Morgunblaðið - 19.10.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR, 19.0KTÓBER 1976
„Verndum
bömin”
I VELFERÐARÞJÓÐFÉLÖGUM
verða sífelldar endurbætur á
sviði tækni, sem miða að þvl að
létta okkur daglegu störfin. Alls-
konar rafmagnstæki þykja nú
orðin ómissandi á hverju heimili,
og kröfurnar um bætt vinnuskil-
yrði og aukin þægindi vaxa I réttu
hlutfalli við velmegunina. Sam-
fara tækniþróuninni eykst líka
slysahættan. Sérstaklega á þetta
við um börn, sem ekki hafa næg-
um þroska yfir að ráða til að gera
sér ljósa hættuna. í yfirlýsing-
unni um rétt barnsins, sam-
þykktri af allsherjarþingi samein-
uðu þjóðanna, stendur m.a.: að
barnið, vegna síns líkamlega og
andlega vanþroska, þurfi sérstaka
vernd og sérstakar verndarað-
gerðir. Ein hinna tíu greina sem
kveða á um grundvallarréttindi
barna segir: að „mannkynið sé
skyldugt til að veita barninu það
besta, sem hægt er að bjóða því
upp á“. Vissulega vildum við öll
skrifa undir þessa yfirlýsingu.
Hún á við á hverjum einasta degi
í tæknivæddum samfélögum,
engu slður en I þróunarlöndun-
um. En höfum við rétt barnsins i
huga, þegar við skipuleggjum hið
ört vaxandi þéttbýli og umhverfi
barna, eða þjóðfélagsþróunina yf-
irleitt? Hefur okkur ekki yfirsést
takmarkanir barnsins til að skilja
og aðlagast tækniþróuninni og
hraðanum? Höfum við ekki skotið
allri ábyrgð yfir á foreldra barn-
anna? Þessar spurningar leita á,
þegar athugaðar eru skýrslur um
f jölda slysa, er verða á börnum.
Það kemur I ljós, að árið 1974,
var komið með samtals 6154 börn
á aldrinum 0—10 ára á Slysavarð-
stofu Borgarspítalans, það er
segja u.þ.b. 17 börn á dag að með-
altali. Þetta er óhugnanlega há
tala og mörg harmsagan að baki
hennar. Þessi háa tala segir okkur
líka, að það getur ekki verið, að
nægilegt tillit sé tekið til barna I
umhverfi okkar. Þarf það I raun-
inni að vera svona hættulegt að
vera barn I nútímaþjóðfélagi?
Hvað er hægt að gera til úrbóta,
hvernig má fækka slysum á börn-
um? Við athugun á umferðarslys-
um, kemur I ljós sú gleðilega stað-
reynd, að slysum á börnum I um-
ferðinni hefur fækkað. Skýringa
á þvl er e.t.v. að leita I aukinni
fræðslustarfsemi á vegum Um-
ferðarráðs og skólanna. Einmitt
sú staðreynd að sýnt er, að hægt
er að snúa þróuninni við og
minnka slysatiðnina, varð L.l.B.
hvatning til að leggja sitt af mörk-
um, til að beina athygli fólks að
slysahættum I daglegu llfi barns-
ins.
En hvernig verður best unnið
að sllku? Besta vörnin er auðvitað
að byrja brunninn áður en barnið
er dottið ofan I hann. Til að geta
unnið fyrirbyggjandi starf þarf
vitneskju um, hverjar séu algeng-
ustu orsakir barnaslysa og hvar
slysin verða.
Hér á landi er enginn einn aðili,
sem fjallar um öll þau slys er
verða á börnum. 1 nágrannalönd-
um okkar eru starfandi ráð, er
vinna allt árið um kring að upp-
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
3n«r0unl>I«tiiþ
lýsingasöfnun um slysahættur, og
koma þeim upplýsingum slðan á
framfæri við rétta aðila. Slysa-
varðstofa Borgarspítalans skráir
öll slysatilfelli. sem þangað koma,
og þá um leið orsakir þeirra. Það
er líka einasti aðilinn hér, sem
hefur nákvæmar upplýsingar um
barnaslys. Hins vegar hefur
starfsliðið þar, eins og marg oft
hefur komið fram I fjölmiðlum,
afar erfiða vinnuaðstöðu og alls
enga möguleika á að vinna fyrir-
1 skólum eða á barnaheimilum
urðu 361 slys á börnum.
Uti urðu 3533 slys á börnum.
Slysavaldur:
Af völdum falls eða byltu urðu
3071 slys á börnum.
Af völdum eitrunar urðu 412
slys á börnum.
Af völdum bruna, hita, kulda
urðu 164 slys á börnum.
I umferð slösuðust 263 börn.
Þessar tölur eru frá árinu 1975
og miðast við börn á aldrinum
0—10 ára. Ekki ber að líta á þess-
ar niðiirstöður sem endanlegar,
nánari urvinnslu er væntanlega
þörf.
byggjandi starf. Okkur var mjög
vel tekið á slysavarðstofunni, og
fúslega veittur aðgangur þar að
tölulegum upplýsingum fyrir s.l.
ár, og fara helstu niðurstöður hér
á eftir. Algengustu slysstaðir og
slysavaldar.
Slysstaður:
I heimahúsum urðu 2638 slys á
börnum.
Á komandi dögum munu birtast
I dagblöðunum nokkrar greinar,
er fjalla munu nánar um þá slysa-
flokka, sem algengastir eru. Jafn-
framt verður reynt að benda á
einfaldar leiðir til úrbóta. Vonum
við að þessar upplýsingar veki
fólk til umhugsunar um stöðu
barnsins i þjóðfélaginu. Munið að
gott fordæmi hinna fullorðnu er
áhrifameira en ótal umvandanir.
Sýnum öll fyrirhyggju og búum
umhverfi okkar þannig úr garði
að allir, á hvaða aldri sem þeir
eru, fái notið öryggis þar.
PHILCO ÞVOTTAVÉLAR
frábærqæöi
1. Heitt og kalt vatn inn — sparar tíma og
rafmagnskostnað.
2. Vinduhraði allt að 850 snún/mín — flýtir
þurrkun ótrúlega.
3. 4 hitastig (32/45/60/90°C) — hentar öll-
um þvotti.
4. 2 stillingar fyrir vatnsmagn—orkusparnaður.
5. Viðurkennt ullarkerfi.
6. Stór þvottabelgur — þvær betur fulla vél.
7. 3 mismunandi hraðar í þvotti og tveir í vindu
—tryggri rétta meðferð alls þvottar.
8. Stór hurð — auðveldar hleðslu.
9. 3 hólf fyrir sápu og mýkingarefni.
10. Fjöldi kerfa — hentar þörfum og þoli alls
þvottar.
11. Nýtt stjórnborð skýrir með táknum hvert
þvottakerfi.
12. Fullkomin viðgarðarþjónusta — yðar hagur.
II #i
3FALTSAPUHÓLF
Einfalt merkjamál er skýrir
hvert þvottakerfi.
PHILCO ÞURRKARI
Sparið rými:
Þurrkarinn ofan á
þvottavélina og handhægt
útdregið vinnuborð á milli.
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 SÆTÚNI 8 —16555