Morgunblaðið - 12.10.1976, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR A. OKTÖBER 1976
ASHKENAZY-FJÖLSKYLDAN SAMEINUÐ
Vladimir Ashkenazy og móðir hans Evstolya Ashkenazy.
Feðgar hittast á Kef lavíkurflugvelli á laugardag. Móðirin situr og
horfir á.
David Ashkenazy og tengdadóttir hans Þórunn Jóhannsdóttir Ashkenazy.
ÁTTA ára baráttu Vladimirs
Ashkenazy pfanóleikara til
þess að fá foreldra sfna f heim-
sókn til Islands lauk á laugar-
dagskvöldið, er Evstolya og
David Ashkenazy komu til
Keflavfkurflugvallar frá
Glasgow. Það varð að vonum
fagnaðarfundur og nú dveljast
þau hjón hjá syni sfnum og
tengdadóttur Þórunni Jóhanns-
dóttur Ashkenazy að Brekku-
gerði 8. Þar verða þau til 29.
október utan 4 daga, sem þau
fara til Skotlands með syni
sfnum.
Morgunblaðið heimsótti fjöl-
skylduna f gær. Aðspurð sögðu
þau I ón, að þau hefðu fylgzt
mjög vel með syni sfnum, þótt
úr fjarska hefði verið. Þau
hefð . að sjálfsögðu skrifazt á,
hefðu rætt við hann f sfma, „og
ég hef sent þeim plöturnar
mfnar,“ sagði Vladimir og
brosti.
„Og var ekki gaman að hitta
barnabörnin?"
,Jú, vissulega og við eyðum
nú hverri stund f að vera sam-
an,“ sagði David og bætti við að
krakkarnir hefðu strax orðið
hænd að afa og ömmu. Samt er
tungumálavandamál talsvert,
þar sem hjónin tala aðeins
rússnesku, en hana skilja börn-
in ekki nema að litlu leyti.
„Það hefur verið afskaplega
gaman að hitta börnin,“ sagði
frú Ashkenazy.
t f jölskyldunni hefur hver
hátfðisdagurinn rekið annan. 8.
október varð Dimitri 7 ára, 9.
október komu afi og amma, 10.
október varð Sonia 2ja ára og í
gær átti Nadia 13 ára afmæli.
„Það hefur þvf verið nóg að
gera og f mörgu að snúast,"
sagði Þórunn og hló við.
David og Evstofya Ashkenazv
kváðust vera mjög hamingju-
söm yfir því að hafa fengið
tækifæri til að koma til Islands
og hitta son sinn og fjölskyidu.
Evstolya tók einnig fram að sér
fyndist Reykjavfk falleg borg-
Vladimir Ashkenazv bað
Morgunblaðið fyrir þakklæti til
allra sem sýnt hefðu hug sinn.
Hann sagði að fólk, sem hann
hitti á förnum vegi, stöðvaði sig
og óskaði sér til hamingju. All'
ir virtust taka þátt f fögnuði
f jölskyIdunnar. Þá hefði þeim
og borizt blóm frá ókunnugu
fólki, sem hefði viljað sýna
fögnuð sinn og hug. Öllu þessu
fólki kvaðst Vladimir vera
mjög þakklátur.