Morgunblaðið - 12.10.1976, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.10.1976, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1976 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarf ulltrúi Fréttastjóri Augiýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthfas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson Björn Jóhannsson. Ár ii Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10100 Aðalstræti 6, sími 22480 Áskriftargjald 1100.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60.00 kr. eintakið. Þing í brennidepli Alþingi Islendinga var sett í gær með hátíðlegri viðhöfn, bæði í dómkirkjunni og þinghús- inu. Þar bar hæst ávarp forseta íslands, herra Kristjáns Eldjárns, predikun séra Gunnars Gíslasonar, prests að Glaumbæ i Skagafirði og fyrrum alþingismanns, og minningarorð aldursfor- seta þingsins, Guðlaugs Gíslasonar, um tvo látna alþingismenn: Alfreö Gíslason og Birgi Kjaran. Forsetinn ræddi m.a. um veg og virðingu Alþingis, sem sumir teldu þverrandi. Hann sagði að menn hefðu bæði rétt og skyldu til gagnrýni, einnig á Alþingi, enda ósparir á hana. En gagnrýni væri ekki það sama og óvirðing eða for- dæming. Hún væri heldur ekki nýtt fyrirbæri. Vitnaði forsetinn í því efni til predikunar við þing- setningu árið 1925, þar sem m.a. hafi verið sagt: „Alþingi verður fyrir þungum áfellisdómum. Varla heyrist nokkur mað- ur leggja þvi liðsyrði sem þar fer fram.“ Forsetinn sagði aö margt benti til þess að ummæli þessefnis, aó vegur Alþing- is með þjóðinni væri þverr- andi, hefðu ekki við rök að styðjast. Síðan tilvitnuð orð voru mælt í dómkirkj- unni árið 1925 hefðu lands- menn í hálfa öld haldið áfram að kjósa fulltrúa sína til Alþingis, oftast með miklum áhuga og atfylgi, og sýna þeim traust til að fara með málefni sín þar. Jafnframt hefði verið sýndur skilningur á grund- vallarþýðingu Alþingis í þjóðlífinu. Þetta ætti að gefa sanna mynd af stöðu þingsins í vitund þjóðar- innar, ef þörf væri á að minna á jafnsjálfsagðan hlut í grónu lýðræðis- og þingræðisþjóðfélagi. Þvert á móti myndi mörgum nú hugsað til Al- þingis og þeirra viðfangs- efni, sem þess biðu. Síðasta þing „hófst á þeim örlaga- tímum“, sagði forseti, „þegar óséö var hvernig oss reiddi af í átökum um fiskimiðin kringum landið. Sá háski er nú liðinn hjá, vonandi fyrir fullt og allt. Þökk sé öllum sem átt hafa góðan hlut að þeirri lausn. Nú gefst Alþingi og ríkis- stjórn meira svigrúm til að snúast með óskiptum kröft- um við öðrum málum sem ráða þarf fram úr. Þar munu allir þættir efna- hagsmála verða efstir á blaði.“ Séra Gunnar Gíslason fjallaði m.a. um siðferðileg- ar og veraldlegar hættur skjóttekins auðs, sem oft leiddi til þess að menn gleymdu þeim verðmæt- um, sem mölur og ryð fengju ekki grandað og ein næðu út fyrir jarðneska til- veru okkar. Ágirndin kallaði fram þær hvatir, sem væru helztur orsaka- valdur þeirra meinsemda, sem mannkyn hrjáðu í dag; einnig þeirra auðgunar- brota, er því miður lýttu þjóðfélag okkar um þessar mundir. Auðæfi jarðar á láði og í legi væru að vísu okkur gefin til að yrkja í afkomu okkar, en þar þyrftum við að fara að með gát og hófsemi, rækta garð- inn okkar og njóta ávaxt- anna í sveita okkar andlits. Los í fjármála- og efna- hagslífi og sú verðbólga, sem enn svifi yfir vötnum hjá okkur, gæti leitt til enn frekari ófarnaðar, ef ekki væri að gætt og við brugð- ið. Treysta þyrfti samstöðu þjóðarinnar í því efni, en fyrirbyggja sundrungu, bæði milli einstaklinga og stétta. Hlúa þyrfti að heiðarleika, réttlæti, hóg- værð og stöðuglyndi. Með það að leiðarljósi þyrfti Alþingi að taka á þeim viðamiklu vandamálum, sem þess byðu, og þjóðin ætti svo mikið undir komið, að vel tækist úr að leysa. Þjóðin mun örugglega fylgjast með störfum þess. þings, sem sett var í gær. Ekki sizt þeim þáttum þeirra, sem fjalla um efna- hagsmál, fjárlög og skatta- mál, og réttarkerfið í land- inu, en í þeim efnum er boðuð ný löggjöf. Þá mun nýting landhelginnar vera ofarlega í hugum manna og hver framvindan verður á þeim vettvangi. í öllum þessum málum þarf þjóðin að sýna Alþingi réttmætt aðhald en jafnframt stuðn- ing og samstöðu, ef árang- ur á að nást, ekki sízt í viðnámí gegn verðbólgu. Þar veltur ekki síður á af- stöðu hagsmunahópanna í þjóðfélaginu en Alþingis, hvern veg til tekst. Landssambands .,an,haldsskólak.nna,a ILST-KJ vi5 a.l. Til skýringar sk.l _!».» ««•» ■■» S*' 'Z ‘nnskdi. «9 hir sérkröfur .....................--- s.l. Til skýringar skal þess geti8 a8 g grunnskóla og hinn fyrir kennara skólakennara, annar fynr kennara 7^9 9™nnsk6,a. vi8 framhaldsskóla, þ.e.a.s. skóla, sérsamninga Sambands Islenzkra barna- Hins vegar náSist ekk. samkomulag um sé^samnmg. ^ Qg kennara (S.Í.B.) en I því eru kennarar v.8 L-6 9 úrskurSaSi kjaranefnd því un, þe.rra n grunnsk6lastiginu f tveimur Eins og málum er háttaS í dag eru þv kennar^ ^ y.g kennara , aSskildum stéttarfélög um og e,ns j j j k;örum þessara kennara, eftir því MorgunblaSinu á sunnudag er no ^ menntun þeirra sé sú sama. ^Tam^di X"sUum umrXrn ‘aaddi Morguuh,,5i» „i» nokkr. a5i,a. naro um þessi mál. ---- “ Kristján Thorlaeius, formaður B.S.R.B: „Sömu laun fyrir sömu störf ’ „Ék tel að jafnt í skólum, sem annars staðar eigi að greiða sömu laun fyrir sömu störf,“ sagði Kristján Thorlacius, for- maður B.S.R.B., þegar hann var spurður um álit hans á þvi að kennarar með próf úr gamla kennaraskólanum, sem kannski væru búnir að kenna í tugi ára, væru í lægri launaflokki en ný- útskrifaðir kennarar úr Kennaraháskólanum. „Þetta er eitt af jafnréttis- málunum í okkar þjóðfélagi og eg vil bara benda á að þetta tíðkast hvergi meðal annarra stétta. Það má t.d. nefna við- skiptafræðimenntunina, sem var fyrst eins árs nám, en er nú fjögur. Það dettur engum í hug að nýútskrifaðaðir viðskipta- fræðingar fari í hærri launa- flokka en menn, sem tóku sitt próf löngu fyrr eftir öðru skóla- kerfi og hafa starfað í fjölda ára í greininni. Ríkisvaldið hefur haft þá stefnu að miða laun við próf. En ég tel engin rök fyrir þessu og vil leggja áherzlu á að starf- andi kennarar með eldra kenn- arapróf eiga fullkominn rétt á að fá sömu laun og aðrir fyrir sömu störf.“ Kristján var einnig spurður álits á mismunandi kjörum, sem kennarar á grunnskólastig- inu búa við eftir því hvort þeir kenna í 1.—6. bekk eða 7.—9. bekk. „Hér tel ég eins og áður rétt að höfð sé sú stefna um jöfn laun fyrir sömu vinnu. Þetta misræmi stafar nú fyrst og fremst frá gamla kerfinu, þegar barna— og gagnfræðaskólar voru aðskildir. Þetta verður að breytast og það hlýtur að ganga i þá átt“, sagði Kristján að lok- um. Höskuldur Jónsson ráðuneytisstjóri: sér ekkert ósamið við kennara” „Eigum í sjálfu „Við eigum í sjálfu sér ekkert ósarnið við S.I.B.,“ sagði Höskuldur Jónsson, ráðuneytis- stjóri hjá Fjármálaráðuneyt- inu, þegar Mbl. spurði hann hvar sérsamningar S.I.B. væru á vegi staddir. „Samkvæmt lögum eigum við að gera tvenna samninga við kennara," sagði hann, „annars vegar aðalkjarasamning, sem gerður var 1. apríl, og hins veg- ar sérsamninga, sem ekki náð- ist samkomulag um og kjara- nefnd úrskurðaði um. Kennar- ar eru náttúrulega óánægðir með ýmislegt, eins og öll önnur félög. Kennarar hafa óskað eftir áframhaldandi viðræðum, en ekkert hefur gerzt enn sem komið er.“ Valgeir Gestsson, formaður S.I.B: „Allt að 20% mismunur á launum kennara með sömu menntun innan grunnskólans” Aðspurður sagði Valgeir Gestsson að seint miðaði í sam- komulagsátt í sérkröfum S.Í.B. „Það hafa engar viðræður verið um þessi mál síðustu daga“ sagði hann. „Við fengum fyrir nokkru bréf frá fjármála- ráðuneytinu þar sem gerð var grein fyrir gagntillögum þeirra. Við svöruðum þessu bréfi form- lega í morgun og ég get ekki sagt annað um það en að þessar tillögur sýna mikinn vilja til að komast að samkomulagi, en ganga alls ekki nógu langt til að við getum sætt okkur við þær. Það, sem við leggjum fyrst og fremst áherzlu á í þessum sér- kröfum er að fá leiðréttingu á þvimisræmi, sem er í kjörum kennara innan grunnskólans. Auðvitað njóta allir sinnar menntunar, en eins og þetta er í dag getur verið allt að 20% launamismunur hjá kennurum með nákvæmlega sömu mennt- un er vinna hlið við hlið. Þetta misræmi er leifar frá eldra kerfinu og ég vona að það sé einungis tímaspursmál hvenær jafnrétti næst meðal allra kenn- ara innan grunnskólans. Ég held að það sama gildi um lélegt mat á gamla kennara- prófinu miðað við próf úr Kennaraháskolanum. Það kem- ur til af því að áður var það þannig að kennarar fengu 15 stig fyrir hvert framhaldsskóla- ár og þegar Kennaraháskólinn varð þriggja ára nám, fékk kennari útskrifaöur þaðan sjálfkrafa 45 stig, sem fleyttu honum í launaflokk, sem er f mörgun tilvikum hærri en kennara, sem tóku gamla kennaraprófið, þrátt fyrir að þeir hafi margra ára starfs- reynslu." Valgeir var spurður hvort með nýjum lögum um grunn- skóla væri ekki kominn grund- völlur til að allir kennarar inn- an hans væru innan eins stétta- félags, i stað tveggja eins og nú er og þannig yrði auðveldara að samræma kjör þeirra. „Ég tel það ekkert vafamál," sagði hann að það væri breyt- ing til bóta og tel raunar að að því eigi að stefna." Valgeir sagði að lokum að þetta væri allt sem hann þyrði að segja i dag, enn væri ekki búið að ákveða hvort gildandi kjarasamningum yrði sagt upp í vor, en allar líkur væru á þvi. Ölafur S. Ólafsson, formaður L.S.F.K: „Ekki grundvöllur fyrir launamismun kennara við grunnskóla” Ólafur S. Ólafsson, formaður L.S.F.K., var fyrst spurður að því, hvort kennarar i L.S.F.K. teldu kröfu kennara innan S.Í.B. um sömu kjör fyrir alla kennara á grunnskólastiginu réttmæta. „Þetta hefur nokkuð verið rætt innan félagsins", sagði hann, „og um það hafa verið nokkuð skiptar skoðanir. Það er rétt að við í L.S.F.K. höfum verið nokkuð á undan, en það er min skoðun að með tilkomu grunnskólans sé ekki lengur grundvöllur fyrir þessari skipt- ingu.enda er það svo að eftir samningana í vor eru laun kennara innan grunnskólans þau sömu og um það gerðum við sameiginlega kröfu. Það er því útbreiddur misskilningur að mismunurinn liggi í krónu- tölu launanna, heldur eru það fyrst og fremst þrjú atriði, sem þarna er um að ræða. Það er í fyrsta lagi mismun- ansí kennsluskylda, sem verður þriggja stunda munur á viku frá og með 1. des. n.k. 1 öðru lagi höfum við 13% álag á alla yfirvinnu, en það hafa meðlim- ir S.I.B. ekki. Og í þriðja Iagi þá fengum við fyrir mörgum árum viðurkenningu á því að kennar- ar innan L.F.S.K. sem starfa við 8 mánaða skóla fengju full laun, en laun barnakennara við samskonar skóla eru skert að einum tólfta hluta. Raunveru- legur launamismunur á því ekki að vera fyrir hendi, heldur eru þetta ýmis kjaraatriði. Sjálfum finnst mér þessi kjara- mismunur ekki eiga rétt á sér, en ég vil taka það fram að þetta er fyrst og fremst mín skoðun og raunar einnig margra innan félagsins, en hins vegar hefur engin samþykkt verið gerð um þessi mál. Það hefur verið erf- itt af ríkisins hálfu að fá þessi kjör jöfnuð út, en þó tel ég að það sé ekki spursmál um hvort, heldur hvenær jöfnuðuður fæst innan grunnskólans.“ Olafur var þá spurður hvort ekki væri rétt að kennarar á grunnskólastiginu sameinuðust í einu og sama stéttarfélaginu, og ynnu í sameiningu að kjara- málum sínum „Það hafa verið raddir uppi um þetta,“ sagði hann, „og við höfum verið að reyna að vínna að einingu innan stéttarinnar, en sannleikurinn er nú sá að það eru ýmsir á móti þessu inn- an beggja félaganna. Þó höfum við samþykkt frá báðum félög- unum um að vinna að þessu máli á næsta kjörtímabili. Grunnskólinn gefur tilefni til að hægt sé að vinna að þessu máli af alvöru og rökvisi og ég vona að þetta verði orðið að raunveruleika eftir nokkur ár.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.