Morgunblaðið - 30.12.1976, Qupperneq 8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1976
Skákdæmi
og tafllok
í ÞESSUM þætti verða
einungis birt nokkur
skákdæmi og tafllok og
verða veitt verðlaun fyrir
rétta lausn þeirra. Svör
verða að hafa borizt blaðinu
fyrir 10. jan. 1977. Tíma-
ritið Skák veitir þrenn
bókaverðlaun, en ein bók-
anna verður: Skáldskapur á
skákborði eftir Guðmund
Arnlaugsson, sem minnst
hefur verið á áður i þessum
þáttum. Þessi þáttur mun
hefjast á stuttum úrdrætti
úr fyrrnefndri bók
Guðmundar.
Úr bókinni
„Skáldskapur
á skákbordi
„Elztu skákþrautir sem enn
eru kunnar, eru frá Aröbum á
niundu öld. Tafllistin stóð þá
með miklum blóma og til eru
ýmis handrit frá þessum
tíma, er fjalla um skák.
Fyrstu sporin virðast hafa
verið þau, að menn hafa
skrifað upp lok tefldra skáka,
er þóttu svo eftirminnileg að
þau mættu ekki glatast.
Síðar komast menn upp á
það lag að endurbæta tafl-
lokin: fleygja fyrir borð þeim
mönnum, er eigi áttu hlut-
verki að gegna í sjálfum
lokunum. Þetta er fyrsta
skrefið í átt til skáldskapar:
atburðurinn er settur á svið
til þess að hugmyndin komi
Ijósar fram. Sameiginlegt
nafn á þessum arabisku
skákþrautum er mansúba.
Af þeim eru rúmlega þúsund
til og þær skiptast i aðal-
atriðum í tvo flokka eins og
þrautir gera enn í dag: skák-
dæmi (problem), þar sem
krafan er að máta eftir
ákveðinn fjölda leikja, og
tafllok (stúdiur), þar sem
krafan er einungis að vinna
eða halda jafntefli ''
„Ekki er ósennilegt að
Arabar hafi kynnzt skákinni
hjá Persum, en þeir lögðu
Persíu undir sig á 7 öld. Þá
var gangur drottningar og
biskups annar en nú, og
breyttist ekki fyrr en á 15
öld Á mansúnaþrautunum
má einnig sjá, að það hefur
verið um þrennskonar sigur
að ræða: mátsigur, pattsigur
og drápsigur (að fella alla
menn anstæðingsins nema
kónginn, en eiga eítthvað
eftir sjálfur, þó ekki nóg til
þess að máta). Frá Aröbum
berst tafllistin svo yfir til
Evrópu, sennilega ekki síðar
en á tíundu öld.
Litíð er vitað um taflþrautir
fyrstu aldirnar, en þó eru til
heimildir um það, að þrautir
voru notaðar til veðmála, og
hafa þá að sjálfsögðu einkum
verið gerðar úr garði með
það sjónarmið fyrir augum,
að lausnin væri sem vand-
fundnust. Frá þrettándu öld
er til latneskt handrit, er
fjallar um skák: Civis
Bononiae — borgari í
Bononíu."
Fyrsta skákdæmið er úr
þessu fyrrnefnda riti, tekið úr
bók Guðmundar,
1.
Cívis Bononiae.
fÉl wfc, ‘Tlf wm §§
lHI wm ÉÉÉ ■
§jj PÉP WM m
■ '""7 ■
iil lH i§§?
* má Wm jgp ww< wm. §H 1
p ■ íb
jj wm Jjp ■
Hvítur á að máta í 5. leik
Næsta þraut eru tafllok
eftir hinn kunna sovézka
skákdæma og tafllokahöfund
SKák
eftir GUNNAR
GUNNARSSON
Alexander Kasanzev. Þau
unnu til gullverðlauna í
Olympíukeppni skákdæma
og taflloka árið 1968. (Jafn-
hliða hverjum Olympíuskák-
mótum fer fram slík keppni).
2
Alexander Kasanzev
up hp ■ §§
®1 ÉP 1 jjl
M: 9 g ém, km ■T
ip
uj iii
WM wm. ■ 9 Wm & V>777Zr/.
?< pp ni wm
Hvítur leikur og vinnur.
Næsta þraut er eftir Sam
Loyd (var einn fremsti skák-
dæmahöfundur heimsins),
en hann var einungis 1 5 ára
þegar hann bjó til eftirfarandi
þraut sem er Ijómandi
skemmtileg. Áreiðanlega
munu margir hafa gaman af
að glima við þessa þraut,
jafnvel þeir sem ekki eru van-
ir að leysa þrautir. Þá vís-
bendingu má gefa við lausn
þessarar þrautar, að einungis
tveir menn svarts geta sig
hreyft, þ.e báðir biskuparn-
ir Fari hinsvegar biskupinn á
fl. i burtu (án þess að skáka)
verður svartur mátjrieð BxH.
Þessvegna er það einungis
biskupinn á h2 sem getur
leikið fram og til baka á
reitunum h2 og g1. Það er
hvítur sem á leik og hann
mátar i 14 leikjum.
3
Sam Loyd
Næsta þraut er eftir
óþekktan sovézkan skák-
dæmahöfund, R. Koffman. I
fljótu bragði virðist hvítur
eiga marga möguleika á að
máta, en svartur hefur þá ráð
undir rifi, nema einu ...
4
R. Koffman
Hvítur leikur og mátar í 3
leik
Næsta dæmi hlaut 1. verð-
laun i skákdæmakeppni á
ítaliu, (en austur-þýzka skák-
blaðið hafði hana i huga,
þegar það gaf lesendum sín-
um upp nokkra lykilleiki til
lausnar og óskaði eftir tillög-
um um hvernig þrautin liti
út.)
5.
A. Mari.
Hvítur mátar i 2. leik
Næsta dæmi er einfalt og
snoturt, en býr yfir talsvert
óvæntri lausn, þannig að sér-
hver áhugamaður, jafnvel þó
hann sé ekki vanur lausnum
skákdæma kemst ekki hjá að
meta þessa þraut, þar sem
hvítur á að máta í 3 leikjum.
Höfundurinn er Otto
Wurzburg, sem samdi fjölda
fallegra dæma, enda hlaut
þrautin nafnið „Glæsileiki".
Án þess að segja of mikið má
geta þess að í þessu litla
meistaraverki eiga sér stað
nokkrir „uppvakningar" af
léttarí taginu.
6
0 Wurzburg
Hvítur leikur og mátar i 3.
leik.
Síðasta þrautin að þessu
sinni er talsvert glettin.
Hvítur er á góðri leið með að
vekja upp drottníngu á h8,
en við sjáum fljótlega að ef
hann leikur 1. h7—gxh2 2.
h8D — g3 kemst hann
ekkert áleiðis. Hvað er þá til
ráða. . . Látið ekki hugfallast
þó leikirnir séu 1 5, þeir eru
allir þvingaðir.
7.
Kok
Hvítur mátar í 1 5. leik.
Lausnir munu birtast 13.
janúar 1977.
Góða skemmtun."
— Nýja kvenna-
deildin
Framhald af bls. 3
sjúklingum hefur að vísu ekki fjölg-
að nema u þ b 25% á síðustu
tveimur árum, en hins vegar hefur
aðgerðafjöldi tvöfaldazt á þessu
tímabili Göngudeildarsjúklingum
hefur einnig fjölgað um helming,
þ e úr tæplega 6000 í um 1 2 000
sjúklmga en sú fjölgun kemur
einkum til af því. að þar fer fram
mæðraeftirlit þeirra kvenna, sem
hafa sjúkdóma eða aukna áhættu á
meðgöngu Þar við bætist eftirlit
sjúklinga eftir fæðingu og aðgerðir
og síðast en ekki sízt aukin bráða-
þjónusta við sjúklinga utan sjúkra-
hússins.
Auk þess sem nýbyggingin skapar
aukið legurými hefur einnig skapazt
aðstaða til að nýta ýmsar tæknilegar
nýjungar bæði hvað varðar skurð-
læknmgar. geislameðferð og
fæðingarhjálp Ýmis tæki hafa verið
gefin af áhugamannahópum og má
þar nefna örbylgjutæki sem samtök
kvenna gáfu deildinni, en tæki þetta
gjörbreytir allri aðstöðu til greining-
ar á sjúkdómum á meðgöngu og til
eftirlits með ástandi fósturs í móður-
kviði Þá er á næstunni von á mjög
fullkomnum tækjum, sem skrá hjart-
slátt fósturs og styrkleika hríða á
meðan á fæðingunni stendur, en
þannig má m.a. greina súrefnisskort
hjá fóstrinu fyrr en ella og fyrir-
byggja heilaskemmd og/eða dauða
fósturs.
Kostnaður við byggmgu Kvenna-
deildarinnar er orðinn um 266
milljónir Tæki og ýmis búnaður
hefur 4<ostað um 65 milljónir og eru
þar með taldar 8 7 milljónir í gjöf-
um til deildarinnar Enn er þó ólokið
kaupum á nokkru af tækjabúnaði og
á fjárlögum fyrir árið '77 er gert ráð
fyrir 1 5 milljónum króna til tækja-
búnaðarkaupa
— Bandarískur
Framhald af bls 11
jörðum dollara 1975 vegna þenslu
og söfnunar olíubirgða síðustu
mánuðina áður en OPEC hækkaði
olíuverðið. Matvælaútflutningur
Bandaríkjamanna virðist hafa
verið óbreyttur frá fyrra ári eða
um 15.4 milljarðar dollara þar
sem jafnvægi hefur aukizt í land-
búnaðarmálum heimsins.
Fluaeldasala Ármanns
I! m »J. W.l IJ-L. i I. um-?. ..j i'ÍT'J H.Pia
er í Blómaval og
Ármannsheimilinu
arnir erc
-2.5004
. og
rari - þeir
OJcrónur.
Ókkar verð á fjölskyldupokum
1.000 - 1.500 - 2.000.
Gerið verðsamarsburð.
við Sigtún
Opið til kl. 10 í kvöld og 4 á gamlársdag
Knattspyrnudeild Armanns.