Morgunblaðið - 30.12.1976, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1976
5
AUGLVSlNCiASÍMINN.GR:
22480
JRorcimblsöit)
Hafnarstræti 18. Hallarmúla 2,
Laugavegi 84.
Tveir landeigend-
ur vilja
réttindi í
TVEIR landeigendur að Elliðaám
hafa farið þess að leit við land-
búnaðarráðuneytið, að þeir fái
rétt yfir Elliðaám að þeim hluta
er þeir eiga. Umrætt svæði er
fyrir ofan efri brú og upp að
Elliðavatni.
Sveinbjörn Dagfinnsson ráðu-
neytisstjóri i landbúnaðarráðu-
neytinu sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að ráðherra
hefði ekki enn fjallað um þetta
mál, en samkvæmt lax- og silungs-
fá veiði-
Elliðaám
veiðilögum hefði hann vald til
úrskurða hverjum bæri að stjórna
veiði í ám, þó að fenginni umsögn
veiðimálanefndar. Fyrir mörgum
árum keypti Reykjavíkurborg
veiðiréttinn í Elliðaám og hafa
Rafmagnsveitur Reykjavíkur séð
um ána. Stangaveiðifélag
Reykjavíkur hefur um mörg
undanfarin ár leigt árnar af
Rafmagnsveitunum og fjöldi
manns stundað þar laxveiðar á
sumrin.
HOOVER Tauþurrkarar.
Stærð:
Hæð 85 cm, breidd 59 cm, dýpt 55 cm.
Hleðsla: 3,5 kg, af þurrum þvotti.
Þurrkkerft: Tvö, annað fyrir náttúrulegan
vefnað en hitt fyrir gerfiefni.
Hitastig: 55 C, 75 C.
Timastillir: 0 til 110 minútur.
Oryggi: Öryggislæsing á hurð,
1 3 A rafstraumsöryggi,
Taurþurrkarinn er á hjólum.
Allur stjórnbúnaður er staðsettur að framan.
—
I i
HOOVER-
VERKSMIÐJURNAR
ÁBYRGJAST
VARAHLUTI
í 20 ÁR,
EFTIR AÐ
FRAMLEIÐSLU
SÉRHVERRA
TEGUNDA
ER HÆTT
HOOVER
er heimilisprýði
Hópur nemenda Hamrahlfðarskóla sem stendur að jólavökunni í kvöld
ásamt kennara sfnum, Jóni Hnefli Aðalsteinssyni.
„Upphafin og
jardbundin ást”
— efni jólavöku Hamrahlíðarnema í kvöld
FIMMTUDAGINN 30. desember
verður haldin desembervaka í
húsakynnum Menntaskólans við
Hamrahlíð og er hún að venju
öllum opin. Yfirskrift vökunnar
er að þessu sinni „Upphafin og
jarðbundin ást“, og er víða leitað
fanga i bókmenntum, söngtextum
og fleiru, jafnt fornu sem nýju.
Hafa nemendur og kennarar
Menntaskólans við Hamrahlfð
tekið efnið saman og sjá einnig
um flutning þess, jafnt í tali og
tónum. Allur ágóði af desem-
bervökunni í ár rennur til barna-
Reykjavík
kaupir lista-
verk eftir
Níls Hafstein
Reykjavikurborg hefur
ákveðið að festa kaup á
verki eftir Níls Hafstein.
Er þetta lágmynd og var
kaupverð hennar 500 þús-
und krónur. Að sögn Páls
Líndals borgarlögmanns er
þetta lágmynd úr stein-
steypu og var verkið á úti-
sýningu i Austurstræti í
sumar sem leið. Myndin er
130 sinnum 130 sm að
stærð og kaupverðið eins
og fyrr segir 500 þúsund
kr. Páll segir að Níls Haf-
stein væri einn af þessum
yngri listamönnum, þetta
væri nútimaverk og það
hefði ekkert nafn. Ekki
hefur verið ákveðið hvar
verkinu verður komið fyr-
ir.
heimilis Félags einstæðra
foreldra, sem á að starfrækja í
húsnæði félagsins í Skerjafirði.
Sem fyrr segir er dagskráin öll-
um opin. Ekki verður krafist
aðgangseyris, en frjáls framlög i
söfnunarbauka í anddyri hins
vegar vel þegin. Vakan hefst kl.
nfu á fimmtudagskvöldið.
Fréttatilkynning frá Nem.félagi M.H.
FALKIN N
Suðurlandsbraut 8 Sími 8-46-70
HOOVER þvottavélar
Stærð: HxBxD. 85x59x55 sm.
Þvottamagn: 5 kg af þurrum þvotti.
Þvottakerfi:
1 2 til 16 algjörlega sjálfvirk þvottakerfi.
Vatnsinntak:
Heitt og kalt (blandar),
eða eingöngu kalt vatn.
Vatnshæðir:
Vélarnar velja á milli vatnshæða.
Sápuhólf: Skúffa sem skipt er I 3 hólf,
forþvottur, aðalþvottur og bætiefni.
Hitastig:
30 gr. C, 40 gr. C, og 60 gr. C, og 95 C
Oryggi: Öryggislæsing á hurð,
vatnsöryggi á sápuskúffu.
1 3 A rafstraumsöryggi.
Þvottatromla úr ryðfríu stáli.
Vélarnar eru á hjólum.
Allur stjórnbúnaður er staðsettur að framan.
Þær falla því vel í innréttingar eða undir
borð.
Einnig má sameina þvottavél og
tauþurrkara á þann hátt
að skorða þurrkarann ofan á vélina.
Hæ, hæ
og
dúddelídæ!
Gleymiö
ekki
áramótagleöskapar-
vörunum
frá Pennanum.
Hattar,
skraut, knöll,
grímur
og allt annaö
tilheyrandi.
p