Morgunblaðið - 12.10.1976, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1976
47
Piltur og Stúlka, verður jólaleikrit útvarpsins ( vetur. Á myndinni eru
leikarar og leikst jórinn Klemenz Jónsson, og Garðar Cortes söngvari.
Sjö ísl. leikrit frumflutt
í hljóðvarpinu í vetur
Happdrættin
taka upp
tölvudrátt
HAPPDRÆTTI DAS, Happdrætti
Háskóla Islands og Vöruhapp-
drætti StBS hafa ákveðið að
stefna að þvi að taka upp útdrátt
vinninga með tölvu. Undirbún-
ingi að tölvudrætti í Happdrætti
Háskóla tslands er lokið og
verður dregið þar með þessum
hætti nú í október, en gert er ráð
fyrir, að í nóvember verði einnig
dregið með tölvu i Happdrætti
DAS og Vöruhappdrætti StBS.
Um árabil hefur þessi háttur
verið hafður á í sambærilegum
happdrættum erlendis, þ.á.m. í
Noregi og Svíþjóð og er nú svo
komið, að mjög örðugt er að afla
nauðsynlegra gagna til að fram-
kvæma útdrátt vinninga með
eldri aðferðum.
Tölva Reiknistofnunar Háskóla
íslands verður notuð til að fram-
kvæma útdráttinn. Þrátt fyrir
notkun tölvunnar munu vinnings-
númerin enn ráðast af þvi, að í
upphafi dráttar eru dregnar út
tölur úr númerastokki, sem síðan
ráða því, hvaða happdrættismiðar
fá vinninga.
Forrit dráttarins hefur verið
gert undir eftirliti stjórnskipaðra
eftirlitsmanna og sérfræðinga
þeirra.
Heræfingar
í Danmörku
Kaupmannahöfn, 11. október. Reuter.
6.000 bandarískir landgöngulið-
ar hófu hálfsmánaðar heræfingar
á Jótlandi, Slésvfk-Holstein og
Norðursjó I dag ásamt 5.000 vest-
ur-þýzkum og dönskum hermönn-
um. Aukin umsvif herliðs Var-
sjárbandalagsins á vestanverðu
Eystrasalti hafa vakið ugg ( Dan-
mörku.
Góð síldveiði
reknetabáta
REKNETABÁTAR frá Höfn í
Hornafirði fengu loksins góðan
afla í reknet í gær, eftir marga
bræludaga og einnig hefur sildin
ekki gengið i reknetin að undan-
förnu þegar gefið hefur á sjó.
Að sögn Jens Mikaelssonar á
Höfn landaði Dalarafn VE 150
tunnum á Höfn í gær, Lingey SF
var með 120 tunnur, Steinunn SF
með 120 tunnur, Æskan SF með
100 tunnur, Arney SF 100 tunnur,
Visir SF með 20 tunnur, Hauka-
fell SF með 10 tunnur, og Skógey
SF 30 tunnur.
Dankersen vann
Fram 14:11
ÞÝZKA liðið Dankersen lék við
Fram f Laugardalshöllinni i gær-
kvöldi. Leiknum lauk með sigri
Dankersen 14:11, eftir að staðan
hafðí verið 5:5 ( hálfleik.
— Friðrik
Framhald af bls. 48
sæti með 4V$ vinning og hagstæða
biðskák. Smeijkal og Velimirovic
eru efstir og jafnir með 8lA
vinning og biðskák
1 9. umferð gerði Friðrik jafn-
tefli við Hort en skák Guðmundar
og Deze fór i bið, en hún varð
jafntefli þegar áfram var teflt í
gærmorgun. í 10. umferð á sunnu-
daginn tapaði Guðmundur fyrir
Buljovic en skák Friðriks og Vele-
mirovic fór i bið, en Friðrik tap-
aði skákinni þegar hún var áfram
tefld.
Friðrik tefldir i kvöld við
Nororos en Guðmundur við Veli-
mirovic.
Aðspurður sagði Friðrik i gær-
kvöldi, að þeir landarnir væru í
einhverju óstuði, þeir kynnu ekki
almennilega við aðstæður, sem
þeim er boðið upp á í Novi Sad.
— Valdabarátta
Framhald af bls. 1.
og vera ekki með undirróður. Þá
voru einnig sett upp veggspjöld,
þar sem menn voru hvattir til að
styðja herinn.
Flestir Kinverjar virðast vita
um að Hua hefur verið kjörinn
arftaki Maos og tveir háttsettir
embættismenn í Peking hafa stað-
fest það við vestræna diplómata,
en engu að síður bólar ekkert á
opinberri staðfestingu. Það vakti
athygli fréttamanna á Peking-
flugvelli, að engir menn úr rót-
tækari armi flokksins voru i hópi
þeirra embættismanna, sem skip-
uðu móttökunefndina. Er talið að
mjög alvarlegur ágreiningur
kunni að vera á ferðinni, en dipló-
matar og fréttamenn hafa engin
tök haft á að fá fréttir af þvf sem
er að gerast bak við tjöldin.
Fjölmiðlar i Peking hafa allan
sl. mánuð frá þvi að Mao formað-
ur lézt hvatt fólkið í landinu til
einingar og stuðnings við komm-
únistaflokkinn og varað við að
tilraunir tækifærissinna til að
kljúfa flokkinn séu dæmdar til að
fara út um þúfur.
Pekingútvarpið skýrði frá því í
gær að kínverski herinn hefði lof-
að hlýðni við miðstjórn kommún-
istaflokksins undir forsæti Hua
Kuo-fengs, sem fréttamenn túlka
sem vitnisburð um að Hua hafi
tryggt stöðu sína sem eftirmaður
Maos.
— Ford
Framhald af bls. 1.
gera hlé á baráttu sinni í heilan
dag til þess að reyna að finna leið
til að skýra málið. Endaði það
með því að forsetinn hringdi f
formann samtaka pólskra Banda-
ríkjamanna og bað hann afsökun-
ar á ummælum sinum.
Þá varð Ford i vikunni einnig
fyrir því áfalli að landbúnaðar-
ráðherra hans, Earl Butz, varð að
segja af sér eftir að niðrandi um-
mæli hans um blökkumenn höfðu
birzt í tímaritinu Rolling Stone og
á sviði efnahagsmála fékk Ford
þær slæmu fréttir að atvinnuleysi
hefði nær ekkert minnkað og að
heildsöluverðlag hefði hækkað
sem svaraði 11% á ársgrundvelli í
september.
Þrátt fyrir þetta virtist frétta-
mönnum í dag sem forsetinn væri
i góðu skapi og öruggur með sjálf-
an sig og haft er eftir nánustu
ráðgjöfum hans að hann telji ekki
að hann hafi beðið alvarlega
hnekki í baráttu sinni fyrir
endurkjöri.
Carter beindi í kosningabaráttu
sinni tali sfnu að ummælum for-
setans í sjónvarpseinviginu, Illin-
ois og Wisconsin en talsmenn
hans lýstu því yfir daginn eftir
einvígið, að hann myndi minna
kjósendur á ummæli forsetans á
hverjum degi fram að kosningum.
Skoðanakönnun, sem Tima
fréttatimaritið lét gera, gaf til
kynna, að Carter hefði nú forystu
i 21 fylki, Ford i 17 og i 12 væri
fylgi þeirra svo jafnt, að ekki
væri hægt að spá fyrir um úrslit.
Ford fer til New Jersey og New
York á morgun og virðist ekki
taka tillit til ráðlegginga um að
halda sig sem mest í Washington
til að sýna kjósendum hver sé
forsetinn og láta Robert Dole
varaforsetaefni um hita og þunga
baráttunnar.
— Ekkja Maos
Framhald af bls. 1.
ins hefur eftir áreiðanlegum
heimildum að hinir þr(r séu
Wang Hung-wen, 2. varafor-
maður flokksins, Chang Chun-
chiao 1. varaforsætisráðherra
og Yao Wen-yuan einn helzti
hugsjónafræðingur flokksins.
Financial Times hefur eftir
sfnum fréttaritara að.óstaðfest-
ar heimildir hermi'-að Chiang
og þremenningarnir séu ( haldi
á heimilum slnum. Fréttaritari
Daily Telegraph segir að
stjórnmálaleiðtogum f verk-
smiðjum og ( héraðssamtökum
hafi verið skýrt frá handtökun-
um á sérstökum fundum um
helgina. Telegraph segir að
ekki sé vitað hverær byltingar-
tilraunin hafi verið gerð, en svo
virðist sem róttæku öflin hafi
notið Ktils stuðnings innan
hersins. The Times er einnig
með frétt um þetta mál, sem
blaðið segir byggða á óstaðfest-
um orðrómi f Peking og Hong
Kong. Öll blöðin þrjú benda á
þá staðreynd, að enginn úr rót-
tækari armi flokksins var á
Pekingflugvelli ( dag með Hua
formanni, er hann tók á móti
forsætisráðherra Papua Nýju
Gfneu.
— Þingsetning
Framhald af bls. 48
forsetar þingsins yrðu
kjörnir. Aldursforseti
flutti minningarorð um
tvo látna þingmenn:
Alfreð Gíslason bæjar-
fógeta og Birgi Kjaran
hagfræðing. Því næst var
fundi frestað til klukkan 3
f dag en þá fer m.a. fram
forsetakjör.
Ávarp forseta Islands,
predikun sr. Gunnars
Gfslasonar og minningar-
orð þau, er aldursforseti
flutti, birtast hér í Morg-
unblaðinu f dag.
— Bítast um
Vængi
Framhald af bls. 48
Tryggingar hefði tryggingafélag-
ið tekið veð í flugvélum Vængja
hf. Af þessum sökum gæti naum-
ast talist að Vængir stæðu í skuld
við Tryggingu meðan trygginga-
félagið hefði slika tryggingu fyrir
greiðslu skyldarinnar.
— Hægri flokkur
Framhald af bls. 46
þar á meðal Gonzalo Fernandez
de la Mora fyrrverandi verka-
málaráðherra sem er talinn eitil-
harður francosinni, Laureano
Lopez Rodo fyrrverandi utanrík-
isráðherra og Frederico Silva
Munoz fyrrverandi verkamálaráð-
herra.
— Reisir BSRB
Framhald af bls. 48
vegum Þjóðkirkjunnar og væru
framkvæmdir við byggingu
þeirra hafnar.
Fram kom í máli Kristjáns
Torlaciusar að alls nemur
kostnaður við uppbyggingu or-
lofsheimila BSRB í Munaðarnesi
milli 270 og 280 milljónum króna
og gert er ráð fyrir að um 18
milljónir króna kosti að ljúka við
annan áfanga framkvæmdanna í
Munaðarnesi og er þar meðal
annars viðbygging við veitinga-
skála.
— Ródesía
Framhald af bls. 1.
menn myndu fara með yfir-
stjórn öryggis- og varnarmála.
Robert Mugabe, einn af leið-
togum þjóðernissinna, sagði í
Lusaka í dag, að hann væri
ekki bjartsýnn á að árangur
næðist á ráðstefnunni þar sem
hann sagðist ekki sjá að
blökkumenn og hvítir menn
ættu nokkurn sameiginlegan
samningsgrundvöll. Sem
kunnug er á ráðstefna þessi að
hefjast I Genf 25. október nk.
undir forsæti Ivor Richards,
sendiherra Bretlands hjá Sam-
einuðu þjóðúnum. Anthony
Crosland, utanrikisráðherra
Bretlands, sagði í dag að stjórn
sín héldi fast við að ráðstefnan
byrjaði á tilsettum tíma. Fyrir
helgi höfðu þeir Mugabe og
LEIKLISTARDEILD útvarpsins,
sem Klemenz Jónsson veitir for-
stöðu, boðaði til blaðamannafund-
ar f gær til að kynna þau leikrit,
sem flutt verða f vetur. t upphafi
fundarins gat Klemenz Jónsson
þess, að hann vildi láta (Ijós gleði
slna yfir hve góð samvinna hefði
náðst við fjölmiðla f kynningu
útvarpsleikrita, þvf útvarpið væri
á heildina litið, stærsta leikhús
landsmanna, eins og hann komst
að orði. Sagði hann að ætlunin
væri að kynna dagskrá útvarps-
Nkomo, annar leiðtogi blökku-
manna, krafist þess að ráð-
stefnunni yrði frestað til 10.
nóvember.
Abel Muzorewa biskup, leið-
togi Þjóðernisráðsins i Ródes-
íu, sagði í dag að óhugsandi
væri að blökkumenn i Ródesíu
myndu láta mikilvægustu
ráðuneyti nýrrar bráðabirgða-
stjórnar vera i höndum hvitra
nýlendusinna.
— Oskar sam-
starfs
Framhald af bls. 48
1 nefndinni skulu sitja:
5 tilnefndir af þingflokkun-
um, 1 tilnefndur af Alþýðu-
sambandi íslands, 1 tilnefnd-
ur af Vinnuveitendasambandi
tslands, 1 tilnefndur af
Bandalagi starfsmanna rikis
og bæja, 1 tilnefndur af Stétt-
arsambandi bænda, 4 skipaðir
af ríkisstjórninni án tilnefn-
ingar.
Hagstofustjóri mun starfa
með nefndinni.
Ríkisstjórnin mun gangast fyrir
því, að samráð verði einnig haft
við fulltrúa ýmissa hagsmuna-
samtaka, sem ekki tilnefna menn
i nefndina, eftir þvi sem störfum
nefndarinnar miðar áfram og
ástæða þykir til.
Ríkisstjórnin gerir siðan ráð
fyrir að álit nefndarinnar og til-
lögur verði undirstaða umræðna á
Alþingi og viðræðna ríkisstjórn-
arinnar við aðila vinnumarkaðar-
ins um heildarstefnu í verðlags-
og launamálum.
I starfi nefndarinnar skal þess
vegna að því stefnt, að hún skili
áliti og tillögum eigi síðar en í
febrúarmánuði 1977.
Geir llallgrimsson.
— Frönskumenn
Framhald af bls.46
ar- og sveitarfélögum umhverfis
Brússel þar sem frönskumælandi
menn eru í meirihluta og mynda
nokkurs konar eyju í hafi hol-
lenzkumælandi manna.
Flokkurinn berst fyrir nánari
tengslum við höfuðborgina, en
það er eitt viðkvæmasta málið í
tungumáladeilum Vallóna og
Flæmingja sem hefur að mestu
legið niðri siðan i siðustu þing-
kosningum sem fóru fram 1974.
Yfirvöld i Brussel vilja færa út
borgarmörkin, en flæmskar bæj-
ar- og sveitarstjórnir eru því ein-
dregið mótfallnar að komast und-
ir stjórn frönskumælandi manna.
leikritanna ársf jórðungslega,
þannig að almenningur gæti látið
f Ijós álit sitt á þeim leikritum,
sem leiklistardeiidin hefði valið
til flutnings, en útvarpsráð sfðan
samþykkt.
Sagði Klemenz að leiklistar-
deildin reyndi að velja leikrit við
allra hæfi, bæði gamanleikrit og
leikrit alvarlegs eðlis, svo og
hrollvekjur og nútímaleikrit.
Útvarpsleikritin verða flutt á
fimmtudagskvöldum, eins og und-
anfarna vetur, en barna- og
framhaldsleikrit verða á sunnu-
dögum.
1 vetur verða flutt alls ellefu
leikrit eftir fslenzka höfunda. Sjö
þeirra eru skrifuð nýlega og hafa
aldrei verið flutt áður. En alls
bárust útvarpinu tuttugu og þrjú
leikrit, sem leiklistardeildin varð
að velja úr. Tólf leikrit eftir
bandaríska höfunda verða flutt á
þessu ári og eru það einir fremstu
leikritahöfundar Bandaríkjanna
á þessari öld, til dæmis Eugene
O’Neill, Arthur Miller og
Tennessee Williams. Eitt af þess-
um leikritum hefur verið flutt
áður, en það er Horft af brúnni
eftir Arthur Miller í leikstjórn
Lárusar Pálssonar.
Nýr þáttur mun hefja göngu
sina og nefnist „Þau stóðu i sviðs-
ljósinu”, og verður á sunnudög-
um.
I þáttum þessum, sem verða tiu
talsins, er fjallað um tólf merka
islenzka leikara, sem nú eru látn-
ir, ævi þeirra og störf, bæði á
leiksviði og utan þess. Valið
verður úr segulbandasafni út-
varpsins og af hljómplötum og
auk þess leitað fanga hjá leikhús-
um höfuðborgarinnar. Stjórnend-
ur þáttanna eru Vigdís Finnboga-
döttir, Sveinn Einarsson, Öskar
Ingimarsson, Stefán Baldursson
og Klemenz Jónsson. Þættirnir
verða vikulega og standa i u.þ.b.
eina klukkustund.
Framhaldsleikrit fyrir börn
verða á sunnudögum, i barna-
tímanum. Fyrsta leikritið sem
flutt verður nefnist „Skeiðvöllur-
inn“ og er höfundur þess áströlsk
kona, Patricia Wrightson, en leik-
stjóri er Þórhallur Sigurðsson.
í byrjun janúar hefst svo fram-
haldsleikur í tólf þáttum, sem
heitir á frummálinu „A man born
to be king“, eftir Dorothy L.
Sayers og fjallar um ævi og starf
Jesú Krists. Leikstjóri er Gisli
Halldórsson. Sagði Klemenz Jóns-
son, að Gisli hefði öðlast mikla
reynslu í stjórn útvarpsleikrita.
Jólaleikrit útvarpsins verður
Piltur og Stúlka eftir Jón og Emil
Thoroddsen. Sinfóníuhljómsveit
íslands leikur tónlist Emils undir
stjórn Páls P. Pálssonar. Leik-
stjóri verður Klemenz Jónsson.
Verður verkið flutt f einu lagi á
annan i jólum.
Fyrirhugað er að útvarpa leik-
ritum sem flutt eru af leikfélög-
um utan af landi, en á síðasta ári
voru flutt fjögur slik leikrit og
virðist sú starfsemi hafa likað vel,
að þvi er Klemenz sagði.
Alls tuttugu og níu leikstjórar
stjórnuðu útvarpsleikritum i
fyrra og hafa þeir aldrei verið
fleiri. Leikarar voru á síðastl. ári
milli nítíu og hundrað.
Klemenz Jónsson gat þess sér-
staklega við blaðamenn í gær, að
þáttur þýðenda útvarpsleikrita
hefði oft verið vanmetinn. Þeir
voru alls þrjátíu og tveir á liðnu
ári og sumir þýddu fleira en eitt
leikrit. Einna afkastamestu þýð-
endur útvarpsleikrita siðustu ár
eru þrjár konur, sem allar sátu
fundinn, en þær eru Torfey
Steinsdóttir, Ásthildur Egilsson
og Áslaug Árnadóttir.