Morgunblaðið - 12.10.1976, Síða 44

Morgunblaðið - 12.10.1976, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKT0BER 1976 Sykurnáma Siggu gömlu Eftir Ann Richards Loks sagði Sigga gamla: „Máske eitthvað sé að frammi í eldhúsi — það er bezt að rannsaka þetta“. Og þá tístu fuglarnir ennþá hærra, og einn var næstum orðinn óður, svo mikið tísti hann. Sigga gamla smeygði sér í gamlan slopp og gekk að hurðinni, sem lá útí eldhús. En meðan á þessu stóð, hafði Alla árrisula byrjað að gruna, að ekki væri allt með feldu, staðið upp af tröppunum og opnað útidyrnar, svo að bæði hann og Sigga komu samtímis fram í eldhús. Gráálfurinn sat með krosslagðar fætur við iðju sína uppi á borði. Hann hafði heyrt tístið í fuglunum, en haldið, að þeir væru að rífast. Þarna yfirsást honum aftur því að það hefði hann átt að vita, að aðeins vont fólk, eins og hann sjálfur, rífst. Honum brá þess vegna ekki lítið í brún, þegar hann kom auga á Siggu gömlu og Alla. Hann renndi augunum til gluggans, en hann var lokaður. Og eins var með hurðina. Honum var engrar undankomu auðið. „Hvað ertu að gera, Gráálfur?" spurði Sigga gamla vingjarnlega. „Ég er að hreinsa diskana", laug hann. Sigga tók einn diskanna upp. Hann var óhreinn og kámugur. „Mér finnst þessi nú ekki svo hreinn“, sagði hún rólega og leit ásökunaraugum á Gráálf. Gráálfur vissi ekkert, hvað hann átti að gera. „Máske — máske er tuskan ekki nógu hrein“. Sigga gamla tók tuskuna af Gráálfi. „Þetta er skóþurrkan — jafnvel þú hlýtur að hafa séð það“, sagöi hún í ásökunarróm. Gráálfur varð ákaflega niðurlútur. Hann gat ekkert sagt. 5. „Og ég, sem var nýbúinn að þvo alla diskana", hrópaði Alli árrisuli reiðilega. Við byrjum bara á ísnum, því annars bráðnar hann. MEP MORÖíJK/ kAFF INU G RANI göslari Hér eru pylsur ekki seldar I metratali! Horfðu framan f mig, þegar ég tala við þig! Eg hélt við myndum eignast litsjðnvarp, áður en við eignuðumst þessa? Hann: Um hvað ertu að hugsa, Soffía? Hún: Æ, það var óttalega ómerkilegt Hann: Eg hélt að þú værir að hugsa um mig. Hún: Jú, þú átt kollgátuna. Húsbóndinn: Dýrtfðin vex. Við verðum að spara. Nú kaupir þú aðeins ódýra kjóla. Húsfreyjan: Þakka þér vinur minn, ég skal kaupa tvo á morgun. Frúin: Læknirinn segir að ég eigi að ferðast mér til heilsu- bótar. Hvert á ég að fara? Maðurinn: Til annars læknis. Móðirin: Mundu nú eftir því, Pétur, að þvo þér um hendurnar áður en gamli frændi kemur. Pétur: En ef hann skyldi nú ekki koma? Vinnukonan: Hér er kominn maður, sem vill fá að tala við prófessorinn. Prófessorinn: Segið honum eins og ég hef sagt yður, að ég sé á ferðalagi. Vinnukonan: Eg sagði honum það, en hann vildi ekki trúa þvf. Prófessorinn: Jæja, þá verð ég að fara og segja honum það sjálfur. Fangelsi óttans Framhaldssaga eftir Rosemary Gatenby Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 44 Ijós var f herberginu. Snyrtilega var búið um rúmið hans og engan var að sjá f herberginu. Svo kom hár og þrekinn maður- inn inn um svaladyrnar. — Góða kvöidið. Art Wheelokc hélt á skamm- byssu f hendinni. — Mér þykir leitt að ég skyldi ekki verða þeirrar ánægju aðnjót- andi að hitta yður f dag. Texashreimurinn var allt f einu horfinn og sykursætt viðmótið var ekki beinlfnis sannfærandi. — Ég skil það f jarska vel. Jack stóð hreyfingarlaus fyrir innan dyrnar. — Ég vildi Ifka óska að þér hefðuð faríð erindisleysu f þetta skiptið. — Ég spurðist fyrir um yður fyrr f dag og fékk að vita að þér hefðuð engin áform uppi um að halda héðan f dag. Svo að við verðum að breyta þvf.. Ilann leit á skrifborðið þar sem grein Ever- est lá. Hún hafði verið f umslagi sem hann hafði skilið eftir f skúffunní, þegar hann og Erin höfðu verið að tala saman. — Ég leit yfir greinina yðar, sagði hann. — Við óttuðumst að Everest myndi reyna að koma skilaboðum til yðar. Hamingjunni var svo fyrir að þakka að allt krot hans og endan- lega lausnin voru inni f herbergi Erins. Og það var eínnig léttir fyrir Jack að engan grunaði að Erin Bruce væri kominn inn f málið. — Ég hef gert nokkrar breyt- ingar til öryggis. Nú skuluð þér senda greinina til /blaðsins yðar með þeim boðum að óhætt sé að birta hana. Og það gerið þér um- svifalaust... Hann benti með byssunni á skrifborðið. — Við getum fengið skrifstofu hótelsins til að annast það sagði hann, meðan Jack skrifaði skila- boð til Tom Krug, skrifaði utan á umslagið og merkti það flugpóst. —Og nú förum við saman og afpöntum herbergið yðar. Þér segið að ég sé kominn hingað frá vini yðar, Ijósmyndaranum, og muni fara með yður á hans fund. Jack snarsnerist á hæli og lá við borð hann gleymdi skammbyss- unni, sem Wheelock hélt á f hendinni. — Vernon Fix? Hvar er hann? — Hann ákvað að fara til fjalla og taka myndir af kindunum. Það hljómaði næstum eins og það gæti verið satt. Það var alveg eftir Vern að láta sér detta slfkt f hug. Eini hængurinn á þessari skýringu var sá að hefðl Vern farið upp til fjalla hefði Art Whelocck ekki átt að hafa hug- mynd um það. Hann hafði verið staddur f Bandarfkjunun, þegar Vern hvarf sporlaust og sfðar voru liðnir allmargir dagar. — Við förum af stað til bæki- stöðva hans sfðdegis. Það er svo langt að við verðum að leggja af stað strax f kvöld. Eg er búinn að pakka föggum yðar saman. Hann benti á koffort Jacks. — Eg heiti annars Johnston, ef þér skylduð finna hjá yður þörf til að kalla mig með nmafni. — hvernfg vitið þér að ég var að leita að Vern? — Eg vissi að hann kom hingað og ekki var erfitt að reikna út að þér vilduð hafa tal af honum. — Ekki með skammbyssu. — Þér eigið engra kosta völ. Og reynið nú ekki að fá einhverjar eitursnjallar hugmyndir. Þér skuluð ekki halda að þér getíð sloppið frá mér meðan við erum að tala við mennina f mðttökunni. 1 fyrsta lagi hika ég ekki við að hleypa af og f öðru lagi mynduð þér þá aldrei fá að vita hvað hefur orðið af Ijósmyndaravininum yð- ar. Jack tók upp töskuna sfna. — Er hann á Iffi? — Það er nú einmitt það sem við eigum eftir að komast að, ekki satt? Þegar þeir komu niður stóð Míguel og hallaði sér upp að bfln- um. Jack vonaði af öllu hjarta að hann gæfi ekkert hljóð frá sér. Það var betra ef Wheelock vissi ekki hann ætti sér bandamann. Miguel kom auga á þá og gekk kringum bflinn. Jack hrukkaði ennið og hristi höfuðið eins Iftt áberandi og honum var unnt. Pilt- urinn gerði sér samstundis grein fyrir að eitthvað var ekki eins og það átti að vera og nam staðar. Hann beygði sig niður og þóttist vera að taka eitthvað upp sem hann stakk f buxnavasann sinn.— — Stráksi! sagði Whelock gremjulega. — Já, herra. — Ert þú bflstjóri hr. Seaver- ings? Hann leit snöggt á Jack og yppti öxlum. — Já, herra sagði hann og á eftir fylgdi orðaflaumur á spönsku. — llann þarf ekki lengur á yð- ur að halda, sagði Whelock. —Þér ættuð að greiða honum það sem þér skuldið. — Miguel ég þarf ekki á þér að halda lengur. Þegar Miguel stóð nú andspæn- is máli sem hann skildi ekki hvernig átti að leysa, leitaði hann á náðir móðurmáls sfns og var

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.