Morgunblaðið - 30.12.1976, Page 1
28 SÍÐUR
287. tbl. 63. árg. FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
BÖRN í flestum hverfum höfuðborgarinnar hafa ekki látið sitt eftir liggja við að safna efni f áramðtabrennur
sfnar. Skemmdarvargar hafa þvf miður orðið til að eyðileggja strit barnanna meo því að kveikja í brennun-
um dagana fyrir gamlárskvöld. En hér sjást nokkrir hressir krakkar sem hafa hlaðið bálköst sinn.
Borgarbrennan f baksýn. Ljósmynd oi.k.m.
Kína:
Blóðugar óeirðir í Paoting
Norðmenn
vilja ræða
við Rússa
Ósló, 29. desember. NTB.
NORÐMENN hafa farið fram á
viðræður við Rússa í janúarbyrj-
un um bráðabirgðasamning um
fiskveiðar á svokölluðu
þríhyrningssvæði á Barentshafi
sem þjóðirnar deila um vegna út-
færslu fiskveiðilögsögu þeirra f
200 mflur.
Jafnframt hafa Norðmenn lagt
til við Rússa að útfærsla lögsög-
Framhald á bls. 16.
Svíakóng-
ur barg
lífi manns
Stokkhólmi 29. des. AP.
FRÁ þvf var sagt af hálfu
sænsku hirðarinnar f dag, að
Karl Gustaf Svfakonungur
hefði á aðfangadagskvöld
bjargað kfnverskri konu frá
Hong Kong, sem hann
hann gekk fram á f snjóskafli
er hann var úti að ganga ásamt
hundi sfnum, Ali. Frost var þá
tfu stig og var konungur f
heimsókn hjá systur sinni f
Ulriksdal f úthverfi Stokk-
hólms.
Snjór var á jörðu og hundur-
inn fór að hnusa er hann kom
að skafli og er~konungur kom
nærri sá hann að kínversk
kona lítið kiædd lá þar með-
vitundarlaus í snjónum. Bar
kóngur hana inn i hús systur
sinnar þar sem reynt var að
hlúa að konunni og síðan
hringt á sjúkrabil.
Var konan svo flutt í skynd-
ingu á Karolinasjúkrahúsið.
Læknar sögðu að hún myndi
hafa legið i snjónum töluverð-
Framhald á bls. 16.
Átök í
Beirút 29. des. Reuter, Ntb, Ap.
t DAG sló f bardaga milli her-
flokka hægrimanna og Palestfnu-
manna og vinstrisinna f Tyros f
Lfbanon, sem er ekki langt frá
landamærunum við Israel.
Arabfsku friðargæzlusveitirnar
hafa enn ekki búið um sig i þess-
um landshluta. Fréttir hafa ekki
borizt um hvort mikið mannfall
hefur orðið, en tekið er fram i
fréttum, að bardagarnir hafi ekki
Peking 29. des. Reuter
MIKIL ókyrrð hefur brotizt út f
kfnversku borginni Paoting, sem
er 180 km suður af Peking. Hefur
komið til vopnaðra átaka. morða,
nauðgana og bankarána að þvf er
áreiðanlegar heimildir höfðu
Tyres
verið samfelldir i allan dag, en af
öllu megi ljóst vera, að ástandið í
fjallahéruðunum við landamærin
sé mjög alvarlegt og að við öllu
megi búast.
Forystumenn hægrisinna í
Líbanon hafa ásakað Palestínu-
menn fyrir að æsa til óeirða og
ólgu I suðurhluta Libanon með
flutningi þungavopna til ýmassa
svæða þar. Palestínumenn segja
Framhald á bls. 16.
fyrir satt í kvöld. Var ókyrrð
þessi sögð af pólitfskum rótum
runnin.
Hin opinbera fréttastofa orðaði
þessa atburði aðeins i kvöld, en
Reuterfréttastofan segir að verk-
smiðjur hafi verið sprengdar i
loft upp, gerðar hafi verið atlögur
að bækistöðvum hermanna, þjóf-
ar hafi ruðzt inn f banka og
verzlanir og látið þar greipar
sópa.
Um borgina Paoting liggur
aðaljárnbrautarlínan frá norðri
til suðurs. Taiið er að fylgismenn
ekkju Maós formanns, Chiang
Ching, og annarra stuðnings-
manna hennar standi að baki
þessum óeirðum. Stjórnvöld hafa
gefið út fyrirmæli um hvernig
bregðast skuli við þessum átök-
um. Fyrr í þessum mánuði sagði
málgagn kinverska kommúnista-
flokksins að Chiang Ching og
fylgismenn hennar hefðu reynt
að koma af stað gremju og
óánægju í Paoting og einnig reynt
að hleypa öllu I bál og brand i
Hopehhéraðinu umhverfis borg-
ina.
Heimildir Reuterfréttastofunn-
ar segja að þeim hafi skilizt að
deilurnar í Paoting eigi sér
Madrid 29. des. NTB. Reuter
SPÆNSK óeirðalögregla beitti f
kvöld reyksprengjum til að dreifa
þúsundum manna sem höfðu
safnazt saman f aðalgötu Madrid-
ar og létu þar óspart f Ijós
langan aðdraganda og hafi þar
oftar til tíðinda dregið síðustu
mánuði en frétzt hafi um.
Kínverska fréttastofan hefur
undanfarið ásakað fjórmenning-
ana harðlega fyrir að hafa komið
Framhald á bls. 16.
stuðning sinn við Carillo foringja
kommúnistaflokksins.
Hrópaði fólk slagorð gegn
lögreglu og stjórn, veifaði rauð-
um fánum og krafðist þess, að
Carillo yrði látinn laus.
Lögreglan fékk fljótlega liðstyrk
og tókst að dreifa mannfjöldan-
um á skammri stundu.
Fyrr I dag stöðvuðu lögreglu-
menn blaðamannafund sem hóp-
ur italskra lögfræðinga var að
byrja að halda á lúxushóteli á
Spáni þar sem þeir ætluðu að
krefjast þess, að kommúnista-
foringinn Santiago Carrillo yrði
Framhald á bls. 16.
Fleetwoodtogarar
á Grœnlandsmið
Fleetwood, Englandi 29. des.
Einkaskeyti til Mbl. frá AP
NOKKRIR af úthafstogurum frá
Fleetwood hafa nú lagt af stað á
Grænlandsmið til veiða þar sem
þeir hafa nú ekki lengur leyfi til
að veiða á tslandsmiðum. I
fréttum AP-fréttastofunnar segir
Framhald á bls. 16.
KGB kemur með „sönnun-
argögn” með sér við húsleit
Moskva 29. des. Reuter.
SOVÉZKIR andófsmenn ásökuðu f dag lögregluna
KGB um að hafa komið fyrir Bandaríkjadollurum,
klámmyndum og gömlum rifflum í húsnæði fimm
úkrafnskra andófsmanna f sfðustu viku.
KGB framkvæmdi húsrann- tökum í Moskvu sagði, að frú
sókn' á aðfangadag hjá Mikola
Rudenko, einum leiðtoga
úkraninskra andófsmanna, og
nokkrum stuðningsmönnum
hans. Yfirlýsang frá systursam-
Rudenko hefði borið að eigin-
maður hennar hefði verið að
heiman þegar húsleitin var
gerð og hafi húrí þá I fyrsta
skipti á ævinni litið erlendan
gjaldeyri og klámrit sem allt I
einu hefðu verið um alla
Ibúðina. Kunni hún þá
skýringu eina, að leitar-
mennirnir hefðu sjálfir komið
þessu fyrir.
í yfirlýsingunni segir, að
KGB-mennirnir hafi einnig
staðhæft að hafa fundið klámrit
I einni Ibúðanna og gamlan
riffil í þeirri þriðju og væri
naumast önnur skýring á þessu
en sú, að KGB-menn hefðu sett
þessa hluti þarna.
Andófsmennirnir sögðu, að
KGB-mennirnir hefðu einnig
náð nokkrum skjölum, sem
sýndu andstöðu gegn stjórn-
völdunum og haft á brott með
sér ýmis bréf og plögg sem
sjálfsagt yrðu lögð fram sem
sönnunargögn.
Oeirðalögreglan beitti
reyksprengjum gegn
mótmælahópi á Spáni