á Kodak Ektacolor-pappír og myndgæðin verða frábær Umboðsmenn um land allt — ávallt feti framar HANS PETERSEN HF RanUactnoti _ C. C. O'iCOn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.