Morgunblaðið - 30.12.1976, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1976
Lenti á því
og fór á flakk
MAÐURINN sem hvarf I Þýzka-
landi, Gunnar Elfsson, gerði I gær
Nirði Snæhólm, varðstjóra f rann-
sóknarlögreglunni grein fyrir
ferðum sínum frá þvf að hann
hvarf frá hóteli sfnu f Þýzkalandi.
Að sögn Njarðar segist maður-
inn hafa lent á því og verið í
slagtogi með tveimur Englending-
um. Upp úr því hafi hann haldið
til Grikklands og verið þar um
tima, síðan haft viðkomu á Italíu
og I Frakklandi en síðan haldið til
Englands þar sem hann hafi hitt
Englendingana að nýju.
Um síðir hafi þó runnið af hon-
um ferðafíknin enda hafi hann þá
verið orðinn févana, og hann
ákveðið að snúa heim. Peningana
sem hann hafi haft meðferðis,
hafi hann átt sjálfur en það voru
um 20 þús mörk eða röskar 1.5
milljónir króna. Að sögn Njarðar
kvaðst maðurinn heldur ekki hafa
átt von á því, að veruleg leit yrði
Alþýðublaðið:
Þrem blada-
mönnum sagt
upp af f jár-
hagsástæðum
REYKJAPRENT h.f. hefur
ákveðið að segja upp þremur
blaðamönnum á Alþýðublaðinu
og var tveimur þeirra sagt upp
störfum f gær. Morgunblaðið
leitaði umsagnar um málið hjá
Árna Gunnarssyni ritstjóra
Alþýðublaðsins og fórust honum
svo orð:
„Fyrir nokkrum dögum bárust
mér þau skilaboð frá fram-
kvæmdastjóra Reykjaprents h.f.,
sem hefur á hendi fjárhagslegan
rekstur Alþýðublaðsins, að segja
yrði upp störfum þremur blaða-
mönnum af fjárhagslegum ástæð-
um. Þar eð Reykjaprent h.f. getur
ákveðið fjölda blaðamanna á rit-
stjórn Alþýðublaðsins samkvæmt
samningi var mér skylt að verða
við þessari beiðni. Ég treysti þvi
að með þessu sé aðeins verið að
reka varnagla vegna mjög aukins
útgáfukostnaðar og að þessar
uppsagnir þurfi ekki að taka gildi
að þremur mánuðum liðnum. Ég
harma þó mjög að þurfa að segja
upp hæfu starfsfólki á sama tíma
og áskrifendafjöldi blaðsins fer
vaxandi. Það er hins vegar ljóst,
að kostnaður við útgáfu dagblaða
hefur hækkað gífurlega á þessu
ári og að Alþýðublaðið hefur löng-
um átt I vök að verjast og vegna
smæðarinnar kemur hækkun út-
gáfukostnaðar verst niður á því.
Hins vegar hefir blaðið notið
Framhald á bls. 16.
gerð að honum, enda hafi hann
farið á milli landa á eigin vega-
bréfi og hann álitið að yfirvöld
mundu fljótlega verða þess vfsari.
Rakettur
þutu þvers
og kruss
VIÐ STÓRSLYSI lá um miðjan
dag í gær í Vestmannaeyjum þeg
ar kviknaSi I flugeidabing I
glugga verzlunar þar sem félagar
úr íþróttafélaginu Þór voru að
selje flugelda. 6 piltar voru inni I
verzluninni, Raf tækjavinnustof
unni, en fyrir utan voru börn að
leik.
Voru börnin með lítil blys og
eldkúla úr einu slíku blysi kastaðist
inn um rifu milli stafs og hurðar á
Raftækjavinnustofunni og lenti í
flugeldabingnum með þeim afleið-
ingum að á samri stundu fuðruðu
flugeldarnir upp og þutu um allt
húsnæðið, en piltarnir sex urðu að
brjótast út um glugga á bakhlið
vinnustofunnar, þvi eldglæringarn-
ar vörnuðu þeim útgöngu um dyrn-
ar. Einn piltanna skarst nokkuð á
hendi er hann braut rúðu á bakhlið
hússins, en miklar skemmdir urðu í
allri vinnustofunni af völdum brun-
ans. Var það mál ekki að fullu
kannað í gærkvöldi. en hins vegar
var ekki mikið af flugeldum i vinnu-
stofunni Sjónarvottum þótti þó
nóg um þá lita- og Ijósadýrð sem
við blasti í sýningarglugga Raf-
tækjavinnustofunnar þegar hvað
mest gekk á
Slökkvilið Hafnarfjarðar við Strandgötu 50 f gær, einu elzta húsi bæjarins, byggðu
1856—’60. Ljósmynd Sæmundur Ingólfsson.
Gjaldskrá Pósts og síma hækkar:
Hækkunin nemur um
einum milljarði króna
PÓST- og slmamálastjórnin hefur
fengið heimild fyrir hækkun
gjaldskrár póst- og simaþjónustu
frá áramótum að telja, sem
miðast við 25% tekjuaukningu á
árinu. Hækkunin er þó mismun-
andi eftir tegundum gjalda. Við
slmagjöldin bætist 20% sölu-
skattur. Afnotagjald sfma f sjálf-
virka kerfinu hækkar þannig úr
2.900 kr. f 3.900 kr. eða um 35%
en gjald fyrir umframsfmtöl úr
kr. 7.50 f kr. 8.70 eða um 16%.
Burðargjald fyrir 20 gr. bréf
innanlands og tii Norðurlanda
hækkar úr kr. 35 f kr. 45 og til
annarra landa úr kr. 45 f kr. 60.
Láta mun nærri að hækkun þessi
þýði um einn milljarð króna f
tekjuaukningu fyrir Póst- og
sfma.
t fréttatilkynningu Póst- og
símamálastjórnarinnar segir
m.a.:
Helstu breytingar f gjaldskrá
fyrir sfmaþjónustu eru, að afnota-
Skipaútgerð ríkisins:
Við Æsufell 2 f gærkvöldi
áður en rafmagnið
fór af húsinu.
gjald sfma í sjálfvirka sfma-
kerfinu hækkar úr kr. 2.900.-
(með söluskatti kr. 3.480.-) á árs-
fjórðungi f kr. 3.900,- (með sölu-
skatti kr. 4.680.-) eða um 35%.
Gjald fyrir umframsímtöl hækkar
úr kr. 7.50 (með söluskatti kr.
9.00) f kr. 8.70 (með söluskatti kr.
10.44) fyrir hvert teljaraskref eða
um 16%. Fjöldi teljaraskrefa,
sem innifalin eru i afnotagjald-
inu, er óbreyttur, en timabil
næturtaxta fyrir sjálfvirk lang-
lfnusamtöl lengist um 1 klst. á dag
frá mánudegi til föstudags og
hefst kl. 19.00 í stað 20.00.
Almennt gjald fyrir flutning á
síma hækkar úr kr. 10.000.- (með
söluskatti kr. 12.000.-) í kr.
13.500,- (með söluskatti kr.
16.020.— ). Stofngjald fyrir síma,
sem tengdur er við sjálfvirka
kerfið, hækkar úr kr. 20.000.-
(með söluskatti kr. 24.000.-) í kr.
27.000.- (með söluskatti kr.
32.400.-). Afnotagjöld í hand-
virka kerfinu hækka um 35%, en
Framhald á bls. 16.
ÍOO á ára-
mótaknalli
í Þórsmörk
MILLI 90 og 100 manns munu
dvelja f Þórsmörk um áramótin á
vegum Ferðafélags tslands og er
þetta langfjölmennasti hópurinn
sem þangað hefur stefnt um ára-
mót sfðan þær ferðir voru teknar
upp árið 1970.
Ekki hefur hópunum þó alltaf
tekizt að komast á leiðarenda
Skýring Gunnars Elíssonar:
50% haekkun far-
og farmgialdanna
FARGJÖLD og farmgjöld hjá
Skipaútgerð rfkisins hækka um
50% um áramótin samkvæmt
upplýsingum Guðmundar Einars-
sonar forstjóra Skipaútgerðar-
innar. 1 samtali við Mbl. sagði
Guðmundur að flutningskostnað-
ur með skipunum myndi þó ekki
hækka f raun nema um 20—26%,
þvf farmgjaldið væri aðeins um
helmingur af fiutningskostnaði á
móti kostnaði vegna uppskipunar,
hafnargjalda, og fleiri liða. Guð-
mundur kvað ástæðuna fyrir
þessari milu hækkun nú vera þá
að gjöld með skipunum hefðu
dregizt mjög aftur úr á undan-
förnum árum og því yrði að fram-
kvæma hækkunina nú eins og
raun ber vitni. Sem dæmi um
fargjaldahækkun má nefna að
fargjald fyrir farþega frá
Reykjavík til Vestfjarða án fæðis
hækkar úr 2655 kr. í 3980 kr.,
fargjald frá Reykjavfk til Vest-
mannaeyja hækkar úr 1710 kr. í
2565 kr. og fargjald frá Reykjavík
til Hornafjarðar hækkar úr 3425
kr. í 5135 kr.
Barneignaástand fer
batnandi í Ólafsfirði
„JÚ. það er talsverð bót f barneignamálum hjá okkur I Olafsfirði miðað við
síðasta ár," sagði fréttaritari okkar þar i spjalli ! gær, „þvf nú eru skráðar 18
fæðingar af völdum Ólafsfirðinga miðað við 10 eða 12 árið '75. Þetta er þvf
batnandí ástand og i kjölfarið hefur fylgt gott og Ijúft jólahald þótt aðeins
hafi blásið i dag."
Stúlka kemur nióur á jafnsléttu f
körfu kranans af 4. hæð
Æsufells 2.
vegna veðurs, en nú eru horfur
góðar að sögn Ferðafélagsmanna.
Farið verður á gamlársdags-
morgni og komið heim að kvöldi
2. jan. M.a. verður efnt til kvöld-
vöku í skála á gamlárskvöld ára-
mótabrenna verður og að sjálf-
sögðu verða gönguferðir um
Mörkina eins og veður leyfir.
r r
LIU fundar með
útgerðarmönnum
loðnuskipanna
LANDSSAMBAND íslenzkra út-
vegsmanna hefur boðað til fundar
í dag, fimmtudag, kl. 14 með út-
gerðarmönnum loðnuveiðiskipa.
Boðað er til fundarins vegna fyr-
irhugaðrar loðnuverðsákvörðun-
ar, en sem kunnugt er á nýtt
loðnuverð að taka gildi um ára-
mót. Fundur útgerðarmannanna
verður haldinn í Leifsbúð, Hótel
Loftleiðum.