Morgunblaðið - 30.12.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. DKSEMBER 1976
7
Margt er líkt
með skyldum
ÞÆR fréttir eru ekki ný-
lunda, heldur hversdags-
legur viðburður, að and-
ófsmaður, eins og það er
gjarnan kallað, sé tekinn
úr umferð í Sovétrikjun-
um, um skemmri eða
lengri tima, fyrir þær sakir
einar að hafa öndverðar
skoðanir við stjórnvöld.
Oftar en ekki fylgir sá
fréttaauki, að viðkomandi
sé Gyðingur. Þetta minnir
óneitanlega á skyldleika
við aðra (sem betur fer
gengna) einræðisstjórn,
sem ekki er svo langt að
baki i samtima sögu okk-
ar.
Stjórnarfarið i Chile og
Sovétríkjunum er hvort-
tveggja höfuðverkur
þeirra, sem berjast fyrir
persónufrelsi i skoðun og
tjáningu, hvar sem er i
veröldinni. Nú hafa þau
tíðindi gerzt, að því er
virðist, að stjórnvöld þess-
ara rikja hafa samið um
„gagnkvæm fangaskipti".
Kommúnistaforingi, sem
fangi var í Chile, fagnar
nú „frelsi" i Sovétrikjun-
um, í skiptum fyrir fang-
elsaðan rússneskan hugs-
uð, sem fékk fararleyfi til
Vestur Evrópu. Fagna ber
að báðir þessir menn
mega um frjálst höfuð
strjúka, en hitt er hörmu-
legt tímanna tákn að þann
veg skuli „verzlað" með
fólk, sem ekkert hefur til
saka unnið, annað en hafa
sjálfstætt mat á veröld-
inni umhverfis það.
Þjóðviljinn, „málgagn
sósialisma, verkalýðs og
þjóðfrelsis", þegir jafnan
þunnu hljóði um frelsi-
skerðingu fólks i „föður-
landinu" í austri. Að visu
kemur stöku sinnum fyrir,
þegar þögnin er farin að
hafa of hátt, tala of skýru
máli, að blaðið vaknar til
veikburða gagnrýni á
þjóðfélagsform, sem það
stefnir þó að. Er ekki kom-
inn timi til að blaðið
bregði nú blundi og fjalli
um þann snertiflöt
skyldra, sem þessi kyn-
lega millirikjaverzlun með
einstaklinga ber vitni um?
Hér ætti að vera efni í
eins og einn hástemmdan
sunnudagsleiðara um al-
menn mannréttindi, aust-
an tjalds og vestan.
Á réttri
leið út úr
erfiðleikunum
Timinn segir svo i leið-
ara i gær:
„Fyrstu verkefni rikis-
stjórnarinnar var að koma
i veg fyrir að efnahags-
kreppan leiddi til atvinnu-
leysis, eins og varð i flest-
um öðrum löndum hins
vestræna heims. Þetta
tókst. ísland og Noregur
eru einu löndin i Vestur-
Evrópu, þar sem ekki kom
til stórfellds atvinnuleysis
af völdum kreppunnar.
Með þessu tókst einnig að
draga stórlega úr kjara-
skerðingunni, sem hlauzt
af kreppunni, því að hún
hefði að sjálfsögðu orðið
meiri, ef stopul vinna
hefði bætzt við rýrnandi
kaupmátt launa. Af þessu
leiddi hins vegar, að
skuldasöfnun varð meiri
erlendis en góðu hófu
gegndi og halli varð á rík-
isrekstrinum um skeið.
Eigi að síður er það árang-
ur, sem aldrei verður of-
metinn, að böli atvinnu-
leysisins var afstýrt.
Annað verkefni rikis-
stjórnarinnar var að
hamla gegn verðbólgunni
og draga úr skuldasöfnun-
inni strax og aftur batnaði
í ári. Árangurinn af þessu
viðnámi rikisstjórnarinnar
er nú að koma i Ijós. Verð-
bólguvöxturinn verður
mun minni 1976 en 1975
og 1974. Rikisbúskapur-
inn verður sennilega
hallalaus á þessu ári eftir
verulegan halla á árunum
1975 og 1974. Viðskipa-
hallinn mun einnig stór-
minnka. Undir forustu rik-
isstjórnarinnar er þjóðin
því tvímælalaust á réttri
leið út úr erfiðleikunum.
Jafnhliða þessu hefur
svo verið haldið uppi
þróttmiklu framkvæmda-
starfi til að búa í haginn
fyrir framtiðina Þannig
hefur aldrei verið aðhafzt
meira i orkumálum. Til
þess að hlifa þorskstofnin-
um, hefur verið hafizt
handa um nýjar veiðar og
er þar skemmst að minna
á loðnuveiðarnar i sumar
og haust. Þannig mætti
lengi telja.
Ótalið er svo stærsta
afrek ríkisstjórnarinnar,
útfærsla fiskveiðilögsög-
unnar i 200 milur. Rikis-
stjórnin varð fyrst allra
ríkisstjórna við norðan-
vert Atlantshaf til að færa
fiskveiðilögsöguna út i
200 mílur og mætti þá
andstöðu margra, sem
enn voru andvígir 200
milna fiskveiðilögsögu.
Nú hafa þó allar ríkis-
stjórnir i þessum heims-
hluta fylgt i slóð hennar.
Yfirráð íslands yfir 200
milna fiskveiðilögsögu
voru viðurkennd i reynd
með Oslóarsamningnum.
Það verður þvi ekki
annað sagt en að starf
ríkisstjórnarinnar hafi
skilað góðum árangri,
þrátt fyrir mikla erfið-
leika, sem þurft hefur að
fást við."
Sr. Bernharð Guðmundsson — Addis Abeba
Sölumönnum frá barnavagnaverksmiójum Ken>;ur illa aö finna
markaö fyrir afuröir sínar f Nígerfu.
Kostir
Er við lentum á flugvellinum
í Lagos í Nígeríu, bar notaiega
sjón fyrir augu. Það var verið
að ferma stóra og vörpulega
flugvél með þrjá ferninga mál-
aða á stélið og heitið Cargolux.
Nokkrum vikum áður er ég var
að yfirgefa Indland, var það
einmitt Cargolux vél, sem bar
seinast fyrir augu við flugtak í
Bombay.
F'erðafélagi minn, Dani,
muldrar í nöldurtón: Maður
gæti haldið að þetta Cargolux
væri í hópi þeirra stóru —.
Ég svaraði engu, það sjást
sjaldan SAS-vélar á þessum
breiddargráðum, svo að þetta
er svolítið viðkvæmt mál fyrir
nýlenduherrana fyrrverandi.
En handritin eru komin heim
og sjálfsagt að halda friðinn!
Að finna sjálfan sig
Reyndar er það ótrúlegur
kostur I starfi mínu hér að vera
frá litlu landi, sem var nýlenda
um langan aldur. Afríkumenn
reyna að efla sjálfsmynd sína
og hvítir menn eru því ekki
sérlega velkomnir gestir all-
staðar. Þeir eru umbornir, og
stundum varla það, því að þeir
eru óbeinir fulltrúar þess valds
sem hefur kúgað og nytjað
Afríkumenn. Nærvera þeirra
ein hefur oft á tiðum lamandi
áhrif á framtak og frumkvæði
heimamanna, sem er aldir upp
sem þjónar nýlenduvaldsins.
Og það býr lengi að fyrstu gerð.
Yngri menn reyna að forðast
að falla í sama pytt sem feður
þeirra, þess vegna leita þeir til
hinna öfganna, og forðast sam-
skipti við hvíta manninn og
sýna honum jafnvel andúð.
Þetta getur haft mjög óheppi-
legar afleiðingar, ekki sízt þeg-
ar um þróunaraðstoð er að
ræða. Enn sem komið er, eru
það aðeins vestrænir menn sem
ráða yfir þeirri kunnáttu, sem
nauðsynleg er til þess að bæta
hag landsmanna í ýmsum til-
vikum. Menn ganga lengra en
þá sjálfa langar til í rauninni til
að hbista af sér áhrif hvíta
mannsins.
Sérílagi eiga vestrænar stór-
þjóðir erfitt uppdráttar hér að
þessu leyti. Fer það eftir lönd-
um, hverjir eru óvinsælastir,
Bretar, Frakkar, Þjóðverjar
eða Bandaríkjamenn.
Norðurlandabúar eiga yfir-
leitt ekki f umtalsverðum erfið-
leikum. Þeir koma frá hlutlaus-
um smáþjóðum sem oft á tíðum
hafa sýnt skilning í verki á
vandamálum Afriku.
Bróðir
Þegar það spyrst hvaðan ég
kem, verður viðmót manna hér
stórum hlýrra. — Tvö hundruð
þúsund manna þjóð — og þeir
skellihlæja.
Og urðuð sjálfstæð í striðslok,
sko til —.
Eg bendi auðvitað á þá stað-
reynd að við byggjúm meir á
gæðum en magni, en þeir hafa
yfirleitt mótað sér skoðun,
semsé: Fyrst þessi náungi kem-
ur frá fámennu nýríki, sem
hlýtur að vera fátækt, er hann
eiginlega i sama báti, þótt húð-
liturinn sé dapurlega bleikur.
Og auðvitað hafa þeir rétt
fyrir sér. Nígerfu, með 80
milljón íbúa, stendur trúlega
Framhald á bls. 1!)
Gæsluvellir í Garðabæ
verða lokaðir í janúar og febrúar.
Félagsmálaráð Garðabæjar.
Söngskglinn í Reykjavík
The Reykjavik School of Singing
Loufásvegi 8 - Reykjavik
TÓNLEIKAR
Söngskólans í Reykjavík
verða endurteknir í kvöld fimmtudagskvöld kl.
8.30 í Fossvogskirkju
Kór söngskólans og sinfóníuhljómsveitin í
Reykjavík flytja verk eftir Sibelius, Sigfús
Einarsson, Verdi, Jón Ásgeirsson, Þorkel Sigur-
björnsson og Malotte.
Stjórnandi:
Garðar Cortes
Aðgöngumiðasala hjá Eymundsson og við
innganginn.
Orðsending
til Caterpillar-
eigenda
Varahlutaafgreiðsla okkar
verður lokuð dagana 3.—6.
janúar vegna vörutalningar.
HEKLAhf
Laugavegi 170—172 — Sími 21240
almanak
1977
Nokkur eintök af hinu margumtalaða
Hestaalmanaki 1 977 eru enn óseld. Tólf
stórar litprentaðar Ijósmyndir af íslenzkum
hestum. Þeir, sem áhuga hafa á að eignast
almanakið, geta snúið sér beint til lceland
Review að Stóragerði 27, sími 81 590, eða
póstlagt pöntun ásamt greiðslu. Hvert eintak
kostar kr. 1850.
—---------— — klippið hér — — — — —
Undirritaður óskar að kaupa .... eintök af Hesta-
almanaki 1977 á kr. 1860 eintakið. Greiðsla er
hjálögð.
Nafn
Heimili
Sendist lceland Review, pósth. 93, Reykjavik.
1 3 4 5 6 7 8
10 1112131415 171819202122
242526272829 31