Morgunblaðið - 12.10.1976, Page 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1976
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1976
25
STIGAHÆSTIR í HANDKNATTLEIK
EFTIRTALDIR leikmenn hlutu bezta meðaltai í
einkunnagjöf Morgunblaðsins í handknattleik
1975—1976.
Stig
Pálmi Pálmason, Fram
Árni Indriðason, Gróttu
Geir Hallsteinsson, FH
Viðar Símonarson, FH
EHas Jónasson, Haukum
Páll Björgvinsson, Vfking
Friðrik Friðriksson, Þótti
Hörður Kristinsson, Ármanni
Stefán Halldórsson, Vfkingi
Ólafur Benediktsson, Val
Pétur Jóhannesson, Fram
Pálmí Pálmason skorar hjá júgðslavneska landsliðs-
markverðinum. Myndin var tekin f pressuleik í
fyrra.
Leikir Meðaltai
40 14 2,85
39 14 2,78
38 14 2,71
38 14 2,71
36 14 2,57
36 14 2,57
35 14 2,50
30 12 2,50
35 14 2,50
34 14 2,42
34 14 2,42
MARKHÆSTIR í HANDKNATTLEIK
EFTIRTALDIR leikmenn urðu markhæstir í 1.
deildar keppni fsiandsmótsins f handknattleik
1975—1976
Friðrik Friðriksson, Þrótti 86
Pálmi Pálmason, Fram 81
Viðar Símonarson, FH 80
Páll Björgvinsson, Vfkingi 75
Hörður Sigmarsson, Haukum 74
Björn Pétursson, Gróttu 69
Geir Hallsteinsson, FH 67
Stefán Halldórsson, Vfkingi 63
Þórarinn Ragnarsson, FH 55
Jón Karlsson, Val 54
Guðjón Magnússon, Val 50
Hannes Leifsson, Fram 50
Friðrik Friðriksson skorar eitt marka sinna f síð-
asta fslandsmóti.
Friðrik Friðriksson, Þrótti
Stefni að því að
leika í Þýzkalandi
— Ég er metnaðarfullur að eðlis-
fari og mér er það ekkert launungar
mál að upp úr miðju islandsmótinu I
fyrra stefndi ég ákveðið að þvl að
verða markakóngur mótsins.
Auðvitað er ég afskaplega ánægður
með að það skyldi takast. Orð þessi
mælti hinn ungi leikmaður Þróttar,
Friðrik Friðriksson, I viðtali við
Morgunblaðið eftir að hann hafði
tekið við verðlaunum blaðsins sem
markakóngur islandsmótsins ! hand-
knattleik 1976. Friðrik sagðist
reyndar ekki hafa skorað mörg mörk
i leikjum sinum til að byrja með. —
Þegar ég var i 3. og 4. flokki skoraði
ég eitt til tvö mörk í leik, eða álika
og aðrir, sagði hann. En i fyrsta leik
minum á seinna árinu í öðrum flokki
skoraði ég tiu mörk, og eftir það hef
ég átt velgengni að fagna í marka-
skoruninni. Sennileg ástæða þessað
mér gekk vel og skoraði mörg mörk
er sú að ég var búinn að æfa mig vel
og var orðinn mun sterkari likamlega
en ég hafði verið áður.
Athyglisvert er að Friðrik verður
markakóngur fyrsta veturinn sem
hann leikur í 1. deild, en sem
kunnugt er vann Þróttur sig upp í 1.
deildina vorið 1975, eftir að hafa
staðið á þröskuldi deildarinnar árið
áður, en tapað í úrslitaleik um sætið
við Gróttu. — Sá leikur var mér
mikil vonbrigði. sagði Friðrik, svo
Framhald á bls. 26
Pálmi Pálmason, Fram
ÞETTA HEFUR VERB EINSTAK-
LEGA SKEMMTILEGT SUMAR
INGI Björn Albertsson, fyrirliði Vals, hlaut báða bikarana, sem Morgunblaðið veitti ffyrir
góða frammistöðu I íslandsmótinu I knattspyrnu í sumar. Hann varð stigahæstur I
einkunnagjöfinni og hlaut mjög maklega titilinn „Leikmaður íslandsmótsins." Þá varð
hann langmarkahæsti leikmaður mótsins með 16 mörk og tók þvi einnig markabikarinn.
Það heffur ekki gerzt fyrr að sami knattspyrnumaðurinn hafi ffengið báða Morgunblaðs-
bikarana, en það heffur gerzt í handknattleiknum. Ingi Björn er 23 ára gamall,
skriffstoffumaður hjá heildverzlun föður slns, Alberts Guðmundssonar. Unnusta Inga er
Magdalena Kristinsdóttir frá Stykkishólmi. Þau eiga eina dóttur, Kristbjörgu Helgu, 1 Vz
árs. í tilefni af afhendingu Morgunblaðsverðlaunanna á föstudaginn ræddi blaðamaður
við Inga Björn.
,.Ég er vissulega mjög stoltur yfir því að hafa unnið til þessara verðlauna Þau eru ekki svo
mörg verðlaunin sem við flokkaíþróttamenn getum unnið til. Hitt er svo annað mál hvort
maður er verðugur þessara verðlauna. Um það verða aðrir að dæma en ég.” sagði Ingi Björn í
upphafi samtalsins. Og því næst var hann spurður um hið viðburðaríka keppnistimabil, sem
nú er á enda
„Þetta er örugglega eftirminnilegasta sumarið sem ég hef leikið með Val," sagði Ingi Björn
,,Við höfum alltaf verið mjög bjartsýnir í upphafi keppnistímabils og við vorum einnig
bjartsýnir í vor. Við höfum alltaf vitað hvað bjó í liðinu en dæmið hefur bara aldrei gengið upp
fyrr en núna í sumar. Við lékum árangursríka sóknarknattspurnu, eins og berlega sést á
markatölunni okkar og vörnin stóð sig mjög vel. Sumarið hefur verið einstaklega skemmtilegt
og verður okkur Valsmönnum vafalaust ofarlega i huga þegar fram i sækir."
En hverjar voru nú ástæðurnar fyrir því að svona vel gekk?
„ Númer eitt var það þjálfarinn okkar, Yuori llitchev. Hann er vafalaust bezti þjálfarinn sem
hér starfar núna. Hann innleiddi aftur sóknarknattspyrnuna, sem hann lét Valsliðið leika tvö
fyrri árin sem hann var hér Þessi tegund af knattspyrnu á miklu betur við Valsliðið en „kick
and run” knattspyrnan, sem ensku þjálfararnir, og þar á meðal Joy Gilroy, hafa verið með en
Gilroy þjálfaði okkur einmitt í fyrra. Sú knattspyrna sem við lékum í sumar, var miklu
skemmtilegri, bæði fyrir okkur og áhorfendur og hún var árangursrikari. Annað atriði sem
vegur þungt á metunum þegar sumarið er gert upp, er hinn mikli áhugi hjá strákunum í
liðinu. Æfingasókn var mjög góð og liðsandinn alveg einstakur.”
Aðspurður um eftirminnilegasta leikinn i sumar og eftirminnilegasta markið svaraði Ingi
Björn: „Leikirnir þrir við Akurnesinga eru mér eftirminnilegastir frá sumrinu Þetta voru allt
saman hörkuleikir og við höfðum sigur i þeim öllum. Fyrsta leikinn unnum við 6:1 i
Reykjavík, Annan leikinn unnum við 3:1 á Akranesi og loks unnum við þá i úrslitum
bikarkeppninnar 3:0. Samanlögð markatala í leikjunum er þvi 1 2:2 og þegar haft er i huga að
þetta var á móti íslandsmeisturunum frá í fyrra er ekki nema.von að þessir þrir leikir séu
manni efstir í huga Nú ef ég renni huganum yfir mörkin, þá held ég að markið sem ég gerði á
móti Víkingum i seinni umferðinni sé mér minnisstæðast. Ég skaut af 30—3 5 metra færi og
boJtinn hafnaði alveg efst í markhorninu, sannkallað draumamark Einnig er markið sem ég
gerði á móti Fram í seinni umferðinni minnisstætt ekki vegna þess að það hafi verið fallegt
heldur vegna aðdragandans. Framararnir héldu sig hafa heyrt flaut og stoppuðu og var það
því létt verk að renna boltanum i netið ”
Hvað fannst svo Inga um knattspyrnuna í sumar? „Hún var nokkuð misjöfn eftir því hvaða
lið áttu í hlut. Efstu liðin spiluðu ágæta knattspyrnu en neðstu liðin, og þá sérstaklega Þróttur
og FH, spiluðu gjörólíka og miklu lakari knattspyrnu Ég hef þá trú að þetta lagist næsta
sumar. Upp koma tvö lið, Vestmannaeyjar og Þór á Akureyri, lið sem ég hef trú á að leiki góða
og skemmtilega knattspyrnu FH-ingarnir geta lika spilað vel og ég er trúaður á það að
íslandsmótið geti orðið mjög skemmtilegt næsta sumar.”
. Og hvað um Valsliðið næsta sumar?" „Ég veit ekki betur en allir þeir, sem voru með
Valsliðinu i sumar ætli sér að verða með næsta sumar þannig að liðið verður alla vega ekki
lélegra og vonandi verður það betra Við stefnum að þvi að endurtaka leikinn frá í sumar og
svo verðum við með í Evrópukeppninni Ég er trúaður á að að liðið standi sig vel í
Evrópukeppninni næsta sumar ” Landsliðið? „Ég vil nú sem minnst tala um þau mál," sagði
Ingi Björn ” „Ég er mjög leiður yfir því hvernig þessi mál þróuðust i sumar. Ég hafði fullan
hug á því að vera með í landsleikjunum og var staðráðinn í því að standa mig vel i þeim En
það var ekki annað að gera en draga sig til baka, eftir þá niðurlægingu sem Tony Knapp sýndi
mér í landsleiknum við Belgiu Ég tel ekki rétt að vera að svara öllu því sem Tony Knapp hefur
látið hafa eftir sér um þetta mál i blöðunum. Ég vil aðeins segja það að það er óskiljanleg lygi
hjá honum, að ég hafi hlaupið grátandi til blaðanna eftir leikinn við Belgiu. Þetta er helber lygi
og ummælin lýsa manninum bezt.”
í byrjun íslandsmótsins átti Ingi
Björn við erfið veikindi að striða, sjúk-
dóm i liðamótum, og missti hann úr 3
fyrstu leikina. Aðspurður kvaðst Ingi
halda veikindunum i skefjum með lyfj-
um en bata hefur hann ekki fengið.
Þegar Ingi var spurður um hugsanlega
atvinnumennsku i knattspyrnu sagði
hann að hann hefði engin slik boð
fengið, „en vissulega mun ég hugleiða
vandlega atvinnuboð ef mér berst slikt
boð. Þetta er eins og hvert annað
atvinnuboð, sem maður tekur ef manni
lizt vel á það ”
Ingi Björn Albertsson gekk i Val 5
ára og hefur siðan leikið með öllum
flokkum félagsins, nema 1. flokki.
Hann komst i meistaraflokk 1970 og
hefur leikið flesta leiki flokksins siðan,
eða milli 140 og 150 leiki Ekki heur
hann tölu á mörkunum, nema hvað 1
deildarmörkin eru orðin fleiri en 50.
Sumarið 1973 var Ingi við nám i
Framhald á bls. 26
Ingi Björn Álbertsson, Val
Félagar mínir veittu mér öflugan
stuðning til að ná verðlaununum
— ÉG át!t þessi verðlaun vera hápunktinn
á ferli minum sem handknattleiksmaður,
og ég hef sjaldan verið stoltari en er ég tók
við þeim, sagði Pálmi Pálmason, hand-
knattleiksmaður úr Fram. i viðtali við
Morgunblaðið eftir að hann hafði veitt
verðlaunum sinum sem „Leikmaður
jslandsmótsins 1976" viðtöku s.l. föstu-
dag. — En þvi má ekki gleyma að félagar
minir i Fram eiga sinn þátt i þessum heiðri
mlnum, sagði Pálmi. — Þeir studdu mig
geysilega vel í mótinu i fyrra og sýndu mér
mikið traust. Traust þeirra varð öðru frem-
ur til þess að mér tókst að hreppa þessi
verðlaun og sæmdarheitið, en þegar leið á
mótið i fyrra og Ijóst var að ég ætti
möguleika á að hreppa verðfaunin, keppti
ég mjög ákveðið að þvi að ná þeim. En ég
var örugglega ekki einn um það.
Einkunnagjöf Morgunblaðsins hefur verið
leikmönnum mikil hvatning og þeir sem
eiga möguleika á að ná verðlaununum
leggja sig auðvitað alla fram til þess að
hreppa þau. Nú vil ég nota tækifærið til
þess að færa félögum minum þakkir fyrir
traustið sem þeir sýndu mér og aðstoðina
sem þeir veittu mér til þess að ná þessum
eftirsóknarverðu verðlaunum.
Pálmi sagði að síðasta keppnistimabil
hefði orðið sér nokkur vonbirgði að öðru
leyti. — Ég átti von á þvi að Fram næði
betri árangri en raun varð á, sagði hann.
— Í liði okkar eru margir ungir leikmenn
og reynsluleysi þeirra hefur sjálfsagt ráðið
nokkru um að okkur tókst ekki að vinna
neinn titil á keppnistimabilinu, auk þess
sem vel kann að vera að við sem erum
eldri og reyndari höfum ekki staðið okkur
nógu vel. En ég hef mikla trú á Framliðinu
i vetur. Piltarnir sem komu inn i liðið I
fyrra hafa nú öðlazt dýrmæta reynslu og
vist er að hæfileikana skortir þá ekki.
I
Þegar Pálmi var spurður um álit á stöðu
handknattleiksins á íslandi um þessar
mundir, svaraði hann:
— Það hefur áður komið fram hjá mér
að ég er óánægður með hvernig forystan
hefur staðið að málum, sérstaklega hvað
landsliðið varðar. Ég álit, að frammistaða
landsliðsins hafi gifurlega þýðingu fyrir
handknattleikinn I heild. Standi það sig
vel. þá er keppnin i Íslandsmótinu jafn-
framt betri og áhugi áhorfenda á iþróttinni
yfirleitt miklu meiri og betri. Það er nánast
furðulegt þegar maður heyrir þá yfir-
ýsingu frá mönnum sem standa i farar-
broddi i félagasamtökum iþróttarinnar að
við séum á mjög lágu plani. Slikt örvar
ekki íþróttamennina né heldur áhugafólk-
ið. Þá tel ég að stefnuleysið hafi verið
alltof mikið i málefnum landsliðsins og
reginmistök hafi verið gerð er Viðari
Simonarsyni var gert ókleift að starfa sem
landsliðsþjálfari. Hann hafði sýnt það með
frammistöðu íslenzka landsliðsins i
Ólympiuleiknum við Júgóslava úti í
Júgóslaviu að hann var að ná árangri, og
það var engin ástæða til þess að ætla
annað en að hann héldi áfram á þeirri
braut. Nú er það helzta vonin að pólski
landsliðsþjálfarinn nái að rifa starfið upp,
og ég geri mér vonir um að maður með
hans reynslu og þekkingu nái þvi bezta út
úr islenzkum handknattleik sem unnt er
að ná.
Þrátt fyrir að Pálmi Pálmason hafi sýnt
og sannað að hann sé verðugur landsliðs-
maður hefur hann oftast staðið fyrir utan
islenzka landsliðið i handknattleik, bæði
vegna þess að hann hefur ekki gefið kost á
sér að leika með þvi og eins vegná þess að
hann hefur ekki verið valinn. Pálmi var
spurður að þvi hvort hann hefði ekki
áhuga á að taka þátt i starfi landsliðsins?
— Það eru ýmsar ástæður fyrir fjarveru
minni frá landsliðsinu. En nú þegar pólski
þjálfarinn tekur við þá geri ég mér vonir
um að hann velji sjálfur liðið og tilnefni
menn i það vegna getu þeirra en einskis
annars. Telji hann að not sé fyrir mig í
landsliðinu er ég fús til þess að æfa og
keppa undir hans stjórn. Ég held að allir
islenzkir handknattleiksmenn hafi trú á
þvi að hann nái þvi bezta fram, og þeir hafi
áhuga á að æfa undir hans stjórn.
P'lmi var spurður að þvi hvort ekki
hefði hvarflað að honum að feta i fótspor
þeirra islenzku leikmanna sem flutzt hafa
til Þýzkalands að undanförnu og freistað
gæfunnar i iþrótt sinni þar.
— í fyrsta lagi held ég að ég sé ekki
þannig leikmaður að ég gangi í augun á
þeim sem hafa með liðin þar að gera.
svaraði Pálmi. Ég hef reyndar litið keppt
erlendis, og hef engin tilboð fengið frá
erlendum liðum. Fengi ég slikt tilboð býst
ég við að ég myndi hafna þvi. Ég er of
rótgróinn Framari og íslendingur til þess
að láta undan slikri freistingu.
STIGAHÆSTIR I KNATTSPYRNU
EFTIRTALDIR knattspyrnumenn hlutu bezta
meðaltal f einkunnagjöf Morgunblaðsins fyrir 1.
deildar keppnina f sumar:
Stig Leikir Meðaltal
Ingi Björn Albertsson, Val 42 14 3,00
Ásgeir Elfasson, Fram 46 16 2,87
Karl Þórðarson, tA 46 16 2,87
Einar Þórhallsson, UBK 45 16 2,81
Hermann Gunnarsson, Val 43 16 2,68
Dýri Guðmundsson, Val 42 16 2,62
Guðmundur Þorbjörnsson, Val 42 16 2,62
Jóhannes Guðjónsson, t A 31 12 2,58
Halldór Björnsson, KR 30 12 2,50
Jón Gunnlaugsson, ÍA 40 16 2,50
Ingi Björn Albertsson — „Leikmaður tslandsmóts-
ins 1976“ og markakóngur í landsleik við Luxem-
burgara s.l. sumar.
MARKHÆSTIR í KNATTSPYRNU
Eftirtaldir leikmenn urðu markhæstir f tslands-
mótinu f knattspyrnu s.l. sumar:
Ingi Björn Albertsson, Val 16
Guðmundur Þorbjörnsson, Val 11
Hermann Gunnarsson, Val 11
Kristinn Jörundson, Fram 10
Hinrik Þórhailsson, UBK 9
Teitur Þórðarson, t A 8
Verðlaunamenn Morgunblaðsins
EFTIRTALDIR handknattleiks- og knattspyrnu-
menn hafa verið valdir „Leikmenn tslandsmótsins“
frá því að Morgunblaðið tók upp einkunnagjöf sína
fyrir 1. deildar leiki í fþróttagreinum þessum:
KNATTSPYRNA:
1971: Jón Alfreðsson, tA
1972: Eyleifur Hafsteinsson, tA
1973: Guðni Kjartansson, ÍBK, og Einar Gunnars-
son, tBK
1974: Jóhannes Eðvaldsson, Val
1975: Marteinn Geirsson, Fram, og Jón Alfreðsson,
t A
1976: Ingi Björn Albertsson, Val.
HANDKNATTLEIKUR:
1972: Geir Hallsteinsson, FH
1973: Ólafur H. Jónsson, Val
1974: Viðar Sfmonarson, FH
1975: Hörður Sigmarsson, Haukum
1976: Pálmi Pálmason, Fram.
Frá því að Morgunblaðið byrjaði að veita marka-
kóngi f tslandsmótinu f handknattleik og knatt-
spyrnu verðlaun hafa þau fallið f hlut eftirtalinna:
KNATTSPYRNA:
1971: Steinar Jóhannsson, tBK
1972: Tómas Pálsson, tBV
1973: Hermann Gunnarsson, Val
1974: Teitur Þórðarson, tA
1975: Matthfas Hallgrfmsson, t A
1976: Ingi Björn Albertsson, Val
HANDKNATTLEIKUR:
1972: Geir Hallsteinsson, FH
1973: Einar Magnússon, Vfkingi
1974: Axel Axelsson, Fram
1975: Hörður Sigmarsson, Haukum
1976: Friðrik Friðriksson, Þrótti.