Morgunblaðið - 30.12.1976, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1976
A Kristi Jesú
byggjum vér allt
Kvedjuræda séra Jóns Þorvarðs-
sonar í Háteigskirkju
Texti: Hebreabréfið 12,2 og I
pistli dagsins, Ef. 5,20.
Beinum sjónum vorum til
Jesú, höfundar og fullkomn-
ara trúarinnar.
Þakkið jafnan Guði, föðurn-
um, fyrir alla hluti f nafni
Drottins vors Jesú Krists.
Þegar postularnir hófu trú-
boðsstarf sitt, var boðskapur
þeirra fyrst og fremst vitnis-
burður um Krist. Þannig var
það á hvítasunnudag, er Pétur
flutti sína áhrifamiklu predik-
un. Og af bréfum Páls postula
og frásögnum Postulasögunnar
er það ljóst, að hvar sem Páll
kom og hóf starf, byrjaði hann
á þvi að boða Krist, segja frá
honum — vekja menn til trúar
á hann, til samfylgdar við hann.
Enda sagði hann: „Annan
grundvöll getur enginn lagt en
þann, sem lagður er, sem er
Jesús Kristur.“ Og á öðrum stað
segir hann: „Ég ásetti mér að
vita ekkert á meðal yðar annað
en Jesúm Krist og hann kross-
festan.“ Þannig var Kristin-
dómurinn boðaður í upphafi
sem vitnisburður um Krist. Sá
sami vitnisburður hefur verið
fluttur öld af öld og svo mun
enn verða á komandi tímum.
Þvi að á Kristi Jesú byggjum
vér allt í trúarefnum vegna sér-
stöðu hans í mannheimi, hans,
sem var ljómi Guðs dýrðar og
ímynd hans veru, í heiminn
kominn í fyllingu tímans til að
opinbera oss föðurinn og hans
heilaga vilja. —
Allt, sem guðspjöllin fræða
oss um Jesú, vitnar um tign
hans, dýrð hans, þá fullkomnu
elsku hans, að hann gaf lif sitt á
krossi, til þess að sérhverjum,
sem á hann trúir skyldi vera
„vegur greiddur í Guðs náðar-
ríkið inn“. Um sjálfan sig sagði
Jesús: „Sá, sem hefur séð mig,
hefur séð föðurinn." — Þannig
opinberar Jesús oss elsku Guðs,
ekki aðeins með bopskap sín-
um, heldur lífi sínu og krossins
fórn. Þetta er fagnaðarboðskap-
urinn, að Guð elskar. „Svo elsk-
aði Guð heiminn, að hann gaf
son sinn eingetinn, til þess að
hver, sem á hann trúir, glatist
ekki, heldur hafi eilíft líf.“ Það
er sá fagnaðarboðskapur, sem
kirkjan boðar öld af öld, einnig
nú á þessum tlmum umróts og
hraðfara breytinga á flestum
sviðum. En þrátt fyrir allar
breytingar tímanna er innsta
þrá mannssálarinnar hin sama.
Þeirri þrá svalar trúin, samfé-
lagið við Guð og frelsarann
Jesúm Krist í bæn og lofgerð,
tilbeiðslu og þakkargjörð. Þess
vegna hefur kirkja þessa lands
mikilvægu hlutverki að gegna,
að boða fagnaðarerindið —
„náðþyrstum sálum að svala“,
flytja vitnisburðinn um Krist,
vekja trúna á hann, að sem
flestir mættu skynja tign hans,
dýrð hans, treysta boðskap
hans óhikað og efalaust, hans,
sem er „konungur æðstur, sem
kristninni stýrir", hans, sem
uppreis til dýrðar og er með oss
og kirkju sinni alla daga og ,,er
í gær og i dag hinn sami og um
aldir“. — Og þegar ég í dag, á
tímamótum í lifi mínu, flyt
mína síðustu guðsþjónustu sem
sóknarprestur i Háteigspresta-
kalli, vil ég, að boðskapur minn
sé vitnisburður um Krist, og
því minni ég á orð textans:
„Beinum sjónum vorum til
Jesú, — höfundar og fullkomn-
ara trúarinnar.“
En þegar ég horfi til baka til
liðinnar ævi og þjónustu minn-
ar í kirkju þessa lands nokkuð á
45. ár er mér rikast I huga,
hversu mikið er þakkarefni
mitt, allt frá bernskunnar dög-
um í vernd elskandi foreldra til
þessara timamóta. Og þvi er
mér ljúft að hafa i huga og
minna á orð postulans i pistli
þessa helgidags. „Þakkið jafn-
an Guði, föðurnum, fyrir alla
hluti i nafni Drottins vors Jesú
Krists. —
Ég var vígður af Jóni Helga-
syni biskupi 23. júní 1932 að-
stoðarprestur föður míns, séra
Þorvarðar Þorvarðssonar í Vik
í Mýrdal. En er ég hafði starfað
þar um tveggja mánaða skeið,
var ég kvaddur til prestsþjón-
ustu á Akranesi í fjarveru sókn-
arprestsins þar, séra Þorsteins
Briem, sem þá var ráðherra.
Þjónaði ég síðan þar sem settur
sóknarprestur frá 1. okt. 1932
fram á sumar næsta ár 1933.
Ég er þakklátur fyrir þá
miklu vinsemd, sem ég naut
þar og við hjónin bæði. —
Minnisstæður er mér sá sorgar-
atburður, er mótorbátur frá
Akranesi fórst um veturinn
með allri áhöfn. Það var mikil
reynsla fyrir ungan prest að
koma á sorgarheimilin, til þess
að veita huggun og styrk syrgj-
endunum. Það var eins konar
vígsla inn í heim sorgarinnar.
En svo reyndist það þá og ávallt
síðan I likum tilfellum, að í
sorginni veittist styrkur trúar-
innar — huggun og sá friður,
sem æðri er öllum skilningi. —
Ég nota þetta tækifæri, til þess
að flytja Akurnesingum, sem
mig muna eftir svo mörg ár,
kveðjur minar og alúðar þakk-
ir.
Frá Akranesi lá svo leið mín
aftur til aðstoðarprestsstarfa í
Mýrdal, þar sem ég var síðan
skipaður sóknarprestur vorið
eftir 1934. Það er margs að
minnast og margt að þakka frá
starfsárunum í Vík, I Skeiðflat-
ar-, Reynis- og Vikursóknum.
Ég minnist vigsludaga tveggja
kirkna í prestakallinu, Víkur-
kirkju haustið 1934 og Reynis-
kirkju vorið 1946, minnist af-
reka safnaðarfólksins við bygg-
ingu þessara kirkna með sjálf-
boðavinnu og ríkulegum fjár-
framlögum. En þeim mun meiri
var sigurgleðin að verki loknu.
Þegar ég svo 1952 sótti um
Háteigsprestakall, sem þá var
nýstofnað í Reykjavík og var
skipaður sóknarprestur þar frá
1. nóv. eða fyrir nákvæmlega 24
árum, þá var það mér átak og
áreynsla að hverfa frá prests-
og prófastsstörfum eystra — og
kveðja fólkið, sem ég var
traustum vináttuböndum
tengdur allt frá bernskudögum.
í mínum huga var ég þannig
tengdur hverju heimili. En með
bjartsýnum hug hugsaði ég til
starfsins, sem mín beið hér í
Reykjavík, þar sem safnaðar-
starfið varð að skipuleggja frá
grunni án kirkju og án þess að
vitað væri, hvar guðsþjónustur
og barnasamkomur gætu farið
Séra Jón Þorvarðsson
fram. Hægara var að fá afnot
kirkna til helgra athafna ann-
arra.
Rétt þykir mér að geta þess
hér, að ég hafði dvalið erlendis
veturinn 1935—1936, fyrst i
Englandi og síðan á Norður-
löndum, aðallega í Danmörku. í
Kaupmannahöfn kynntist ég
öldruðum presti, sem tekið
hafði við nýstofnuðum söfnuði,
kirkjulausum. Þar var byrjað á
því að kaupa veitingastað, inn-
rétta hann sem kirkjusal og
notaður var sem kirkja, meðan
verið var að byggja framtiðar-
kirkjuna. — Ég hreifst svo af
frásögn hins aidna prests um
sögu safnaðarins, — að löngun
vaknaði hjá mér til þess að
vinna síðar að hliðstæðu starfi i
vaxandi byggð Reykjavíkur.
Þetta var mér i huga, er ég sótti
um Háteigsprestakali og einnig
góð reynsla af áhuga og fórn-
fýsi safnaðanna i Mýrdal við
kirkjubyggingar þar.
Og nú verð ég að fara fljótt
yfir sögu. Fyrstu guðsþjónustur
minar voru I kirkjum Reykja-
vikur, síðan um allmörg ár í
húsi Sjómannaskólans — fyrir-
huguðum hátiðasal. En ferm-
ingar og altarisgöngur og
hjónavígslur voru i Dómkirkj-
unni og að nokkru i Fríkirkj-
unni. Sérstaklega er ég þakk-
látur safnaðarfólkinu, sem í
Sjómannaskólann sótti guð-
þjónustur við næsta ófullkomin
skilyrði. Og með mikilli gleði
minnist ég ánægjustundanna
með hinum mikla fjölda, sem
sótti barnasamkomurnar, og er
þakklátur þeim, sem með mér
störfuðu við þennan þátt
prestsstarfs míns.
Og svo kom sigurdagurinn
mikli, er Háteigskirkja var vígð
4. sunnudag i aðventu 19. des.
1965 fyrir nær 11 árum. Og nú
minnist ég í þakklæti til Guðs
blessunarstundanna allra, sem
ég hefi átt í þessari kirkju.
Þegar ég nú horfi til baka
yfir starf mitt i þjónustu kirkju
þessa lands nær hálfan 5. ára-
tug, er ég þakklátur samstarfs-
fólki mínu fyrr og siðar, á Akra-
nesi, í Mýrdal og hér i Háteigs-
sókn. Ég þakka sóknarnefndar-
mönnum, safnaðarfulltrúum,
organistum, kirkjukórum og
meðhjálpurum. Ég minnist með
þakklæti þeirra fjölmörgu, sem
með gjöfum sínum lögðu sitt
fram við byggingu þessarar
kirkju og eru enn að gefa gjafir
til þess, sem hér vantar og ógert
er. Hugheilar þakkir færi ég
Kvenfélagi Háteigssóknar fyrir
ómetanlegan stuðning við starf
mitt frá upphafi og við kirkju
og söfnuð. En þá hlýt ég að
nefna nafn konu minnar, Lauf-
eyjar Eiríksdóttur, sem var for-
maður félagsins fyrstu 18 árin
og reyndar hefur verið í verki
með mér af vakandi áhuga frá
upphafi starfs mins og á í þvi
öllu mikilvægan þátt.
Mér hafa hlotnast rikulegar
gjafir Guðs, góð lfkamsheilsa til
þessa dags, elskulegt heimilis-
og fjölskyldulif og styrkur i því
starfi, sem veitt hefur mér
mikla blessun. Enginn veit það
betur en ég, hverju áfátt var í
því og hvað hefði átt og þurft
betur að gera.
Þegar ég nú læt af sóknar-
prestsstarfi, bið ég blessunar*
prestunum, sem hér eiga að
starfa, bæði þeim, sem hefur
verið samstarfsmaður minn
undanfarin ár og prestinum,
sem við starfi mínu tekur. Lof-
aður sé guð, sem oss styrka
gjörir. Guði séu þakkir fyrir
handleiðslu hans, gjafir hans,
blessun hans. Ég minni að lok-
um á orð postulans: „En hon-
um, sem eftir þeim krafti, sem f
oss verkar, megnar að gjöra
langsamlega fram yfir allt það,
sem vér biðjum eða skynjum,
honum sé dýrð f söfnuðinum og
i Kristi Jesú um öll æviskeið
öld eftir öld.“ Amen.
w.
Morgunbladid
óskareftir
blaðburðarfólki
[Vesturbær Úthverfi Austnrbær
Faxaskjól Blesugróf Bergstaðastræti
Kaplaskjóls Austurgerði
vegur Bústaðavegur
Neshagi Upplýsingar í síma 35408
MEGRUNARLEIKFIMI
\ '
Nýtt námskeiö
Vigtun — Mæling — Gufa
Ljós. — Kaffi — Nudd
Innritun og upplýsingar í síma 83295 alla virka
daga kl 1 3 — 22
} Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
Aö brenna 2000 kr.
þegar hægt er að
sleppa með 1000 kr.
FLUGELDAMARKAÐURINN,
Við ætlum að selja til áramótanna allt sem þú þarft á ótrúlega lágu verði
t d. fjölskyldupoka frá kr. 750.
Einnig úrval af: ^ flugeldum, + blysum, ^ skrautljósum, ^ knöll-
um og margt margt fleira.
Úrvalið er mikið en magnið takmarkað. Verzlið ódýrt.
Verzlanahöllinni (2. hæð)
Laugavegi 26.
Næg bílastæði Grettisgötumegin,