Morgunblaðið - 12.10.1976, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1976
37
— Minning
Sigurður
Framhald af bls. 15
þess sem hann hafði unnið í vega-
vinnu á skólaárum sínum undir
stjórn eins besta vegaverkstjórá
landsins, Jóhanns Hjörleifssonar,
föóur síns.
Honum voru því vel kunn hin
margvíslegu störf innan stofnun-
arinnar, enda hægri hönd þáver-
andi vegamálastjóra um það er
varðaði vegagerð í mörg ár.
Honum reyndist því strax auð-
velt að halda um stjórnvölann og
gerði sér far um að fylgjast vel
með öllum helstu framkvæmdum
sem unnið var að, enda þekkti
hann sérstaklega vel til staðhátta
hvar sem var á landinu.
Hann fylgdist vel með þróun
tæknimála og sá um, að starfs-
menn hans öfluðu sér upplýsinga
og þekkingar á þeim nýjungum,
sem íslenskri verkmenningu
mætti að gagni verða.
Hann var formaður íslands-
deildar Norræna vegtæknisam-
bandsins frá 1957 og stuðlaði að
þvi, að íslenskir vegagerðarmenn
héldu nánu sambandi við starfs-
bræður sina á Norðurlöndum og
reyndar víðar.
Undir stjórn hans ávann Vega-
gerðin sér traust hérlendra og er-
lendra ráðamanna, og má til
marka um það nefna, að þegar
Alþjóðabankinn veitti lán til lagn-
ingar varanlegra vega hér á landi,
viðurkenndu starfsmenn hans ís-
lenska verkfræðinga og verktaka
einfæra um að annast undirbún-
ing og framkvæmdir við þau verk,
sem fyrirhuguð voru.
í samræmi við kröfur timans
beitti Sigurður sér fyrir víðtæk-
um breytingum á skipulagi stofn-
unarinnar, sem m.a. fólu í sér
flutning mikils hluta tækniliðsins
frá Reykjavik út á land. Vega-
gerðin hefir nú miðstöðvar í öll-
um landshlutum i þeim tilgangi
að auðvelda þjónustu Vegagerðar-
innarvið almenning.
Sigurður vann af elju og alúð og
lét aldrei freistast til að slaka á
settum reglum til að létta sér
starfið. Það fór ekki hjá þvi, að
svo fjölhæfum og duglegum
manni væru falin margs konar
trúnaðarstörf í nefndum og
stjórnum, enda var hann áhuga-
samur um margt. Vinnudagur
hans var því langur og sjaldnast
entust honum virkir dagar einir
til að ljúka því sem hann taldi sig
þurfta. Þótt hann hampaði ekki
vandamálum sínum og áhyggjum
var honum mikill stuðningur í
traustum vinahópi og þó fyrst og
fremst í konu sinni, Stefaníu
Guðnadóttur og syni sinum Skúla.
Með þeim kaus hann að eyða sem
flestum frístundum sinum, oft við
útivistir.
1 vinahópi var hann hrókur alls
fagnaðar og þegar ég skoða hug
minn eftir 30 ára samstarf með
Sigurði, eru mér ekki siður hug-
þekkar þær samverustundir, þeg-
ar hann hafði varpað frá sér
áhyggjum og lék á alls oddi i
kunningjahópi.
Nú þegar hann er skyndilega
horfinn sjónum vil ég fyrir hönd
okkar vegagerðarmanna votta
ekkju hans og ungum syni samúð.
Jafnframt þakka ég fyrir einlæg-
an vinarhug I minn garð.
Snæbjörn Jónasson.
í DAG kveðjum við samferða-
manninn Sigurð Jóhannsson,
vegamálastjóra.
Sigurður var einn af þeim
mönnum, sem' gott er að hafa
kynnzt. Hann var snaggaralegur
að yfirbragði, og við nánari kynni
reyndist hann hreinn og beinn og
drengur góður. Hann var að mínu
mati frábær embættismaður,
röggsamur stjórnandi og vel
heima i fagi sínu, verkfræðinni.
Þekkingarsvið hans var ótrúlega
vítt, enda var hann opinn fyrir
umhverfi sinu og forvitinn um
alla hluti. Hann hafði næmt auga
fyrir hinu spélega i tilverunni og
sagði skemmtilega frá. Þessir
eóliskostir, samfara eðlislægri
háttvisi og því að hann naut sam-
vista við fólk í rikum mæli, hófu
hann upp úr mergðinni og gerðu
hann eftirminnilegan.
Sigurð sá ég fyrst á mennta-
skólaárum minum. Þá var
Stefanía kona hans ritari rektors.
Allir I skóla vissu hverja mann-
kosti Stefania hafði til að bera og
mönnum lék mikil forvitni á að
vita nánar um hennar ektamann.
Siðar á lifsleiðinni lágu leiðir
okkar saman. Var það fyrst og
fremst í starfi Norræna vegtækni-
sambandsins. Þar var Sigurður
formaður íslandsdeildarinnar, og
talsmaður okkar á þingum með
starfsbræðum okkar á Norður-
löndum i sfjórn Vegtæknisam-
bandsins. Þá komst maður og að
raun um að mikið jafnræði var
með þeim hjónum, og jafnframt
að þar átti ísland verðuga tals-
menn.
Mikil og djúp vinátta hefur
tekizt í þeim hópi, þar ríkir hinn
sanni norræni bræðrahugur, sem
sýnir í verki að norrænt samstarf
er ekki aðeins orðin tóm. Ómælt
er það gagn er vér vegágerðar-
menn hér á landi höfum haft af
þessu norræna samstarfi og er
það ekki sizt að þakka Sigurði.
Með mannkostum sínum lyfti
hann okkar fámennu þjóð í æðra
veldi, sem við hinir höfum notið
góðs af. Bræður okkar handan
Atlantsáia trega nú góðan dreng
eigi síður en við hér heima.
Það er mikill skaði fyrir þjóð
vora aó missa slikan afburða-
mann i blóma lifsins. Mestur er
þó missir ástríkrar eiginkonu og
sonar þeirra Skúla.
Megi Drottinn veita þeim styrk
í sorg þeirra.
Þórður Þ. Þorbjarnarson,
borgarverkfræðingur.
— Jónasi boðið
Framhald af bls. 17.
aðeins heimsfræga menn, eða
menn þekkta heimafyrir. Nú,
galleriin verða að standa á eigin
fótum fjárhagslega, þannig að
mikið fé fer óhjákvæmilega í
umboðslaun, en samt hefur þetta
aó frádregnum sköttum ytra get-
að staðið undir sér nokkurn veg-
inn fram til þessa, og meðan svo
er, þá sé ég ekki ástæðu til þess að
leggja árar í bát.
Ég held að t.d. Islenzkir mynd-
listarmenn geri of lítið af þvi að
sýna erlendis. Heimurinn hefur
skroppið saman. Það er ekki
lengur það fyrirtæki sem það var
að skreppa með sýningu yfir poll-
inn. Sumir islenzkir málarar eru i
mjög miklu áliti erlendis og
seljast á toppverði, t.d. Svavar
Guðnason, sem er einn þekktasti
abstraktmálarinn í Danmörku af
útlendingum að vera. Eftir hann
fá færri myndir en vilja, og sein-
ast þegar hann sýndi á sam-
sýningu þar, sex myndir, seldust
þær á auga bragði við opnunina.
Svavar er auðvitað óvenju snjall
málari, en samt sýnir þetta okkur
að unnt er að ná fótfestu erlendis,
ekki síður en hér heima.
Spónasugur
og
Rykhreinsar-
ar
Fyrirliggjandi
Iðnvélar h.f.,
Hjallahrauni 7//
sími 52224.
Ingvar Böðvarsson
Brúarholti - Minning
F. 27. október 1963
D. 10. september 1976
Kveðja frá Ljósafossskóla
Hljóður og kyrrlátur var fyrsti
skóladagurinn i haust. Sár sorg
vegna láts elskulegs skólabróður
og nemanda bjó I hug allra og
birtist bæði i fasi og svip. Allir
lögðu sig fram um að vera góðir
og ljúfir eins og til að þakka
skaparanum lif og heilsu. Betur
varð Ingvars ekki minnst. Honum
virtist svo eiginlegt að vera ljúfur
og góður. Framkoma hans var
alltaf sérstaklega falleg og hlý
bæði í kennslustundum og á
leikvelli. Hann var félagslyndur
og jákvæður í öllum samkiptum,
virtist alltaf glaður og þó prúður
og var vinsæll af öllum.
Ingvar var mjög samvisku-
samur í námi og kröfuharður um
eigin verk. Árangurinn varð líka
eftir þvi. Allt handbragð hans var
frábært. Hann var skapmikill, en
þó Ijúfur í skapi, mentaðargjarn,
en þó hlédrægur, óvenju næmur á
fegurð, hafði sérstakt yndi af
blómum svo og tónlist og öllu þvi
er var fagurt.
Þegar ég lít til baka, finnst mér
þessi næma og rika fegurðarþrá
ásamt einstaklega fallegri fram-
komu risa hæst í minningunni um
þennan yndislega dreng.
Ingvar var sonur hjónanna
Steinunnar Ingvarsdóttur og
Böðvars Guðmundssonar og var
næstyngstur fimm systkina. Hann
ólst upp við ástriki foreldra og
mikla kærleika afa og ömmu,
bæði á Efribrú og í Þránadar-
holti. Megi góður guð létta ástvin-
um sáran harm.
Vió sem nú sjáum á bak yndis-
legum skólabróður og nemanda,
þökkum liðnar samverustundir og
geymum í hjörtum okkur dýrar
minningar um þennan bjarta
svein.
Blessuð sé minning hans.
Böðvar Stefánsson.
,JEn meðan árin þreyta hjörtu hinna.
sem horfðu á eftir þér I sárum trega,
þá blómgast enn og blómgast ævinlega
þitt bjarta vor ( hugum vina þinna.“
Svo segir Tómas frændi Ingvars
i minningarljóði eftir látinn
skólabróður. Við ástvinir Ingvars
urðum harmi slegnir er hann
hvarf okkur. En Guð ræður, við
erum svo oft minnt á það að lífió
fer á annan veg, með ólíkum
hætti, ekki eins og við viljum,
heldur er það eins og kallað í
hvern og einn þegar hans timi er
kominn, til fullkomnara eilífs lifs.
En við munum ævinlega eiga
minninguna um hugljúfa, prúóa
og fallega drenginn, sem var hrif-
næmur á allt sem fagurt er, nær-
gætinn við allar skepnur og dug-
legur i leik og starfi svo hann
vann oft meira en af honum var
krafist. Framhald á bls. 38
prestolite
„AukiS afl"
með
„Thundervolt"
kertum.
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
KERFIÐ
INNHVERF ÍHUGUN
TRANSCENDENTAL MEDITATION
PROGRAM
Almennur kynningarfvrirlestur veróur haldinn aó
Hverfisgötu 18 (beint á móti þjóóleikhúsi), á
morgun, mióvikudag kl. 20.30.
Sýndar verða m.a. vfsindalegar rannsóknir um gildi
tækninnar fyrir andlegan og Ifkamlegan þroska
einstaklingsins.
Maharishi Mahesh Yogi
Húsbyggjendur — ofnar
Panel miðstöðvarofnar allar stærðir. Stuttur afgreiðslufrestur. hugsanlegar
Einnig mjög ódýrir ofnar í iðnaðarhúsnæði og
bílskúra. Ofnar
Ármúla 28, sími 37033.
Starfsþjálfunar-
námskeið V.R.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur vill hjálpa félagsfólki sínu til að verða
hæfari og ánægðari starfskraftar með þvf að taka þátt í Starfsþjálfunar-
námskeiði V.R. í samvinnu við Stjórnunarskólann Námskeiðið hefst
miðvikudaginn 20. október kl. 9—11 f.h. og verður í fimm skipti á
miðvikudagsmorgnum:
Til þess að gera þér þátttökuna auðveldari ætlar V.R. að greiða
helminginn af þátttökugjaldinu fyrir sína félagsmenn.
D.C. starfsþjálfunarnámskeiðið er hnitmiðuð þjálfun,
skipulögð til að bæta umgengni starfsfólks gagnvart
hvort öðru, stjórnendum fyrirtækisins og viðskiptavinum.
ir Námskeiðið fjallar m.a. um eftirfarandi atriði:
+ Betrí skilning á sjálfum sér og öðrum
if Að gera starfið skemmtilegra
if Þýðingu þess að veita viðurkenningu fyrir vel unnin
störf.
if Hvernig muna á mannanöfn.
if Áarangsrik skoðanaskipti
if Hvernig á að bregðast vinsamlega við kvörtunum.
if Hvernig unnt er að vera virkur hlustandi
if Hvernig á að auka eldmóðinn.
Innritun og upplýsir.gar i síma V R 26344 eða hjá
Stjórnunarskólanum í sima 82411 Verzlunarmannafélag Reykjavíkui