Morgunblaðið - 12.10.1976, Page 39

Morgunblaðið - 12.10.1976, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1976 39 Amnesty — uppgjöf saka Amnesty þetta forna fallega útlenda orð er eiginlega nýtt á vörum íslendinga. Hin raun- verulega merking þess er „ást- úðleg gleymska" eða nákvæm- lega sama hugsun og f orðinu miskunn. Sá sem veitir Amnesty gleym- ir eða lofar að gleyma öllum sökum og ásökunum í krafti kærleikans og veita hinum seka fulla uppreisn og mannréttindi, eins og afbrot hans hefðu aldrei verið framin. En miskunn býður að láta og lifa eins og afbrotið hafi ekki þekkzt eða nokkuð um það kunnugt. Amnesty hefur þvf eina feg- urstu merkingu og er að verða ein helgasta hugsjón mann- kyns. Þar er einkum um stjórn- málalegar sakir og sams konar sakaruppgjöf að ræða. En gagn- vart svonefndum pólitískum glæpum rfkir svo afstætt mat við gluggann eftirsr. Árelíus Nielsson bæði almennings og dómstóla, að segja má, að annar aðili telji svartasta glæpinn það, sem hinn telur hetjulegasta afrekið. Mannkynssagan öll hefur til skamms tfma verið skrifuð og kennd út frá slikum sjónarmið- um viðvíkjandi réttlæti. Og er því hægt að sanna fræg- ustu stjörnur til dæmis hers- höfðingja og stjórnmálafor- ingja allt frá Alexander mikla til Eisenhowers, sem hryllileg- ustu hópmorðingja og glæpa- menn. Því veitir sannarlega ekki af að alþjóðleg sakaruppgjöf — Amnesty International komi til skjalanna ekki sízt gagnvart þeim, sem eru þúsund sinnum minna sekir miðað við fjölda- morð og eyðingu lffs og verð- mæta. Amnesty-hugsjónin f fram- kvæmd sem gleymska saka á langa og merkilega sögu eink- um stjórnmálalega. Oftast er hér um nokkurs konar samning eða þjóðlega heimild að ræða, yfirlýsta ákvörðun um að gleyma rang- indum og fjandskap liðtos tíma, finna vingjarnlega grundvöll til samkomulags og hverfa frá refsingum á hendur þeim, sem teljast sekir um pólitísk afbrot og glæpi. Grikkir eða Aþenumenn eiga þarna fyrsta heiður slíkrar saka-uppgjafar f sögu mann- kyns. Enda mun orðið og hug- takið mótað á þeirra tungumáli eins og fleira fagurt og gott. Þetta var árið 404 f. kr. þegar Thrasybulos lýsti yfir sakar- uppgjöf, 30 harðstjóra sem biðu dauðans, ef ég man rétt. Svipað var til í lögum Rómverja. Og f friðarsamningum eftir 30 ára strfðið milli Svfa og Þjóðverja voru ekki einungis gefnar upp sakir eða þær taldar gleymdar, heldur átti einnig að bæta fjár- bótum þeim, sem orðið höfðu fyrir eignamissi í styrjöldinni. Svipað átti sér stað f friðar- samningum f Vfnarborg 1815 og í Frankfurt árið 1871, þá milli Frakka og þjóðverja og svo milli Breta og búa í Suður- Afrfku. Amnesty hefur einnig oft átt sér stað milli andstæðinga í borgarastyrjöldum og jafnvel valdamikilla einstaklinga, svo sem þegar Charles 2 f Englandi fyrirgaf föðurmorðingjum sfn- um 1660, og milli Napoleons og Talleyrands 1815, einnig í Bandaríkjunum 1867 og 1868. Eftir heimsstyrjaldirnar um miðja þessa 20. öld voru jafnvel milljónum gefnar upp sakir í ýmsum tilvikum og mörgum löndum. Gegn þessum aðgerðum hafa þó Sovétrfkin staðið lengi, en þó munu margir af þeim 100 þúsund striðsglæpamönnum, sem þar áttu hlut að máli hafa verið leystir úr haldi gegnum árin. Þetta er þvf í stuttu máli saga þessarar hugsjónar mannúðar og mildi, sem fáa hefur iðrað. Nú hafa nýlega verið stofnuð samtök hér á Islandi til stuðn- ings þessari hugsjón — hin fs- lenzka deild Amnesty Inter- national 1974. Hornsteinn þeirrar starfsemi hér er tjáður með orðum Vol- taires: „Ég fyrirlít skoðanir þínar, en ég er samt reiðubúinn til að láta lff mitt f sölurnar fyrir rétt þinn til að tjá þær.“ Þessi Alþjóðasamtök um upp- gjöf saka voru stofnsett sem slík árið 1961 í þeirri sannfær- ingu að allir eigi rétt til að segja meiningu sína og beri skylda til að veita öðrum sama frelsi. Þau berjast undir merkjum Mannréttindayfirlýsingar Sam- einuðu þjóðanna og vinna á þvf: 1. Að fangar sem eru f prfs- und vegna skoðana, séu leystir og fjölskyldum þeirra hjálpað. 2. Berst gegn dauðarefsingu, pyntingum og misþyrmingum. Amnesty International sam- tökin taka ekki sérstakt tillit til trúarbragða né stjórnmálaskoð- ana, litarháttar, tungumála né þjóðflokka, og þau starfa ekki á vegum ríkisins í neinu landi. ^au starfa nú þegar f 31 landi og 1600 starfshópum. Innan Is- landsdeildar eru tveir slíkir hópar. Hver starfshópur hefur 3 fanga að sérstökum skjólstæð- ingum víðsvegar um veröldina. Fjármagn Amnesty er eflt með framlögum starfshópa og landsdeilda, gjöfum áhugafólks um víða veröld og frjálsum framlögum hugsjónamanna. Það er því nauðsynlegt, að sem flestir skilji og þekki þessa mannúðarstarfsemi og leggi fram sfnar fórnir á altari misk- unnseminnar. Nauðsynlegt er að fylgjast með öllu réttlæti eða ranglæti til fjarlægra landa og álfa, kynna málin í fjölmiðlum, skrifa bréf og beiðnir, senda fulltrúa og sendinefndir milli landa, fylgjast með réttarhöld- um, kynna sér fangavist f fjöl- mörgum löndum, aðbúnað fanga og aðstöðu alla, og vita sem mest um fjölskyldur þeirra og fortfð. Verkefnin eru því mörg og margvísleg. Þar gildir f öllu hin skýra og stuttorða fyrirskipun Meistarans mikla: Vakið. Amnesty International starf- ar undir forýstu alþjóðlegs ráðs, sem heldur ársmót. Aðalskrifstofan er f London. Aðalritarinn heitir Martin Enn- als. Forstöðumaður á tslandi er Hilmar Foss, Hafnarstræti 11 Reykjavík. Styðjum sem flest á einhvern hátt þessi samtök miskunnsem- innar. Berjumst gegn ranglæti, kúgun og grimmd. Reykjavík 28/9 1976/ Árelfus Nfelsson. • l+': -L Nýtt námskeið hefst 18. október. Síðasta námskeiðið fyrir jól, 7 vikur. j Dag- og kvöldtímar Leikfimi — sauna — sturtur — Ijós — sápa — shampoo og ^ olíur innifalið í verði. Frítt kaffi á eftir í notalegri setustofu. SÉRSTÖK MEGRUNARNAMSKEIÐ 4 SINNUM í VIKU. MEÐ VERÐLAUNUM FLUGFERÐ MEÐ FLUGFÉLAGI ÍS- LANDS FRÁBÆR ÁRANGUR HEFUR NÁÐST Á ÞESSUM MEGR- UNARNÁMSKEIÐUM. Nudd á boðstólum eftir leikfimitímana. Einnig sérstakir nuddtímar og nuddkúrar. Upplýsingar og innritun er hafin. Sími 42360 og 86178. Pantaðir tFmar óskast staðfestir. Suðurnesjakonur athugið Við verðum með megrunarleikfimi fyrir yfirvigt ( Sundlaug Ytri-Njarðvík. 2—4 sinnum ( viku, ef næg þátttaka fæst. Upplýsingar og innritun í sima 43724. tpa Heilsuroektin HEBA Auðbrekku 53 sími 42360 snjóhjólbardar á ótrúlega lógu verói eóa fró kr. 3.630- Audbrekku 44-46 - Simi 42600 .....................!...:.........y

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.