Morgunblaðið - 30.12.1976, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1976
11
Hættu að
sýna
Entebbe
Tókfó, 29. des. Reuter.
BANDARÍSKA kvikmyndin
„Sigur á Entebbe" hefur verið
tekin af sýningarskrá kvikmynda-
húss I Tókfó, sem hafði byrjað að
sýna myndina. Astæðan sem upp
er gefin er að aðsókn að myndinni
sé ekki nokkur og einn daginn
hafi til dæmis aðeins 200 manns
komið að sjá myndina, en það hús
hýsi um tvö þúsund gesti.
Warner Brothers kvikmynda-
fyrirtækið sem gerði myndina
mótmælir þeirri staðhæfingu að
þetta sé af pólitískum ástæðum,
en vitað er að fimm sendiherrar
Arabaríkja mótmæltu harðlega
þegar myndin var tekin til sýning-
ar í Japan. Myndin hefur sætt
gagnrýni fyrir einhliða túlkun á
atburðunum og þar sé hlutdrægni
alltof mikil og þess ekki gætt að
draga fram fleiri hliðar málsins
en skyndiáhlaup ísraela og fræki-
lega framgöngu þeirra.
Bannað
að taka
Jesúmynd
í ísrael
Jerúsalem, 29. des. Ntb.
DANSKA kvikmyndastjóranum
Jens Jörgen Thorsen hefur verið
neitað um leyfi til að taka hluta
af sinni umtöluðu mynd og um-
deildu um kynlff Jesús Krists f
tsrael, að þvf er talsmaður innan-
rfkisráðuneytisins kunngerði f
dag.
Er þetta ákveðið svo vegna mik-
illa andmæla sem beiðni Thors-
ens hafði sætt f landinu og reynd-
ar víðar.
„Enda þótt trúfrelsi sé í tsrael
og rfkisstjórnin forðist að blanda
sér í deilur um trúarleg efni, telja
stjórnvöld sig knúin til að koma f
veg fyrir að kristin trú sé svívirt á
þennan hátt“, sagði f tilkynning-
unni. Þar var bætt við að Thorsen
sé velkominn til Israel eins og
hver annar ferðamaður en það
verði ekki liðið að hann taki þar
upp klámsenur i mynd sína.
John Adams
Thomas Jefferson
Merkur skjalafundur í Boston:
Helmingur hand-
ríts að sjálfstœðis-
yfírbjsingu fundinn?
Boston, Massachusetts 29. des. AP.
TVÆR blaðsíður úr plaggi sem gæti verið helming-
ur af upprunalcgu handriti að sjálfstæðisyfir-
lýsingu Bandarfkjamanna hafa nú fundizt í Boston.
Prestur nokkur, James K. Allen, sem fann plöggin,
kveðst ekki vera í neinum vafa um að þau séu ekta.
Hann segir að þau séu í skjalabunka sem fornvinur
hans hafi fært honum að gjöf.
Sérfræðingur við Þjóðskjalasafnið í Washington
sem kannaði bloðin tvo
myndi taka langan tíma
hvort þessi blöð, sem eru
skrælnuð, væru ósvikin.
Upprunalega sjálfstæðisyfir-
lýsingin var handskrifuð með
penna og bleki af Thomas
Jefferson og John Adams sem
báðir urðu forsetar Bandaríkj-
anna og var yfirlýsingin sam-
þykkt þann 4. júlí 1776.
Blöðin voru afhent prentara
sem vann næturlangt að því að
prenta eitt þúsund eintök til
dreifingar í nýlendununum
þrettán sem verið höfðu undir
Bretaveldi. Allar fjórar blaðsíð-
ur upprunalega skjalsins týnd-
ust hjá prentaranum og komu
ekki fram og Allen segir að
ekki sé vinnandi vegur að átta
rir tiu dögum sagði að það
að ganga úr skugga um
orðin illa farin, gulnuð og
sig á hvar hin blöðin tvö hafi
lent.
Hann sagði að margt benti til
að blöðin sem hann fann í
skjalabunkanum væru ósvikin.
Á blaðsíðu númer tvö séu þrjár
línur sem prentarinn sleppti en
var síðan bætt inn siðar. Sömu-
leiðis sýnir brotið á blöðunum
að prentari hafi farið um þau
höndum að sögn sr. Allens þar
sem prentarar stilli blöðum upp
á sérstakan máta meðan þeir
eru að setja textann.
Sr. Allen segir að vinur sinn
hafi fundið skjölin á háalofti
hjá sér og viti ekki hvaðan þau
hafi verið þangað komin.
Sigur fyr-
ir Soares
Lissabon, 29. des. Reuter.
MINNIHLUTASTJÓRN Mario
Soares I Portúgal vann umtals-
verðan sigur I tveimur atkvæða-
greiðslum ( portúgalska þinginu i
morgun, þegar til afgreiðslu kom
efnahagsmálafrumvarp rfkis-
stjórnarinnar, sem hart hefur
verið deilt um og óspart sætt
gagnrýni stjórnarandstöðunnar.
Mario Soares forsætisráðherra
Mario Soares.
hafði hótað því að segja af sér ef
frumvörpin yrðu ekki samþykkt.
Sósíaldemókratar, stærsti
stjórnarandstöðuflokkurinn,
greiddu atkvæði gegn fyrra frum-
varpinu en kommúnistar og mið-
demókratar sátu hjá. Allir þrir
stjórnarandstöðuflokkarnir sátu
hjá við afgreiðslu fjárlagafrum-
varpsins sem var næst á dagskrá
og var því frumvarpið samþykkt
með 98 atkvæðum. Tveir þing-
menn sósíalista greiddu atkvæði
gegn þvi og einn frá vinstriöfga-
flokknum UDP.
í fjárlagafrumvarpinu er gert
ráð fyrir 59 milljarða eskúta
viðskiptahalla á árinu. Meira fé
verður varið til fræðslumála, efl-
ingar landbúnaðar og ferðamála.
Þá verða gerðar markvissar ráð-
stafanir til að draga úr innflutn-
ingi og neyzlu og efla framleiðslu
innanlands. Stefnt er að því að
draga úr atvinnuleysi og verð-
bólgu samkvæmt frumvarpinu.
Bæði sósíaldemókratar og mið-
demókratar sögðu að í frumvörp-
unum væri ekki hugsað nægilega
fyrir þvi að aðstoða einkafram-
takið f landinu.
Bandarískur
greiðsluhalli
Washington, 29. desember
Reuter.
ALLT bendir til þess að 5.5 mill-
jarða dollara halli verði í árslok á
viðskiptajöfnuði Bandarfkjanna
maðað við 11 milljarða dollara
afgang 1975.
Samkvæmt tölum bandarfska
verzlunarráðuneytisins var hall-
inn í nóvember 906.2 milljónir
dollarar, sem er met. Þar með
nemur hallinn fyrstu 11 mánuði
ársins 5.01 milljarði dollara.
tJtflutningur nam 114 milljörð-
um dollara á ársgrundvelli fyrstu
11 mánuðina og innflutningur 119
.5 milljörðum dollara samkvæmt
upplýsingum ráðuneytisins. .
Greiðsluhallinn hefur aukist
um 500 milljónir dollara ef þróun-
in hefur haldizt óbreytt í
desember. Ef engar meiriháttar
breytingar verða í utanrikisvið-
skiptum er liklegt að Bandaríkja-
menn haldi áfram að eyða meira
erlendis á næsta ári en aðrar þjóð-
ir eyða i Bandarfkjunum.
Hins vegar skipta utanrfkisvið-
skipti Bandarikjamenn miklu
minna máli en þjóðir eins og
Breta og Japana. Vandamálið er
þvi ekki eins alvarlegt og virzt
gæti í fljótu bragði. Auk þess
getur greiðsluhalli verið visbend-
ing um þenslu en ekki samdrátt
þar sem Bandaríkjamenn flytja
inn hráefni.
Innflutningur á hráoliu jókst i
33 milljarða dollara úr 25 mill-
Framhald á bls. 8
7 slösuðust
Ertu með f bílaleik?
er vél
nauðlenti
Granada 29. des. Reuter
SJÖ manns slösuðust þar af tveir
alvarlega þegar spænsk farþega-
flugvél ( innanlandsflugi
nauðlenti á flugvellinum (
Granada, eftir að tilkynningin
hafði borizt um að sprengju hefði
verið komið fyrir ( vélinni og
myndi hún springa á hverri
stundu.
Það var vél frá Iberia sem var (
venjulegu áætlunarflugi frá
Sevilla til Valencia þegar maður
hringdi til skrifstofu félagsins og
sagði að sprengja væri um borð.
Var þá ákveðin lending á næsta
flugvelli og þar leituðu öryggis-
verðir gaumgæfilega I vélinni en
fundu ekkert.
, ERLENT,
• MEÐ UMFERÐARKORTINU þjálfar þú þig og þína í umferðar-
reglunum. • Eykur þar með öryggi ykkar í umferðinni.
• Og þið takið hvert um sig þátt í samkeppni um glœsileg verðlaun:
Umferðarkortið fæst gegn 200
króna gjaldi, á aðalskrifstofu okkar,
í umboðum okkar og ýmnum
verslunum.
Kanaríeyjaferð fyrir þrjá
með Samvinnuferðum.
SVARSEÐILL
1.1
1,3
1,4
l,5a)
2,2
já nn
□ □ 3,1
□ □ 32
□ □ 3.3
□ □
□ □<1
□ □ 4.2a)
b)
□ □^,3
□ □ 4.4a)
□ □ b)
□ □ 4,5a) □□
_____________b) □□
NAFN ÞATTTAKANDA
ji nei
□ □ 5,la)
□ □ b)
□ □ c)
5,2a)
□ □ b)
□ □ 5,3a)
□ □ b)
□ □
□ □ e.la)
□ □ b)
□ □ 7,la) □□
□ □ b) □□
□ □ 7.2a) □□
□ □ b) □□
□ □ 7,3a) □□
□ □ b) □□
□ □
□ □
□ □
SAMVINNUTRYGGINGAR G.T, !
ÁRMULA 3. SlMI 38500 1
HEIMILI:
SlMI: